Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Side 17
MIÐVIKUDA6UR 19. DESEMBER 1990.
17
Svidsljós
Rachel Hunter, 21 árs gömul nýsjálensk fyrirsæta, brosir hamingjusöm eft-
ir að hafa komið Rod Stewart upp að altarinu.
----------------7T--------
Heilsusamlegar jólagjafir
Úrval
af
þrekhjólum
frá Kettler
V-Þýskalandi
Verö frá kr.
15.500, stgr.
14.725
Ármúla 40
sími 35320
Iferslunin
>U4RKID
Jólatilboð:
Lyftingabekkur með fótæfingum og 50 kg
lóðasetti, verð aðeins kr. 15.700, stgr. kr. 14.900
Fáanlegiraukahlutir: Hnébeygjustandurkr. 4.484
Butterfly kr. 4.500
Rod Stewart
giftist
-brúðurin er 21 árs fyrirsæta frá Nýja-Sjálandi
Breska rokkstjarnan Rod Stewart
og nýsjálenska fyrirsætan Rachel
Hunter giftu sig í Hollywood 15. de-
sember. Fjölmargir voru viðstaddir
athöfnina sem fór fram við sekkja-
pípuundirleik.
„Hún er frábær, hún er yndisleg,
hún er falleg," sagði Rod stoltur viö
kirkjugesti þegar hann gekk út í
Rolls Royce bifreiðina sem flutti þau
frá kirkju. Tuttugu verðir gættu þess
að óboðnir gestir kæmust ekki að
kirkjunni og lök voru hengd upp fyr-
ir'utan til að byrgja útsýnið fyrir for-
vitnum vegfarendum.
Náinn vinur Rods sagði að það
hefðu orðið mikil umskipti á drengn-
um síðan hann lét hafa það eftir sér
að áhugamál hans væru fótbolti,
drykkja og konur - í þessari röð.
Söngvarinn er nú orðinn 45 ára gam-
all en er ennþá á fullu í bransanum.
Rod hitti Rachel fyrst í ágúst í sum-
ar, rétt eftir að hafá slitið sambandi
við barnsmóður sína, fyrirsætuna
Kelly Emberg. Áður hafði hann stað-
ið í ástarsambandi við Britt Eckland
og verið giftur Alönu Hamilton Stew-
art auk þess sem hann átti vingott
við ótal aðrar stúlkur.
Auk hinnar þriggja ára gömlu
Ruby, dóttur hans og Kelly Emberg,
á Rod tvö önnur börn meö Alönu,
fyrrum eiginkonu sinni. Þau heita
Kimberley, 10 ára, og Sean, 9 ára.
Áöur en Rod Stewart varð frægur
á sjöunda áratugnum vann hann viö
að taka grafir í kirkjugörðum. En
síðan eru liðin mörg ár.
Blindur maður
rænir 17 banka
Robert Vernon Toye er maður sem
lét ekki fotlun sína hindra sig í starfi.
Þrátt fyrir að hann væri nær algjör-
lega bhndur af völdum hrömunar-
sjúkdóms sem leggst á augun náöi
hann að ræna alls 17 banka áður en
hann komst undir manna hendur og
var settur bak við lás og slá.
„Þegar sjónin brást var þetta það
eina sem ég gat hugsað mér að gera,“
segir Toye sem nú situr í fangelsi sem
er sérstaklega hannað fyrir fatlaöa
fanga. Hann lét blindu sína aldrei
stöðva sig heldur sérhæfði sig í að
ræna banka með hvítan staf einan
að vopni. Að vísu faldi hann kók-
flösku gjarnan undir frakkanum sín-
um sem hann sagði gjaldkerum að
væri byssa.
Hann náðist tvisvar. í fyrra skiptið
var hann svo óheppinn að ana beint
í flasið á vopnuðum vörðum sem
voru í þeim svifum að koma með
peningasendingu til bankans. í það
skipti slapp hann úr höndum yfir-
valda en nokkrum árum og talsvert
mörgum bankaránum seinna náðist
hann endanlega. Hann fékk 17 ára
fangelsisdóm og hefur einu sinni
reynt að flýja. Þrátt fyrir blinduna
tókst honum að komast yfir girðing-
una en var þá svo óheppinn að
Blindur maður sem situr í fangelsi
fyrir 17 bankarán.
hlaupa á tré.
Alls tókst Toye að nurla saman
röskum 70 þúsund dollurum með
ránum. Hann fullyrðir að hann hafi
gefið hluta þess til styrktar blindum
en minnst af fénu hefur fundist.
Toye, sem sleppur úr fangelsi 1993,
segist ekki gera ráð fyrir því að taka
upp heiðarlegt liferni að lokinni af-
plánun.
„Ef mig vantar einhvern tíma pen-
inga þá veit ég hvar þá er að finna,“
segir sá blindi hvergi banginn.
AfflYGLISVERÐAR
RÆiriiD
SKUGGSJA
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
MYNDÍR ÚR LÍFIPÉTURS EGGERZ,
FYRRVERANDI SENDIHERRA
GAMAN OG ALVARA
PÉTUR EGGÉRZ
Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sfnu sem
lítill drengur í Tjarnargötunni f Reykjavík,
þegar samfélagið .var mótað af allt öðrum
viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann
um það, er hann vex úr grasi, ákveður að
nema lögfræði og fer til starfa f utanríkis-
þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur
hefur kynnst miklum Qölda fólks, sem
hann segir frá f þessari þók.
KENNARI Á FARALDSFÆTI
MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI
AUÐUNN BRAGISVEINSSON
Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara-
starfi sfnu í öllum hlutum landsins. Hann
greinir hér af hreinskilni frá miklum íjölda
fólks, sem hann kynntist á þessum tfma,
þæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá
kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán
stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol-
ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi
og í Ballerup í Danmörku.
BÍLDUDALSKÓNGURINN
-ATHAFNASAGA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
ÁSGEIR JAKOBSSON
Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem
var frumherji í atvinnulffí þjóðarinnar á
síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu
áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns,
sem vann það einstæða afrek að þyggja upp
frá grunni öflugt sjávarpláss; hetjusaga
manns, sem þoldi mikil áföll og marga
þunga raun á athafnaferlinum og þó enn
meiri í einkalffinu.
SONUR SÓLAR
RITGERÐIR UM ÐULRÆN EFNI
ÆVAR R. KVARAN
Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton,
sem dýrkaði sólarguöinn og var langt á
undan sinni samtfð. Meðal annarra rit-
gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf-
steinn Björnsson miðill; Vandi miðilsstarfs-
ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði
Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun-
ar; Er mótlæti ílffinu böl?; Himnesk tónlist;
Hefur þú lifað áður?