Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Blaðsíða 4
4 .| EÖ^TUDAjGUR 1},gE^RfiAR. 1991. Fréttir Skoðanakönnun DV: Fylgjendur stjórnarinnar fleiri en andstæðingarnir - á sér mun fleiri stuðningsmenn en stjómarflokkarnir sjálfir Meirihluti kjósenda er fylgjandi arflokkarnir, sem að henni standa, ríkisstjórninni þrátt fyrir að stjórn- njóti einungis stuðnings hjá ríflega Afstaöantil ríkisstjórnarinnar Þeir sem afstöðu tóku Andvígir \ Fylgjandi Afstaðan til ríkisstjórnarinnar 45% 40 35 30 25 20 15 10 5 0 Fylgjandi Andvígir Óákveðnir Svara ekki 38% landsmanna. Engu að síður hef- ur fylgi stjórnarinnar minnkað lítils- háttar á undanförnum vikum. Þetta er niðurstaða skoöanakönnunar sem DV framkvæmdi í gær og fyrradag. Afþeim sem tóku afstöðu reyndust 52,4% vera fylgjandi ríkisstjórninni og 47,6% á móti. í síðustu skoðana- könnun'DV, sem fram fór í byrjun desember, reyndist fylgi ríkisstjórn- arinnar vera 55% og hafði þá ekki mælst hærra frá því hún tók við völdum. Minnst reyndist fylgi henn- ar í júní 1989 eða tæplega 24%. Frá því í ágúst sama ár hefur fylgiö hins vegar aukist jafnt og þétt þar til nú að það lækkar um tæplega 3 pró- sentustig. Eins og í fyrri skoðanakönnunum DV voru alls 600 íslendingar á kosn- ingaaldri spurðir eftirfarandi spurn- ingar: „Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) ríkisstjóminni?“ Helmingur þeirra sem voru spurðir búa á höfuðborgar- svæðinu, en hinn helmingurinn utan þess, víðs vegar um landið. Þátt í könnuninni tóku jafnmargar konur og karlar, eða 300 af hvoru kyni. Sé tekið mið af svörum allra þátt- takenda reyndust 42,5% vera fylgj- andi ríkisstjóminni og 38,7% andvíg- ir henni. Óákveðnir voru 16,2% og 2,7% þátttakenda neituðu að svara spurningunni. í síðustu könnun reyndust ívið fleiri óákveðnir eða 16,8%. Ljóst er að miðað við fylgi stjórn- málaflokkanna nýtur ríkisstjórnin stuðnings kjósenda langt út fyrir rað- ir kjósendahóps ríkisstjórnarflokk- anna. Þannig hefur það einnig reynst vera í fyrri könnunum DV allt frá því í desember 1989 en þá reyndist fylgi stjórnarflokkanna vera tæplega þrem prósentustigum hærra en rík- isstjórnarinnar. -kaa Ríkisstjórnin hefur enn meirihluta þeirra sem afstööu taka í skoðanakönnun DV. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar. Til samanburðar eru niðurstöður fyrri DV-kannana (í %): mars júní ágúst okt . des , jan. apr, . ág. okt des nú Fylgjandi 29,5 18,7 23,8 23,7 28,0 25,8 30,3 32,8 34,5 44,3 42,5 Andvígir 0,0 60,5 56,0 60,0 50,0 53,3 50,3 42,8 41,3 36,4 38,7 Óákveðnir 20,0 18,7 16,2 14,0 20,5 17,2 14,8 23,2 22,7 16,8 16,7 Svara ekki 0,5 2,2 4,0 2,3 1,5 3,7 4,5 1,2 1,5 2,5 2,7 Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar (í %): mars júni ágúst okt. des. jan. apr. ág. okt des nú Fylgjandi 37,1 23,6 30,0 28,3 35,9 32,6 37,6 43,4 45,5 55,0 52,4 Andvigir 62,9 76,4 70,0 71,7 64,1 67,4 62,4 56,6 54,5 45,0 47,6 Karl Steinar Guðnason alþingismaður: Nýr búvörusamningur kostar stjórnarslit - framhald þjóðarsáttarinnar, segir Svavar Gestsson menntamálaráðherra Ummælifólks „Ég treysti þessari rikisstjórn mun betur heldur en þessum negulnöglum i Sjálfstæðisflokkn- um,“ sagði kona á Reykjanesi. „Við höfmn kosið þessa stjórn og eigum að taka því,“ sagði karl i Reykjavík. „Síðasta ríkisstjóm var ekkert betri en þessi,“ sagði annar karl í Reykjávík. Kona á höfuðborgarsvæöinu kvaðst ekki fylgjandi ríkisstjóm- inni því hún væri opinber starfs- maður sem þyrfti að sæta bráða- birgðalögunum. „Það veitsá sem allt veit að ég er á móti ríkis- stjóminni,“ sagði kona á Vest- fjörðum. Kona á Akureyri kvaöst fylgjandi sumu af því sem ríkis- stjórnin hefur gert en ekki öllu. „Eg er til dæmis á móti þessari þjóðarsátt sem leyfir hækkanir á öllu nema laununum," sagði hún. „Stjómin er búin að gera margt gott og því styð ég hana,“ sagöi karláNorðurlandi. -kaa Reykjaneskjördæmi: Kvennalistinn Efstu sæti framboðslista Kvenna- listans í Reykjaneskjördæmi skipa: 1. Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2. Kristín Sigurðardóttir, 3. Ragnhildur Eggertsdóttir, 4. Edda Magnúsdóttir, 5. Bima Sigurjónsdóttir, 6. Þórunn Friðriksdóttir, 7. Guðrún Gísladóttir, 8. Dóra Hlín Ingólfsdóttir, 9. Álf- heiður Jónsdóttir, 10. Katrín Páls- dóttir, 11. Kristín Halldórsdóttir. „Það er alveg ljóst að ef land- búnaðarráðherra ætlar að undir- rita nýjan búvörusamning fyrir kosningar, án samþykkis Alþýðu- flokksins, þýðir það ekkert annað en stjómarslit,“ sagði Karl Steinar Guðnason, alþingismaður og vara- formaður Verkamannasambands- ins, í samtah við DV. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og formaður Al- þýðuflokksins sagði í DV í gær að ef Steingrímur J. Sigfússon undir- ritaði nýjan búvörusamning nú mundi þaö hafa alvarlegar afleið- ingar. Það kom hins vegar í ljós, þegar farið var að ræða við al- þýðuflokksmenn í gær, að þeir höföu ekki gert sér grein fyrir því hve langt gerð búvömsamningsins var komin. Þeir virðast hafa dottað á meðán landbúnaðarráðherra lét hendur standa fram úr ermum í þessu eldfima máh innan ríkis- stjórnarinnar. Karl Steinar sagði að það væri fráleitt að binda hendur þeirrar ríkisstjórnar, sem tæki við eftir kosningar, með því að undirrita nýjan búvörusamning nú. „Framhald þjóðarsáttar“ Svavar Gestsson menntamála- ráðherra sagði að landbúnaðarráö- herra legði áherslu á að ljúka gerð búvörusamnings fyrir kosningar. Hann sagði þennan nýja samning í grundvaharatriðum öðruvísi en þann samning sem fyrir væri. í nýja samningum eru uppsagnarat- riði. Því getur hvaða ríkisstjórn sem tekur við sagt honum upp hve- nær sem er. „Þessi samningur hefur verið undirbúinn með aðilum vinnu- markaðarins. Hann er því fram- hald þjóðarsáttarinnar og beinlínis í tengslum viö hana. Vinnuveiten- dasambandið, Alþýðusambandið og BSRB hafa komið að málinu. Og ég er viss um að þegar formaður Alþýðuflokksins kynnir sér inni- hald samningsins muni hann sjá að þar er á ferðinni hið besta mál,“ sagði Svavar Gestsson. Guömundur Bjarnason heil- brigðisráöherra sagði það sína skoðun að mjög brýnt væri aö ljúka gerð nýs búvörusamnings núna. Sársaukafullar aðgerðir „Það er mikilvægt fyrir stjórn- völd að mótuð sé stefna til fram- búöar um þetta mikla átakamál. Ljóst er að við gerð nýs búvöru- samnings verða framkvæmdar ýmsar sársaukafullar aðgerðir sem snerta bændur. Þeir verða aö fá að vita sem fyrst hverjar þær verða. Þau rök að ekki megi binda hendur nýrrar ríkisstjórnar eru léttvæg. Það hafa alltaf verið sett lög og regl- ur sem binda hendur komandi rík- isstjórna að einhverju leyti. En engin lög eru þannig að ekki sé hægt að breyta þeim,“ sagði Guð- mundur Bjarnason. Pálmi Jónsson alþingismaður sagðist ekki hafa séð innihald þessa væntanlega búvörusamnings. Hitt væri deginum ljósara að til þess að gera samning eins og drög voru birt að í haust þyrfti lagabreytingu. „Ég fæ ekki séö að það geti tekist að koma nýjum lögum um þetta mál í gegnum þetta þing, svo stutt- ur tími sem eftir er til þingslita," sagði Pálmi Jónsson. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.