Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Page 3
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
3
DV
Páll Pétursson, þingflokksformaður Framóknar:
Fréttir
Rosaleg vitleysa að
byggja Blönduvirkjun
- ekkert við orkuna að gera ef ekki kemur álver
„Viö höfum verið frekar jákvæðir
gagnvart hugmyndum um álver þar
sem okkur eru ljós þau vandræði
sem við erum komnir í vegna ofEjár-
festinga í virkjunum. Það er ekkert
við þá orku að gera sem kemur af
fjárfestingu í Blönduvirkjun en
næsta haust hafa farið í hana 12-13
milljarðar króna. Það er út af fyrir
sig erfitt að kyngja þeirri rosalegu
vitleysu sem það var að byggja
Blönduvirkjun á kolröngum tíma.
Ef álverssamningar renna út í
sandinn og engar sambærilegar
framkvæmdir eru fyrirhugaðar þarf
ekki að nota orkuna frá Blönduvirkj-
un fyrr en á næstu öld,“ sagði Páll
Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins og stjórnar-
maður í Landsvirkjun, í samtali við
DV vegna álsamninga.
„Ég segi hispurslaust að það hefði
verið miklu heppilegra ef við hefðum
fengið orkunotanda sem ekki hefði
þurft svona mikla orku og ekki verið
eins stórtækur og álver. I hugmynd-
um um orkuverð til álvers er raforka
Blönduvirkjunar á útsölu fyrstu árin
og rafmagn nýrra virkjana líka.“
Páll segist ekki hafa sérstakan orku-
kaupanda í huga en hugsa mætti sér
orkunotanda sem þyrfti ekki nema
þriðjunginn af orku álvers eða jafn-
vel fjórðung. Þaö hefði stemmt miklu
betur við raforkukerfið.
„Raforkukerfið okkar er ágætt og
vel í stakk búið til að þjóna þörfum
þjóðarinnar að öðru leyti en því að
ráðist var í Blönduvirkjun á skökk-
um tíma. Það er ekkert við þá orku
að gera,
í rammasamningi um álver er ver-
ið að setja rafmagniö á útsölu fyrstu
árin til að fá einhvern til að nota
það. Því væri hægt að hugsa sér að
íslensk atvinnufyrirtæki eða íslensk
heimili væru tilleiðanleg til að kaupa
meira rafmagn ef þau fengju það
ódýrara eða hluta af því á útsölu eins
og verið er að setja upp í álsamning-
um.“ -hlh
Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins.
BILASPRAUTUN
IÉTTINGAR
e~Í^Ens~
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64-21 -41
UMBÚÐAPAPPÍR
Hvítur, 40 og
57 cm rúllur
Gjafapappír í úrvali
40 og 60 cm rúllur
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN HF.
Spítalastíg 10 - Sími 11640
Myndsendir: 29520
Tveir ungir Selfyssingar á leið yfir Ölfusárbrú. DV-mynd Kristján
Ölf usárbrú slysagildra
Kristján Emarsson, DV, Selfossi:
Selfyssingar hafa löngum haft
áhyggjur af slysahættu á Ölfusárbrú
og á síðasta fundi bæjarstjórnar Sel-
foss var eftirfarandi tillaga borin upp
og samþykkt samhljóða.
„Bæjarstjórn Selfoss ítrekar áskor-
un á þingmenn Suðurlandskjördæm-
is svo og samgönguráðherra að láta
hraða smíði göngubrúr yfir Ölfusá
við Ölfusárbrú."
í greinargerð með tillögunni segir
m.a.: „Um margra ára skeið hefur
bygging göngubrúr verið í umræð-
unni en lítið virðist hafa þokast með
það mál. Öryggi gangandi vegfar-
enda er vægast sagt lítið á brúnni,
sérstaklega er aðkoman að norðan-
verðu hættuleg þar sem akbraut og
gangbraut eru í sömu hæð og bílar
aka jafnvel inn á gangbrautina.“
Það er von bæjarstjórnarmanna
svo og allra sem þekkja þetta mál af
eigin raun að úr rætist sem fyrst.
Menn hafa bent á að börn, sem eiga
leið um brúna á leið sinni í skólann,
geti hreinlega sogast út á akbrautina
þegar stórir bílar fara um hana á
miklum hraða í misjöfnum vetrar-
veðrum.
Á næsta ári, í september 1991,
verða 100 ár síðan brú kom á Ölfusá
og það er von heimamanna að ný
göngubrú verði þá komin í gagnið.
Stjórn Félags hrossabænda:
Skorar á Búnaðar-
félagið að
fresta uppsögn
A fundi í stjórn Félags hrossa-
bænda, sem haldinn var á mánu-
dagskvöld, var því hafnað að einhliða
uppsögn Búnaðarfélags íslands á
samningi við félagið þyrfti ekki
lengri fyrirvara en tvo mánuði.
Samningurinn varðaði meðferð
stimpils við gerð upprunavottorða
við hrossaútflutning. Þá var sam-
þykkt að skora á Búnaðarfélagið að
fresta þessari uppsögn samningsins.
Eins og DV hefur skýrt frá sagði
Búnaðarfélagið einhliða upp sam-
komulagi sínu við Félag hrossa-
bænda frá 1988 um að Félag hrossa-
bænda færi með stimpil þess við gerð
upprunavottorða hrossa fyrir
hrossaútflutning. Tilkynnti Búnaö-
arfélagið að frá og með 15. nóvember
sæi Kristinn Hugason, annar lands-
ráðunautanna í hrossarækt, um gerð
upprunavottorðanna og stimpilinn.
í félagi hrossabænda brugðust
menn hart við og túlkuðu uppsögn-
ina á þann veg að verið væri að taka
hrossaútflutning að hluta úr hönd-
um Félags hrossabænda. Á fundinn
á mánudagskvöld mætti Jónas Jóns-
son búnaðarmálastjóri. Urðu hörð
orðaskipti milli manna vegna máls-
ins.
-hlh
V/SA
RAÐGREIÐSLUR 10 MANUÐIR
IEURC
KREDIT
V/LDARK/ÖR
IÁjM
Erum að taka í hús nýja sendíngu af Bergen
hornsófum í mörgum lítum og verðíð er hreínt
ótrúlegt.
Bergen hornsófinn er klæddur með krómsút-
uðu anílin-gegnumlítuðu nautsleðri á öllum
slítflötum og með leðurlíki á grind utanverðrí.
í púðum er polyester og dacronló. Stærðír:
b. 210x1. 265.
EKKI MISSA AF ÞESSU
FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK