Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Side 7
MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 1990. 7 DV Lífsnauðsynlegt fyrir SS - en hvað um ríkið? Viðskipti Þingmenn Suðurlands þrýsta á að ríkið kaupi SS-húsið Rikisstjórnin ákvaö á fundi sínum 3. júlí aö láta kanna notagildi og kostnað við kaup og endurbætur á nýbyggingu Sláturfélags Suöurlands í Laugamesinu í Reykjavík. Fyrir Uggur að þingmenn Suðurlands hafa, allir sem einn og hvar í flokki sem þeir eru, þrýst á ríkisstjórnina að kaupa þessa byggingu sem Sláturfé- lagsmenn segja sjálfir að hafi verið mistök að byggja. Stjórnarformaður Sláturfélagsins segir að það sé lífs- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) ' hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 3,0 Allir Sparireikningar 3jamán.uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp 6 mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb 12mán. uppsögn 4-5,5 Ib 18mán. uppsögn 11 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3,0 Allir Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb Innlán meðsérkjörum 2,5-3,25 Ib Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb Sterlingspund 13,6-14,25 Sb Vestur-þýsk mörk 6,75-7,5 Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv) 13,5-13,75 Bb.Sb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 14,0 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kaupqengi Allir , Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlan verðtryggð Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb Utlán til framleíðslu Isl.krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandarikjadalir 10.10-10,25 Bb Sterlingspund 16,8-17 Sp Vestur-þýsk mörk 9.9-10,5 Bb Húsnæðislán 4.0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. júni 90 14,0 Verðtr. júní 90 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júli 2905 stig Lánskjaravísitalajúnl 2887 stig Byggingavísitala júli 549 stig Byggingavisitala júlí 171,8 stig Framfærsluvisitala júlí 146,4 stig Húsaleiguvisitala hækkar 1,5% l.júlí. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,976 Einingabréf 2 2,714 Einingabréf 3 3.275 Skammtímabréf 1.684 j Lifeyrisbréf Gengisbréf 2,161 Kjarabréf 4.930 Markbréf 2,621 Tekjubréf 1,979 Skyndibréf 1.473 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,394 Sjóðsbréf 2 1,763 Sjóðsbréf 3 1,674 Sjóðsbróf 4 1.421 Vaxtarbréf 1.6900 Valbréf 1,5885 Islandsbréf 1,031 Fjórðungsbréf 1,031 Þingbréf 1,031 öndvegisbréf 1,030 Sýslubréf 1,032 Reiðubréf 1,020 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 462 kr. Flugleiöir 180 kr. Hampiðjan 162 kr. Hlutabréfasjóður 154 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 160 kr. Eignfél. Alþýðub. 115 kr. Skagstrendingur hf. 367 kr. Islandsbanki hf. 157 kr. Eignfél. Verslunarb. 135 kr. Oliufélagiö bf. 467 kr. Grandi hf. 172 kr. Tollvörugeymslan hf. 107 kr. Skeljungur hf. 500 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóöirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. ekkert hefur gengið að selja bygginguna á almennum markaði nauðsynlegt fyrir félagið að selja þetta hús, svo þungur baggi sé það á félaginu. Sláturfélagið var búið að auglýsa húsið til sölu á almennum markaði en það seldist ekki. Þá kom upp sú hugmynd að ríkið keypti bygginguna undir Listaháskóla, þar sem kennd yrði myndlist, tónlist og arkitektúr. Nýjasta hugmyndin og sú sem líklegast verður farin er sú að ríkið kaupi húsið undir Þjóðminja- safn og að Háskólinn kaupi húseign safnsins við Suðurgötuna. „Ríkið ekki að bjarga okkur“ „Það er engan veginn vist að ríkið kaupi húsið. En fari svo tel ég að rík- ið sé ekki að bjarga okkur heldur að styrkja þá stefnu að það sé meira af hráefnaiðnaðinum úti á landsbyggð- inni,“ segir Páll Lýösson, stjórnar- formaður Sláturfélags Suðurlands. Páll segir að ljóst sé að Sláturfélag- ið þurfi ekki og ætli sér ekki að nýta húsið í Laugarnesi og sé ætlunin að vera með þungan í starfseminni í Fréttaljós Jón G. Hauksson húsakynnum félagsins á Suðurlandi, sérstaklega á Hvolsvelli. Sláturfélagið hætti að leggja meira í nýbygginguna í Laugarnesi fyrir um tveimur árum, að sögn Páls. „Það var of stór biti fyrir félagið að ráðast í byggingu þessa húss, ásamt því að byggja stórt og fullkomið sláturhús á Hvolsvelli og kaupa verslunar- húsiö á Eiðistorgi. Þetta gat ekki gengið upp. Við lifum á öðrum tímum en fyrir tíu árum þegar lánsfé var ekki verðtryggt." SS hefur selt Lýsingu hf. stórhýsið að Eiðistorgi Sláturfélagið hefur selt verslunar- hús sitt á Eiðistorgi. Það var fjár- mögnunarfyrirtækið Lýsing hf„ sem er meðal annars í eigu ríkisban- kanna Landsbankans og Búnaðar- bankans sem keypti þetta stórhýsi og þar með losnaði Sláturfélagið út úr erfiðu dæmi vestur í bæ. „Það var mjög nauðsynlegt að selja Eiðistorg- ið,“ segir Páll Lýðsson. Þingmenn Suðurlandskjördæmis hafa alhr sem einn þrýst á að ríkið kaupi húseign Sláturfélagsins í Laugarnesi. „Við þingmenn Suður- lands höfum rætt við ráðherra hvort grundvöllur sé fyrir því að ríkið yfir- taki húsiö og finni því hlutverk. Þetta er eitt glæsilegasta húsið í Reykjavík, á góðum stað og með gott landrými. Það er kjörið fyrir Listaháskóla eöa Þjóðminjasafn," segir Guðni Ágústs- son, þingmaður Framsóknarflokks- ins á Suðurlandi. Ákvörðun ríkis- stjómarinnar hinn 3. júlí síðastlið- inn, um að láta kanna kaup á ný- byggingu Sláturfélagsins í Laugar- nesi, hefur enn á ný varpað ljósi á kaup ríkisins og Reykjavíkurborgar á stórhýsum sem seljast illa eða alls ekki á almennum fasteignamarkaði. Umdeild kaup ríkisins Þekktasta dæmið frá fyrri árum er án efa kaup ríkisins á gamla Víðis- húsinu við Laugaveginn. Þá urðu kaup fyrrverandi menntamálaráð- herra, Sverris Hermannssonar, á stórhýsi Mjólkursamsölunnar við Laugaveginn fyrir nokkmm ámm ekki síður umdeild. Reykjavíkurborg hefur einnig komist verulega inn í umræðuna um kaup fasteigna af fyrirtækjum sem nauðsynlega þurfa að losna við eign- ir. Reykjavíkurborg keypti hús Al- mennra trygginga hf. við Síðumúl- Þorsteinn Pálsson er formaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti andstæðinga rikisstjórnarinnar. Guðni Ágústsson er þingmaður Framsóknarflokksins og styður rikisstjórnina. Báðir eru þingmenn Suðurlands og eiga það sameigin- legt að þrýsta á rikisstjórnina að kaupa hús Sláturfélags Suðurlands í Laug- arnesi. ann eftir að Sjóvá og Almennar sam- einuðust og illa hafði gengið að selja húsið. Reykjavíkurborg keypti veit- ingahúsið Broadway í fyrrasumar og kom það sér einkar vel fyrir Ólaf Laufdal veitingamann sem þurfti nauðsynlega að losa um eignir vegna byggingar Hótel íslands. Þá vakti það nokkra athygli á dögunum þegar Reykjavíkurborg keypti húsnæöi Al- þýðubandalagsins við Hverfisgötu. Spurningarmerkið hefur fyrst og fremst verið sett viö það hvort það sé siðferðislega rétt að stjórnmála- menn kaupi eign af stjórnmálaflokki og noti til þess fé skattborgara. Rjkið vill aukinn hlut í íslenskum aðalverktökum Víkjum þá aftur að ríkinu. Það íhugar þessa dagana kaup á fleiri stóreignum en stórhýsi Sláturfélags- ins í Laugarnesi. Ríkið vill eignast meirihlutann í einokunarfyrirtæk- inu íslenskum aðalverktökum sem á milljarðasjóði eftir að hafa eitt setið að framkvæmdum fyrir herinn á Keflavíkurflugvelli. Ríkið á íjórðung í Aðalverktökum, Sambandið fjórð- ung og Sameinaðir verktakar helm- ing. Gagnrýnisraddir á kaupin hafa einfaldlega sagt að ríkið eigi ekki að auka hlut sinn í fyrirtækinu heldur fremur að losa sig út úr því og af- nema einokun Aðalverktaka á Kefla- víkurflugvelh. Því má svo bæta hér við að kaupi ríkið 27 prósent til viðbótar í Aðal- verktökum kemur það sér ekki síst vel fyrir Samband íslenskra sam- vinnufélaga sem rær geysierfiðan líf- róður. Þess má geta að þegar Sambandið þurfti að selja stórhýsi sitt við Sölv- hólsgötu fyrir þremur árum vegna nýbyggingarinnar á Kirkjusandi var það ríkið sem kom til sögunnar og keypti. Hin gömlu sannindi koma því stöö- ugt í ljós að það þarf stóra og ríka kaupendur til að kaupa stór hús fyr- irtækja. Ríkið með alla skattpening- ana er ríkast allra. -JGH SUMARSALA nú rýmum við til fyrir haustvörum AFSLÁTTUR a f ö 1 1 u m V Ö R U M Q i !» S á m e ð a n 3 j B I R G O ■ R h K O *> *■ e n d a s t k- K o *> ________________________________________________________________________ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ u HnUHSÍksmÍS HERRflFflTflVER/LUn BIRGI/ Fákafeni 11 ~ Sími 91-31170 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.