Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Síða 9
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990
I>V Útlönd
Mennirnir voru handteknir við hinar
fornfrægu rustir hjá Stonehenge á
Bretiandi. Simamynd Reuter
Lögreglan tekur
tvo IRA-menn
Breska lögreglan yfirheyrir nú tvo
írska skæruliða sem teknir voru eftir
umsátur nærri rústunum við Ston-
henge. Mennirnir eru grunaðir um
að hafa átt þátt í að myrða Ian Gow
með bílasprengju í sumar. Gow var
náinn vinur Margaretar Thatcher,
forsætisráðherra Breta.
Mennirnir voru handteknir á bíla-
stæði við rústirnar sem eru aðeins
um tíu kílómetra frá höfuðstöðvum
breska hersins. Farið var með írana
til Lundúna þar sem hryðjuverkalög-
reglan yfirheyrði þá um sprengju-
tilræðið við Gow og fleiri tilræði á
Bretlandi á síðustu mánuðum.
Gow var þingmaður fyrir íhalds-
flokkinn og taldi að sýna ætti Írska
lýðveldishernum meiri hörku en
stjórnin hefði gert til þessa.
Talið er að þessir menn hafi ætlað
að ráðast gegn öðrum þingmanni
íhaldsflokkins þegar lögreglan sá til
ferða þeirra. Þeir komust þá undan
en skömmu síðar vai’ gerð skotárás
á Peter Terry, fyrrum landstjóra
Breta á Gíbraltar, og hann særður
alvarlega. Talið er hugsanlegt að
sömu mennirnir hafi verið að verki
í Öll skiptin. Reuter
Gorbatsjovætlar
til Þýskalands
Michail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, kemur að öllum líkindum
til Berínar um miðjan næsta mánuð
til að undirrita víðækan sáttmála við
Þjóðverja um samvinnu ríkjanna.
Líklegt er talið að Gorbatsjov haldi
einnig til Frakklands og skrifi þar
undir hliðstæðan samvinnusamning
og gera á við Þjóðverja. Hann verður
í öllu falli í París dagana 19. til 21.
nóvember á ráðstefnunni um öryggi
og samvinnu í Evrópu.
Með í samningnum er griðarsátt-
máli og að leiðtogar ríkjanna haldi
með sér fund árlega hér eftir til að
ræða samvinnu á sviði stjórnmála
og efnahags- og menrúngarmála.
Reuter
ARCHE tölvueigendur hafa eitt sem cngir aðrir
tölvueigendur hafa - tveggja ára gæðaábyrgð.
í dag er ARCHE eini framleiðandinn í Bandaríkjun-
um sem býður tveggja ára ábyrgð á öllu sem ber
merki ARCHE Technologies.
ARCHE eigendur geta státað sig af fyrsta flokks
„Made in the USA“ gæðastimpli. Og stimpil þennan
fá aðeins þeir framleiðendur sem mæta ströngustu
kröfum um gæði og endingu.
H ‘ SES ...
□ 1Mb rainni (0 bið)
□ 1,2Mb disklinga drif
□ 2 parallel og 2 serial port
□ Stýrikort fyrir harðan disk
□ MS-Dos 3.3, GW Basic
□ 10 ls lykils lyklaborð
VERÐ KRÓNUR: 97.975.
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
VISA
RAÐGREIÐSLUR
ARCHE RIVAL 386-SX
Ö 1Mb minni (0 bið) □ Stýrikort fyrir harðan disk
□ 1,2Mb disklinga drif □ MS-Dos 3.3, GW Basic
□ 2 parallel og 2 serial port □ 101 s lykils lyklaborð
VERÐ KRÓNUR: 109.565.-
TH. VILHELMSSON
® TÖLVUDEILD
Rcykjavíkurvegi 62. 220 Hf.. Símar 91-650141 og 91-653241