Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Blaðsíða 18
18 Veiðivon Silungsveiðin varð fyrir valinu, það var kominn kvóti á laxinn • Veiðimenn með fullt af bleikjum úr Hvolsá og Staðarhólsá I Dölum. • ' • Ekki þarf maður að vera hár i loftinu til komast í kynni við laxinn og á myndinni athugar Þórður Pálsson góða veiði úr Elliðaánum. DV-myndir G.Bender og fleiri „Þetta gekk ekki, ég fékk lítið í lax- veiðinni, konan var orðin vond og silungsveiðin er miklu ódýrari en laxveiðin," sagði veiðimaðurinn í samtali við DV í vikunni og bætti við: „Við ákváðum að breyta um, veiða meira með alla fjölskylduna í silungnum og það er ekki hægt að lýsa ánægjunni í hópnum.“ Saga þessa veiðimanns er ekkert einsdæmi, þeir hcifa margir stoppað í laxveiðinni og breytt um. Veiðitúr eftir veiðitúr í laxveiðinni og ekkert fæst, það gengur alls ekki. Það er hægt að komast í góðan sil- ung í mörgum tveggja, þriggja stanga veiðiám, elda sjálfir og veiða þegar menn vilja. Það er töluvert gefandi fyrir það. Árangurinn er kannski 10—15 vænar bleikjur á íluguna. Eldislaxinn vafði sig um löpp veiðimannsins Eldilaxinn er mættur í veiðiárnar og þykir mörgum veiðimönnum það miður. Fyrir nokkrum dögum var veiðimaður að veiða á Breiðunni í Elliðaánum og hafði fengið nokkra fallega laxa ofar í ánni. En hann renndi og sá lax, um þrjú pund, en hann tók alls ekki. Um leið og maðk- urinn kom að honum færði hann sig og synti nokkrum sinnum að fæti veiðimannsins. Fiskurinn vafði sig utan um löpp veiðimannsins. En að lokum fékkst hann til að taka maðk- inn og þá kom það í ljós að þetta var eldislax sem rétt náði þremur pund- um. Allir útaótína maðk Það hefur verið erfitt að fá maðk síð- ustu daga og um síðustu helgi, þegar þurrkur hafði verið í margar vikur var fjöldinn við tínslu ótrúlegur. Undirritaður var að tína víða þar sem hann hafði leyfi og var á labbi eftir Eiríksgötunni. Á bakvið Blóð- bankann voru fjórir maðkatínarar og í næstu görðum allstaðar einhver að tína maðk. í einu garðinum var fjölskylda, fimm saman að tína. Kannski þetta sé orðin aðalbúbótin hjá sumum fjölskyldum? '■ -G.Bender • Pétur Pétursson rennir fyrir bleikjur í Gufudalsá og veiddust fjórar. LAUGARDAGUR U. JÚLÍ 1990. Skallinn , Þessi saga er trá þeim tíma er Ómar Ragnarsson sá um íþrótta- þátt sjónvarpsins. Kona nokkur var reið út í manriinn simi vegna þess hversu lítiö hann sinnti henni á laugar- dögum en þá horfði hann gjarnan á íþróttirnar. „Segðu mér,“ sagði konan, „hvað er þaö sem Ómar Ragnars- son hefur fram j'flr mig?“ Og án þess að líta upp frá sjón- varpinu svaraði maöurinn: „Skalla." Rúgbrauðið Helgi Sæmundsson var eitt sinn spurður hvaða hlut hann myndi taka með sér á eyðieyju ef hann gæti aðeins valið einn. „Ég myndi taka með mér rug- brauðsvaraði Helgi. „Og af hverju rúgbrauð?“ var þá spurt. „Jú, fyrst myndi ég skera ann- an endann af því, síðan hinn og upp frá því gæti ég borðað enda- laust rúgbrauð." Heppnin Ungur drengur spurði afa sinn að því hvers vegna landkönnuð- urinn Leifur Eiríksson heíði haft viðurnefnið heppni. Sá gamh svaraði: „Ætli hann hafl ekki verið ókvæntur." Týran Hjón úr Hafnarfiröi komu eitt sinn í raftækjaverslun í Reykja- vík í þeim tilgangi að kaupa sér lampa. Komu þau þar strax auga á iampa er þeim líkaði og spurði maðurinn afgreiðslukonuna hvort hann lýsti vel. „Hálfa leið til himins,“ svaraði afgreiðslustúlkan þá. Þá heyrðist i eiginkonunni: „Við vorum nú hara að hugsa um smá týru á náttboröið." Saltið „Hvaða gagn gerir saltið í sjón- um?“ spurði kennai’hm eitt sinn ungan nemanda. „Það saltar flskinn,“ svaraði nemandinn. „Saltar fiskinn,“ át kennarinn reiðilega upp eftir honum. „Já, saltfiskinn,“ svaraði barn- ið í hinu mesta sakleysi. Finnur þú fímm breytingai? 63 Það er sama hvaö þú reynir. Það fær enginn að fara hér inn án háls- Nafn:.............. bindis ... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfángi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1) Hitateppi fyrir bak og hnakka, kr. 3.900,- 2) Svissneska heilsupannan, kr. 2.990,- Vinningarnir koma frá Póst- versluninni Príma, Hafnar- firði. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 63 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir sext- ugustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Jóna Pétursdóttir, Safamýri 54, 108 Reykjavík. 2. Valgerður Sigurðard., Dalalandi 14, 108 Reykjavík. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.