Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
Fréttir_____________________________________________________________________________pv
Jóhann Breiðfjörð, 16 ára, fannst meðvitundarlaus á botni Laugardalslaugarinnar:
Björgunin besta jólagjöf
sem ég hef ði geta óskað
- sagði Ríkharð Óskarsson sundlaugarvörður sem blés lifi í piltinn
„Þetta var besta jólagjöfm sem ég
hefði getaö óskað mér. Það er fyrir
öllu að þetta fór allt vel að lokum,“
sagði Ríkharð Óskarsson sundlaug-
arvörður sem blés lífi í Jóhann
Breiðfjörð, 16 ára pilt, sem fannst
meðvitundarlaus á botni Laugar-
dalslaugarinnar síðdegis á mánudag.
Jóhann man ekkert eftir atvikinu
að öðru leyti en að hann hafði verið
að kafa í sundlauginni. Hann haföi
nýlokið strembnum próflestri, var
þreyttur og ætlaði að slaka aðeins á
í sundi. Maður, sem var á sundi i
lauginni, kom þáauga á Jóhann þar
sem hann lá á botninum. Ríkharð
tókst síðan að blása lífi í piltinn.
Þegar Ríkharð kom með blaða-
mönnum DV að heimsækja Jóhann
í gær, og sá síðamefndi fékk að vita
að þar væri maðurinn sem blés í
hann lífi - faðmaði hann Ríkharð að
sér og þakkaöi honum björgunina.
Jóhann er sonur Leifs Breiðfjörö
glerlistamanns og Sigríðar Jóhanns-
dóttur myndlistarkonu. Pilturinn
var nýlega í viðtali í sjónvarpsþætt-
inum Fólkið í landinu þar sem upp-
finningar Jóhanns og listrænir hæfi-
leikar vora tíundaðir.
Leið yfir Jóhann
„Ég var sennilega búinn að kafa í
eina og hálfa til tvær mínútur í laug-
inni. Síðan hefur bara liðið yfir
mig,“ sagði Jóhann.
Rikharð var í varðturni þegar hann
sá að eitthvað var aö gerast við dýpri
enda sundlaugarinriar. „Ég hljóp út
og ýtti á hnapp viðvörunarkerfis sem
Jóhann tekur utan um Ríkharð á Landspítalanum í gær og þakkar honum fyrir að hafa átt þátt í að bjarga lifi sínu
í Laugardalslauginni. DV-mynd GVA
lætur starfsfólkið vita hvar hjálpar
er þörf,“ sagði Ríkharð.
Annar starfsmaður hringdi strax á
neyðarsjúkrabíl og fleiri komu til
hjálpar þegar kerfið fór í gang. Sund-
laugargesturinn, sem hafði oröið var
við Jóhann á botninum, var búinn
að færa hann upp á yfirboröið. Hann
fékk hjálp við að koma piltinum upp
á bakkann. Ríkharð kom síðan aðvíf-
andi og hóf strax lífgunartilraunir.
Hættur að anda
„Hann var orðin helblár í framan
og hættur að anda. Ég hnoðaði hann
og það fór strax mikið vatn úr lung-
unum. Ég notaöi líka blástursað-
ferðina,“ sagði Ríkharð. Aðeins þrjár
mínútur liðu þar til sjúkrabíll kom á
staðinn og var þá lífsmark farið að
sjást á Jóhanni.
Að sögn Einars Þórs Einarssonar,
sjúkraflutningamanns á neyðarbíln-
um, voru viðbrögö allra þeirra sem
stóðu að björgun Jóhanns við sund-
laugina hárrétt og hefði það haft
mikið að segja. Á tímabih var tvísýnt
um líf piltsins. í þessu tilfelli hjálpað-
ist fullkomið neyðarkerfi sundlaug-
arinnar og fjöldi manna að því að
bjarga lífi hans. Einar Þór sagði að
útbúnaður neyðarbílsins hefði einn-
ig komið að góðum notum. Jóhann
var fluttur á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans en þaðan á Landspífalann.
Hann var hress í bragði þegar hann
var heimsóttur í gær og er óöum að
fiS sér.
-ÓTT
Listi DV yfir 10 söluhæstu bækurnar í síðustu viku:
Bókarheiti Höfundarheiti
1. (2) Égheflifaðmértilgamans, BjörnáLöngumýrisegirfrá 2. (1) Böbbi Gylfi Gröndal Silja Aðalsteinsdóttir og Ásbjörn Morthens
3.(3) Tár, bros og takkaskór Þorgrlmur Þráinsson
4.(-) Haltu mér-slepptu mér Eðvarð Ingólfsson
5.(4) Næturveföimir Alistair MacLean
6.(-) Margrét Þórhildur Danadrotting AnneWoden-Ræthinge
7—8.(7) Þá hló þingheimur Árni Johnsen og Sigmund
7—8.(5) Ráðgátan í víkinni Enid Blyton
9. (8-9) Undan illgresinu Guðrún Helgadóttir
10(—) Margirvildu hannfeigan Kristján Pétursson
10(-) Islensk samtíð 1991 Vilhelm G. Kristinsson
Bubbi og Bjöm hafa sætaskipti á bókalista DV:
Ég er sáttur við viðtökurnar
- segir Þorgrímur Þráinsson sem er 1 þriðja sæti
„Ég er mjög sáttur við viðtökur
bókarinnar. Það hefur komiö í ljós
sem ég sagði þegar að fyrsta bókin
kom út í fyrra að næsta bók yrði
prófsteinn því ef unglingunum líkaöi
fyrsta bókin myndu þau kaupa þá
næstu,“ segir Þorgrímur Þráinsson,
höfundur bókarinnar Tár, bros og
takkaskór.
Töluverðar breytingar era á bóka-
lista DV frí síðustu viku, Bjöm á
Löngumýri skýst upp í fyrsta sætið
og Bubbi fellur niður í annað sætið
en Tár, bros og takkaskór sitja sem
fastast í því þriöja. Á hinum tveimur
fyrri bókalistum er DV hefur birt í
þessum mánuði hafa Bubbi og Björn
fengið mun fleiri stig en bækumar í
sætunum þar fyrir neðan en nú era
bækumar í þremur efstu sætimum
með álíka mörg stig.
Eðvarð Ingólfsson er kominn inn á
listann en í síðustu viku munaði
mjög litlu að hann lenti ekki í 10.
sætinu. Margrét Danadrottning er
sömuleiðis ný á listanum og virðist
salan á þeirri bók hafa tekið mikinn
kipp því hún var ekki nálægt því að
komast inn á síðasta lista. Sömuleið-
is era bækur þeirra Kristjáns Péturs-
sonar, Margir vildu hann feigan, og
íslensk samtíð Vilhelms G. Kristins-
sonar nýjar á listanum. Bók Garðars
Sverrissonar, Kristján, er mjög ná-
lægt því að komast á listann því hún
hafnaði í 11. sæti.
Þetta er síðasti bókalistinn sem DV
birtir fyrir jól en milli jóla og nýárs
birtist svo síðasti bókalistinn.
Stigagjöf
DV hefur birt slíkan sölulista und-
anfarin ár með reglulegu milhbili í
desember fram til áramóta. Bóka-
verslanirnar sem taka þátt í könnun-
inni með DV eru: Bókabúðin Borg í
Lækjargötu, Bókabúð Böðvars í
Hafnarfirði, Hagkaup í Skeifunni í
Reykjavík, Bókabúð Sigurðar Jónas-
sonar í Stykkishólmi, Mikligarð-
ur/Kaupstaður í Reykjavík, Kaup-
félag Árnesinga á Selfossi, Bókabúð
Jónasar Jóhannssonar á Akureyri,
Bókabúð Brynjars á Sauðárkróki,
Bókaverslun Jónasar Tómassonar á
ísafiröi og Bókabúðin Hlöðum á Eg-
ilsstöðum.
í verslununum era teknar saman
sölutölur fyrir síðustu viku og búinn
til Usti yfir tíu söluhæstu bækumar
í hverri verslun. Bækurnar fá stig frá
einum og upp í tíu effir röðinni á Ust-
unum úr hverri. Stigin era siðan lögð
saman og bókunum raðað á söluUst-
ann eftir stigafjölda.
-J.Mar
Eignast KEA
Viking Brugg?
- verksmiöjan seld á nauöungaruppboöi í dag?
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
Ekkert bendir til annars en að
bjórverksmiðjan Viking Brugg á
Ákureyri verði seld á nauöungar-
uppboði sem fram fer á verksmiðj-
unni í dag. I gærkvöldi var ekki
annað vitað en til uppboðsins kæmi
og talið er að Landsbankinn og Iðn-
þróunarsjóður muni bítast um fyr-
irtækiö sem stærstu kröfuhafar.
Vitað er að viðræður hafa farið
fram á bak við tjöldin undanfarna
daga milli Páls G. Jónssonar, eig-
anda Vikmg Brugg, og aöila sem
hugsanlega kæmu inn sem hlutha-
far eða yfirtækju fyrirtækið. Vífil-
fell, sem er umboðsaðiU Coca Cola
á íslandi, hefur verið nefnt í því
sambandi og einnig Kaupfélag Ey-
firðinga.
„Við höfum verið að skoða máUð
en það hafa engar viöræður farið
fram um yfirtöku," segir Magnús
Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Eyfirðinga, um þær
sögusagnir að KEA sé um það bU
að taka yfir rekstur VUdng Brugg.
„Við höfum reynt að kynna okkur
þetta með því að ræða viö menn
sem tengjast máUnu en þetta era
einungis könnunarviðræður enn
sem komið er. Það má segja aö við
séum að kanna hvort þetta er eitt-
hvað sem við höfum áhuga á að
skoða betur. Menn hér á Akureyri
hafa vissulega áhyggjur af því ef
svo færi að þetta fyrirtæki færi
héðan úr bænum,“ sagði Magnús
Gauti.
Hráfnkell Ásgeirsson lögmaður
Páls G. Jónssonar mun hafa lýst
því yfir er 2. uppboð fór fram á fyr-
irtækinu fyrir skömmu að hann
hygðist kærá það uppboð til Hæsta-
réttar vegna þess að það hefði ekki
veriö rétt auglýst. Uppboðið heíði
átt að auglýsa í dagblaði en það var
auglýst í Degi á Akureyri. SUk
kæra mun þó ekki hafa verið kom-
in fram í gærkvöldi samkvæmt
heimildum DV en sUk kæra yrði
til þess að fresta yrði uppboðinu.
Sömu heimUdir segja að Lands-
bankinn og Iðnþróunarsjóður
muni bítast um fyrirtækið á upp-
boðinu í dag, en þessir aðUar eru
stærstu kröfuhafar. TaUð er að um
450 mUijónir króna hvUi á Viking
Bragg á Akureyri, en brunabóta-
mat hússins er rúmlega 200 miUj-
ónir króna. Hjá Viking Bragg er
m.a. framleidddur hinn vinsæU
Löwenbrau bjór sem hefur mesta
markaðshlutdeUd aUra bjórteg-
unda hér á landi.