Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
Utlönd
Sameiningarvlman að renna af Þjóðverjum:
Söguleg heppni að
f á annað tækifæri
- sagði Richard Von Weizsaecker, forseti Þýskalands
„Þaö er söguleg heppni fyrir þýsku
þjóðina að fá nú annaö tækifæri,“
sagði Richard Von Weizsaecker, for-
seti Þýskalands, í fyrstu ræðu sinni
sem forseti alla Þjóðverja í gær.
Forsetinn minnti einnig á aö skipt-
ing Þýskalands hefði verið afleiðing
af stríði sem þeir áttu sjálflr upptök-
in að. Þessu mættu Þjóðverjar aldrei
gleyma og í framtíðinni yrðu þeir að
leggja áherslu á friðsamlega sambúð
við nágranna sína sem og önnur ríki
heims.
Mönnum hefur orðið tíðrætt um
hættuna á að öfgamenn nái aftur
völdum í Þýskalandi eins og gerðist
þegar Adolf Hitler og nasistaflokkur
hans komst til valda árið 1933. Flest-
ir hallast þó að því að þessi hætta sér
hverfandi lítil nú um stundir meðan
efnahagur Þýskalands stendur með
blóma. Þó óttast menn að nýnasistar
hafl sig í frammi á næstunni.
Einn stjórnmálaskýrandi lýsti
stöðunni sem svo að 5% öfgamanna
í Þýskalandi væru hættulegri en ef
20% Frakka ánetjuðust öfgastefnum.
„Það er meira áhyggjuefni að sjá
nokkrar þýskar fótboltabullur flagga
hakakrossum en þótt heilir hópar af
enskum ólátaseggjum leggi fótbolta-
velli undir sig.“
Þeir sem skipulögðu hátíðahöldin
í Berlín og Bonn lögðu áherslu á að
sýna fram á hug Þjóðverja til sam-
vinnu í Evrópu. Talað var um að
skemmtunin væri fremur evrópsk
en þýsk í þessum höfuðstöðum
Þýskalands. I öðrum borgum bar
meira á sérþýskum einkennum.
Menn hafa veitt því athygli að það
eru einkum þýskir menntamenn sem
gagnrýna sameininguna, fyrir utan
nokkra ólátaseggi úr röðum hægri
og vinstri manna. Rithöfundurinn
Gúnter Grass sagði í útvarpsviðtali
að Þjóðverjar hefðu klúðrað samein-
ingunni.
„Við hugsum aðeins um þýska
markið og það á að gilda í báðum
hlutum landsins. Þýskaland verður
þó áfram skipt í tvo hluta og þjóðin
skiptist í tvær stéttir. Annars vegar
eru það þeir fátæku fyrir austan og
hins vegar við hinir ríku fyrir vest-
an,“ sagði Grass.
Með þessum orðum er Grass að
vísa til þess að þegar hefur komið
upp togstreita milli Austur- og Vest-
ur-Þjóðverja, sérstaklega vegna at-
vinnumála, þótt sameiningarsinnar
leggi áherslu á að tala aðeins um eina
þjóð. í hugum margra eru þjóðirnar
enn tvær. Reuter
Richard Von Weizsaecker, forseti Þýskalands, minnti Þjóðverja á hörmung-
ar í fortíð þjóðarinnar þegar hann hélt fyrstu ræðu sína sem forseti samein-
aðs Þýskalands. Símamynd Reuter
Karólína og Stefanó voru hamingju-
samlega gift og áttu orðið þrjú börn
þegar hann fórst. Á innfelldu mynd-
inni er Stefanó á hraðbátnum sem
hann sigldi þegar slysið varð.
Símamyndir Reuter
Drukknun Stefanó Casiraghi 1 gær:
Fjölskyldan sam-
einast í sorginni
- Stefanía prinsessa kom heim í morgun
Stefanía, prinsessa af Mónakó,
flaug í nótt heim frá Los Angeles til
að styðja Karólínu systur sína í sorg-
inni eftir að hún missti mann sinn í
sjóslysi í gær. Sorg ríkir nú í Mónakó
eftir slysið sirm þykir mjög sviplegt.
Fyrir átta árum fórst Grace Kelly,
móðir þeirra Karólínu og Stefaníu, í
bílslysi og nú bætist þetta-slys við
ólán furstaíjölskyldunnar af Món-
akó. Einn af íbúum furstadæmisins
hafði á orði að fjölskylda hefði þegar
orðið að þola nóg þótt þetta bættist
ekki við.
Stefanó Casiraghi fórst í gær þegar
hann var að verja heimsmeistaratitil
sinn í siglingu hraðbáta. Hann var
þrítugur að aldri og hafði verið
kvæntur Karólínu í sjö ár. Stefanó
var fæddur á Ítalíu en bjó í Mónakó
og rak þar verslunarfyrirtæki. Karó-
lína var í París þegar slysið varð og
kom hún heim skömmu síðar með
flugi ásamt Albert, bróður sínum.
Stefanó var heimsmeistari í akstri
hraðbáta í kraftmesta flokki. Bátur
hans var fimm tonn að þyngd og
náði allt að 120 mílna hraða. Keppnin
stóð sem hæst í gær þegar Stefanó
tókst ekki að bera ólag af bátnum
með þeim afleiðingum að honum
hvolfdi. Stefanó lokaðist inni í bátn-
um og drukknaði.
Að þessu sinni var keppt úti fyrir
Mónakó og hafði Stefanó lagt mikla
áherslu á sigur þar á heimavelli.
Hann varð heimsmeistari í fyrra þeg-
ar keppt var við austurströnd Banda-
ríkjanna.
Stefanó var síðari maður Karólínu.
Hjónaband þeirra hafði verið farsælt
og þau eignuðust þrjú börn. Þau eru
Andrea, sex ára, Karlotta, íjögurra
ára, og Pierre, þriggja ára. Reuter
Mitterrand í Miðausturlöndum:
Samningar við Saddam ekki ómögulegir
Á meðan Mitterrand var á ferðinni
í gær var flogið með níu franska gísla
til Jórdaníu sem Saddam hafði látið
lausa í mannúðarskyni. Auk þess
komu tveir Frakkar og þrír Bretar
til bæjarins Khafji við landamæri
Saudi-Arabíu og Kúvæts. Höfðu þeir
flúið frá írak í litlum báti, aö sögn
stj órnarerindreka.
Sjálfur heimsótti íraksforseti í gær
Kúvæt í fyrsta sinn eftir innrásina
og hitti hann að máli herforingja
sina. Samkvæmt fréttum írösku
fréttastofunnar INA ferðaðist Sadd-
am um Kúvætborg þar sem mannlíf
var sagt með miklum blóma eftir
innlimunina í írak.
Sendiherra Marokkó í Frakklandi
sagði í gær að Saddam hefði engan
hug á að verða píslarvottur og að
hægt væri að semja um innlimun
Kúvæts í írak. En sendiherrann
sagði, í kjölfar heimsóknar sérstaks
sendimanns frá Marokkó til íraks,
að Saddam myndi aldrei samþykkja
að emírinn af Kúvæt tæki aftur við
völdum.
íranir tilkynntu í gær að þeir
myndu ekki taka þátt í stríði en
vangaveltur höfðu verið um að þeir
myndu styðja fyrrum fjandmenn
sína, íraka, ef til hernaðarátaka
kæmi. Reuter
Sérstakur sendimaður Gor-
batsjovs Sovétforseta, Jevgeny Prim-
akov, mun í dag fljúga til Bagdad,
höfuðborgar íraks. Aö sögn Eduards
Sévardnadze er tilgangurinn með
ferð Primakovs að reyna að greiöa
fyrir flutningi sovéskra borgara frá
Mitterrand Frakklandsforseti er á
ferð um Miðausturlönd. Hér sést
hann heilsa embættismönnum í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um. Hann sagði i gær að ef írakar
drægju herlið sitt til baka frá Kúvæt
opnuðust ýmsir möguleikar.
Símamynd Reuter
írak en auk þess vonast Sovétmenn
til aö hann fái að hitta Saddam Hus-
sein íraksforseta. Primakov hitti í
gær Hussein Jórdaníukonung og
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna. Þeir hafa báðir leitað
„arabískrar lausnar" á Persaflóa-
deilunni, það er aö írakar kalli herlið
sitt heim frá Persaflóa og að and-
stæðingar þeirra fari með heri sína
frá Persaflóasvæðinu.
Aðstoðarforsætisráðherra Sadd-
ams, Ramadan, kom til Amman, höf-
uðborgar Jórdaníu, í gær til við-
ræðna við forsætisráðherra Japans,
Toshiki Kaifu. Fundur þeirra er ráð-
gerður í dag. Á dagskrá er einnig
fundur Kaifus og Hussein Jórdaníu-
konungs. Japanir hafa lofað Jórdön-
um 250 milljóna dollara aðstoð vegna
þess tjóns sem þeir bíða af völdum
viðskiptabannsins gegn írak.
Mitterrand Frakklandsforseti
heimsótti í gær Sameinuðu arabísku
furstadæmin. Gert er ráð fyrir að
hann heimsæki Saudi-Arabíu í dag
og ræði við Fahd konung og franska
herforingja. Franskir hermenn í
Saudi-Arabíu eru nú flmm þúsund
talsins.
Mitterrand hefur hvatt íraka til að
fara frá Kúvæt og sagt að slíkt myndi
opna ýmsa möguleika, þar á meðal
viðræður um umkvörtunarefni Ir-
aka og ráðstefnu um deilumál í Mið-
austurlöndum. Saddam hefur reynt
að tengja lausn Persaflóadeilunnar
ákvörðun til lausnar deilumálum
ísraela og araba.
Saddam Hussein Iraksforseti ræðir við
til Kúvæts eftir innrásina 2. ágúst.
hermenn sina i fyrstu heimsókninni
Simamynd Reuter