Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1990, Qupperneq 44
Breiðafjörður:
Trilla nær
sokkinn
Skjöldur DA 4, sem er um fimm
tonna plastbátur, var nær sokkinn á
Breiöahrði á fimmtudag. Einn maöur
var um borö. Mikill leki kom aö bátn-
um þar sem verið var aö veiðum
noröur af Höskuldseyj
Pegron SH 140 kom til aðstoðar.
Skjöldur var dreginn til hafnar í
Stykkishólmi þar sem tókst að dæla
úr bátnum og forða þvi að hann
sykki.
-sme
ijsabriel
HÖGG-
^ DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
Kgntuchy
Fried
Ghicken
Faxafeni 2, Reykjavík
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði
Kjúklingar sem bragð er að
Opið alla daga frá 11-22
varahlutir
Hamarshöfóa 1 - s. 67-67-44
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Rigning um sunnanvert landið
Fremur hæg suðaustanátt með rigningu verður um allt sunnanvert landið en þurrt norðantil.
Á mánudag verður hæg sunnanátt og skúrir sunnantil á landinu en víða léttskýjað nyrðra. Hiti verður 10-15 stig sunnanlands báða dagana en
víða um eða yfir 20 stig á landinu noröanverðu.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsirigar - Ás >krift - Dreifing: Simi 27022
-AAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990.
is- og hafbeitarstöðva
„Það er ekkert launungarmál að
það er stundaður umfangsmikill
veiðiþjófnaður hér á landi og þjófn-
aður á laxi í sjó er stórt vandamál
hér á landi og veldur hafbeitar-
stöðvunum miklu tjóni. Það er
umtalsvert magn aflaxi sem tapast
með þessu móti auk þess sem menn
fa fisk upp í hafbeitarstöðvarnar
þakinn í netaförum og það er illselj-
anleg vara til útflutnings.
Hins vegar er veiðiþjófnaður ekki
einungis vandamál þeirra sem reka
hafbeítarstöðvar heldur einnig
veiöiréttareigenda í ám og vötnum
svo og stangveiðimanna. Eg hef þaö
fyrir satt að það sé stundaður tölu-
verður veiðiþjófnaður i ám í Húna-
vatnssýslum. Það eru alltaf til ein-
hverjir sem vilja eyðileggja það
uppbyggingarstarf sem aðrir viima
að hörðum höndum í fiskeldi hér á
landi,“ segir Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastjóri fiskeldis- og
hafbeitarstöðva.
„Það gengur á hverju ári talsvert
mikið magn af fiski upp i stöðina
sem greinilega hefui' lent í netum.
Það er fiskur sem annaðhvort hef-
ur sloppið úr netum þeirra sem eru
að veiða lax í sjó eða flækst í net
hjá grásleppukörlunum. Þaö er erf-
itt fyrir okkur að segja í livorum
netunumfiskurinn hefurlent. Hins
vegar getum við ekki litiö fram hjá
þeirri staðreynd að til okkar berast
oft fréttir um aö menn séu að leggja
net fyrir hafbeitarlax við norðan-
vert Snæfellsnes. Okkur gengur
aftur á móti illa að koma höndum
yfir þá menn,“ segir Höröur Harð-
arson, stöðvarstjóri hjá Silfurlaxi
og veiðieftirlitsmaður á Snæfells-
nesi.
„Það verður að herða eftirlitið
með því hvað menn eru að veiða
hér við ströndina. Ein tillaga sem
hefur komið upp er að veiðieftir-
litsmenn sjávarátvegsráðuneytis-
ins taki að sér að fara um borð í
smábáta við ströndina og kanni
afla og veíðarfæri þeirra sem þar
eru að veiða. Það er spurning hvort
sjávarútvegsráðuneytið eigi ekki í
stað landbúnarðráöuneytisins að
taka ýfir eftirlit meö veiðum á laxi
og silungi hér á landi,“ segir Frið-
rik.
„Það vita allir að laxveíðar í sjó
eru bannaðar samkvæmt lögum frá
1970. Það þarf að þyngja sektir og
beita strangari viðurlögum en nú
er gert. Þetta er hagsmunamál
þeirra sem starfa í fiskeldi en ekki
bara þeirra heldur og veiöiréttar-
hafa í ám og vötnum svo og stanga-
veiðimanna. Þessir liópar þurfa því
að taka höndum saman í barátt-
unni við veiðiþjófa.“
-J.Mar
Þorsteinn Pálsson er búinn að raka sig. Eins og kunnugt er gaf hann eiginkonu sinni, Ingibjörgu Rafnar, skeggið
í afmælisgjöf. Þrátt fyrir að Þorsteinn hafi skorið skegg sitt og þar með fjarlægt afmælisgjöfina af andliti sinu er
ekki að sjá að hans heittelskaða sé óánægð.
DV-mynd GVA
Vigdís til
Lúxemborgar
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hefur þegið boð stórhertoga-
hjónanna af Lúxemborg um opin-
bera heimsókn til Lxixemborgar dag-
ana 10.-12. september 1990. -pj
Seyðisfiörður:
Færeyskur
skátaforingi
með þýfi
Lögreglan á Seyðisfirði tók fær-
eyskan skátaforingja vegna þess að
hann var með þýfi í farangrinum.
Skátinn var að fara til síns heima
með Norrænu. Hann var tekinn
vegna þess að bróðir hans hafði stol-
ið Visakorti af Bandaríkjamanni og
keypt út á kortið þrjú hálsmen að
verðmæti um 13 þúsund krónur.
Áður hafði bróðirinn verið hand-
tekinn og kortið tekið af honum.
Hann sagðist hafa beðið bróöur sinn,
skátann; að koma hálsmenunum
heim til Færeyja.
Þegar skátaforinginn var stöðvað-
ur á Seyðisfirði sagðist hann ekki
vita að hálsmenin hefðu verið illa
fengin. -sme