Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Hlaupið inn í spilavítið
Núverandi álráðherra var drjúgur með sig, er hann
seldi Útvegsbankann fyrir þremur árum. Hann lét ríkið
leggja fram sem svarar 685 milljónum króna til að koma
eignastöðu bankans upp í núll og taka á sig sem svarar
942 milljónum krónum vegna lífeyrisréttar starfsmanna.
Við undirritun kaupsamnings lagði núverandi álráð-
herra fram sem svarar 1309 milljónum til að liðka fyrir
sölu bankans í hendur hlutafélags. Enn varð ríkið að
borga sem svarar 346 milljónum vegna nokkurra gjald-
þrota viðskiptavina, sem voru á herðum gamla bankans.
Áfram neyddist álráðherrann til að láta skattgreið-
endur taka á sig sem svarar 288 milljónum króna vegna
lífeyris bankastjóra. Á móti á ríkið von í 150 milljónum
úr gömlum gjaldþrotum og hefur svo fengið bókað sem
svarar 1105 milljónum í endanlegt söluverð bankans.
Allar upphæðirnar eru reiknaðar á núverandi verð-
lagi. Niðurstaða samlagningar og frádráttar sýnir, að
ríkið hefur tapað rúmlega þremur milljörðum króna á
sölu bankans, þótt ráðherrann teldi sér og sumum öðr-
um á sínum tíma trú um, að hann væri í góðu braski.
Þetta sýnir, hve erfitt er að stunda spákaupmennsku.
íslendingar hafa oft farið flatt á því, ekki sízt þegar rík-
ið hefur forgöngu í spádómum. Skemmst er að minnast
opinberra spádóma um gott framtíðarverð á eldislaxi
og refaskinnum, svo og um virkjunarkostnað Blöndu.
Gömul og gild reynsla er fyrir, að spádómar rætast
ekki. Það gildir líka um spádóma á vegum Landsvirkjun-
ar og ríkisstjórnar. Enginn heilvita maður mundi veðja
matarpeningum íjölskyldunnar á grundvelli bjartsýnna
spádóma frá Landsvirkjun eða ríkisstjórn.
Stóri glannaskapurinn í samningsdrögunum um nýtt
álver er að hengja orkugreiðslur þess algerlega á heims-
markaðsverð á áli. Það getur að vísu gefið rosalegan
happdrættisvinning, en getur líka valdið miklu tapi. Og
útreikningar sýna, að nánast engu má skeika í spánni.
í leiðara DV fyrir réttri viku voru rakin ýmis rök
með og móti spádómum um hátt heimsmarkaðsverð á
áli. Til viðbótar við þá miklu óvissu koma svo efasemd-
ir um, að virkjunarkostnaður verði nákvæmlega sá, sem
Landsvirkjun gerir ráð fyrir í sínum bjartsýnu spám.
Til dæmis er vafasamt að sleppa Blöndu úr dæminu
á þeirri forsendu, að virkjunin þar sé rugl. Er það ekki
Landsvirkjun, sem er sjálf að reisa orkuverið? Er ekki
einmitt verið að virkja Blöndu á grundvelli spádóma
Landsvirkjunar um virkjunarkostnað og orkumarkað?
Ekki þarf heldur að gera mikinn ágreining um af-
skriftatíma og útreikninga á afslætti frá orkuverði til
að fá út úr dæminu, að orkuverð til nýs álvers verði
rúmlega einu mills lægra en fyrirhugað er, jafnvel þótt
allar aðrar forsendur Landsvirkjunar séu notaðar.
Einnig er spurning, hvers vegna nýting nýs álvers
sé áætluð 98%, mun hærri en hjá ísal. Einnig má ímynda
sér, að nýtingin fari að nokkru eftir sveiflum á heims-
markaðsverði áls til að ná niður meðalorkuverði. Og
hvað um lántökukostnað og endurlánakostnað?
Að öllu samanlögðu er unnt að búa til heldur minna
bjartsýna spá, sem gerir ráð fyrir, að þjóðfélagið þurfi
um 20 mills fyrir orkuna, ef fj árfestingardæmið eigi að
ganga upp, en muni í reynd ekki fá nema 15 mills, ef
heimsmarkaðsverð á áli verður örlítið lægra en nú er.
Þvíhkt Qárhættuspil hefur íslendingum aldrei verið
sýnt. Spilafíkn okkar er þó slík, að margir munu vilja
fara á hlaupum inn í spilavítið án frekari umhugsunar.
Jónas Kristjánsson
Ólafar Ragnar Grímsson:
Bráðabirgðalög
verða ekki sett
- munum skoöa uppsögn á samningnum
„ÚrskurOur félagsdóms kemur
mipg á óvarL Félagsdómur hafnar
aðhorfast í augu viðþá staöreynd
að hækkanir til BHMR leiði til
hækkana hjá öðrum sem síöan leiði
til nýrra hækkana þjá BHMR sam-
kvæmt 15. grein samningsins og
þannig koll af koll mörg hundruð
prósent upp allt launakerfið. Fé-
lagsdómur hefur því í reynd breytt
samningj BHMR í vítisvél óðaverö-
bólgunnar. Það er mjög alvarleg
niðurstaða," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson {jármálaráðherra.
- Niðurstaða Félagsdóms er byggö
á samningnum sem þú geröir. Var
hann ekki strax í upphafi þessi vít-.
isvél sem þú lýsir?
„Ríkisstjómin taldi að ákvæði í
fyrstu grein samningsins héldi, þar
sem segir að launabreytingar hjá
BHMR kæmu ekki tfi framkvæmda
ef þær settu launakerfið í landinu
úr skorðum. Félagsdómur segir
hins vegar að það sé ósannað mál."
- Sýnirþaðekkiaðþettamatrikis-
stjómarinnar var rangt?
„Ég tel að yfirlýsingar eftir að
Félagsdómur féll sýni aö mat ríkis-
stjómarinnar var rétt þó lögfræöin
í Félagsdómi sé í efnahagslegu
tómarúmi."
- En verða menn ekki að gera
samninga þannig að þeir standist
lögfræðina í Félagsdómi?
„Það skal ég ekkert um segja.
Dómstrólar era vegna þess að hægt
er að túlka samninga á ýmsa vegu.
Þess vegna era margir dómstólar í
okkar landi önnum kafnir. Þaö er
hins vegar kjami þess máls að Fé-
lagsdómur hefttr breytt eðli
BHMR-samningsins að okkar dómi
í þaö sem ég vfi kalla vitísvél óða-
verðbólgunar með þessu höfrunga-
hlaupi sívaxandi hækkana."
- Mun ríkisstjómin segja þessum
samningi upp við fyrsta tækifæri
þannig að hann verði laus 1. nóv-
ember?
„Ég held að það sé ljóst að það
þarf að skoða þennan samning í
algjörlega nýju ljósi eftir þennan
úrskurð Félagsdóms þvi þaö getur
ekkert þjóðfélag starfað eftir samn-
ingi sem hefúr verið breytt í þessa
vítisvél."
- Munuð þið segja honum upp?
„Ég vfi ekki ræða þaö á þessu
stigi en ríkisstjómin mun ræða það
1 dag og á morgun."
- Kemur tfi greina aö setja bráða-
birgöalög á þessr hækkanir?
„Nei, það tel ég ekki vera. Þaö
kemur ekki tfi greina aö setja
bráðabirgðalög á niöurstööur
dóms," sagði Olafur Ragnar Gríms-
son.
-gse
„Varla eru menn búnir að gleyma yfirlýsingum ráðherra í sumar ... Þá var hafl eftir þeim á forsiðun- t að-
anna: „Bráðabirgðalög koma ekki til greina“. Siðan liðu nokkrir dagar. - Og þá komu bráðabirgðalögin",
segir m.a. i grein Guðmundar.
Heilbrigt
stjórnmálalíf
á bláþræði
Líf ríkisstjómarinnar hangir á
bláþræði. Ágreiningur stjórnarliöa
um álmálið er svo inikill að sterkar
líkur eru á því aö stjómin fari á
næstu dögum, þing verði rofið og
kosið til Alþingis fyrir áramót.
Þetta les maður í blöðum og heyr-
ir í útvarpi og sjónvarpi.
En er þetta rétt? Ég var spurður
þessarar spumingar í dægurmála-
útvarpi rásar tvö á mánudaginn.
Ég hafði þann fyrirvara á svari
minu að ég væri að sjálfsögðu ekki
innanbúðarmaður á stjómarheim-
ilinu og hlyti því að álykta frá sjón-
arhóli áhorfandans. Og svarið var:
Ég get ómögulega tekið þetta tal
um yfirvofandi stjórnarslit hátíð-
lega.
Marklaus ummæli
Af hverju? Em ekki ráðherrar
með stóryrði og heitstrengingar í
fiölmiðlum? Hafa ekki ráðherrar
Alþýðubandalagsins gefið í skyn
að iönaöarráðherra Alþýðuflokks-
ins veröi að breyta um stefnu í ál-
málinu ella sé ríkisstjómarsam-
starfið úti? Og hafa ekki einstakir
þingmenn stjórnarflokkanna sagt
þetta bemm orðum?
Jú, rétt er það. En góðir lesend-
ur, varla er þetta í fyrsta sinn á
ferh núverandi ríkisstjórnar sem
þiö hafið orðið vitni að ummælum
og hátterni af þessu tagi?
Er ekki nær lagi að segja að svona
atburðir hafi veriö einkenni ríkis-
stjórnarinnar frá því hún tók við
völdum haustiö 1988?
Varla eru menn búnir að gleyma
yfirlýsingum ráðherra í sumar, svo
nýlegt dæmi sé tekið, þegar niður-
staða Félagsdóms í BHMR-máhnu
lá fyrir? Þá var haft eftir þeim á
forsíöum blaðanna: „Bráðabirgða-
lög koma ekki th greina". Síðan
hðu nokkrir dagar. - Og þá komu
bráðabirgðalögin.
Lái mér hver sem vih en ég á af-
KjaHarinn
Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur
skaplega bágt meö aö taka mark á
orðum og yfirlýsingum manna sem
eru staðnir að því að segja aftur
og aftur eitt í dag og annað á morg-
un.
Auðvitað er ekki hægt aö útiloka
að ráðherranum hafi að þessu sinni
ratast satt orö á munn og sfiórnar-
slit verði á næstu dögum eöa vik-
um. Það væri út af fyrir sig fagnað-
arefni. En það er ekki hægt að full-
yrða neitt um slíkt á grundvelh
yfirlýsinga ráöherranna einna.
/
Viðreisn stjórnmála
í rauninni er hér um mikið al-
vörumál að ræða. Það, að ekki er
unnt að taka orð og yfirlýsingar
ráðherra alvarlega, er til marks um
að stjórnmál hér á landi eru komin
á afar varhugaverðar - svo ekki sé
'sagt hættulegar - brautir.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, víkur að
þessu efni í athyglisverðri hug-
vekju í Vogum, blaði sjálfstæöis-
manna í Kópavogi. „Það er mikið
alvöruefni,“ skrifar hann, „þegar
ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa
forystu um aö veikja þær siðferðis-
legu stoðir sem stjórnmálalífið í
landinu hvílir á. í rauninni er verið
að leika sér að eldi. Ef þjóðin sann-
færist um að ekki sé mark takandi
á stjórnmálamönnum er sjálfu lýð-
ræðisskipulagi okkar teflt í voða.“
Það er með öðrum orðum sagt
meiri ástæða til að hafa áhyggjur
af því að heilbrigt stjórnmálalíf í
landinu hangi á bláþræði en að líf
stjórnarinnar geri það.
Þorsteinn Pálsson segir - rétti-
lega að mínu mati - að alþingis-
kosningarnar næstu muni meðal
annars snúast um viðreisn stjórn-
málanna úr þeirri lágkúru og flatn-
eskju sem vinstri stjórnin ber
ábyrgð á. „Þaö verður kosið um
það,“ skrifar hann, „hvorir eigi að
stjórna landinu, stjórnmálamenn,
sem eru sjálfum sér samkvæmir í
orðum og athöfnum, eða hinir sem
telja ekki þörf á því að samhengi
sé á milli orða og veruleika."
Guðmundur Magnússon
„Það er með öðrum orðum sagt meiri
ástæða til að hafa áhyggjur af því að
heilbrigt stjórnmálalíf í landinu hangi
á bláþræði en að líf stjórnarinnar geri
það.“