Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Side 40
Frjálst,óháö dagblað
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
Stærsti lottó-
vinningurinn
i umhelgina?
„Eg leyfi mér að skjóta á 15 milljón-
ir,“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson
hjá íslenskri getspá er hann var beð-
inn að geta sér til um hversu hár
lottóvinningurinn yrði á laugardag-
inn - en þá er potturinn þrefaldur.
„Miðað við stöðu mála nú held ég
að þetta verði stærsti fyrsti vinning-
ur sem nokkurn tíma hefur verið.
Ástæðurnar eru þær að það hefur
aldrei gerst að jafnhár vinningur
haii færst yfir á næstu viku. Það
voru 6,3 milljónir sem fluttust yfir
núna. Einnig er það að þetta er síð-
asti laugardagur fyrir jól og fólki
finnst spennandi að taka þátt í svona
löguðu þegar dregið er fyrir jól.“
Hafnarfjörður:
Hlýnar í húsum
Heitu vatni var aftur hleypt inn á
Hafnarfjarðaræð hitaveitunnar í
nótt og fór þegar að hlýna í húsum
sem höfðu verið hálfköld undanfarið.
í samtali við Hafnfirðinga, sem búa
ofarlega í bænum, þar sem þrýsting-
ar á kerfinu hefur verið minnstur
v og kaldast í húsum, kom fram að
ofnar voru orðnir heitir í morgun.
Þar sem ekki haföi hitnað nægilega
var fólk í óðaönn að tappa lofti af
ofnunum.
-hlh
Slydda fram
Hann verður á sunnan og suðvest-
an sunnanvert á landinu með
slydduéljum og rigningu. Norðan-
lands verður þurrt að mestu. Þetta
►•ar ekki lýsing á jólaveðrinu heldur
veðurspáin fram á laugardag.
Um sjálft jólaveðrið vildu veður-
fræðingar Veðurstofunnar hins veg-
ar ekki segja mikið þegar DV talaði
við þá í morgun.
-hlh
Víðastgóðfærð
Samkvæmt upplýsingum vegaeft-
irlitsmanna er greiðfært um mestallt
landiö nema á Vestfjörðum. Fyrir
vestan Búðardal er aðeins fært fyrir
stóra bíla og jeppa í Svínadal, fyrir
Gilsfjörð og Hálsa að Patreksfirði.
Suðvestanlands má búast við ein-
-'“'hverri snjókomu með kvöldinu en
síðan er reiknað með að hlýni.
-ÓTT
LOKI
Nei, veðurfræðíngar,
ekki slyddujól!
Baturinn
er laskaður
Leit að tveimur mönnum, sem
saknað er af bátnum Hauki ÍS, 22
tonna eikarbáti frá Bolungarvilt;,
hafði ekki borið árangur þegar DV
fór 1 prentun i morgun. Á þriðja tug
báta og togara leitaði í gærkvöldi
og nótl og voru fjörur gengnar.
Skipverjar á Krístjáni ÍS fundu
Hauk um 2 sjómílur norður af
slysavarnaskýlinu í Stigahlíð í ísa-
fjarðardjúpi á áttunda tímanum í
gærkvöldi. Báturínn var mannlaus
og sigldi í hringi. Reynt var að
sæta lagi við að komast um borð í
töluverðum sjógangi og tókst þaö.
Af ummerkjum að dæma er líklegt
talið að brot hafl riðið yflr bátinn
að framanverðu þar sem hann var
laskaður. Veiðarfæri hafði tekið út
MANNLAUS BAiyR
Llklegur slysstaöur
Hér fannst |
báturinn
::ÍÍÍIÍÍ
. °
ÍSAFJARDAR-
DJÚP
c Hnlfsdalur
og lágu þau niður með annarri síð-
unni. Bjarghring vantaðí í bátinn
og var nokkur sjór kominn um
borð. Stýrishúsið var hins vegar
lokað en þangað inn haföi sjór ekki
farið. Tveir flotgallar voru í bátn-
um sem ekki hafði verið hreyft við.
Líkur eru taldar á að annan skip-
verjann hafl tekið út þegar brot
reið ytir, hinn kastað út bjarg-
hringnum en hann tekið út líka við
annaö brot á bátinn. Miðað viö sí-
rita í lórantæki bátsins er talið að
slysið hafi orðið um 2 mílum norð-
ar en báturinn fannst.
í bhtingu í morgun sigldu rækju-
bátar út frá ísafirði. Einnig var
gert ráð fyrir að togarar tækju þátt
i leítimú. Reyna átti að fá þyrlu frá
danska slúpinu Vædderen til að
leita úr lofti. Varöskipið Óömn,
sem kom vestur í nótt, stjórnar leit-
inni i dag. Fjörur verða einnig
gengnar.
-ÓTT
Sindri Sindrason:
Jólainnkaup-
unurn er lokið
„Jólainnkaupunum er nú líklega
lokið. Við höfum fjárfest mikið á ár-
inu en þó ekki meir en sem nemur
einum skuttogara. Að hluta til höfum
við lagt út í nokkra áhættu með því
að kaupa fyrirtæki og yfirtaka rekst-
ur fyrirtækja sem hafa verið að logn-
ast út af. Þó teljum við okkur hafa
takmarkað áhættuna verulega með
hagstæðum samningum," segir
Sindri Sindrason, framkvæmdastjóri
Pharmaco hf.
Enn heldur Pharmaco hf. áfram að
auka umsvif sín í íslensku viðskipta-
lífi. Fyrirtækið hefur nú tekið á leigu
fiskeldisstöðina íslahdslax hf. og
keypt allan þann fisk sem er í stöð-
inni.
Fyrir nokkrum dögum keypti
Pharmaco hf. allan framleiðslurétt á
gosi af Sanitas en fyrr á árinu keypti
það einnig íslensk matvæli hf. í Hafn-
arfirði og niðursuðuhluta Norður-
stjörnunnar. Einnig hefur fyrirtækið
yfirtekið rekstur fiskeldisstöðvar-
innar Laxalindar.
Auk þessa keypti keypti Delta hf„
sem er dótturfyrirtæki Pharmaco
hf„ samkeppnisfyrirtækið Tóró og
meirihlutann í sápugerðinni Frigg í
Garðabæ fyrr á árinu. -kaa
Sigluíjörður:
Ríkið að selja
Þormóð ramma
Inni í þessum bíl voru tveir piltar í um tvær mínútur á botninum í Njarðvíkurhöfn í fyrrakvöld. Bíll-
inn rann fram af bryggjukantinum. Piltarnir komust út af eigin rammleik en þá var mjög af þeim
dregið. Köfurum tókst að koma taug í bílinn og var hann hífður upp um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi. Sjá nánar á bls. 6.
DV-mynd Ægir Már
Ríkið mun að öllum líkindum selja
eignarhlut sinn í fyritækinu Þormóði
ramma á Siglufirði í dag. Talið er að
Róbert Guðmundsson og Ólafur
Marteinsson, eigendur fyrirtækj-
anna Egilssíldar og Drafnar á Siglu-
firði, eignist hlut ríkisins í fyrirtæk-
inu.
Mikil ólga er á Siglufirði vegna
þessa máls. „Við teljum að atvinnu-
öryggi fólks á staðnum sé í hættu ef
fáir einstaklingar, sem eru fjárhags-
lega veikir, eignist fyrirtækið. Menn
verða að gera sér ljóst að um helm-
ingur alls verkafólks í bænum vinn-
,ur hjá Þormóði ramma,“ segir Kol-
beinn Friðbjarnarson hjá Verkalýðs-
félaginu Vöku.
„Við viljum að allir Siglfirðingar
eignist fyrirtækið,“ segir Runólfur
Birgisson en hann er einn úr samtök-
um 60 einstaklingum á staðnum sem
sendu fjármálaráðuneytinu kauptil-
boð í Þormóð ramma.
„Við höfum ekkert heyrt frá ráðu-
neytinu vegna þessa máls. Við feng-
um hálfan sólarhring til að ganga frá
kauptilboði í fyrirtækið, svo hringdi
fulltrúi ijármálaráðuneytisins í einn
eða tvo úr hópnum og þeir voru
spurðir tveggja spurninga. Við höf-
um unnið .aö því undanfarna daga
aðfjölgaí hópnum.“ -J.Mar
Veðriðámorgun:
Él norðan-
lands og
austan
Freyja hf.
Sími: 91-41760
Á morgun verður norðaustlæg
eða austlæg átt og frost um allt
land. É1 norðaustanlands og á
annesjum norðanlands og líklega
einnig vestur með suðurströnd-
inni en nokkuð bjart veður vest-
anlands. Líklega þykknar þó upp
með vaxandi suðaustan- og aust-
anátt um vestanvert landið þegar
líður á daginn. Frost verður á
bihnu -4 til -6 stig.
t
t
í
\i
f
f
f
i
f
i
f
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i