Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
29
dv Menriing
Björk Guömundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir &
Tríó Guðmundar
Ingólfssonar - Gling gló
CifXvl
bvon
skvetta í
nafolt
poppið
Hugmyndin er góö. Eitt sam-
spilaöasta djasstríó landsins og
okkar þekktasta rokksöngkona
fyrr og síðar leiöa saman hesta
sína og flytja gamalt popp. Lögin
voru flest hver vinsæl fyrir daga
rokks og eru sprottin úr allt öör-
um jarðvegi en það sem Guö-
mundur Ingólfs og félagar og
Björk og hennar menn eru aö
fast viö dags daglega.
Úrvinnsla hugmyndarinnar er
einnig góð. Flutningurinn er lif-
andi. Það vantar raunar ekkert
nema klappið. Daginn áður en
platan var tekin upp héldu Björk,
Guðmundarnir og Þórður tón-
leika á Borginni Hún heföi allt
eins getað verið tekin upp þar,
Allt í einu er komið fullt af
svörtum áhrifum í gamla, náföla
poppið. Luktar-Gvendur svingar
prýðilega. Hið hundleiöinlega Ó
pabbi minn er nú allt í eínu oröiö
skemmtilegt. Nú getum við svo
sannarlega notað*þá líkingu aö
gamlir símastaurar séu allt í einu
farnir að syngja i sólskininu og
séu orðnir grænir aftur.
Nýjar plötur
Ásgeir Tómasson
í stuttu máli gengur platan
Gling gló upp. Þremenningarnir
fara létt með spilið. Og ekki er
að heyra að Björk erfiði neins
staðar sem neinu nemi. Hún er
satt aö segja bráðskemmtileg víð-
ast hvar. Aö visu held ég að engri
söngkonu nema ef til vill Hall-
björgu Bjarnadóttur liðist að
túlka þjóöararf dægurtónlistar-
innar fyrir rokk á sama hátt og
Björk gerir. Og ef ætti að setja út
á eitthvað er það bannsett flámæ-
liö hér og þar. En spreillifandi
túlkunin bætir upp allar misfell-
ur.
Gling gló er öðruvísi plata en
aörar sem slást um athygh neyt-
enda þessa dagana. Það gefur
henni einnig aukið gildi. Rennt
er af stað með einfalda tónlist sem
gengur fyllilega upp í einfaldleik
sínum og hrárri útfærslu. Maöur
leggur við eyrun þegar Björk,
Þórður og Guömundamir
hljóma.
Fréttir
Tryggingagjaldið:
Ekki samstaða innan
stjórnarflokkanna
Frumvarp til laga um trygginga-
gjald, sem er fylgifrumvarp fiárlaga-
frumvarpsins og miðar að því að
samræma öll þau launatengdu gjöld
sem atvinnureksturinn í landinu
greiðir, kom til fyrstu umræðu í
neðri deild Alþingis í gær.
Friðrik Sóphusson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði við um-
ræðuna að frumvarpið væri alls ekki
fullunnið og framleggjandi eins og
það er. Það væri lágmark að ríkis-
stjómarflokkamir lykju við heima-
vinnu sína áður en þeir sendu frum-
vörp frá sér sem sfiómarfrumvörp.
Það mun ekki vera full samstaða
milli sfiómarflokkanna um frrnn-
varpið. Einkum era það framsóknar-
menn sem era að verja hagsmuni
bænda varðandi skattlagningu.
Framsóknarmenn vilja að bændur
greiði 2,5 prósent af launagreiðslum
í landbúnaði en ekki-4,5 prósent eins
og gert er ráð fyrir í framvarpinu að
allir greiði.
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sagði í gær aö það væri vandséð að
hægt yrði að afgreiða þetta frumvarp
fyrir jólaleyfi.
Þá eru ýmis önnur hliðarframvörp
í tengslum við fiárlagafrumvarpið
ekki komin fram. Fjármálaráðherra
leggur mikla áherslu á að þau verði
afgreidd með Qárlagafrumvarpinu
fyrir jólafrí. Margir era svartsýnir á
að það takist.
-S.dór
Fann trúnaðarpappíra
við vegkantinn
„Ég- var búinn að sjá kassana
þama í viku til tíu daga þegar ég
ákvað loks að athuga hvað í þeim
væri. í kössunum reyndust vera
skjöl og pappírar, allt rennblautt
og klesst. Meðal skjalanna vora
bréf merkt algert trúnaðarmál,
bréf sem virðast hafa gengið milli
Steingríms Hermannssonar og Ól-
afs Jóhannessonar fyrir um 10
árum,“ sagði Ingibergur Bjamason
í samtali við DV.
Kassarnir, sem Ingibergur talar
um, höföu legið í vegkantinum á
Smiöjuvegi, rétt við beygjuna hjá
sölutuminum Bláhorni. Ingiberg-
ur kannaði innihaldið á fimmu-
dagskvöld í síðustu viku og sá
hvers kyns var. Seinnipart föstu-
dagsins ætlaði hann að taka kass-
ana en þá voru þeir skyndilega
horfnir.
Ingibergur lét mest af skjölunum
af hendi til manns er ætlaöi að
skoða þau. Bróðir Ingibergs haföi
einnig tekið eitthvað af þessum
pappírum til að athuga hvað væri
þama á ferð. Hann sýndi DV þá
pappíra sem ekki reyndust merki-
legir þegar til kom og ekki merktir
sérstaklega. Þar voru aðallega
ýmsir pappírar tengdir Framsókn-
arflokknum, drög að stefnuskrá og
fleira slíkt.
Kassarnir virðast hafa dottið í
flutningum um Smiðjuveginn.
-hlh
Bráðabirgðalögin í efri deild
í gær voru bráðabirgðalög ríkis- Gert er ráð fyrir að afgreiöa frum-
stjómarinnar tekin til 1. umræðu í varpið sem lög frá Alþingi fyrir jóla-
efri deild Alþingis. Sem kunnugt er frí þingmanna sem hefst um næstu
afgreiddi neðri deild þingsins frum- helgi.
varpið eftir 3. umræðu á mánudag. -S.dór
Vissi ekki af fjögurra
milljóna vinningi
Maður, sem haföi keypt sér lottó-
miða 1. desember, lét renna honum
1 gegnum lottóvélina síðastliðinn
laugardag í einum sölutumi borgar-
innar til að athuga hvort hann ætti
einhvem vinning. Hann hélt að hann
ætti eitthvern smávinning en hins
vegar kom í ljós að maðurinn var
einn þriggja vinningshafa í þreföld-
um potti. Vinningurinn var hvorki
meira né minna en 4,2 milljónir.
-ns
Jólagjöf frá
SEM-samtökunum
SEM-samtökin, samtök endur-
hæföra mænuskaddaðra, hafa
ákveðið að styrifia konuna sem tók
að sér böm mæðgnanna er létust í
hörmulegu bílslysi í Ártúnsbrekku
fyrir skömmu. Gefa samtökin 100
þúsund krónur.
Reynir Kristófersson, gjaldkeri
SEM-samtakanna, kom á ritstjórn
DV og afhenti peningagjöfina. Óskaði
hann að þessir peningar kæmu að
notum við jólahaldið við þessar erf-
iðu kringumstæður. Peningagjöfmni
hefur verið komið til réttra aðila.
-hlh
riD BJOÐUM UPP A ÞRJAR GERÐIR
NÆRFATA ÚR NÁTTÚRUEFNUM Á
ALLA FJÖLSKYLDUNA. Á UNGBÖRN,
BÖRN, UNGLINGA, KONUR OG KARLA.
100% silkinærföt, mjög einangrandi, sem gæla viö húðina. Finnsk gæöavara
Ruskovilla.
100% ullarnærföt af Merinófé - silkimjúk og hlý. Finnsk gæðavara frá Ruskovilla.
Nærföt úr blöndu af kanínuuli og lambsuti, styrkt meö nælonþræöi. Vestur-|
gæðavara frá Medima.
Allar þessar þrjár geröir eru til i barna- og fullorðinsstærðum.
NÁ TTÚRULÆKNINGABÚÐIN,
LAUGAVEGI 26, SlMI 10283.
jðiahLaKiXxL
Hjólsög
Jólatilboð +
Tjara á hjólböröum minnkar
veggrip þeirra verulega.
Ef þú skrúbbar eða úöar
þá með olíuhreinsiefni
(white spirit / terpentína)
stórbatna aksturs-
eiginleikar í hálku.
UMFERÐAR
RÁD
5 stillingar, 60 mín. klukka, snún-
ingsdiskur, íslenskur leiðarvísir,
matreiðslunámskeið innifalið.
Sértilboð 14.950,* stgr.
Rétt verð 19.950.- stgj\
B Afborgunarskilmálar [g]
hu5mgö,
TOMMA
HAMBORGAIAAR
LÆKJARTORGI
liáfilblS*
TIIMjA
Frá kl. n.00-14.00
Skinkuborgari,
franskar og kók
kr. 445,-
Fiskur, franskar
og kók
kr. 375,-
Þú fœrð ekki betri
skyndibita.