Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Síða 11
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
Útlönd
Þjóðverjar óttast
öldu hryðjuverka
Vinstri sinnuð skæruliðasamtök,
sem eitt sinn herjuðu um Vestur-
Þýskaland með blóðugum árásum,
hafa lýst yflr stríði gegn sameinuðu
Þýskalandi. Hafa samtökin, Rauðu
herdeildirnar, heitið langri baráttu
gegn því sem þau kalla „Fjórða rík-
ið“, fasískt ríki sem geti lagt undir
sig Evrópu.
Fregnir herma að Rauðu herdeild-
irnar séu að undirbúa áætlun um að
myrða eða ræna Helmut Kohl, kansl-
ara Þýskalands, og öðrum stjórn-
málamönnum sem haiið hafa baráttu
fyrir kosningarnar 2. desember.
Ný kynslóð hryðjuverka-
manna
Ný kynslóð félaga í Rauðu her-
deildunum hefur þegar látið til sín
taka í sameiningarvímunni. Þremur
vikum eftir að Berlínarmúrinn var
opnaður myrtu Rauðu herdeildirnar
Alfred Herrhausen, bankastjóra
Deutsche Bank, stærsta banka Vest-
ur-Þýskalands. Herrhausen beiö
bana er sprengja sprakk í bíl hans
nálægt Frankfurt 30. nóvember í
fyrra. í bréfi, þar sem Rauðu her-
deildirnar lýstu yfir ábyrgð á morð-
inu, sagði að Deutsche Bank væri
tákn valda hins fasíska kapítalisma.
Bankinn hefði undirbúið innrás í
Austur-Evrópu árum saman.
Morðið, sem var fyrsta árás Rauðu
herdeildanna í nokkur ár, vakti mik-
inn óhug í Vestur-Þýskalandi og ótt-
uðust menn nýja öldu hryðjuverka.
Þann 27. júlí síðastliðinn gerðu
Rauðu herdeildirnar sprengjuárás á
embættismann í innanríkisráðu-
neytinu, Hans Neusel, er hann var á
leið til vinnu sinnar. Hann slapp lítið
meiddur. í kjölfar þessarar mis-
heppnuðu morðtilraunar barst nýtt
bréf frá Rauðu herdeildunum þar
sem því var lýst yfir að þær myndu
beina árásum sínum gegn hinu nýja
sameinaða Þýskalandi.
Moröiö á Alfred Herrhausen, bankastjóra Deutsche Bank, stærsta banka V-Þýskalands, i nóvember i fyrra vakti
mikinn óhug. Rauöu herdeildirnar voru komnar aftur á kreik. Á myndinni má sjá lögreglumenn kanna aðstæður
á tilræðisstaðnum. Símamynd Reuter
„Boðberar byltingar"
Flestir hinna upprunalegu félaga
Rauðu herdeildanna voru myrtir eða
fangelsaðir í herferð lögreglunnar
gegn þeim á áttunda áratugnum. Þá
hafði fjörutíu og einn maður verið
myrtur eða rænt af hryðjuverka-
mönnunum.
Rauðu herdeildirnar voru stofnað-
ar af Andreas Baader og Ulrike
Meinhof sem litu á sig sem boðbera
byltingar. Þau leituðust við að koma
á ójafnvægi í vestur-þýsku þjóðfélagi
sem þau sögðu vera sjúkt lögreglu-
ríki.
Lögreglan telur að nýir félagar í
Rauðu herdeildunum séu jafnvel
ekki fleiri en tíu til tuttugu. Þeir séu
hins vegar staðráðnir í því að skelfa
78 milljónir landa sinna.
Áætlanir um hryðjuverk
Við húsleit í Hamborg í maí fann
lögreglan áætlanir um árásir á við-
skiptajöfra og stjórnmálamenn, þar
á meðal Kohl kanslara. Tímaritið
Stern segir að lögregluna gruni að
Rauðu herdeildirnar séu að und-
irbúa mannrán, svipað því þegar
leiðtogi atvinnurekenda, Hans-Mart-
in Schleyer, var myrtur, til að þvinga
fram lausn fangelsaðra félaga.
Reuter
11
... alla daga
^Öf^ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - sími 29577
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
& KAUPFÉLÖGIN
Vegna mikillar sölu á nýjum bifreiðum og uppítök-
um á þeim eldri eigum við óvenjumikið og gott
úrval af notuðum bifreiðum sem seldar verða á
uppítökuverði (kostnaðarverði) nokkra næstu
daga.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ: Verð áður ognú
Dodge Aries ’88 850 þús. 725 þús.
Dodge Aries ’87 760 þús. 650 þús.
Plymouth Reliant ’87 820 þús. 690 þús.
Ford Sierra 1600 ’86 570 þús. 490 þús.
Oldsm. Sierra ’86 860 þús. 710 þús.
Peugeot 405 GR ’89 1190 þús. 990 þús.
Lada Sport ’87 460 þús. 390 þús.
JÖFUR HF
Opíð
Mánud.-föstud. 9-18
Laugardag 13-17
NYBYLAVEGI 2, KOPAVOGI, SIMI (91) 42600