Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
19
Menning
Erfitt að f á við-
mælendur mína
til að fjá sig
- segir Svanhildur Konráðsdóttir, höfundur „Neistar frá sömu sól“
Neistar frá sömu sól er viðtalsbók
við fimm einstaklinga sem allir
hafa haft afskipti af dulrænum
málefnum þó hvert og eitt á ólikan
hátt. Viðtölin í bókina tók Svan-
hildur Konráðsdóttir. Þau sem tal-
að er við eru Þórhallur Guðmunds-
son, starfandi miðill í Reykjavík,
Brynjólfur Snorrason, nuddari á
Akureyri, Erla Stefánsdóttir, sem
býr yfir fjölbreyttum dulrænum
hæfileikum, GísU H. Wium, lækn-
ingamiðill í Sandgerði, og Jón Sig-
urgeirsson, sem um árabil hefur
lagt stund á andlega fræðslu og
lækningar og nú síðast sogæða-
nudd. Bókin hefur vakiö athygli og
forvitni margra og við fengum því
Svanhildi í stutt spjall um bókina.
Hún var fyrst spurð hvort það hefði
verið af áhuga á dulrænum hæfi-
leikum að hún fór út í að skrifa
„Neistar frá sömu sól“.
„Áhugi minn á þessum málum
hefur staðið í mörg ár og fer sífellt
vaxandi. Þegar ég var ritstjóri
Mannlífs fór ég að skrifa um dul-
ræn málefni og var með bæði grein-
ar og viðtöl. I gegnum þessi skrif
kynntist ég íjórum af fimm við-
mælendum mínum. Málin þróuð-
ust þannig að mig langaði að skrifa
bók um þessi mál og var búin að
ætla að gera það í þrjú ár. Sem
betur fer beið ég með bókina. Fyrir
þremur árum var ekki rétti tíminn
fyrir mig aö fara út í þetta. Það var
svo Jóhann hjá Forlaginu sem rak
endahnútinn á tilurð bókarinnar
og fékk mig til að byija. Ég var níu
mánuði að skrifa bókina og ég vona
að þessi langi tími hafi skilað sér.“
- í formálanum að bókinni segir
að þú hafir ekki viljað tala við fólk
sem hefur reynslu 'af viðmælend-
um þínum heldur viljir þú aö les-
andinn sjálfir ákveði hveiju hann
trúir?
„Ég tel að það hefði verið vitleysa
að hafa þann háttinn á. Þótt ég
hefði fengið einhveija einstaklinga
til að játa reynslu sína af samskipt-
um við viðmælendur mína þá get
ég ekki séð að ég hefði getað bætt
neinu við. Ég segi einnig í formál-
anum að ekki sé ætlunin að sann-
færa einn eða neinn.“
- Er þetta ekki bók sem vantrúað-
ir á það sem um er fjallað forðast
að lesa?
„Þaö er deginum ljósara að þeir
sem eru fyrirfram ákveðnir í þeirri
trú að það sé ekkert annað til en
það sem við getum séð og þreifað
á munu ekki vilja eignast bókina
og hún prýðir ekki bókahillur
þeirra. Hins vegar eru það margir
sem eru opnir og eru að leita svara
við einhveijum spurningum. Bók-
in getur veitt þeim innsýn í heim
sem mörgum er hulinn og getur
vonandi haft þau áhrif að fólk fari
aö velta fyrir sér aö það er til miklu
meira en það sem er augljóst. Ekki
er ég samt að segja aö viðtölin veiti
fullnægjandi svör.“
- Nú er misjafn hversu kafaö er
djúpt í fræðin hjá hverjum einum.
Ef við til dæmis tökum Erlu Stef-
ánsdóttur þá er fjallað mjög ná-
kvæmlega um hennar fræði?
„Hennar lífssýn er þess eðlis að
við gátum farið djúpt í hennar
fræði. En taka verður fram að það
sem við skynjum sem flókið mál
er þó aðeins rétt yfirborðið á því
sem Erla skynjar."
- Eru hæfileikar á borð við þá
sem lýst er í bókinni ættgengir?
„Þau vilja halda þvi fram sjálf aö
hæfileikar séu til hjá fleiri en ein-
um í fjölskyldu. Það má líka segja
það að ef áhugi er í fjölskyldu fyrir
dulrænum málefnum sé mun hæg-
ara fyrir þann einstakling sem hef-
ur hæfileikana að þroskast og
dafna. Nú er það alls ekki óalgengt
að böm hafi hæfileika sem svo aft-
ur geta horfið þegar þau eldast. Það
hlýtur að vera mjög slæmt fyrir
börn sem hafa sterka dulræna
hæfileika þegar foreldrar eða fjöl-
skylda er mjög neikvæð og skiln-
ingslaus gagnvart þessum málum."
- Hvernig valdir þú viðmælendur
þína?
„Ég vildi forðast það að taka að-
eins fólk sem býr á Reykjavíkur-
svæðinu. Ég vildi einnig fá fólk af
landsbyggðinni þvi þar er einmitt
mjög lífleg starfsemi. Nánast í öll-
um kaupstöðum landsins eru sál-
arrannsóknarfélög og áhuga-
mannafélög um dulræn málefni."
- Hvemig gekk svo að fá þessa
fimm einstaklinga til að tjá sig?
„Það var n*jög erfitt. Sumt af við-
mælendunum heldur námskeið
eða einhvers konar fyrirlestra. Það
berst svo frá manni til manns hvað
þama er um að vera og það kemur
fyrir að stanslausar símhringingar
eru heim til þessa fólks. Þannig að
öll umfjöllun er ekki til annars en
að auka álag. Mér fannst því skilj-
anlegt að þau væru treg til.“
- Aö lokum, Svanhildur, ert þú
gædd dulrænum hæfileikum?
„Ég er ekki skyggn sjálf. Afi minn
var mjög sterktrúaður maður og
hann hafði mjög náið samband við
Einar á Einarsstöðum, ég er því
alin upp við að líta á dulræn mál-
efni sem sjálfsagðan hlut og að
lækningar af þessu tagi séu mögu-
legar. Sjálf naut ég hjálpar hans á
alvarlegri stund í mínu lífi þar sem
spurningin var um líf eða dauða.
Tru mín er því sterk."
-HK
Úr bókinni:
Hjátrú:Þeir sem eru
duglegastir, iðnastir og
eiga mest skilið að komast
til metorða.
Raunveruleiki:Vertu
raunsær! Athugaðu
ástandið í eigin fyrirtæki
eða öðrum. Verakann að
foreldrar þínir hafi
sannfært pig að lífið sé
sanngiamt eða a.m.k. að
það ÆTTI að vera
sanngjamt. Hvaða skoðun
sem þíí hefur á sanngirni
skiptir það mestu mali að
það er engin TRYGGING
fyrir sanngimi
Þetta er bók sem höfðar til allra sem
vilja auka tekjur sínar og öðlast raunsætt
viðhorf til peninga
Fæst í bókaverslunum um land allt, einnig getur
Bb,. Jraj þú pantað bókina hjá okkur og við sendum hana
samdægurs þér að kostnaðarlausu.
Phil Laut
Lífsafl, Laugavegur 178, 105 Reykjavík, S.: 91-622199 uuah
sokkabuxur
sokkar
silkimjúkir
og þægilegir
INGÓLFS APÓTEK
KRINGLUNNI
Símí 689970
Polaroíd myndavél og armbandsúr saman í fallegum gjafapakka, verð aðeíns kr. 3.350,- Opnum “ Tílvalín jólagjöf. kl. 8.30 Allai r ljósmyndavörur á einum s tað;
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF Laugavegi 178 - Sími 68-58-11 (næsta hús við Siónvarpið)
■ ■ i ■ Ti i i ■ , , n-i"-, i ■ ■ ■ ■ ■■■■■i ■ ■