Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1990, Qupperneq 27
39
MÁNUDAGUR 16. JÚLI 1990.
Ford F 250 XL pickup ’87, 6,9 dísil, 4x4,
splittaður aftan, keyrður 60 þús. km,
beinskiptur, tvílitur. Nýtt hús, ný
plastskúffa. Bíll í sérflokki. Uppl. í
síma 46599 og bílas. 985-28380.
Scania Ajokki ’74, 53ja farþega, til sölu,
innfl. ’86, mikið yfirfarin, gott gang-
verk, verð 1500 þús., skipti á ódýrari,
skuldabréf. Uppl. á Bílakjöri, s. 91-
686611.
Chevrolet Astro, árg. ’89, til sölu, 6
cyl., 4,3 1, með beinni innspýtingu,
sjálfskiptur, toppeintak. Skipti mögu-
leg. Vsk. fæst endurgreiddur. Uppl. í
sfma 624945 og 24995.
Honda CRX ’87, svartur, ekinn 50 þús.
km, sóllúga, low profile dekk, góðar
græjur, skipti möguleg. Uppl. í síma
91-46599,
Nissan pallbíll ’80, nýinnfluttur. Bíllinn
er ryðlaus og í mjög góðu ástandi, lít-
ið ekinn. Burðargeta tæp 2 tonn, verð
kr. 400.000 án vsk. Uppl. í síma
91-17678.
Toyota Celica '88 til sölu, ekinn 26
þús., rauður, útv./segulb., skipti á
ódýrari koma til greina, góð kjör eða
staðgreiðsluafsláttur. Uppl. í síma
91-26807 eftir kl. 18.
Smáauglýsingar
■ Liíkamsrækt
Ódýrir tímar i allt sumar, squash-rac-
ketball. Opið í sumar: mánudaga
12-21, þrið/mið/fim. 16-21, fös. 12-21
og laugar/sunnud. 10-14. Prófaðu
bestu aðstöðuna í bænum. Squash-
klúbburinn, Stórhöfða 17, sími 674333.
Squash - Racquetball. Opið í sumar
mánudaga 16-21.30, þri/mið/fim
11.30-13 og 16-21.30. Fös. 16-20.
Munið sumarafsl.kortin. Veggsport,
Seljavegi 2, s. 19011 og 619011.
■ Ferðalög
Sumarferð Félags húsbílaeigenda
verður farin laugardaginn 21.07. til
29.07. ’90. Farið verður frá Skíðaskál-
anum í Hveradölum 21. júlí kl. 14.
Ekið verður austur Fjallabaksleið
nyrðri. Meiningin er að skoða Suður-
landið að Skaftafelli. Nýir félagar vel-
komnir. Upplýsingar veittar hjá
Gunna, s. 92-37613, Björgvin, s.
91-50991, Kristjáni, s. 9146437, Haf-
steini, s. 91-667537. Stjórnin.
BR0SUM/
í umferðinni
- og allt gengur betur!
yUMFERÐAR
RÁÐ
_______________________Meiming
Þorlákstíðir í Skálholti
Nú um helgina var haldið upp á það í Skálholti að
fimmtán ár eru síðan sumartónleikar upphófust þar á
staðnum. í tilefni af þessu var ílutt dagskrá þar sem
prestar og félagar úr ísleifsreglu sungu tíöagjörð úr
Þorlákstíðum. Þá voru fluttar síðari tíma tónsmíðar
þar sem efniviður úr Þorlákstíðum er notaður.
í upphafi dagskrárinnar flutti Helga Ingólfsdóttir
ávarp en hún hefur verið stjómandi Sumartónleik-
anna frá upphafi. Sveinbjörn Rafnsson prófessor flutti
erindi um Þorlák helga og samtíð hans. Var það hið
fróðlegasta. Hins vegar er erfltt að skilja þörflna fyrir
hátalarakerfi í kirkju þar sem hljómburður er venju-
lega mikill fyrir. Það er alltaf jafnankannalegt að horfa
á mann tala en heyra hljóðið úr honum koma úr kassa
á vegg í allt annarri átt, vélrænt eins og úr útvarpi.
Þegar hljóðið úr hinum dreifðu hátölurum endurkast-
ast víðs vegar um kirkjuna verður úr grautur sem
gerir orðaskil illgreinanleg.
Því miður fylgdu ekki neinar útskýringar á tónhst-
inni í Þorlákstíðum utan þess að getið var í efnisskrá
að hún kæmi úr handriti dr. Róberts A. Ottóssonar.
Sakar því ekki að geta þess hér að tónlist þessarar
tegundar er nefnd Gregorssöngur og kennd við Gregor
I. sem var páfi 590-604. Var Gregorssöngur grundvöll-
ur tónlistar í kaþólsku kirkjunni í þúsund ár eða þang-
að til hann var aflagður á hippatímabilinu mörgum
til mikillar eftirsjár. Handrit dr. Róberts er ekki að-
gengilegt almenningi en gagnrýnandi DV hefur spurt
að í því séu færð fyrir því rök að stefin í Þorlákstiðum
séu að uppruna erlend en fyrir langvarandi þróun og
notkun orðin íslensk. Þetta er því elsta tónhst íslensk
sem ritaðar heimildir eru um, auk þess að vera vitnis-
burður þess að íslendingar stunduðu tónlistarlíf á
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
miðöldum sem fylhlega var sambærilegt við það sem
best gerðist annars staðar. í ofanálag eru stef þessi
því fegurri sem þau eru annarri tónlist einfaldari og
látlausari. Hljómuðu þau mjög vel í hljómburði Skál-
holtskirkju enda þótt flutningurinn hafi því miður
ekki verið snurðulaus.
Shka helgi höfðu menn á Gregorssöng fyrr á öldum
að engin alvarleg tónsmíð þótti á traustum grunni
byggð nema efniviður væri að einhverjum hluta þaðan
fenginn. Það var því einkar vel til fundið að flytja
ásamt tíðagjörðinni úr Þorlákstíðum verk íslenskra
tónskálda sem nota stefjaefni úr þeim. Voru flutt þarna
verk eftir Pál ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Mist
Þorkelsdóttur. Því miður var flutningur sumra ver-
kanna ekki nógu góður þótt frá því væru undantekn-
ingar eins og t.d. söngur Hrafnhildar Guðmundsdótt-
ur. Þá var frammistaða hins frábæra Hamrahlíðar-
kórs undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur meö miklum
ágætum en kórinn flutti þarna Recessional eftir Þor-
kel Sigurbjömsson og Magnificat eftir Mist Þorkels-
dóttur og var það frumflutningur á síðara verkinu.
Þessi tvö verk tóku öðrum fram um ágæti á þessum
tónleikum.
Aösókn var ágæt á þessa fimmtán ára afmælishátíð
Sumartónleika í Skálholtskirkju og er afmæhsbarninu
hér með óskaö hamingju og langra lífdaga.
8.-11. ágúst í Kaupmannahöfn. Verð 49.900.-
Innifalið: Flug, gisting með morgunverði í tvíbýli
og miði á tónleikana.
Pantið strax
RATVIS
Travel
Hamraborg 1-3, sími 641522