Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Síða 12
12
Spumingin
Ferðu oft á myndlistarsýn-
ingar?
Helga Guðlaugsdóttir húsmóðir:
Aldrei.
Sesselja Sturludóttir nemandi: Nei,
aldrei.
Ásta Björnsdóttir nemi: Svona einu
sinni td tvisvar á ári.
Kristín Gisladóttir barþjónn: Ég fer
á einstaka einkasýningar en kem oft
viö á galleríum í miðbænum.
Stella Friðriksdóttir húsmóðir: Alltaf
þegar ég kemst og meöal minnis-
stæöra sýninga nýveriö er sýning
Myndlistaskólans í vor.
Jóna Þorfinnsdóttir húsmóðir: Ég fer
stundum á myndlistarsýningar.
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
Lesendur
Hispurslaust og skemmtilegt kynlif:
Hún hló, hún
skelli- skellihló
Jón Björnsson skrifar:
Alltaf batnar þaö. Nú er loks
hægt aö skemmta sér án þess að
vera í bráðri lífshættu. - Svo segir
í frétt um nýja „fræðslumynd um
öruggt kynlíf' sem nýbúiö er aö
gera og þaö án ríkisstyrkja (eitt-
hvaö fyrir sítóman Kvikmynda-
sjóðinn aö kíkja á). En það er þó
ekki allt sem sýnist því fullyrt er
aö myndin eigi „fullt erindi" í skóla
landsins. Viö erum því ekki alveg
laus viö íjárhagsátroðning af
myndinni. - Gott til þess aö vita að
peningar þessa árs hjá Náms-
gagnastofnun a.m.k. eru uppurnir.
Nú er sem sé komin þessi líka
heppilega og hispurslausa kvik-
mynd þeirra „aöstandenda" og
myndin var kynnt í sjónvarpi í
gærkvöld (1. okt. sl.). Einn aöstand-
enda, fyrrverandi sjónvarpsþula,
leiddi okkur í allan sannleika og
okkur var einnig gefið sýnishorn
úr myndinni. Og þar gaf á aö líta;
verksmiðjuframleidd vopn og veij-
ur gegn lífshættunni miklu, ást-
inni. Og svo allt í lit og stíl viö fram-
leiösluna, litað fólk og litaöar verj-
ur. Þetta var verulega líflegt. -
Enda hló „stúlkurinn mín“ er hún
rðeddi og útskýröi myndina. Já,
hún hló, hún skelli- skellihló. Viö
gátum heldur ekki annað og hlóg-
um með henni.
Og svo er verið aö bollaleggja í
Tímafrétt hvernig megi notfæra sér
myndina góöu. Ekkert fé til kaupa
handa skólum, enda eins gott því
kennarar hafa heldur ekkert tii að
fylgja kennslunni eftir með og
svarað þeim spurningum sem upp
kæmu eftir sýningu hennar. - Og
svo eru nokkur handrit sem bíöa
niöri í skúffu og eru þau m.a. um
kynlíf fatlaðra og aldraðra. En því
eru þeir ekki kallaðir til og beðnir
um aö aðstoða viö verklegar út-
skýringar? Og vantar ekki líka
mynd um kynlíf piparsveina og
geimfara? Já, ég spyr í alvöru því
hveijum andsk... getur maöur
ekki búist viö frá þessu hugmynda-
snauöa, ég vil segja fáfróöa fólki?
„Skyldu einhverjir trúa því að al-
næmisveiran hrökkvi undan kvik-
myndinni?" er spurt í bréfinu. -
Kynning á hispurslausri kvikmynd
um öruggt kynlíf.
Skyldu einhveijir vera til sem trúa
því að alnæmisveiran hrökkvi und-
an kvikmyndinni Öruggt kynlíf?
Ég ætla bara aö biöja algóðan guö
aö foröa ríkinu frá þvi aö leggja
nokkurn tíma eitthvað fémætt til
svona kvikmyndagerðar. Næg er
fræðsluplágan fyrir.
„Hlýtur að vera hægt að viðhafa aðra aðferð við götufræsingar hér í borginni en nú er,“ segir m.a. í bréfinu.
Glannalegar götufræsingar:
Stórskaða f lesta fölksbfla
B. Þorvaldsson skrifar:
Nú er búiö aö vera varanleg vertíð
fyrir vissa verktaka í götufræsing-
um. Þetta er farið að veröa ansi
hvimleitt svo ekki sé meira sagt.
Stundum eru það sömu göturnar sem
verið er aö fræsa frá ári til árs. Ég
hefi lent í því á þessu hausti aö aka
á bíl mínum eftir þessum götum og
ég verö að segja aö það er mikil
áhætta fólgin í þeim akstri. Annars
vegar stórskaðar þetta bílana, fyrst
og fremst dekkin, og einnig aöra við-
kvæma hluta þeirra. Hins vegar er
þaö mjög varhugavert aö aka á milli
þessara fræsinga og utan í þeim
nema meö ýtrustu varkámi, þ.e. þeg-
Sigurður Jónsson skrifar
Eg er einn í hópi þeirra sem löngum
hafa haft lítiö álit á stjórnmálamönn-
um en af ýmsum þeirra hefi ég haft
nokkur kynni gegnum tíðina.
Mér þótti því fróðlegt að sjá sömu
skoðun koma fram hjá hinum heims-
fræga rithöfundi, Camilo Jose Cela,
en hann er einn fimm Spánveija sem
hlotiö hafa bókmenntaverðlaun Nób-
ar ekið er á eöa meðfram samskeyt-
unum sjálfum.
Ég skil ekki hvernig það þarf aö
vera að fyrst þurfi aö fræsa upp úr
götunum og síðan aö láta þær bíöa
dögum og þó oftar vikum saman þar
til farið er aö fylla upp í viðgeröirn-
ar. Þetta vinnulag þekkist hvergi
nema hérna hjá okkur. Ég hefi orðið
vitni aö viögerö á gatnakerfi erlendis
og þar er unnið viö vissan vegarkafla
og honum lokiö og síðan byijaö á
öðrum.
Ég get þó skiliö aö taka þurfi upp
nokkra kafla í einu vegna hag-
kvæmni en þaö hlýtur að geta farið
saman fræsing og malbikun nokkurn
els.
Cela segir í viðtali m.a. aö í flestum
löndum séu pólitíkusar „third level
people" - sem sé: þriðja flokks fólk.
- Mér finnst eins og þessi orð hins
þekkta manns hafi veriö töluð út úr
mínu hjarta.
Nefna mætti margt þessari skoðun
til rökstuðnings. Hér mætti t.d.
minna á forystugrein Morgunblaðs-
vegin samtímis. Mér er nær að halda
aö margir þeirra verktaka sem vinna
fyrir borgina aö hinum ýmsu gatna-
gerðarframkvæmdum og viöhaldi
láti útsjónarsemina stundum vega
þyngra í eigin þágu en skattborgar- -
anna. Um þaö hefi ég heyrt og raun-
ar séö í viöhaldsframkvæmdum á
götunum. - Þetta síðasta vil ég þó
ekki kenna verktökunum einum,
heldur líka yfirmönnum gatnaviö-
halds og framkvæmda hjá borginni.
- En fræsingarnar eru a.m.k. glanna-
legar hvað sem öðru líöur og þar
þurfa að koma til verulegar úrbætur
í vinnutilhögun.
ins hinn 29. sept. sl. en þar segir m.a.
á þá leið aö svo virðist sem margir
stjórnmálamenn láti sig gefin fyrir-
heit engu skipta og reyni ekki einu
sinni að standa við þau. - Hér mætti
og bæta því við að hringlandaháttur
þeirra og stefnuleysi er löngu lands-
kunnugt.
Álverið:
Jóhann Guðmundsson skrifar:
Nú er það alveg ljóst aö það er
iðnaðarráðherra sem hefur um-
boð til þess að skrifa undir samn-
ing um starfsemi stóriðju hér á
landi og þetta hefur forsætisráð-
herra þegar staðfest opinberlega.
- Hvers vegna er þá verið að taka
mark á ráðherrum Alþýðubanda-
lagsins sem eru alltaf á móti sér-
hverjum framkvæmdum hér á
landi sem útlendíngar eiga aöild
að?
Það er einnig vitað að álvers-
samningarnir væntanlegu eru
eini grundvöllurinn undir tilveru
Alþýðubandalagsins um þessar
mundir. Hvers vegna ætti öll
þjóðin að líða fyrir tilgangslausan
mótþróa ráðherranna, Svavars
og Steingríms? Það er lika ljóst
að formaður Alþýðubandalagsis,
Ólafur Ragnar Grímsson, er ekki
jafneinstrengingslegur og hinir
tveir ráðherrarnir og því er þetta
mál aö verða okkur nokkuð dýr-
keypt ef tveir ráðherrar af ellefu
ætla að koma i veg fyrir að af
annarri stóriðju verði hérna hjá
okkur.
Mér finnst það orðið þess virði
að á þetta mál verði látið reyna
með stjórnarslitum ef ekki vill
betur til. Það yröi þá aö koma
saman nýrri stjóm í skyndingu
með Sjálfstæðisflokki einum eða
einum öðrum flokki til viðbótar.
Þetta álmál getur ekki flækst
svona fyrir ríkisstjóminni miklu
lengur. Það eina góða sem Al-
þýðubandalagiö getur gert fyrir
þjóðarhag er að krefjast þess að
stjórnarslit verði kynnt hið bráð-
asta. - Með því einu móti er líka
hugsanlegt að sá fiokkur lifi
áfram og þá með fylgi þeirra sem
eru enn andvígir stóriðjufram-
kvæmdum hér á landi.
Hringið í síma
27022
milli
kl. 14 og 16
eða skrifið
Þriðja f lokks fólk