Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990. 49 Ólyginn sagði... Chuck Berry, rokkarinn mikli, hefur verið ákærður fyrir fikniefnamisferli og kynferöislega misnotkun á börnum. Lögreglan var með átak gegn ííkniefnum í hverfinu þar sem Chuck býr er hún fann efni heima hjá honum. Chuck sjálfur hefur ekkert viljað segja um þess- ar ásakanir. Chuck misnotaði börn með því að taka myndir af þeim nöktum. Á heimili hans fundust margar klámmyndir með börnum í aðal- hlutverkum. Kokkur, sem starfaði á veitinga- húsi Berrys, hefur lýst því yfir að Chuck hafi kvikmyndað konur á salemi veitingahússins. Ekkert hefur verið upplýst frekar um það mál. Meryl Streep varð fyrir því óláni nýlega að missa kettina sína. Hún var ný- flutt í úthverfi í Los Angeles er sléttuúlfur læddist að köttunum og át þá. En Meryl og maður hennar dóu ekki ráðalaus. Þau fóru bara og keyptu sér nýja ketti fyrir htla þúsund dollara. Meryl viU vera viss um öryggi nýju persnesku kattanna svo hún keypti hús í Beverly Hills langt frá öhum úlfum. George Michael hefur látið fara htið fyrir sér síð- an hann sló í gegn með Wham. Hann kom þó fram á rokkhátíð í Englandi fyrr í sumar. George var ekki alls kostar ánægður með hlutverk sitt þar. Hann mætti á síðustu stundu og kom með þá afsökun að hann væri langt á eft- ir áætlun við upptöku plötu sinnar. Hann sagðist ekki hafa komist fyrr vegna þeirrar vinnu. En sérfræðingamir vita betur. Hið sanna í málinu er að George vildi vera lokanúmer tónleik- anna og koma fram síðastur. Honum tókst ekki að ná því fram og síðastir voru Paul McCartney og Phil Collins eins og áætlað var. Sviðsljós Þessi fuglshattur var sýndur á tiskusýningu fyrir þrettán árum en hann Svona hattar sjást aðallega á grímuböllum. Annar hatturinn er hamborgari gæti eins verið í tísku i dag eins og árið 1977. með frönskum en hinn er fallegt blóm. Höfuðföt - til hvers eru þau? Hattar og húfur eru til margra hluta nytsamleg. Stundum er kalt í veðri svo nauðsynlegt er að skýla höfðinu með höfuðfati. Th eru margs konar húfur: rauðar, bláar og grænar, uharhúfur og lámbhús- hettur og svo mætti lengi telja. En það þykir hvorki fínt að bera uharhúfu Hún er dreymin, stúlkan með þennan rómantíska hatt. Hatturinn var sýndur á tískusýningu þar sem sumartískan 1973 var kynnt. Sara, hertogaynja af York, og Anna prinsessa voru með fremur einfalda hatta á Ascotveðreiðunum. Hattur Söru var rauður, í stíl við klæðnaðinn, en Anna var með svartan hatt. né lambhúshettu. Mun finna er að vera meö hatt. Hægt er að velja um margs konar hatta. Hattatíska er flókið fyrirbæri. En látum myndirnar tala sínu máh. Á Ascotveðreiðunum i Bretlandi er oft meira fylgst með fatnaði fólks en afrekum fáka. Hér stinga drottningarmóðirin og dóttir hennar, Margrét, saman nefjum. Að sjálfsögðu eru þær með skrautlega hatta. Sundhettur sjást yfirleitt ekki nema Díana prinsessa virðist fylgja tíðar- í sundlaugunum. Það skiptir miklu andanum betur en þær mæðgurnar. hvort þær eru rósóttar, röndóttar Hattur hennar er samkvæmt nýjustu eða einlitar. tísku. Madonna tekur sig vel út á sviðinu. Tæpast á þessi dans hennar nokkuð skylt við guðlast. Madonna í London Söngkonan Madonna hefur verið á tónleikaferðalagi að undanfornu. Um liðna helgi söng hún á tónleik- um í London þar sem sjötíu og fjög- ur þúsund aðdáendur fylgdust með. Ýmislegt hefur gengið á á ferða- lagi Madonnu. Á Ítalíu var henni hótað málsókn því kaþólskir menn töldu sýningu hennar vera guðlast. Madonna þurfti að hætta við eina tónleika vegna lélegrar aðsóknar í kjölfar umfjöllunarinnar. Hún svaraði andans mönnum fuhum hálsi engu að síður. Hún hvatti þá alla th að koma og fylgjast með á hljómleikunum og sjá það sem þar færi fram. „Sýning mín á ekkert skylt við guðlast. Þetta er skemmt- un og fræðsla," sagði Madonna. Söngkonan varar fólk við því að dæma aðra eftir trú, kynþáttum eða litarhætti. Sjálf segist Madonna vera trúuð. Hún var miður sín yfir að hafa verið svo hla tekið á Ítalíu sem hún segir vera sitt annað heimih. Amma og afi Madonnu voru ítölsk en fluttust til Banda- ríkjanna. Það er með ólikindum hvernig hægt er að koma' vörunum upp að aug- um. En Horst Ehbauer á ekki í vandræðum með það. Símamynd Reuter Grettukeppni Árlega er haldin heimsmeistara- keppni í grettum. Um síðustu helgi fór keppnin fram í Moncrabeau í Suður-Frakklandi. Sigurvegarinn þetta árið var Horst Ehbauer frá Vestur-Þýskalandi. Hann er ekki með öhu ókunnur hlutskipti sigur- vegarans því að árið 1979 sigraði hann hka í keppninni. Þátttakendur voru tólf þetta árið, frá Vestur-Þýskalandi, Englandi, Belgíu og Frakklandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.