Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990. 23 Sviðsljós Thor Vilhjálmsson rithöfundur flutti ávarp og las frumsamið Ijóð. DV-mynd Kristín Boga Fullveldis- fagnaður í Frakklandi Ingibjörg Stephensen, DV, París: íslendingar í París héldu 1. des- ember hátíðlegan með því að fara saman út að borða. Fjöldi íslend- inga í París, og þá sérstaklega ís- lenskra nemenda, hefur stóraukist síðastliðin ár. í ár eru helmingi fleiri nemendur hér en í fyrra ef dæma má eftir símaskrá sem gefin var út af fulltrúun SÍNE. Núr eru því að minnsta kosti 150 íslending- ar búsettir í borginni og úthverfum hennar. Þátttaka í fullveldisfagnaðinum var mjög góð. íslendingarnir bók- stáflega ílykktust á staðinn og voru um 90 þegar flest var. Thor Vilhjálmsson rithöfundur sem dvalið hefur undanfarna tvo mánuði í Kjarvalsstofu,. lista- mannaíbúð í eigu íslenska ríkisins, flutti ávarp og las frumsamið Ijóð. Einnig tróðu upp sverðagleypir og lírukassaspilari, svo eitthvað sé nefnt, svona rétt til að minna okkur á að við værum þrátt fyrir allt stödd á erlendri grund. Stemningin var mjög góð og allir virtust skemmta sér konunglega þrátt fyrir að nokkrar tafir yrðu á að maturinn væri borinn fram. Menn létu það nú ekkert á sig fá enda skiptir maturinn minnstu máli á samkomum sem þessum. Allir fengu þó eitthvað í gogginn að lokum og biðin var bætt upp með drykk á eftir. Herra-og dömuhanzkar ígjafaumbúðum- belti-seðlaveski- regnhlífar ^lálmrötáúáttjT, /O/TQijljcíLtií, ^>im.l5QI4 MARK útvarp MARK útvarpsvekjari SINGER saumavélar kr. 36.900 MARK HLJOMTÆKJASETT með geislaspilara kr. 39.377 &SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARD f ‘ 1 iji

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.