Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Side 6
LAUGARDAGl/R.e. APRÍL 1J99J.
6
Útlönd
Gagnrýni linnir ekki á Bush Bandaríkjaforseta vegna málefna Kúrda:
Verstu mistökin frá
árásinni á Svínaflóa
írakar skjóta á kúrdíska mótmælendur við sendiráðin í Prag og Istanbúl
Gagnrýni linnir ekki í'Bandaríkj-
unum og víöar um heim á George
Bush Bandaríkjaforseta fyrir aö-
gerðaleysi meöan hermenn stjórnar-
innar í Bagdad ganga á milli bols og
höfuös á uppreisnarmönnum Kúrda
í Noröur-írak.
í bandarískum blööum er stefnu
Bush líkt viö mistök Johns F.
Kennedy forseta þegar hann hvatti
til innrásar á Kúbu viö Svínaflóa eft-
ir byltingu kommúnista en hikaöi
síöan viö aö styöja innrásarliðið úr
lofti. Afleiðingarnar uröu mikill
álitshnekkir fyrir forsetann.
Saddam Husseinhét Kúrdum í gær
sakaruppgjöf í von um að stöðva
straum flóttamanna frá írak. Taliö
er að nú séu um tvær milljónir Kúrda
á flótta í áttina að landamærum
Tyrklands og Irans. Þegar eru nokk-
ur hundruð þúsund flóttamenn
komnir yfir landamærin.
Fulltrúar uppreisnarmanna í Dam-
askus í Sýrlandi svöruðu þegar í staö
meö því að segja að Saddam væri
ekki treystandi. Hann heföi síðustu
daga látið hermenn sína skjóta á
varnarlausa borgara úr þyrlum.
Til mótmæla hefur komið við
sendiráð Iraka víða um lönd. í Prag
og Istanbúl hafa sendiráðsmenn
gripið til þess ráðs að skjóta af
skammbyssum á mótmælendur til
að hrekja þá frá sendiráðunum. í Ist-
anbúl lét einn maður lífið og tveir
særðust í skothríðinni en í Prag
sluppu allir ósárir.
Reuter
Sextíu mönnum bjargað með þyrlum
Sextíu manna áhöfn franska verk-
smiðjutogarans Capitaine Pleven II
var bjargað með þyrlum eftir að tog-
aranum var siglt í strand nærri Gal-
way á vesturströnd írlands.
Capitaine Pleven II er 2435 tonn að
stærð. Mikill leki kom að togaranum
við strandið og var flogið með dælur
um borð í von um aö takast mætti
að halda honum á floti. Skipstjórinn
neitaði í fyrstu að fara frá borði en
þegar tvísýnt þótti að togaranum
yrði bjargað var öll áhöfnin flutt til
lands.
Stórar björgunarþyrlur frá Bret-
landi og Irlandi voru notaðar við
björgunina. Enn er ekki ljóst hvort
unnt reynist að draga Capitaine Ple-
ven á flot en til stendur að reyna
þaö. Dráttarbátur er kominn á stað-
inn og á að freista þess að forða togar-
anum frá að eyðileggjast yið strönd-
ina.
Engin slys urðu á mönnum við
strandið. Björgunarmenn hafa mik-
inn viðbúnað í landi til að aðstoða
við björgunina. Flóðljósum hefur
verið komið fyrir á klettum nærri
strandstaðnum til að auðvelda skip- Capitaine Pleven II er 2435 tonna verksmiðjutogari frá Frakklandi. Hann strandaði í gær við vesturströnd irlands.
um aö athafna sig. Reuter Simamynd Reuter
[úxushás og íbúðirí Þýskalandi
Feriendorf Hostenberg
Verðdæmi í júní:
Flug og lúxushús í tvær vikur,
2 fullorðnir og 2 börn, 2 til 12 ára,
kr. 31.430,-
Flug og íbúð í 2 vikur, 2 fullorðnir,
kr. 38.100,-
Flug og bíll, Þýskaland
Verðdæmi í júní:
Flug og bíll í 2 vikur miðað við
2fullorðna og 2 börn, 2 til 12 ára,
kr. 26.300,-
Flug og bíll
í 1 viku, 4 fullorðnir,
kr. 24.900,-
Bergman stýrir
PétriGaut
Þrátt fyrir að Pétur Gautur, leikrit
Henriks Ibsen, hafi verið sýndur í
öllum helstu leikhúsum heims hefur
þessi óstýriláti skúrkur aldrei farið
á fjalirnar í Dramaten í Stokkhólmi
fyrr en nú í lok mánaðarins. Ætlunin
er að frumsýna verkið þann 27. apríl.
Ingmar Bergman leikstýrir verk-
inu. Hann hefur oft sett þaö á svið
áður, t.d. árið 1957 í Málmey með
Max von Sydow í aðalhlutverkinu.
Hann verður ekki með núna en hins
vegar fer Bibi Anderson með hlut-
verk Ásu. Hún var í smáu aukahlut-
verki í sýningunni árið 1957.
TT
Karatekappar
ætla að verja
sjónvarpið
Fyrsta óháða sjónvarpsstöðin í
Tékkóslóvakíu ætlar aö heija útsend-
ingar þrátt fyrir bann stjórnvalda.
Stjórnendur stöðvarinnar segjast
ætla að fá karatekappa til aö verja
sjónvarpshúsið.
Einkaleyfl ríkissjónvarpsins hefur
verið afnumið en lög um fjölmiöla
verða ekki tilbúin fyrr en í maí. Á
meðan er öðrum en ríkissjónvarpinu
óheimilt að senda út sjónvarpsefni
en nýja stöðin fær líklega starfsleyfi
í vor.
Reuter
EV
Dallas hættir
eftir þrettán
ára sigurgöngu
Ráðamenn á bandarísku sjón-
varpsstöðinni CBS hafa ákveðið
aö hætta framleiðslu á fram-
haldsþáttunum Dallas í vor. Síð-
asti þátturinn verður frums>Tid-
ur vestra þann 3. maí. Sá verður
tveggja stunda langur og við sögu
koma gamlar hetjur úr þáttun-
um, þær sem enn eru á lífi.
Þrettán ár eru nú siöan fyrsti
Dallas-þátturinn var sýndur.
Hann markaði tímamót og í heil-
an áratug tóku velflestir fiöl-
skylduþættir í bandarísku sjón-
varpi á einn eða annan hátt mið
af Dallas. Vinsældirnar hafa
dvínað nokkuð hin síðari ár og
nú er ákveðið að láta þetta gott
heita. Rcuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN ÖVERÐTR.
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
VlSITOLUB. REIKN.
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Nema Ib
15-24 mán. 6-6,5 Ib.Sp
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar i SDR7.1 -8 Lb.lb
Gengisb. reikningar í ECU8,1 -9 Lb.lb
OBUNDNIR SERKJARAR.
Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir
óverðtr. kjör, hreyfðir 10,25-10,5
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Vísitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb
Óverðtr. kjör 12,25-13 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandaríkjadalir 5,25-6 íb I
Sterlingspund 11,5-12,5 Ib
Vestur-þýskmörk 7,75-8 Ib
Danskarkrónur 7,75-8,8 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLAN óverðtr.
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLÁN VERÐTR. 18,75-19 Bb
Skuldabréf 7,75-8,25 Lb
AFURÐALÁN
Isl.krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 10-10.5 Lb
Bandaríkjadalir 8.8-9
Sterlingspund 15,5-15,7 Lb.ib
Vestur-þýskmörk 10,75-10,9 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. mars 91 15,5
Verðtr. mars 91 7.9
ViSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 3035 stig
Lánskjaravísitala mars 3009 stig
Byggingavisitala apríl 580 stig
Byggingavisitala april 181.2 stig
Framfærsluvisitala mars 150,3 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun .-4pril
VERÐBRÉFASJÓÐIR
'Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,478
Einingabréf 2 2,956
Einingabréf 3 3,592
Skammtímabréf 1,834
Kjarabréf 5,376
Markbréf 2,866
Tekjubréf 2,059
Skyndibréf 1,597
Fjölþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2,626
Sjóðsbréf 2 1,837
Sjóðsbréf 3 1.820
Sjóðsbréf 4 1.575
Sjóðsbréf 5 1,098
Vaxtarbréf 1.8641
Valbréf 1,7349
Islandsbréf 1.138
Fjórðungsbréf 1,069
Þingbréf 1.137
Öndvegisbréf 1,126
Sýslubréf 1.149
Reiðubréf 1.114
Heimsbréf 1.048
HLUTABRÉF
Solu- og kaupgengi aö lokinni jofnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,80
Eimskip 5.27 5,50
Flugleiðir 2,62 2,72
Hampiðjan 1.80
Hlutabréfasjóðurinn 1,82
Eignfél. Iðnaðarb. 2,05
Eignfél. Alþýðub. 1.47
Skagstrendingur hf. 4,40
Islandsbanki hf. 1,54
Eignfél. Verslb. 1,36
Olíufélagið hf. 6,30
Grandi hf. 2,40 2,50
Tollvörugeymslan hf. 1,00
Skeljungur hf. 6.40
Ármannsfell hf. 2,35
Fjárfestingarfélagið 1.28 1,35
Útgerðarfélag Ak. 3.82 4,00
Olis 2,23 2,33
Hlutabréfasjóður VÍB 0,98 1,03
Almenni hlutabréfasj. 1,03 1.07
Auðlindarbréf 0.975 1.026
Islenski hlutabréfasj. 1,06 1,11
Síldarvinnslan, Neskaup. 2,40 2,50
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb~ Búnaðarbankinn,
ib= islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.