Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1990, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990.
49
Ólyginn
sagði...
Chuck Berry,
rokkarinn mikli, hefur verið
ákærður fyrir fikniefnamisferli
og kynferöislega misnotkun á
börnum. Lögreglan var með átak
gegn ííkniefnum í hverfinu þar
sem Chuck býr er hún fann efni
heima hjá honum. Chuck sjálfur
hefur ekkert viljað segja um þess-
ar ásakanir.
Chuck misnotaði börn með því
að taka myndir af þeim nöktum.
Á heimili hans fundust margar
klámmyndir með börnum í aðal-
hlutverkum.
Kokkur, sem starfaði á veitinga-
húsi Berrys, hefur lýst því yfir
að Chuck hafi kvikmyndað konur
á salemi veitingahússins. Ekkert
hefur verið upplýst frekar um
það mál.
Meryl Streep
varð fyrir því óláni nýlega að
missa kettina sína. Hún var ný-
flutt í úthverfi í Los Angeles er
sléttuúlfur læddist að köttunum
og át þá. En Meryl og maður
hennar dóu ekki ráðalaus. Þau
fóru bara og keyptu sér nýja ketti
fyrir htla þúsund dollara. Meryl
viU vera viss um öryggi nýju
persnesku kattanna svo hún
keypti hús í Beverly Hills langt
frá öhum úlfum.
George Michael
hefur látið fara htið fyrir sér síð-
an hann sló í gegn með Wham.
Hann kom þó fram á rokkhátíð í
Englandi fyrr í sumar. George
var ekki alls kostar ánægður með
hlutverk sitt þar. Hann mætti á
síðustu stundu og kom með þá
afsökun að hann væri langt á eft-
ir áætlun við upptöku plötu
sinnar. Hann sagðist ekki hafa
komist fyrr vegna þeirrar vinnu.
En sérfræðingamir vita betur.
Hið sanna í málinu er að George
vildi vera lokanúmer tónleik-
anna og koma fram síðastur.
Honum tókst ekki að ná því fram
og síðastir voru Paul McCartney
og Phil Collins eins og áætlað var.
Sviðsljós
Þessi fuglshattur var sýndur á tiskusýningu fyrir þrettán árum en hann Svona hattar sjást aðallega á grímuböllum. Annar hatturinn er hamborgari
gæti eins verið í tísku i dag eins og árið 1977. með frönskum en hinn er fallegt blóm.
Höfuðföt
- til hvers eru þau?
Hattar og húfur eru til margra hluta nytsamleg. Stundum er kalt í veðri
svo nauðsynlegt er að skýla höfðinu með höfuðfati.
Th eru margs konar húfur: rauðar, bláar og grænar, uharhúfur og lámbhús-
hettur og svo mætti lengi telja. En það þykir hvorki fínt að bera uharhúfu
Hún er dreymin, stúlkan með þennan rómantíska hatt. Hatturinn var sýndur
á tískusýningu þar sem sumartískan 1973 var kynnt.
Sara, hertogaynja af York, og Anna prinsessa voru með fremur einfalda
hatta á Ascotveðreiðunum. Hattur Söru var rauður, í stíl við klæðnaðinn,
en Anna var með svartan hatt.
né lambhúshettu. Mun finna er að vera meö hatt. Hægt er að velja um margs
konar hatta. Hattatíska er flókið fyrirbæri.
En látum myndirnar tala sínu máh.
Á Ascotveðreiðunum i Bretlandi er oft meira fylgst með fatnaði fólks en
afrekum fáka. Hér stinga drottningarmóðirin og dóttir hennar, Margrét,
saman nefjum. Að sjálfsögðu eru þær með skrautlega hatta.
Sundhettur sjást yfirleitt ekki nema Díana prinsessa virðist fylgja tíðar-
í sundlaugunum. Það skiptir miklu andanum betur en þær mæðgurnar.
hvort þær eru rósóttar, röndóttar Hattur hennar er samkvæmt nýjustu
eða einlitar. tísku.
Madonna tekur sig vel út á sviðinu.
Tæpast á þessi dans hennar nokkuð
skylt við guðlast.
Madonna
í London
Söngkonan Madonna hefur verið
á tónleikaferðalagi að undanfornu.
Um liðna helgi söng hún á tónleik-
um í London þar sem sjötíu og fjög-
ur þúsund aðdáendur fylgdust
með.
Ýmislegt hefur gengið á á ferða-
lagi Madonnu. Á Ítalíu var henni
hótað málsókn því kaþólskir menn
töldu sýningu hennar vera guðlast.
Madonna þurfti að hætta við eina
tónleika vegna lélegrar aðsóknar í
kjölfar umfjöllunarinnar. Hún
svaraði andans mönnum fuhum
hálsi engu að síður. Hún hvatti þá
alla th að koma og fylgjast með á
hljómleikunum og sjá það sem þar
færi fram. „Sýning mín á ekkert
skylt við guðlast. Þetta er skemmt-
un og fræðsla," sagði Madonna.
Söngkonan varar fólk við því að
dæma aðra eftir trú, kynþáttum
eða litarhætti. Sjálf segist Madonna
vera trúuð. Hún var miður sín yfir
að hafa verið svo hla tekið á Ítalíu
sem hún segir vera sitt annað
heimih. Amma og afi Madonnu
voru ítölsk en fluttust til Banda-
ríkjanna.
Það er með ólikindum hvernig hægt er að koma' vörunum upp að aug-
um. En Horst Ehbauer á ekki í vandræðum með það. Símamynd Reuter
Grettukeppni
Árlega er haldin heimsmeistara-
keppni í grettum. Um síðustu helgi
fór keppnin fram í Moncrabeau í
Suður-Frakklandi. Sigurvegarinn
þetta árið var Horst Ehbauer frá
Vestur-Þýskalandi. Hann er ekki
með öhu ókunnur hlutskipti sigur-
vegarans því að árið 1979 sigraði
hann hka í keppninni.
Þátttakendur voru tólf þetta árið,
frá Vestur-Þýskalandi, Englandi,
Belgíu og Frakklandi.