Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Síða 17
MÁNUDAGUR 16. JÚLÍ 1990. 17 Lesendur Nelson Mandela og Baldur Kristjánsson: Málstaður og misrétti Þórarinn J. Jónsson skrifar: Ég var að ljúka vð lestur kjallara- greinar í DV eftir séra Baldur Kristjánsson, þar sem hann fjallar um Nelson Mandela. Þessi grein er stanslaus lofgjörð um þennan „leiðtoga", sem Baldur likir við Jesú Krist, og lætur að því liggja að varla hefði sonur Guðs fengið betri móttökur hjá mannanna börnum en maður sem hefur, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, hvatt til ofbeldis og drápa í nafni málstaðar sem er hvarvetna á und- anhaldi í Austur-Evrópu en á sér ennþá formælendur í einræðis- herrum sumra Afríkuríkja. Nú nýlega var birt mynd í einu dagblaðanna, þar sem Mandela sést taka brosandi í hönd Mengistu, for- seta Eþíópíu, en forseti þessi er frægur að endemum fyrir meðferð sína á þegnum landsins. Mandela hefur predikað að kommúnismi sé leiðin til bjargar fyrir Suður-Afríku og lítur væntan- lega til félaga sinna í Afríku sem treysta engum nema sjálfum sér til að stjórna og nota hermenn til að misþyrma og drepa fólk sem dirfist að mótmæla sfjómarfarinu. Nú má vera að séra Baldur geti litið upp til manns sem á sér sem samheija menn eins og Gaddaíi, Castro og Arafat, sem allir hafa stutt við bakið á hryðjuverka- mönnum ýmsum, sem ekki hafa vílað fyrir sér að myrða fólk með köldu blóði fyrir „málstaðinn", hver sem hann kann að vera í það ög það skiptið. Þaö hlýtur flestum að þykja und- arlegt að prestur, sem er vígður til að boða orð Drottins, skuli opin- berlega leggja nafn sitt við svona boðskap. Meðal annarra orða; gerir klerkur sér grein fyrir að með því að taka undir ósk Mandela um við- skiptaþvinganir gegn Suður-Afríku er hann að kippa grundvellinum undan lífsafkomu þeirra verst settu, ófaglærðra verkamanna og annarra þeirra sem ekki eiga þess kost að leita á náðir varasjóða þeg- ar í harðbakka slær eins og hinir efnameiri eiga fremur kost á? Þegar minnst er á kynþáttamis- munun og vísað til Nelsons Mand- ela sem eins af þolendum kynþátta- misréttis þá langar mig rétt til að benda á að títtnefndur Mandéla er lögfræðingur að mennt. - Ég held að „kynþáttamisrétti" sem lýsir sér í þvi að svartir geti útskrifast sem lögfræðingar, ef þeir kjósa svo, hljóti að vera nokkuð undarlegt ihisrétti! Nú ætla ég að slá botninn í þetta bréf en vona í einlægni að séra Baldur og aðrir ágætis menn láti ekki henda sig að leyfa lýðskrum- urum og einræðissinnum eins og Nelson Mandela að blinda sig svo gjörsamlega að þeir láti allt sem gerist af þeirra völdum verða að hinni einu sönnu trú. Jón Sigurösson iðnaðarráðherra. - Stóriðja í Eyjafirði, Reyðarfirði eða á Keilisnesi - ráðherra fylgir staðsetn- ingu, segir m.a. í bréfinu. Framboðsraunlr og staðsetning stóriðju: Ráðherra fylgir stóriðju Sandgerðingur skrifar: Núna, þegar nokkurn veginn hefur verið ákveðið að stóriðja verður ekki að sinni staðsett í Eyjafirði heldur hér á Suðumesjum eina ferðina enn, aukast framboðsraunir ráðherra kratanna. Þeir vom nokkuð vissir um að iönaðarráöherra, Jón Sigurðs- son, fengi ömggt þingsæti á Norður- landi eystra samhliða staðsetningu stóriðju í Eyjafirði og þar myndi verða liðkað til með því að biðja nú- verandi þingmann þeirra krata, Árna Gunnarsson, að færa sig um set og víkja fyrir Jóni. En nú hefur staöan breyst og staö- setning stóriðju á Keilisnesi opnar augun fyrir þeirri staðreynd að ráð- herra veröur að fylgja stóriðju, hvar svo sem hún annars hefði orðiö. - En hvernig á að koma þessu heim og saman? Það verður þrautin þyngri fyrir kratana, því hver vill víkja sæti þegar ekki er um auðugan garð að gresja fyrir frambjóðendur þessa fyrrum öfluga launþegaflokks sem Álþýðuflokkurinn var með réttu? Ef til vill verður hægt að versla eitthvaö frekar við Atlantalmenn varðandi staðsetningu stóriöju, svo að enn megi draga á langinn óvissu- þætti sem leggja verður til gmndvall- ar endanlegu staðarvali. Það er t.d. enn möguleiki á að biðja um að Reyðarfjörður og umhverfi verði skoðað enn betur og þar með væri hægt að hugsa sér að Austfirð- ingar væm tilbúnir að taka við ráð- herra á framboðslista. - En vel að merkja; það verður þá að fara að drífa í því og það allra besta í stöð- unni að fá kosningar í haust áður en loka-loka-ákvörðun er tekin um stað- arval. - En það getur verið erfitt að eiga við þessa útlendinga sem vilja bara hlusta á hagkvæmasta kostinn - fyrir sig - og skilja ekki að staðsetn- ingin getur verið undir ýmsu komin, t.d. pólitískum hrossakaupum „inn- fæddra“. Ábending til orðunefndar Ó.L. skrifar: Hinn 17. júní sl. voru 20 manns sæmdir fálkaorðunni íslensku. Flest- ir fyrir skrifstofustörf en fáir fyrir raunverulega þjónustu við land og þjóð. - Einn er sá maður sem hefur staðið alit sitt líf í þjónustustörfum við mjög góðan orðstír og liðsinnt mönnum svo þúsundum skiptir. Þetta er Jóhann Þórólfsson frá Reyð- arfirði. Jóhann hefði átt að vera búið að sæma fálkaorðunni fyrir mörgum árum. Nú er hann að verða áttræður eftir nokkra mánuði. Kannski verður hann sæmdur eftir andlát sitt. Ég held að nú sé að verða síðasta tæki- færi til að gera alvöru úr því að heiðra hann næsta gamlársdag. Það var fjöldinn allur af fólki sem átti von á því að hann yrði í 17. júní hópnum síðasta, sem ekki varö, og bað mig því að senda þessar línur svo að orðunefnd gæti kannað beiönina. NÝTTNAFN • NÝTTÚTLIT • NÝTTNAFN • r - í sumarhúsið, sæluhúsið, fjallakofann og alla kofa úr alfaraleið. G-rjómi gerir aðkomuna ánægjulega jiegar áfangastað er náð. Geymslujiolið utan kælis er margir mánuðir. Mundu það þegar þú birgir þig upp. nmr Kodak ^^!!''3r^TFM^C^I^3I!!3CM3E!!!!II!!!!IC!!!jr!C3r!!!lM^r^T!~JB^TrMrw^y-'"^r^ri,*W!!m^C!!BC^C3C3C!!!l[!3[!!3r3t!!!!3t!!!3!!!!!B!!»3Cl!!!M! GÆÐAFRAMKOLLUN Þú færð myndirnar á 60 mínútum Opnum kl. 8.30 □ 1X3 11 ■ 111 iii 11 iii f 1111111111»i tn LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF Laugavegi 178 - Simi 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið) ÍimiiiiiiMiiiiimmnmMi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.