Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 22
22
LAUQARDAGUR 6. ABRÍL 1991.
Helgarpopp
Sú hljómsveit sem var hlaðin
kvað mestu lofi í Bretlandi á liðnu
ári var án efa Manchester-sveitin
Happy Mondays. Hljómsveitin
sendi frá sér Ep-plötuna Hallelujah
í mars og seinna á árinu kom meist-
arastykkið Pills’N’Thrills and
Bellyaches á markað. Báðum plöt-
unum var hampað af gagnrýnend-
um og almenningur tók þeim opn-
um örmum. Þegar poppsíðunni
bárust fregnir af tónleikum Happy
Mondays í kóngsins Kaupmanna-
höfn í fyrra mánuði beið hún ekki
Umsjón
Snorri Már Skúlason
boðanna enda um viðburð að ræða
sem ótækt var að láta fara framhjá
sér. Til að gera langa sögu stutta
þá voru vonbrigðin mikil. Að vísu
náði hljómsveitin sér vel á strik í
þann stutta tíma sem hún spilaði
og var til að mynda mun betri en
í Menntaskólanum í Hamrahlíð í
fyrra, en þeir tónleikar voru hálf-
mislukkaðir eins viðstaddir sjálf-
sagt muna og samanburður við þá
því varhugaverður.
Löng bið,
rýr uppskera
Það sem einkum skóp óánægju
var framkoma hljómsveitarinnar í
sér í annarlegt ástand. Augun í Bez
voru tæpast annað en hvítan og
stóðu aukinheldur á stilkum.
Söngvarinn Shaun Ryder.
garð áheyrenda. í klukkustund
mátti múgurinn híma í kulda og
trekki eftir að húsið væri opnað
sem gerðist að lokum rúmri
klukkustund eftir áður auglýstan
tíma. Virtist hljómsveitin vera að
„sánd-testa“ í rólegheitunum.
Er inn kom tók ekki betra viö.
Tveir tímar liðu, þar af klukkutími
Dansarinn Bez.
í myrkvuðum sal þar sem mónó-
tónísk tciktfost danstóniist kvaldi
hlustir og ljósasjóv þreytti glyrnur,
áöur en meðlimir Happy Mondays
sáu ástæðu til að stíga á svið. Þegar
sú stund rann upp tók hluti áheyr-
enda á móti hljómsveitinni með púi
og fúkyrðaflaumi, og var undirrit-
aður einn þeirra. Ef einhverjum
hafði einhverntíma tekist að brjóta
niður stemningu þá var það hijóm-
sveitin Happy Mondays þetta kvöld
í Kaupinhöfn.
Sem fyrr sagði var hljómsveitin
góð er hún loks hóf leik þrátt fyrir
að greinilegt væri að söngvarinn
Shaun Ryder og dansarinn Bez
hefðu notað tímana tvo til aö koma
Stuttgaman
Efnisskráin samanstóð aðallega
af lögum af fyrrnefndum plötum,
en skífu eins og Bummed frá 1988
lét hljómsveitin liggja óhreyfða.
Lög á borð við W.F.L., Clap your
hands, Kinky Afro, Gods cop og
Dennis and Lois tók hljómsveitin
og gerði vel.
Eftir Qögur eða fimm lög var und-
irrituðum farin að renna reiðin og
um það leyti sem maður var byij-
aður að fyrirgefa hljómsveitinni
alla töfma og stemningin í salnum
var á hápunkti fór hljómsveitin
skyndilega af sviðinu. Þá voru liðn-
ar 45 mínútur frá upphafi tónleik-
anna. Eftir eitt uppklöppunarlag,
Step on, voru ljós tendruð og kulda-
leg birta lýsti furðu lostin andlit
tónleikagesta. Heldur klén frammi-
staða hjá hljómsveit sem á að heita
ein sú vinsælasta í rokkinu um
þessar mundir. Kannski er Happy
Mondays orðin svo fræg að geta
leyft sér að láta bíða eftir sér í þrjá
tíma og spila svo sjálf ekki nema í
55 mínútur. Ef svo heldur áfram
verður þess ekki langt að bíða að
hljómsveitin verði í hlutverki
hrópandans í eyðimörkinni. Undir-
ritaður hefur altént komist að því
fullkeyptu. Á Happy Mondays tón-
leika fer hann ekki aftur.
Komist að því fullkeyptu
- DV á tónleikum með Happy Mondays
ÍBR _______________________ KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
KR - ÁRMANN
í dag, 6. apríl, kl. 17.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
ÍBR _________________________ KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
ÍR - FRAM
sunnudaginn 7. apríl kl. 17.00
Á GERVIGRASINU j LAUGARDAL
Aðalfundur
Iðju
Aðalfundur Iðju, félags verksmiðjufólks, verður hald-
inn á Holiday Inn (Hvammi) fimmtudaginn 11. apríl,
kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjara- og samningamálin.
3■, Önnur mál.
Kaffiveitingar í boði félagsins.
Allir Iðjufélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reikningar Iðju fyrir árið 1990 liggja frammi á skrif-
stofu félagsins.
Stjórn Iðju
Pet Shop Boys.
Gamalt
víná
nýjum belg
Morrissey, söngpípan góðkunna
úr Smiths, hefur nýlega sent frá sér
sólóplötuna Kill Uncle. Væri það
ekki til frásagnar ef kappinn hefði
ekki notað tækifærið er hann var
í hljóðveri og tekið upp eitt af fræg-
ari lögum Jam sálugu. Þar er um
að ræða gleðisönginn Thats Ent-
ertainment. Morrissey setti þetta
lag Paul Wellers á B-hlið smáskíf-
unnar Sing for your Life sem var
útgefin dagana eftir páska. Enn
hefur poppsíðan ekki heyrt hvernig
Morrissey tókst upp meö sönginn,
en víst er að hann þarf að gera veí
ef árangurinn á að nálgast það sem
Jam gerði árið 1981.
Neil Tennant og Chris Lowe í Pet
Shop Boys hafa á sama hátt tekið
U2 lagið Where the streets have no
name og hljóðritað að eigin smekk.
Lagið verður geflð út á smáskífu
innan tíöar, líklega á B-hlið, ásamt
laginu góðkunna Cant take my
eyes of you. Þegar einn meðlima
U2 var inntur eftir því hvernig hon-
um htist á að Pet Shop Boys væru
með puttana í einu laga hljómsveit-
arinnar, varð honum aö orði:
„What have I done to deserve this?“
Af
gömlum
goðum
Þvi hefur verið fleygt í Bretlandi
að rokkhetjurnar David Coverdale
og Jimmy Page ætli að rugla saman
reytum nú í vor. Svo langt er máhð
komið að plata ku vera á dagskrá
og tónleikaferð í sumar. Er ekki aö
fjölyrða að margir taka kipp við
tíðindin enda á ferð helstu fulltrúar
þungarokksins á síðustu árum og
áratugum.
Rollingarnir Mick Jagger og
Keith Richard eru enn að njóta
ávaxta skáldverka sinna, jafnvel
þó að aldarfjórðungur sé hðinn frá
tilurð þeirra. Nýjasta dæmið um
þetta er samningur sem tvíeykið
gerði við súkkulaðiframleiðand-
ann Snickers en hann heimilar
súkkulaðiköllunum að nota brot
úr laginu góðkunna Satisfaction í
auglýsingu á Snickers. Það eitt að
fá að nota lagiö kostar Snickers um
220 milljónir íslenskra króna og þar
af renna 140 milljónir beint til
þeirra Jaggers og Richards.
Talandi um rokk og auglýsingar
má geta þess að Clash, sem heldur
þessa dagana upp á að 14 ár eru
liðin frá útkomu fyrstu plötu
hljómsveitarinnar, hefur heimsótt
topp breska vinsældalistans.
Ástæðan, jú lagið Should I stay or
should I go er notað í gallabuxna-
augiýsingu sem tíðum birtist á
sjónvarpsskjám og í kvikmynda-
húsum í Bretlandi og á meginland-
inu. Útgefandi Clash fmnur þefinn
af peningum og nú í vikunni var
annað meistarastykki hljómsveit-
arinnar endurútgefið, nefnilega
Rock the Casbah. Á meðan þessu
fer fram er eini Clash-arinn sem
eitthvað kveður aö eftir að hljóm-
sveitin hætti(!), Mick Jones, að
undirbúa útgáfu á sjöttu breiðskífu
Big Audio Dynamite sem kemur
út í maí og kallast The Globe.