Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
Uppreisn á
Filippseyjum
Uppreisnarhermenn undir forystu
fyrrum ofursta í lífvarðarliði Coraz-
on Aquino, forseta Filippseyja, tóku
í morgun að minnsta kosti tvær borg-
ir á Mindanao-eyju í suðurhluta
landsins. Uppreisnarmennirnir, sem
mættu engri mótspyrnu, kváðust
vilja setja á laggirnar sjálfstætt ríki
á Mindanao.
Hermenn í tveimur öðrum borgum
á eyjunni eru sagðir hafa gengið til
liðs við uppreisnarmennina en það
fékkst ekki staðfest í morgun.
Skotið var á uppreisnarmenn úr
orrustuflugvélum stjórnarhersins
þegar þeir reyndu að ná yfirráðum
yfir herbúðum í Iligan sem er í um
800 kílómetra fjarlægð suðaustur af
Manila, höfuðborg Filippseyja.
Aquino forseti, sem staðið hefur af
sér sex uppreisnartilraunir frá því
að hún komst til valda 1986, baö
þegna sína um stuðning í morgun.
Gagnrýni á stjórn hennar hefur farið
vaxandi að undanfornu vegna efna-
hagskreppu í landinu. Hækkun olíu-
Hermenn hliðhollir Corazon Aquino, forseta Filippseyja, taka sér smáhvild
í morgun eftir að hafa komið fyrir fallbyssu í aðalbækistöðvum hersins í
Manila. Símamynd Reuter
verðs hefur valdið miklum örðug-
leikum auk þess sem fjöldi náttúru-
hamfara hefur haft í för með sér
mikiö tjón.
Mindanao er næststærsta eyjan á
Filippseyjum og eru þar miklar nátt-
úruauðlindir. A miðjum áttunda ára-
tugnum gerðu múhameðstrúarmenn
þar uppreisn og létu þá að minnsta
kosti fimmtíu þúsund lífið.
Foringi uppreisnarmanna nú,
Alexander Noble, var viðriðinn síð-
ustu tvær uppreisnartilraunirnar á
Filippseyjum og flúði hann suður á
bóginn í desember síðastliðnum. Hef-
ur hánn farið huldu höfði síðan þar
til nú.
Bandarískir þingmenn og embætt-
ismenn lýstu því yfir í morgun að
Bandaríkjamenn myndu hætta að-
stoð sinni við Filippseyjar ef Aquino
yrði steypt.
Reuter
Útlönd
París:
Sprenging í
íbúðarblokk
- tugir manna í rústunum
Að minnsta kosti fjörutíu manns
grófust undir íbúðarblokk í út-
hverfi í suðurhluta Parísar sem
hrundi í kjölfar sprengingar
snemma í morgun. Tveimur
klukkustundum eftir slysið hafði
enn ekki tekist að komast að fólk-
inu, að því er lögreglan tilkynnti.
íbúðarblokkin, sem var fimm
hæða, var í hverfinu Massy Pala-
iseau.
Reuter
Viðræður Bakers og Sévardnadze:
Samningur um af-
vopnun tilbúinn
- verður undirritaður 1 París í næsta mánuði
Utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna hafa endan-
lega náð samkomulagi um fækkun í
herafla ríkjanna í Evrópu. Sam-
komulagið tekur aðeins til hefð-
bundinna herja en eftir er að semja
um fækkum kjarnorkuvopna.
Baker og Sévardnadze áttu með sér
fimm klukkustunda fund í gær þar
sem þeir ræddu þau fáu atriði sem
Eduard Sévardnadze, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, segir að Sovét-
menn hafi gefið mest eftir í afvopn-
unarviðræðunum.
Símamynd Reuter
enn voru eftir til að samkomulag
næðist um afvopnunina í Evrópu.
Fastlega var búist við að þeir næðu
samkomulagi, enda voru aðeins
aukaatriði eftir. Ekki eru þó öll atriði
leyst enn en ráðherrarnir voru sam-
mála um að ekkert gæti komið í veg
fyrir samkomulag úr þessu.
„Við munum að sjálfsögðu ráðfæra
okkur við bandamenn okkar en hvað
varðar viðræðurnar sem nú hafa far-
ið fram þá eru Bandaríkjamenn og
Sovétmenn sammála um hvernig
staðið skuli að afvopnun í Evrópu,"
sagði Sévardnadze. „Auðvitað eru
þaö Sovétmenn sem hafa gefið mest
eftir,“ bætti ráðherrann við.
Samningaviðræður hafa nú staðið
í 18 mánuði. í aýja samkomulaginu
felst að skriðdrekum í Evrópu verður
fækkað verulega, einnig flugvélum
og stórskotaliði. Sovétmenn verða
t.d. aö losa sig við um 40 þúsund
skriðdreka. Svæðið, sem samningur-
inn tekur til, nær allt frá Úralfjöllum
í Sovétríkjunum og til Evrópu-
stranda við Atlantshafið.
Ráðgert er að skrifa undir samn-
inginn á ráðstefnunni um öryggi og
samvinnu í Evrópu í París í næsta
mánuði. Þar munu Bush og Gor-
batsjov hittast og jafnvel er taliö að
þar náist frekara samkomulag um
afvopnun.
Reuter
EB:
Samkomulag um niðurskurð
á landbúnaðarstyrkjum
Framkvæmdanefnd Evrópu-
bandalagsins, EB, samþykkti ein-
róma í gærkvöldi áætlun um að
draga úr styrkjum til landbúnaðar.
Landbúnaðarstyrkirnir eru helsta
ágreiningsefnið í viðræðum GATT,
Hins almenna samkomulags um tolla
og viðskipti. Evrópubandalagið hef-
ur sætt harðri gagnrýni, sérstaklega
frá Bandaríkjunum, fyrir að hafa
ekki gert meira til að draga úr út-
flutningsstyrkjum til landbúnaðar.
Ráðgert er að allir þátttakendur í
GATT-viðræðunum muni kynna
áætlanir sínar fyrir 15. október.
Landbúnaðarráðherrar og utan-
ríkisráðherrar Evrópubandalagsins
eiga eftir að samþykkja hina nýju
áætlun framkvæmdanefndar þess.
Reuter
Bílagetraun
og OTCOVTHC
Skilafrestur
er til 5. október
Ef þú ert með rétta tölu
getur þú komist til
Naiiorka með Atlantik
í vikuferð 23.-30. október
nk. og tekið með þér einn
ferðafélaga.
SENDIST TIL DV-BÍLA
Þverholti 11
pósthólf 5380
125 Reykjavík