Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991. Iþróttir Sport- stúfar Úrslit leikja í NBA- deildinni í körfuknatt- leik í fyrrinótt uröu eftirfarandi: Boston-Orlando......144-102 Miami-Phoenix.......104-115 Detroit-Cleveland... 93-84 Indiana-Charlotte...123-105 Minnesota-Sacramento. 95-86 Mætast Lewis og Johnson í ágústmánuði? Nú eru talsverðar lík- ur á að spretthlaupar- arnir Carl Lewis og Ben Johnson mætist á hlaupabrautinni þegar Grand Prix mót í fijálsum íþróttum fer fram í Zurich í Sviss 7. ágúst. Ef af hlaupi þessu verður þá er það í fyrsta sinn frá því á ólympíu- leikunum í Seoul árið 1988 sem þeir mætast. Þá sigraði Johnson en var sviptur gullverðlaunum sínum vegna ólöglegrar lyfjanot- kunnar eins og flestum er kunn- ugt. Johnson byrjaði að keppa í janúarmánuði eftir tveggja ára keppnisbann og um síðustu helgi sigraði hann í 55 metra hlaupi í Kanada. Porvaldur inugar ao „Eg hef verið meiddur undan- famar tvær vikur og reikna ekki með að ná mér að fullu fyrr en í næstu viku. Þetta hafa verið smá- vægileg meiðsli en angra mann jafnmikið fyrir það. Ég hef ekki verið nálægt hðinu í vetur og það er ekki mikið eftir af þolinmæð- inni,“ sagði Þorvaidur Örlygsson, knattspyrnumaður hjá Notting- ham Forest, í samtaii við DV í gær. Þorvaldur er orðinn mjög leiður hjá Nottingham Forest og vantrú- aður á að hann fái tækifæri til að leika með liöinu á þessu keppnis- tímabih. Þorvaldur sagöi ennfrem- ur viö DV í gær. „Ég bíð ekki enda- laust. Ég hef engan séns fengið hér. Það hlýtur að koma upp í huga manns að fara frá félaginu og reyna að koma sér eitthvað annað. Það þýðir ekki að eyða besta tímanum Þorvaldur Örlygsson á ferhnum hjá hði sem getur ekki aö ég verð ekki annað tímabil hjá notað mann.“ Forest við þessar aðstæður,“ sagði Þorvaldur Örlygsson. Er að íhuga að fara fram á sölu frá Forest Langar frekar að leika á - Ert þú farinn að íhuga það að meginlandinu en í Englandi fara frá félaginu? - Kemur til greina að þú leikir hér „Þessi timi hjá Forest heíur verið á íslandi sem lánsmaöur frá Forest mjög erflður fyrir mig og jietta hef- í sumar? ur reynt sérlega mikið á taugarnar. „Nei, þaö kemur ekki til greina. Nú er mæhrinn að verða fullur. Ég er atvinnumaður í knattspyrnu Það er mjög erfitt að vera hjá félagi og tel mig nægilega góðan til að þar sem ekki er hægt að ræða við standa í þessu. Ég hef alls ekki í framkvæmdastj órann. Það er ekki hyggju að koma aftur til íslands í hægt aö halda uppi samræðum við bráð. Ef engin breyting verður Brian Clough. Maður getur í mesta snögglega hjá Forest mun ég fara lagi spurt hann einnar spurningar. fram á sölu-og þá langar mig meira Ég get alveg eins farið út í garð og að reyna fyrir mér á meginlandinu reynt að tala við gijót. Ég er farinn en að leika í Englandi." aðíhugaþaðalvarlegaaðfarafram -SK á sölu frá Forest Ég hefverið nógu þolinmóður og það er alveg öruggt Stórsigur Tindastóls - Pétur aftur með og lagði grunninn að mikilvægum sigri á Grindavík, 102-82 Mclnally frá næstu sex vikurnar Skoski knattspymumaðurinn Al- an Mclnally hjá Bayern Munchen verður frá æíingum og keppni næstu sex vikurnar. Mclnally meiddist á kálfa í æfingaleik með Bæjurum og var settur í gifsum- búðir. Meiðsli þessi koma á versta tíma fyrir Skotann. Hann átti ekki fast sæti í liði Bayern í fyrri hluta mótins og nú verður hann frá æfingum en þýsku úr- valsdeildarliöin undirbúa sig af ’krafti fyrir síðari hluta keppn- innaf. Marseille spilar Leikmenn Marseille ákváðu í gærkvöldi að mæta til leiks gegn Bordeaux í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Þeir höfðu ákveðið að fara í verkfall til að mótmæla ársbanni sem Bernard Tapie, forseti félagsins, var dæmdur í fyrir skömmu. Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Tindastóll vann þýðingarmikinn sigur á Grindavík, 102-82, í úrvals- deildinni í körfuknattleik í gær- kvöldi og komst með því á sigurbraut á ný eftir fjóra tapleiki í deildinni í röð, og einn að auki í bikarkeppn- inni. Þar með endurheimtu Sauð- krækingar annað sætið í B-riðli úr höndum Grindvíkinga en liðin tvö heyja nú einvígi um sæti í úrshta- keppninni. Þaö var endurkoma Péturs Guð- mundssonar sem skipti sköpum fyrir Tindastól. Hann haföi misst af fjór- um síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla en lék í gærkvöldi sinn besta leik frá því hann gekk til liðs við fé- lagið. Pétur haltraði þó aðeins í fyrri hálfleiknum en þaö kom ekki að sök. Leikurinn var jafn lengst af í fyrri hálfleik en þegar á hann leið náði -.Tindastóll að komast yfir og leiddi í hléi, 49-41. Segja má aö úrslitin hafi ráðist á fyrstu þremur mínútum síð- ari hálfleiks því þá náði Tindastóll flmmtán stiga forskoti. Eftir það átti Grindavík ekki möguleika, munur- inn jókst jafnt og þétt og þegar þijár mínútúr voru eftir var 26 stiga mun- ur, 97-71, en gestirnir náðu aðeins að klóra í bakkann í lokin. Sauðkrækingar troðfylltu íþrótta- húsiö einu sinni sem oftar í vetur og voru að vonum hæstánægðir með að sjá sína menn leika af fullum styrk á ný. Valur og Jonas ekki með gegn KR? Auk Péturs lék Valur Ingimundar- son mjög vel með Tindastóh og Ivan Jonas var drjúgur að vanda. Þeir Valur og Jonas eiga báðir yfir höfði sér leikbann og það gæti reynst Tindastóli dýrkeypt ef þá vantaði þegar KR kemur í heimsókn til Sauð- árkróks á sunnudagskvöldið. Hjá Grindavík var Guðmundur Bragason yfirburðamaður en honum tókst ekki að rífa félaga sína með sér í baráttunni. Stig Tindastóls: Pétur Guðmunds- son 26, Ivan Jonas 22, Valur Ingi- mundarson 17, Sverrir Sverrisson 17, Einar Einarsson 10, Karl Jónsson 8, Pétur Vopni Sigurðsson 2. Stig Grindavíkur: Guðmundur Bragason 24, Jóhannes Kristbjörns- son 15, Steinþór Helgason 14, Dan Krebbs 12, Rúnar Árnason 9, Svein- bjöm Sigurðsson 4, Marel Guðlaugs- son 2, Bergur Hinriksson 2. Dómarar vom Kristinn Óskarsson og Guðmundur Stefán Maríasson og dæmdu vel. Enn sigrar Keflavík - Suöumesjaliðiö ósigrað á árinu, vann Hauka, 86-91 Stuttgart tapaði Eyjólfur Sverrisson og félagar í Stuttgart máttu sætta sig við ósig- ur, 2-0, gegn Palmeiras í gær en félögn mættust þá í fjögurra liða ’ knattspyrnumóti sem nú stendur yfir í Brasilíu. Betinho skoraði bæði mörk heimaliðsins. Eyjólfur skoraði og var síðan rekinn af velli þegar Stuttgart vann Corint- hians, 2-1, í fyrrakvöld. Úrvalsdeild Haukar - Keflavlk.......... 86-91 Tindastóll - Grindavík.....102-82 Snæfell - Þór.............frestað (Leikinn klukkan 20 í kvöld) A-riðill: Njarðvík......19 15 4 1759-1445 30 KR............19 11 8 1561-1507 22 Haukar........19 9 10 1588-1613 18 Snæfell.......18 4 14 1400-1621 8 ÍR............19 4 15 1518-1765 8 B-riðill: Keflavík.....19 15 4 1868-1702 30 Tindastóll... 19 13 6 1817-1725 26 Grindavík... 19 12 7 1622-1579 24 Valur.......19 6 13 1599-1656 12 Þór.........18 5 13 1675-1734 10 íþróttir helgarinnar eru á bls.23 „Ég er auðvitað mjög ánægður meö hðið. Við höfum náð að halda sömu baráttunni og einbeitingunni og það er okkar að halda toppsætinu áfram. Framhaldið er þó að það verður erf- itt en ég er bjartsýnn,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður Kefl- víkinga, eftir að Suðurnesjaliðið hafði unnið enn einn sigurinn í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í gær- kvöldi og liöið hefur ekki enn tapað leik á árinu. Núna vom Haukamenn fómarlömbin en Keflvíkingar sigr- uðu í leiknum, 86-91, eftir að hafa leitt, 36-41, í leikhléi. Aganefnd Körfuknattleikssam- bands íslands hefur dæmt banda- ríska leikmanninn Damon Vance sem leikur meö Haukum í eins leiks bann en ekki í tveggja leikja bann eins og reglan hefur verið fyrir sams konar brot og hann var dæmdur fyr- ir. Skýringuna segja aganefndar- menn þá aö þeim hafi gefist kostur á að sjá atvikið í sjónvarpi og það hafi ráðið ákvörðun þeirra. Ég hygg að þeim sem fylgjast með körfubolta og sáu umrætt atvik í leik KR og Hauka í sjónvarpinu hafi Keflvíkingar höfðu undirtökin nær allan leikinn en Haukamenn voru aldrei mjög langt undan. Mesti mun- ur var 10 stig en undir lokin var spennan mikil. Þrátt fyrir ágæta bar- áttu náðu Haukar ekki að komast fram úr og Súðurnesjamenn tryggðu sér sigurinn. „Það er engin skömm að tapa fyrir Keflvíkingum og þeir eru líklega með besta liðið. Það hefur gengið illa und- anfarið en við eigum ennþá smá- möguleika," sagði bandaríski þjálfari Haukanna, Glenn Thomas. Falur Harðarson var bestur í ann- fundist brot Vance lítilfjörlegt og áhöld hafi verið um það hvort það verðskuldaði brottvísun og leikbann í kjölfarið en um það kunna að sjálf- sögðu að vera skiptar skoðanir. Hins vegar er furðulegt að aganefnd skuh ekki láta shkan útilokunardóm dóm- ara leiða til sömu refsingar hver sem í hlut á og án tillit til þess hvort upp- tökuvélar sjónvarpsins eru til staðar. Þess má geta að tveir leikmenn Þórs á Akureyri hafa verið dæmdir í tveggja leikja bann í vetur, annar þeirra fyrir sams konar brot og ars jafnsterku Keflavíkurliði en hjá Haukum var Damon Vance lang- atkvæðamestur. Dómarar voru Kristinn Albertsson og Helgi Bragason og er þetta ekki í fyrsta sinn sem Helgi klúðrar leik með furðulegum dómum sem komu mest niður á Haukaliðinu. • Stig Hauka: Vance 30, Pálmar 15, Jón Arnar 14, Henning 11, Ingimar 9, Pétur 3 og ívar 2. • Stig ÍBK: Falur 26, Lytle 17, Sig- urður 17, Jón Kr. 15, Albert 7, Júlíus 6 og Egill 3. Damoin Vance var rekinn af velli fyrir, þ.e. að nota olnboga gegn and- stæðingi sínum. Það grundvallarat- riði sem hér skiptir máh er að allir leikmenn sitji við sama borð og tekið sé á brotum þeirra á sama hátt. Það væri fróðlegt aö fá við því svör frá aganefndarmönnum hvort það geti haft áhrif á fleiri jjóma þeirra í framtíðinni hvort sjónvárpsvélar eru suðandi þegar upp koma slík atvik. Ef þeim er það ekki ljóst kunria sjón- varpsvélar að sýna slík atvik frá allt öðru sjónarhorni en því sem dómari • Jón Kr. Gislason leiddi Keflvík- inga enn til sigurs i gærkvöldi. hefur til viðmiðunar og miðar dóm sinn við. Við þessu þurfa að fást svör, þó ekki væri nema vegna þess að hluti aganefndarmanna virðist vera æviráðinn í nefndina en það er reyndar önnur saga. Hitt hlýtur að vera ofarlega í hugum manna þessa dagana hvort aganefndin sé ekki komin út á hálan ís sem gæti brotnað undan henni fyrr en varir. Gylfi Kristjánsson -RR Aganefnd KKÍ á hálum ís - sjónvarpið réði urslitum um leikbannsúrskurð hjá Damon Vance

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.