Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Blaðsíða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
Andlát
Ámi Sæmundsson, Bala, Þykkvabæ,
lést í sjúkrahúsinu á Selfossi 17. des-
ember.
Ólöf Jónsdóttir, Tjamargötu 16, lést
á Borgarspítalanum 17. desember sl.
Jarðarfarir
Gunnar Níels Sigurlaugsson frá
Grænhóli, Gjögri, er lést á heimili
sínu, Hlégerði 2, Kópavogi, þriðju-
daginn 11. desember, verður jarð-
sunginn fimmtudaginn 20. desember
frá Fossvogskirkju kl. 13.30.
Sigríður Sigurjónsdóttir Jensen lést
í Kaupmannahöfn þann 16. desember
og verður jarðsett þar laugardaginn
22. desember.
Leiðrétting
Meinleg villa var í bókarkynning-
arfrétt um Friðarboðskap Jesú
Krists í Bókaitíðindum DV. Var bók-
in sögð kosta 9080 kr., en rétta verð
hennar er 980 kr.
Hrönn Jónsdóttir, sem lést í Svíþjóði
10. þ.m., verður jarðsungin frá Nes-
kirkju fóstudaginn 21. desember kl.
13.30.
Hallfreður Bjarnason bifvélavirki,
Hvassaleiti 58, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu-
daginn 21. desember kl. 13.30.
Jóhanna Sigurjónsdóttir, Bogabraut
3, Skagaströnd, verður jarðsungin
frá Hólaneskirkju á Skagaströnd
fimmtudaginn 20. desember kl. 14.
Ingi Gests Sveinsson, Leynisbrún 10,
Grindavík, sem lést á Borgarspítal-
anum fimmtudaginn 13. desember,
verður jarðsunginn frá Grindavíkur-
kirkju fimmtudaginn 20. desember
kl. 14.
Helga Jónsdóttir, frá Möðruvöllum í
Hörgárdal, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju fóstudaginn 21. des-
ember kl. 13.30.
Tilkyimingar
Draumalandið og stúfur
Bókaútgáfan Björk hefur nýlega sent frá
sér tvær bamabækur sem báöar eru í
hinum vinsæla bókaflokki: Skemmtilegu
smábamabækumar. Draumalandið er
nr. 25 í bókaflokknum. Tóta er aöal sögu-
Jólatónleikar
Mótettukórsins
Jólatónleikar Mótettukórs Hall-
grífnskirkju verða haldnir í kvöld í
Hallgrímskirkju. Verða flutt þrjú
verk, Magnificat og Jólasagan eftir
Heinrich Schutz svo og einsöngs-
kantatan Jauchzet Gott eftir Bach.
Flytjendur eru auk Mótettukórsins
einsöngvararnir Marta Halldórsdótt-
ir, sópran, Guðrún Finnbjarnardótt-
• ir, alt, Gunnar Guðbjömsson, tenór,
og Sigurður Steingrímsson, bassi,
auk hljómsveitar sem samanstendur
^af tveimur trompetmn, tveimur
blokkflautum, þremur básúnum,
fagotti, strengjum og orgeli. Konsert-
meistari er Rut Ingólfsdóttir og
stjórnandi Hörður Áskelsson. Tón-
leikamir hefjast kl. 20.30.
Einsöngvararnir á tónleikunum
em allir ungir. Marta Halldórsdóttir
stundar nám í Þýskalandi. Hún hefur
komið fram á nokkrum tónleikuum
að undanförnu og vakið athygli.
Gunnar Guöbjömsson starfar í Lon-
don og hefur getið sér góðan orðstír.
Guðrún Finnbjarnardóttir og Sig-
urður Steingrímsson em bæði við
söngnám í Söngskólanum í Reykja-
vík, þau hafa komið fram sem ein-
söngvarar með ýmsum kórum.
STUBBUR
persónan. Þá kemur við sögu fjöldi dýra
sem á sér Ijúfa drauma. Bókin er prentuð
í 4 litum. Textann geröi Elísabeth
Burrowes. Sigurður Gunnarsson, fyrrv.
skólastjóri, þýddi bókina úr ensku.
Stubbur er nr. 4 í sama bókaflokki en
kemrn- nú út í 8. útgáfu. Vilbergur Júlíus-
son skólastjóri þýddi bókina úr dönsku.
Báðar þessar bækur eru prentaðar í
Prentverki Akraness hf., Akranesi.
Hljómplata frá Ljóðabroti
Út er komin hljómplata ásamt diski og
snældu með flmm manna hópi sem nefn-
ist Ljóðabrot. Hópur þessi flytur tónlist
sem er aö mestu leyti gerð við ljóð eftir
nokkur íslensk nútimaskáld. Ljóðabrot
er ekki hljómsveit eða söngflokkur held-
ur „samstarfshópur" sem kemur nú í
fyrsta sinn fram undir þessu nafni. í
hópnum eru söngvaramir Sif Ragnhild-
ardóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og
Bjami Arason ásamt þeim Ingva Þór
Kormákssyni og Stefáni S. Stefánssyni
sem sá um útsetningar. Hljóðfæraleikar-
ar em Þórir Baldursson, Björn Thor-
oddsen, Stefán S. Stefánsson, Bjami
Sveinbjömsson, Halldór Gunnlaugur
Hauksson, Magnús Einarsson og Eyþór
Gunnarsson, bakraddir sungnar af Eddu
Borg og Jóhanni Helgasyni og upptöku-
maður var Jóhann Ásmundsson.
Heimsókn jólasveina í
Þjóðminjasafnið
Á morgun kl. 11 kemur Bjúgnakrækir í
heimsókn á Þjóðminjasafnið.
Háskólatónleikar í Norræna
húsinu
Á háskólatónleikum í Norræna húsinu
miðvikudaginn 19. desember kl. 12.30
verða leikin nokkur þekkt íslensk verk,
sem útsett hafa verið fyrir djasspíanótríó
af Agli B. Hreinssyni. Tríóið skipa Egill
B. Hreinsson sem leikur á píanó, Þórður
Högnason á bassa og Pétur Grétarsson á
trommur.
Upplestur fyrir börn
í Gerðubergi
Gunnhildur Hrólfsdóttir les úr bamabók
sinni „Þegar stórt er spurt“ í Borgar-
bókasafhinu, Gerðubergi, fimmtudaginn
20. desember kl. 16. AUir velkomnir.
Út er komið fyrsta tölu-
blað Skotmarks
Skotmark er fyrsta timaritið sem ein-
göngu fjallar um skotvopn og skotveiði.
Tímaritinu er ætlað að koma út fjórum
sinnum ár ári. Hvert blað kemur til með
að fylgja því sem um er að vera á hverjum
tíma. I sept. verður t.d. aðalefnið tengt
gæsaveiðinni. í desemberheftinu verða
rjúpnaveiðinni gerð séstök skil. í mars
verður sjónum beint að anda- og sjófugla-
veiði og í júní verður tekin fyrir skot-
fimin. Reynt verður að hafa timarit þetta
sem fjölbreyttast og koma inn á alla
mögulega hluti tengda byssum, skot-
færrnn, veiði, náttúru og dýralífi í bland
við aðalefni blaðsins hverju sinni. Fastir
þættir verða í blaðinu. Má þar nefha
mátreiðsluþátt, þar sem annálaðir villi-
bráðarkokkar matreiða bráðina sem
blaðið er helgað hveiju sinni. Veiði-
hundaþjálfari tekur fyrir og upplýsir les-
endur um ýmsat tegundir veiðihunda
o.s.frv. Að útgáfu Skotmarks standa
Tryggvi E. Þorsteinsson ritstjóri, Þór
Sveinsson og Guðmundur Guðmunds-
son. Útgefandi er auk þeirra auglýsinga-
stofan Frábær, auglýsingastofa Hafnar-
fjarðar hf„ sem setur upp og brýtur um
blaðið. Prentun og filmuvinu andaðist
Prentbær.
Jólagetraun DV -10. og síðasti hluti:
Finnið f imm vitleysur
Þá erum við komin að síðustu
myndinni í listagalleríi jólasvein-
anna. Hún er af kanslara Þýska-
lands. Sá virðist glaður í bragði
en hefði hann séð myndina af sér
er ekki eins víst að ánægjan yrði
mikil.
Listasnillingur jólasveinanna
leitar á náðir lesenda að finna
fimm vitleysur sem hann hefur
óvart málað á myndina. Setjið
hring um vitleysumar fimm og
khppið myndina út ásamt reitn-
um fyrir nafn og heimilsfang.
Þetta er síðasti hluti jólaget-
raunarinnar. Nú geta lesendur
loksins sett allar 10 lausnimar í
umslag merkt „Jólagetraun".
Sendið umslagið til: DV, Þver-
holti 11,105 Reykjavík. Skilafrest-
ur rennur út 28. desember og þar
sem nú eru löng jól með fáum
vinnudögum er best að senda
lausnirnar strax af stað. Þeir sem
vilja skila lausnunum sjálfir geta
komið á afgreiðslu blaðsins í
Þverholti 11 og stungið þeim í
sérstakan kassa þar.
Dregið verður úr réttum lausn-
um miðvikudaginn 2. janúar og
listi yfir vinningshafa birtur dag-
inn eftir.
Vinningar í jólagetraun DV em
glæsilegir. Þar má finna Pana-
sonic myndbandstökuvél, Tec-
hnics geislaspilara, Goldstar
ferðaútvarp með geislaspilara og
kassettu, Goldstar ferðaútvörp
með tvöföldu kassettutæki og
Goldstar ferðaútvörp með kass-
ettu. Vinningamir era frá Japis
og Radíóbúðinni og era að verð-
mæti um 205 þúsund krónur.
Jólagetraun DV
Nafn........................
Heimilisfang................
Póstnr...........Staður.....