Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1990. Merming Tel brýnt að fólk viti sem mest um náttúru landsins - segir Ari Trausti Guðmundsson, höfundur tveggja bóka um ísland Ari Trausti Guðmundsson, höfundur bókanna Ferð um hringveginn og Hin hlið íslands. Anna Mátfríður Sigurðardóttir. Anna Málfríðurá EPTAtónleikum Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari, sem er búsett í Tyrklandi ásamt eiginmanni sin- um, Martin Berkovsky, er stödd hér á landi í stuttri heimsókn. Hún heldur tónleika í íslensku óperunni i kvöld. Tónleikarnir eru í tónleikaröð EPTA og mun hún leika verk eftir Bach, Beet- hoven, Chopin, Rakhmaninoff og Liszt. Tónleikamir veröa endur- teknir í Kirkjuhvoli, Garðabæ á laugardaginn. Leikhús fyrir börn í Norræna húsinu Kaþarsis-leiksmiðjan frumsýn- ir í kvöld verkið Saga um lítinn prins. Hugmyndin að verkinu er sótt í sögu franska rithöfundarins Saint-Exupéry, Litli prinsinn, en leikhópurinn hefur unnið 40 mín- útna langa leikgerö byggða á sög- unni, sem ætluð er 3-7 ára göml- um börnum. Sýningar verða í sal Norræna hússins og þar ætlar Kaþarsis að bjóða áhorfendum i ævintýralegt feröalag um heim litla prinsins. Litli prinsinn er löngu heimsþekkt saga og er tæp- lega þrjátiu ár síðan hún var fyrst gefin út hér á landi. Hún á erindi viö alla, jafnt unga sem aldna, og í henni má finna bæöi létt gaman og djúpa alvöru. í sýningunni er leitast við aö segja söguna frá sjónarhóli bamsins. Leikarar eru Asta Arnardóttir, Erling Jóhann- esson, Sigurþór Albert Heimis- son og Skúli Gautason. Leikstjóri er Kári Halldór. Ari Trausti Guðmundsson jarðfræð- ingur er stórtækur á bókamarkaðin- um í ár. Tvær vandaðar bækur um náttúru íslands, sem hann er höf- undur að, eru að koma út þessa dag- ana hjá Lífi og sögu. Ferð um hringveginn er viðamikil og vönduð bók þar sem Ari lýsir á fróðlegan hátt því sem fyrir augu ber þegar hringvegurinn er keyrður. Textinn er ítarlegur og áhersla lögð á jarðfræðina. Tilgangurinn er að miðla fróðleik um valda staði eða valin fyrirbæri sem bíasa við af þjóð- vegi 1. Áhersla er lögð á jarðfræðina en þar að auki er eitt og annað tint til af sögulegum og almennum fróð- leik. Staðirnir sem fjallað er um eru sjötíu og fimm. Myndir í bókinni eru yfir 200 talsins og hefur Rafn Hafn- fjörð tekið flestar myndirnar en ljós- myndir eru samtals eftir átján manns. Hin hlið íslands á það sameiginlegt með Ferð um hringveginn að vera um náttúru íslands. Þar er það með- höfundur Ara Trausta, Hreinn Magnússon, sem tekur allar mynd- irnar í bókina. Sú bók er minni um sig. Textinn er á þremur tungumál- um, íslensku, ensku og þýsku. Til- gangurinn með bókinni er að veita lesandanum hlutdeild í veröld sem oftast er fjarri daglegu umhverfi okk- ar, hinni hliðinni á íslandi. Ari Trausti var fenginn í stutt spjall um bækurnar tvær og var fyrst spurður hvort ekki hefði verið mikil vinna aö fullgera Ferö um hringveg- inn: „Vissulega, en þó kannski ekki eins mikil og viröist, vegna þess að við gerð textans gat ég sameinað áhuga- mál og vinnu. Textinn sem ég samdi er uppsafnaður fróðleikur sem ég hef orðið mér úti um á mörgum árum. Bókin er samt ekki aðeins jarðfræði. Þarna eru þjóðsögur og almenn nátt- úrufræði í bland við almennan fróö- leik. Ég vaidi staðina ekki eftir mikil- vægi heldur valdi þá staði sem ég þekki eða hef áhuga á. Það er enginn vandi að skrifa um aöra sjötíu og fimm staöi sem margir hverjir eru eins áhugaverðir og þeir sem eru í bókinni." - Varstu strax með í huga hring- veginn þegar þú byijaðir á verkinu? „Nei. Það kom upp úr samstarfinu við forlagið Líf og sögu. Upprunalega vorum viö með aðra hugmynd, þjóð- garðana eða mjög þekktar slóðir svo eitthvaö sé nefnt. Smám saman þró- aðist hugmyndin um hringveginn. Þótt til séu handbækur og ferðabæk- ur sem fylgja vegum eftir, þá eru þær yfirleitt stuttorðar. Við komumst að þeirri niðurstöðu aö þörf væri fyrir bók sem þessa.“ - Ferð um hringveginn er meira til að lesa áður en lagt er í ferð eða eft- ir að ferð lýkur? „Það er allt í lagi aö taka bókina með í bílinn, en hún er ekki til þess og þetta er ekki bók til að hafa undir hendinni. Allir, hvort sem þeir keyra hringveginn eða ekki, geta fundiö einhvern fróðleik, bæði þeir sem lítið vita um náttúruna sem og þeir sem vita heilmikið um umhverfið. Ég skrifa um staði sem eru nálægt þjóðveginum og auðvelt aö komast á, en einnig um staði sem sjást frá hringveginum í fjarlægð. Til að mynda Kverkfjöll sem sjást, en eru þó í hundraö kílómetra fjarlægð frá veginum og þangað þarf fjögurra hjóla drif til að komast. Fólk veltir aftur á móti fyrir sér hvaöa fyrir- bæri þetta er sem það sér frá vegin- um og vill fræðast. Staöir þessir tengjast því hringveginum þótt ekki sé auövelt að komast þangað.“ - Fórstu sjálfur hringveginn þegar þú varst aö ákveða og skrifa um þá staði sem prýöa bókina? „Ég er búinn að fara svo víða um landið, og svo oft, að í þessu tilviki þurfti ég þess ekki með. Ég bara sett- ist niður og byrjaði á Tröllabörnum í Lækjarbotnum og vann mig síðan hringinn og endaði í Elliðaárdaln- um.“ - Var það eitthvert sérstakt sem réði vali mynda í bókina? „Þegar maður er að hugsa um eitt- hvert myndefni, þá er maður í leið- inni að leita að mynd af tilteknu fyr- irbæri. Ég myndskreyti ekki bókina með það í huga að hafa fallegar myndir. Ég þurfti mynd að ákveðn- um stöðum og notaöi myndir sem mér fannst passa best við, án þess að hugsa beint um fegurðina, enda er þetta ekki myndabók. Auk mynd- anna eru teikningar, gröf og kort, bæöi til fróöleiks og til útskýringar á jarðfræðinni. - Hin hlið íslands. Er hún ekki aðallega fyrir ferðamenn sem hafa áhuga á hálendinu? „Bókin er hugsuð fyrir ferðamenn og eins fyrir fólk sem vill senda gjaf- ir til útlendinga. Megintilgangurinn með bókinni sést á nafninu. Það er hin hliðin sem við viljum sýna bæði íslendingum og útlendingum. Við vildum sýna myndir af óþekktum slóðum að vetri, vori og hausti. í bókinni Hin hlið íslands skipta myndirnar miklu meira máli heldur en í Ferð um hringveginn. Þær eru allar teknar af einum og sama mann- inum, Hreini Magnússyni. Ég og Hreinn erum búnir að ferð- ast saman í mörg ár. Hann á heiður- inn af myndunum og þær eru aðalat- riöi bókarinnar. Þegar við vorum að velja myndirnar skiptum við efninu í þrjá flokka. Einn flokkurinn er myndir sem okkur fannst fyndnar og er þeim stillt upp litlum hér og þar í bókinni. Svo voru það svart- hvítar myndir sem sýna fyrst og fremst stemningu og síöan myndir sem sýna sjaldgæfar slóðir. Textinn er ekki eins sá sem ég er vanur að skrifa. Ég leyfi mér að vera skáld- legri en oftast áður. Útkoman er að mínu mati öðruvísi og sérstök bók um hálendi íslands. - Eru ekki margir staðir af þeim sjötíu og fimm sem teknir eru fyrir í Ferð um hringveginn, staðir sem fólk þekkir ekkert til? „Fólk sem býr í einstökum lands- hlutum kannast sjálfsagt við sjald- gæfari nöfnin, nöfn sem tengjast þess sveit og auðvitað vita sérfræðingarn- ir um allt saman, en almenningur þekkir aðeins hluta af þeim stöðum sem fjallað er um. Það er mikið af efni sem er nýtt fyrir fólki. Enda er það einn megintilgangurinn að koma til fólks fróðleik sem manni finnst vera mikilvægur. Þaö er brýnt að fólk viti eitthvað um efnahagsmál og landsmáhn. Þaö er einnig mjög brýnt að fólk viti eitt- hvað um náttúruna og unihverfis- mál. Við búum að einstakri náttúru. Slóðir eins og sýndar eru í Hin hlið íslands finnast ekki nema í Alaska og Grænlandi. Annars staðar eru þær svo stútfullar af fólki, stígum, strengjabrautum og skálum að myndefni á borð við það sem hér birtist er ekki til staðar. -HK Sjónaukinn á dagskrá kl. 21.05 Helga Guðrún beinir sjónaukanum að Landspítalanum sem er sextíu ára um þess- ar mundir og við förum með Sigurveigu Jónsdóttur, fréttastjóra Stöðvar 2, að skoða tvo forvitnilega leynihella.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.