Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1990, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 1990.
35
Ingvar E. Sigurðsson og Elva Ósk Ólafsdóttir leika Þór og Hildi, sambýlisfólk sem bæði hafa lokið gítarnámi.
Ég er meistarinn, frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins 1 kvöld:
Leikrit sterkra tilfinninga
I kvöld verður frumsýnt nýtt ís-
lenskt leikrit í Borgarleikhúsinu á
vegum Leikfélags Reykjavíkur. Leik-
ritið, Ég er meistarinn, er eftir Hrafn-
hildi Hagalín Guðmundsdóttur og er
það frumsmíð hennar á sviði leikrit-
unar. Hrafnhildur er dóttir Guð-
mundar Pálssonar leikara, sem er
látinn og Sigríðar Hagalín leikkonu.
Afi hennar í móðurætt var Guð-
mundur Hagalín rithöfundur. Hrafn-
hildi eru því listamannshæfileikar í
blóð bornir. Áður en Hrafnhildur
sneri sér að leikritagerð var hún
lengi við nám í klassískum gítarleik
og ætti það ekki að koma neinum á
óvart að viðfangsefni hennar í Ég er
meistarinn tengist hæfileikum í með-
ferð klassísks gítars.
Persónur leikritsins eru þrjár og
það er gítarinn sem líf þeirra snýst
um, þótt viðhorfin séu ólík. Þá tengj-
ast þessar persónur, Meistarinn,
Hildur og Þór sterkum tilfmninga-
böndum þar sem Hildur er oft eins
og á milli tveggja spúandi eldíjalla.
Báðir ætlast til að hún sé þeirra stoð
og stytta, þó á hvorn sinn hátt. Auk
þess á Hildur í mikilli sálarbaráttu
um sitt eigið ágæti.
Ég er meistarinn er dramatískt
verk þar sem leikið er á tilflnningar
allra aðalpersónanna, gallar, hæfi-
leikar, fordómar og sérkenni hvers Meistarinn (Þorsteinn Gunnarsson) kemur óvænt aftur inn í líf Hildar og
um sig kemur skýrt fram í texta sem átðkin hefjast. DV-mynd Hanna
á eftir að halda væntanlegum áhorf-
endum föngnum meðan á sýningu
stendur. Leikritið er fyrst og fremst
dramatískt verk, en vissulega er
húmor í leikritinu þótt minna fari
fyrir honum. Það eru sérstaklega til-
svör Meistarans sem koma áhorf-
andanum til að brósa, enda persónan
tvöföld í roðinu.
Leikararnir þrír sem fara með
hlutverkin í Ég er meistarinn eru
Þorsteinn Gunnarsson sem leikur
Meistarann. Þorsteinn er meðal okk-
ar þekktustu leikara og á að baki
farsælan leikferil. Þau sem leika
Hildi og Þór eru ekki eins vel þekkt.
Elva Ósk Ólafsdóttir leikur Hildi og
er þetta hennar annað aðalhlutverk
fyrir Leikfélag Reykjavíkur. í fyrra
lék hún í Kjöti eftir Ólaf Hauk Símon-
arson. Ingvar E. Sigurðsson, sem
leikur Þór, heyr hér frumraun sína
á sviði atvinnuleikhúss, en hann út-
skrifaðist frá Leiklistarskóla íslands
í vor. Leikstjóri er Kjartan Ragnars-
son og leikmynd hannaði Hlín Gunn-
arsdóttir. Tónlistin í Ég er meistar-
inn er að langmestu leikin á gítar og
er það Pétur Jónasson sem sér um
gítarleikinn.
Eins og áður sagði er frumsýningin
í kvöld. Önnur sýning er annað
kvöld, þriðja á laugardagskvöld og
sú fjórða á sunnudagskvöld.
-HK
Íslandsvika í Tammerfors:
Viðamesta íslandskynning sem
farið hef ur fram í Finnlandi
Sinfóníuhljómsveit íslands og Kór Langholtskirkju meðal þátttakenda
íslandsvinafélagið Islandia og nýja
ráðstefnuhúsið í Tammerfors standa
fyrir íslandsviku 19.-24. október sem
verður viðamesta íslandskynning
sem fram hefur farið í Finnlandi til
þessa. Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, mun verða viðstödd
opnun vikunnar en forsetinn verður
útnefndur heiðursdoktor við
Tammerfors háskóla. Tammerfors
háskóli er fyrsti háskólinn á Norður-
löndum sem sýnir forseta íslands og
íslendingum slíka virðingu.
Á þriðja hundrað Islendihgar
munu fara til Tammerfors vegna
þessara hátíðarhalda. Svavar Gests-
son menntamálaráðherra og Jón Sig-
urðsson, viðskipta- og iðnaðarráð-
herra munu verða viðstaddir ís-
landsvikuna. Jafnframt mun biskup
íslands herra Ólafur Skúlason og
séra Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup verða með í för, en sungin
verður hámessa á íslensku og
finnsku í dómkirkjunni í Tammer-
fors.
Sinfóníuhljómsveit íslands, sem er
að leggja upp í tónleikaför um Norð-
urlöndin, mun halda tónleika í
Tammerfors en þar eru bernskuslóð-
ir stjórnandans Petri Sakari. Þá
verður Kór Langholtskirkju á tón-
leikaför um suður Finnland og mun
kórinn koma fram og syngja við há-
messuna í dómkirkjunni í Tammer-
fors.
Af öðrum dagskrárliðum íslensk-
um má nefna að Þjóðdansafélag
Reykjavíkur mun sýna dansa auk
þess sem íslenskir rithöfundar og
tónlistarmenn munu koma fram yið
ýmis tækifæri. Alla dagana verður
rekið íslenskt kaffihús, Kaffe Reykja-
vík. Þar gefst almenningi kostur á
að kaupa íslenskar veitingar en kaffi-
stofa Norræna hússins mun sjá um
reksturinn. Norræna húsið, sem hef-
ur tekið virkan þátt í undibúningi
þessarar viðamiklu íslandskynning-
ar, verður eninig með sýningar á sín-
um vegum. Má þar nefna grafík, ljós-
myndasýningu og sýningu á íslensk:
um steinum.
-HK
Merming
Nýrlistdanssfjóri
við fslenska
dansflokkinn
Einar Sveinn Þórðarson hefur
verið ráðinn listdansstjóri við ís-
lenska dansflokkinn tímabundið.
Einar hóf nám við Listdansskóla
Þjóðleikhússins 1%9 en fór aö því
búnu í framhaldsnám á árunum
1978-1982 við School of American
Ballet i New York. Að námu lo-
knu bauðst honum samningur
við Pennsylvania Ballet þar sem'
hann dansaði í tvö ár. Eftir það
kom Einar heim og dansaði með
íslenska dansflokknum um
tveggja ára skeið. Leið hans lá
síðan til Konunglega sænska bal-
lettsins ogþaðan yfir til Munchen
þar sem hann hefur starfað frá
1986 en sagði samningi sínum
lausum siðastliðið sumar. Einar
mun dansa í fyrirhugaðri sýn-
ingu íslenska dansflokksins á
Pétri og úlfinum sem frumsýnd
veröur 18. október.
Stórkostlegstúlka
slæraðsóknarmet
Nýtt aðsóknarmet hefur litið
dagsins ljós hjá Bíóhöllinni og
Bíóborginni í Reykjavík. Nú hafa
rúm fimmtíu þúsund manns séð
gamanmyndina Stórkostleg
stúlka eða Pretty Woman eins og
hún heitir á frummálinu. Er það
meiri aðsókn en nokkur kvik-
mynd hefur fengið hjá þessum
kvikmyndahúsum. Þessi mikl
aðsókn hefur komið jafhmikið á
óvart hér á landi sem og annars
staðar. Þegar myndin var gerð
var alls ekki búist við þessari
miklu aðsókn enda var ekki
miklu kostað til. Annað hefur
komið í ljós og það er ekki aðeins
hér á landi sem þessi geðþekka
kvikmynd hefur hlotið mikla aö-
sókn, heldur er talið fullvíst að
hún verði í efsta sæti í Bandaríkj-
unum yfir mest sóttar kvikmynd-
ir á þessu ári.
lífssaga Þórarins
Tyrfingssonar
áprent
Meðal þeirra bóka sem vafa-
laust munu vekja athygli í vetur
er Það hálfa væri nóg sem er lífs-
saga Þórarins Tyrfingssonar,
yfirlæknis SÁÁ. Þórarinn er
landskunnur af störfum sínum á
vegum SÁÁ. Hann hefur rétt
mörgum illa stöddum drykkju-
manninum hjálparhönd. Færri
vita að hann var hér á árum áður
einn af þekktustu handknatt-
leiksmönnum okkar og hann veit
af eigin raun hvert böl ofdrykkj-
an er þeim sem 1 klóm hennar
lendir. Það er Guðrún Guðlaugs-
dóttir blaðamaður sem skráði
lfissögu Þórarins, en útgefandi er
Örn & Örlygur.
Stjörnuspá-
dómabókeftir
Amy Engilberts
íslenáingar hafa ávallt verið
veikir fyrir hinu óorðna og hafa
spákonur sem hér hafa starfað
ekki þurft að kvarta yfir aðsókn-
inni. Einhver vinsælasta spákon-
an og sú sem kunnugir telja
merkilegasta er Amy Engilbert.s.
Hún hefur í mörg ár spáð fyrir
fróðleiksfúsum íslendinum meö
góöum árangri. Á vegum Hörpu-
útgáfunnar kemur út fyrir jólin
bókin Afmælísdagar með stjörn-
uspám eftir Amy Engilberts. Þar
mun hún spá í hin tólf stjömum-
erki og síðan skipta þeim upp í
þrennt. Áður hafa út komið hér
á landi stjörnuspádómsbækur
eftir erlenda höfunda en með bók
Amy Engilberts kemur á mark-
aðinn alíslensk bók um þessa vin-
sælu grein vísinda sem sumir
vilja eingöngu kalla dægradvöl.