Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990. 9 Utlönd Fabio Ochoa er yngsti leiðtogi Medelin eiturlyfjahringsins. Hann hefur nú gefið sig fram við yfirvöld. Símamynd Reuter Árangur í kókaínstríðinu 1 Kólumbíu: Eiturlyfjabarón gef ur sig fram Fabio Ochoa, einn alræmdasti eit- urlyfjabarón Medelin hringsins í Kólumbíu hefur gefiö sig á vald yfir- völdum. Hann gafst upp í kirkju nærri heimabæ sínum eftir að hafa boðað fulltrúa dómsmálaráðuneytis landsins á sinn fund. Ochoa féllst á skilmála sem forseti landsins setti í haust en í þeim felst að eiturlyfjabarónarnir verða ekki framseldir til Bandaríkjanna. Bóður- parturinn af umsvifum barónanna er smyngl á eiturlyfjum til Banda- ríkjanna og því hafa stjórnvöld þar gert kröfu um framsal höfuðpaur- anna. Talið er að Ochoa hafi stjórnað eit- urlyflahringnum í Medelin ásamt þremur bræðrum sínum og Pablo Escobar sem mest leit hefur verið gerð að. Þessir menn eru að sögn Bandaríkjamanna afkastamestu kókaínsmyglarar í heiminum. Litið er á uppgjöf Ochoa sem mik- inn sigur fyrir Cesar Gaviria forseta en stefna hans hefur verið að veita smyglurunum sakaruppgjöf aö hluta ef þeir gefa sig fram og hætta starf- semi. Til þessa hafa engin viðbrögð verið við tilboði forsetans. Ochoa er nú í strangri gæslu enda er fastlega búist við að félagar hans reyni að ráða hann af dögum. Lög- reglan hefur þegar yfirheyrt hann og var sýnt frá yfirheyrslunum í sjónvarpi. Ochoa segist hafa gefið sig fram án samráðs við félaga sína. Til- gangurinn hafi verið að stuðla að friði í Kólumbíu. Reuter Bandaríkin: Vextir lækka Mikið fiör hljóp í veröbréfavið- skipti í Bandaríkjunum eftir að ákveðið var að lækka forvexti á víxl- um úr 7% í 6,5%. Vaxtalækkunin tekur gildi í dag en áhrifanna gætti um leið og tilkynningin kom. Verðlag á hlutabréfamörkuðunum hækkaði þegar í staö en tilgangurinn með vaxtalækkuninni var að sögn að hleypa nýju lífi í efnahaginn eftir að aðeins höfðu borist fréttir af stöönun eða samdrætti síðustu mán- uði. Vexfir hafa ekki verið lækkaðir með þessum hætti í fiögur ár. Sagt er að spákaupmenn í kaup- höllinni í New York hafi hikað í þijár sekúndur eftir að fréttist af vaxta- lækkuninni. Eftir það fór allt í bál og brand og fiörug viðskipti hófust enda gera menn sér vonir um að geta slegið hagstæð lán fyrir kaupunum í dag. Bankamenn hafa síðustu ár hikað við að lækka vexti af ótta við að það leiði af sér verðbólgu og þenslu. í síðasta mánuði var verðbólgan mjög lítil og í kjölfar þess var ákveðiö að taka áhættuna á að verðlag hækkaði lítillega. Reuter Verð á olíu hækkar á ný Verð á olíu fór hækkandi í gær í Bandaríkjunum efti að hafa lækkað jafnt og þétt síðustu vikm*. Ástæðan fyrir hækkuninni nú er rakin til þess að ófriðvænlega horfir á ný við Persaflóann enda ljóst að Banda- ríkjamenn og írakar setjast ekki að samningaborðinu í bráð. í gær gengu harðorðar yfirlýsingar milli leiðtoga ríkjanna. Þá veldur lækkun vaxta í Banda- ríkjunum því að hagstæðara er en áður að hggja með olíubirgðir. Þegar mörkuðum var lokað vestra í gær- kvöldi var tunnan seld á um 28 dah og hafði hækkað um nærri einn dal yfir daginn. Það telst að vísu ekki mikh hækk- un en búist er við að verð á ohu hækki enn meira í dag nema ný og friðvænleg tíðindi berist frá Persa- flóanum. Fátt bendir þó til að svo verði. Reuter STUÐIA AÐ ANíDMÖTO ÞROSKA * -^ran — orleutlik mannsins — form, litir og ákrif eftir Birgit Stepk ensen. Atkyglisverð kófe un?J>að kvemig sfeynja má ámr og jirosfea eigið innsæi. Heilun eftir Anne Sopkie Jorgensen og jorgen Hoker Ovesen, fjallar um kvemig stuála megi að ífeamlegu og ancllegu jafnvægi. Emanuel Swedenkorg og eilífáartrúin mín eftir Helen Keller. Með ókilancli trú og fejarfei náði Helen Keller að yfi rvinna fötlun sína. HeiluN Kr. 2.390, Kr. 1.790,- OG © ÖRLYGUR Síðumúlu I I • Sími 84S66 KRYDDVÆNGIR Einnig tilboð á garðsalati * 1* .a Kentucky ? tried Chicken , t? ái 'E' Opið alla daga 11-22 LOGANDISTERKIR KRYDDVÆNGIR Kgntucky Fried Chicken m Hjallahrauni 15 Hafnarfirði sími 50828 Faxafeni 2 Reykjavík sími 68-05-88 ■flnm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.