Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1991, Side 9
9 LAUGAVEG1178, SÍMAR16770 OG 84455 FÖSTUDAGUR 1. FEBRtfÁR 1991. r?T r\í rT ' I rT,!.>í'Á,vT veíðívörum - fatnaðí - bakpokum - svefnpok- um o.fl. o.fl. í dag og næstu daga BLIND Utlönd Þrátt fyrir að hörðustu andstæðingar Bandaríkjamanna mótmæli nærveru þeirra í löndum araba virðist óttinn við Saddam Hussein og vígvél hans flestum aröbum hugstæðari. Simamynd Reuter Samstaða araba gegn írak enn órofln: Hræðslan við Saddam mótar viðhorf araba - þrátt fyrir andúð þeirra á Bandaríkjamönnum Þrátt fyrir rótgróna andúö araba á Vesturlandabúum og þá sérstaklega Bandaríkjamönnum hafa mótmæli gegn aögerðum bandamanna í írak ekki náö að brjótast út af krafti í ríkj- um araba. Undantekningu frá þessu er einkum aö íinna í Jórdaníu en landsmenn þar hafa lent eins og milli steins og sleggju í deilunni. Fréttamenn dagblaðsins Washing- ton Post könnuöu viöhorf araba til stríösins viö íraka í Egyptalandi, Sýrlandi, Pakistan, Indlandi og á hernumdu svæðunum í ísrael. Þótt könnunin væri ekki hávísindaleg þá leiddi hún ótvírætt í ljós sérkenni- lega tvískipt viðhorf íslama. I annan stað kom fram mikil virð- ing fyrir írökum og hetjulegri bar- áttu þeirra gegn ofureflinu eftir aö loftárásir bandamanna hófust á land þeirra 17. janúar. Jafnvel svarnir andstæðingar Saddams Hussein gátu ekki leynt aödáun sinni. Hins vegar hafa arabar á þessum svæðum ekki fjölmennt til mótmæla gegn Bandaríkjamönnum eins og margir sérfræðingar í málefnum araba höfðu spáð þegar ófriðarhætt- an magnaðist við Persaflóa. Þessi sömu sérfræðingar vara þó enn við að mótmælin kunni að færast í auk- ana ef stríðið við írak dregst á lang- inn og fréttir fara að berast af miklu mannafalli í herliði íraka, hvað þá ef fjöldi óbreyttra borgara lætur lífið. Árabar líta oft á sig sem eina þjóð, enda tala þeir eina tungu. Því er við- búið að þeir sem styðja nú herferðina gegn írak skipti um skoðun ef íjöldi meðbræðra þeirra lætur lífið í átök- unum. Andúðin á Bandaríkjamönnum er mest meðal Palestínuaraba í Jórdan- íu og á herteknu svæðunum. Þeir hafa stutt íraka allt frá því innrásin var gerð í Kúvæt. í öðrum arabalönd- um virðist ótti við Saddam Hussein vega upp á móti almennum vilja til að draga úr áhrifum Bandaríkja- manna á svæðinu. Þetta á einkum við um Sýrlendinga sem standa óhaggaðir með aðgerðum bandamanna þrátt fyrir að þéir hafi árum saman litið á Bandaríkin sem erkióvin. Sama er uppi á teningnum í Egyptalandi þótt andúö á Banda- ríkjamönnum sé minni þar en í mörgum öðrum löndum araba. Skemmtidagskrá sem byggir á söngferli hins vinsæla söngvara Vilhjálms Vilhjálmssonar. Frumsýning: 2. febrúar. Aðrar sýningar: 9., 16. og 23. febrúar. FRAM KOMA: Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Rut Reginalds, Hermann Gunnarsson, Ómar Ragnarsson og Magnús Kjartansson. Hljómsveit: Magnús Kjartansson, yilhjálmur Guðjónsson, Finnbogi Kjartansson, Asgeir Óskarsson og Pétur Hjaltested. Stjórn dagskrár: Egill Eðvarðsson. MATSEÐILL Forréttur: Blandaðir heitir sjávarréttir í butterdeigskænu Aðalréttur: Heilsteiktar nautalundir með rjómalagaðri koníakspiparsveppasósu, Hassel kartöflum og smjörsoðnu spergilkáli Eftirréttur: ítölsk ostaterta með þeyttum rjóma og ávöxtum Eftir að skemmtidagskrá lýkur er dansleikur til kl. 03:00. Miðaverð: 3.900,- krónur Boröapantanir í síma 77500 II III I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.