Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Side 17
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
25
Iþróttir
'étur með 310
þúsund á mánuði
Eins og fram kom í DV í gær hefur körfuknattleiksdeild
Tindastóls á Sauöárkróki samið við Pétur Guðmundsson
körfuknattleiksmann og mun hann leika með liðinu í vet-
ur. Sauðkrækingar þurftu að færa rniklar fórnir til að fa
Pétur til liðs við sig enda snjall og eðlilega dýr körfuknattleiksmaður
á ferð.
öldi. Anton átti góðan leik með Fram eins
Símamynd/Pressens Bild, Svíþjóð.
Pétur verður á góðum launum 1
vetur hjá Tindastóli en hann fær
greiddar 350 þúsund krónur á mán-
uði og að auki einhverjar bónus-
greiðslur. Samningur Péturs gildir
út keppnistímabilið sem varir í um
6-7 mánuði og samtals þarf Tinda-
stóll því að greiða Pétri um 2,3
milljónir í föst laun auk bónus-
greiðslna.
Nóg til af aurunum
á Sauðárkrókí?
Menn sem DV ræddi viö í gær velta
mjög vöngum yflr því hvemig lítil
körfuknattleiksdeúd út á lands-
byggöinni hafi ráö á því að semja
við Pétur eftir að hafa fengið til sín
tékkneskan þjálfara og tékkneskan
leikmann. Að auki segja heimilda-
menn DV aö þeir Valur Ingimund-
arson og Einar Einarsson fái greidd
einhver laun hjá féiaginu í vetur.
Það er þvi ekki fjarri lagi að launa-
greiðslur körfuknattleiksdeildar
Tindastóls nemi um 700 þúsund
krónum á mánuði. Ef sú tala er
rétt þarf félagið að greiða leik-
mönnunum íjórum og þjálfaranum
um 4,6 milljónir í laun fýrir keppn-
istímabilið.
Fyrirfæki og einstaklingar
fjármagna launagreiðslur
Gríöarlegur áhugi er á körfuknatt-
leik á Sauðárkróki og það reyndist
körfuknattleiksdeild Tindastóls
ekki mjög torsótt mál að fá stuðn-
ingsaðila fyrir keppnistímabil-
ið.
Mörg fyrirtætó á Króknum og
einhverjir einstaklingar hafa lagt
sitt af mörkum og samkvæmt
heimildum DV hefur körfuknatt-
leiksdeild Tindastóls þegar önglaö
saman fyrir öllum launagreiöslum
á væntanlegu keppnistímabili. Það
verður aö teljast vel af sér vikið og
nú bíða menn spenntir eftir leikj-
um Tindastóls í vetur og hvort
dæmiö gangi upp.
-SK
n með betra lið“
keppni meistaraliöa eftir jafntefli gegn Djurgárden í gærkvöldi, 1-1
en
rri
am
as-
1-1
ng-
erð
sta
:m-
ær.
120.
aði
og
rrir
tn í
Engin skömm að
tapa fyrir Fram
„Við hefðum þurft að skora snemma
en fengum í staðinn strax á okkur
mark þannig að þá var staðan orðin
mjög erfíð. Vonir okkar dvínuðu eft-
ir því sem mínúturnar liðu. Við lék-
um illa i báöum leikjunum gegn
Fram og því fór sem fór,“ sagði
Tommy Forsgren, aöstoðarþjálfari
Djurgárden, í samtali við DV eftir
leikmn. Lennart Wass, þjálfari hðs-
ins, neitaði að ræða við blaöamenn,
sænska og íslenska.
„Það er engin skömm aö tapa fyrir
Fram þó sænskir knattspyrnuáhuga-
menn telji það. Lið Fram er með vel
skipulagða vörn, beitir hröðum og
hættulegum skyndisóknum og leik-
menn liðsins voru oft rólegir og yfir-
vegaðir og léku vel saman. Anton
Björn Markússon er mjög góður leik-
maður, Kristinn R. Jónsson gífurlega
kk ef sér gði rði sterkur á miðjunni og Jón Erling Ragnarsson er alltaf hættulegur þótt hann hafi ekki verið eins góður og í leiknum í Reykjavík. Úrslitin eru
Jón til Sookers?
íeð
ast Svo gæti farið að Jón Sveinsson,
rir vamarmaður úr Fram, gerðist
lék leikmaður með bandariska at-
in- vinnuknattspymuliðinu San Di-
nn ego Sockers í vetur. Jón stundar
kki nám í San Diego og hefur æft með
sió liðinu að undanförnu og lék á síð-
)an asta vetri með áhugamannaliði
ta- félagsins.
elli ,,peii4 sKynsi iijouega, en pao yrði garaan að leika með Sockers. Liðið hefur orðið innanhúss- meistari í Bandaríkjunum sex ár í röð og fær 8-10 þúsund áhorf-
úti endur á heimaleikina sem fara
len fram í íshokkíhöll. Síðan stendur til að leika atí'innudeildina
ígu að hluta utanhúss líka,“ sagði
>on Jón.
ttu Tvísýnt er hvort Jón getur leik-
pn- iö raeð Fram í 2. umferð Evrópu-
im, keppni bikarhafa. „Ég tel ektó
ara miklar líkur á því, það verður
son erfitt fyrir mig að taka meira frí,
>að en ég athuga málið þegar ég kem
>on vestur,“ sagði Jón, sem hélt til
all- Bandarikjanna í morgun.
vissulega áfall fyrir sænska knatf
spyrnu, sem er í lægð um þessar
mundir,“ sagði Tommy Forsgren.
Leiðinlegt að
spila gegn Svíunum
„Það var þægilegt að hefja leitónn
þremur mörkum yfir og skora síðan
strax og ná fjögurra marka forskoti.
Ásgeir þjálfari var búinn aö segja aö
við gætum vel skorað í upphafi og
það gekk eftir. Svíarnir urðu strax
pirraðir og það var mjög leiðinlegt
að spila á móti þeim, þeir brutu gróf-
lega af sér, voru sítuðandi og með
alls konar stæla," sagði Jón Sveins-
son, aftasti maður í vörn Framara.
Hef aldrei séð svona dómgæslu
„Svíarnir spiluðu eins og okkur
hentar verst, með þrjá í framlínunni
og það gerði okkur erfitt fyrir í fyrri
hálileiknum. Ég þurfti að færa Stein-
ar aftar og láta hann spila sem bak-
vörð. En leikurir.n þróaðist vel og
strákarnir voru góðir. En ég var
mjög óánægöur með dómgæsluna,
ég hef oft séð heimadómara í Evrópu-
leikjum en aldrei eins og þetta hjá
Finnanum. Hann leit ekki á Svíana
þó þeir klipptu okkar menn niður og
gaf þeim svo eitt spjald til mála-
mynda fyrir ekki neitt. Nú æfum við
bara áfram og stefnum á að standa
okkur vel í 2. umferðinni," sagði
Ásgeir Elíasson.
Vörnin var besti hluti Framliösins,
Jón Sveinsson, Kristján Jónsson og
Viðar Þorkelsson stóðu sig allir mjög
vel ásamt Kristni R. Jónssyni, sem
var óhemju drjúgur á miðjunni, og
Pétri Arnþórssyni, sem baröist gífur-
lega aö vanda. Ánnars komust flestir
vel frá leiknum og Framarar geta
borið höfuöið hátt eftir þessi úrslit -
þeir hafa styrkt stöðu íslands í knatt-
spyrnuheiminum með frammistöðu
sinni gegn Djurgárden.
Áhorfendur á Rásunda voru aðeins
956, þar af á annað hundrað íslend-
ingar sem studdu Framara dyggi-
lega. Finnski dómarinn Eero Aho er
einhver sá slakasti sem undirritaöur
hefur„séð í leik á alþjóðavettvangi.
Fjögur félög
litu á Hörð
- Newcastie, Sheff. Utd, Bumley og Middlesboro
Forráðamenn fjögurra enskra knattspyrnuliða voru á meðal áhorfenda
þegar FH-ingar léku gegn Dundee United í Evrópukeppni félagsliða í Skot-
landi í gærkvöldi. Þeir voru að berja markakóng nýafstaðins íslandsmóts
augum og er hér að sjálfsögðu átt við FH-inginn Hörð Magnússon.
A leiknum voru menn frá 1. deiidar liðinu Sheffield United, 2. deildar hðun-
um Newcastle og Middlesboro og loks voru menn frá 4. deildar hðinu Burn-
ley. Þessir njósnarar sáu Hörð í góöu formi en hann skoraði einmitt fyrsta
mark leiksins. Þá áttu margir leikmenn FH góðan leik og er aldrei að vita
nema eitthvað komi út úr þessari heimsókn FH-inga til Dundee.
-SK
• Halldór Halldórsson, markvörður FH, handsamar knöttinn i leiknum gegn
Dundee United í gærkvöldi. Guðmundur Valur, sá hvitklæddi, fylgist álengd-
ar með. Símamynd/Dundee Courier.
Glæsimark
Kristjáns
FH og Dundee Utd skildu jöfn, 2-2
FH-ingar fóru á kostum í fyrri hálf-
leik gegn Dundee United í Evrópu-
keppni félagsliða í gærkvöldi. Leik-
urinn fór fram á Tannadice Park,
heimavelli Dundee United, að við-
stöddum 7 þúsund áhorfendum. Eftir
aðeins 28 mínútna leik voru FH-ingar
búnir aö ná tveggja marka forystu,
0-2, og leiðin í 2. umferð keppninnar
virtist í augsýn en fyrri leik liðanna
lauk með sigri skoska liðsins, 1-3.
Hörður Magnússon skoraði fyrra
mark FH með góðu skoti úr víta-
teignum á 20. mínútu. Á undan áttu
þeir Kristján Gíslason og Andri Mar-
teinsson góð tækifæri en markvörð-
ur Dundee Utd varði vel í bæði stópt-
in. Á 28. mínútu bættu FH-ingar við
öðru marki og er það eitt fallegasta
mark sem skorað hefur verið á
Tannadice Park. Kristján Gíslason
skaut firnafostu skoti af 25 metra
færi og fór knötturinn efst í mar-
homið. Dundee Utd komst næst því
að skora þegar Guðmundur Valur
bjargaði á marklínu. Andri Mar-
teinsson átti alla möguleika á að
bæta við þriðja markinu á 31. mínútu
en Billy Thomson markvörður varöi
mjög vel.
I síðari hálfleik sóttu lið Dundee
Utd meira en vörn FH varöist af
krafti. Patrick Connolly minnkaöi
muninn fyrir skoska liðiö á 62. mín-
útu og þegar tíu mínútur voru til
leiksloka jafnaði Dundee Utd eftir
hornspyrnu. Fastur snúningsbolti
var gefinn fyrir og lenti boltinn á
höföi Guðmundar Hilmarssonar og í
netið.
Áhorfendur púuðu á leikmenn
Dundee Utd í leikslok og fram-
kvæmdastjóri liðsins jós skömmum
yfir þá og skipaði þeim að taka
nokkra spretti fyrir slappa frammi-
stöðu.
Allt FH-liðið á hrós skilið fyrir
frammistöðu sína en fæstir áttu von
á að það myndi standa í skoska liöinu
sem er um þessar mundir í efsta
sætinu í skosku úrvalsdeildinni. Já,
FH-liðið getur borið höfuðið hátt.
-JKS