Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 1990.
Fréttir
DV
„Nauðsynlegt fyrir kerfiskalla
að f á stöku sinnum jarðsamband“
- sagði Ólafur Ólafsson landlæknir á borgarafundi á Þingeyri
Ruslatína á markað
Nú geta landsmenn samelnast i hollu plasti sem unnið er úr sér-
ruslatínslu á ferð um landið og um stöku efni sem eyðist í náttúrunni,
leið gefið umhverfisvemd frekari andstætt öörum plastefnum, og er
gaum en áöur. Náttúruverndarfé- skaðlaust umhverfinu.
lag Suövesturlands hefur látið Ruslatínan samanstendur af
framleiða plastpoka i hentugum tveimur sorppokum, fjórum rusla-
umbúöum fyrir alla þá sem vilja pokum með handfangi og einu pari
taka til hendinni úti við, hvort af eínnota hönskum. Hægt er að
heldur í eigin garöi eða úti í náttú- verða sér úti um ruslatínu á öllum
runni. bensínstöðvum, áningarstöðum og
Pokamir, sem fengið hafa heitið helstu stórmörkuðum.
rslatinan, em gerðír úr umhverfis-
Ólafur Ólafsson landlæknir á borgarafundi á Þingeyri. DV-mynd Inga
Steingrimur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra og Július Sófnes
hverfisráðherra voru þeir fyrstu sem prófuöu nýju rusfatínuna er þeir
tíndu upp nisl á Álftanesi. -RóG.
Inga Dan, DV, Vestfjörðum;
„Ég vona að leiðrétting fáist á laun-
um einsetulækna þar sem læknafé-
lagið hefur tekið málið upp við samn-
ingagerð. Gangi það ekki eftir og fá-
ist menn ekki til starfa hér fyrir
haustið munu þessar læknisstöður
verða auglýstar á Norðurlöndunum.
Við ætlum okkur ekki að ganga í
gegnum annan svona vetur,“ sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir á borg-
arafundi á Þingeyri í síðstu viku eft-
ir að hann tók við starfi héraðslækn-
is þar í tvær vikur í sumarleyfi sínu.
ðlafur sagði að það væri alþjóðlegt
vandamál hve erfitt væri að fá lækna
til starfa í fámenni og það næði engri
átt að laun væru lægri úti á landi en
á stærri sjúkrahúsum. Nokkuð er
síðan héraðsskylda læknanema var
afnumin, einnig að starfsreynsla í
einmenningshéruðum komi mönn-
um til góða þegar sótt er um stöður
á stóru sjúkrahúsunum. Læknahér-
aðasjóður, sem ætlaö er að bæta
læknisþjónustu í strjálbýli, hefur
verið vanræktur af fjárveitingavald-
inu.
Landlæknir kom víða við í fyrir-
lestri sínum og hann hefur gengið
vafningalaust til verka sem héraðs-
læknir hér og sagði. „Það er nauð-
synlegt fyrir kerfiskalla að fá stöku
sinnum jarðsamband."
Samstarfskvikmyndir Norðurlanda:
Einstakt kvikmyndastaif
Kvikmyndastofnanir Norðurlanda
hafa gert áætlun um einstakt kvik-
myndastarf þar sem þær fjármagna
sameiginlega fimm kvikmyndir, eina
frá hverju landi, og tryggja sýningu
myndanna í öllum löndunum. Kvik-
myndasjóður íslands hefur ákveðið
að taka þátt í þessu verkefni ef fjár-
veiting fæst til þess. Danir, Svíar og
Norðmenn hafa þegar valið verkefni
en Finnar og íslendingar munu til-
nefna verkefni síðar. Gert er ráö fyr-
ir 800 milljón króna heildarkostnaði.
Þetta er í fyrsta sinn sem svo mörg
lönd taka sameiginlega þátt í að íjár-
magna kvikmyndaverkefni hvert
annars. Verkefnið er sögulegur at-
burður og það hefur vakið athygh
utan Norðurlandanna enda er hér á
ferðinni óvenjulegt framtak.
Verkefnin verða kynnt sameigin-
lega á stærstu kvikmyndahátíðum
og þannig fær íslenska verkefnið
kynningu sem við hefðum annars
ekki ráð á.
Gert er ráð fyrir því að halda opna
samkeppni um þátttöku í verkefn-
inu. Auglýst verður eftir umsóknum
og þrjúi verkefni valin af sérstakri
dómnefnd til að fá handrits- og undir-
búningsstyrki. Framleiðslustyrkur
verður væntanlega veittur í árslok
til íslenska samstarfsverkefnisins.
Dómnefndin verður skipuð þremur
mönnum, kosnum af félögum eftir-
talinna þriggja félaga: Félagi kvik-
myndargerðarmanna, Sambandi ís-
lenskra kvikmyndaframleiðanda og
Sambandi íslenskra kvikmyndaleik-
stjóra.
-J.Mar
Þorgeir Kristjánsson afhendir Gisla Sverri Arnasyni, bæjarfulltrúa á Höfn, gjöfina. DV-mynd Ragnar Imsland
Höfn:
Barnabörn
frumbýiing-
anna gáfu
trjáplöntur
Júlía ImsJand, DV, Höfa;
Bamabörn Þórhalls Daníelssonar
kaupmanns og Ingibjargar Friðgeirs-
dóttur gáfu á dögunum 764 trjáplönt-
ur sem gróðursettar hafa verið í
verðandi skrúðgarð bæjarins, það er
á svæði sem meðal heimamanna
kallast hóteltún.
Þórhallur og Ingibjörg vom meðal
frumbýlinga á Höfn og áttu stóran
þátt í uppbyggingu staðarins fyrri
hluta þessarar aldar.
DV-mynd Ragnar