Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 20
I.AUGÁRDAGLR é. AI’RÍL 1991. „Þetta er búiö að vera mikil lífs- reynsla en jafnframt mjög erfitt,“ segja hjónin Guörún Kolbeinsdóttir og Jörundur Guömundsson sem komu í fyrrakvöld heim eftir fimm mánaða dvöl viö Karíbahaf þar sem þau bjuggu í átta fermetra hjólhýsi ásamt tíu ára dóttur sinni, Ragn- hildi. Þau hjónin störfuöu við fjöl- leikahús Circo De Espana sem töfra- menn og trúöur. Þeir eru ekki marg- ir, íslendingarnir, sem hafa verið sirkusfólk, enda koma þau Guðrún og Jörundur reynslunni ríkari heim. Alls léku þau í 305 sýningum á þessum tíma og oft voru þrjár sýn- ingar á dag. Ekki var starfsaðstaðan alveg til að hrópa húrra fyrir því hitinn var alveg að fara með lista- mennina en 35 stiga hiti var á þessum slóðum. - En hvernig er að starfa í sirkus? „Það er eiginlega dálítið skondið." - Er sami ævintýraljóminn yfir líf- inu eins og segir í bókum? „Já og nei. Þetta er mjög líkt líf og gerist í sögubókum. Fólkið á sína gleði og sorgir eins og aðrir. Allir eru mjög nánir. Þetta er rólegt fólk en það hugsar allt ööruvísi en við ís- lendingar. Það er samt ekki hægt aö segja að hópurinn sé samrýmdur. Listamennirnir halda sig alveg sér, fjölskyldurnar eru út af fyrir sig og vinnumennirnir eru sér.“ Töfrabrögð og trúðslæti Sirkushópurinn þvældist milli eyja í Karíbahafi og var lengst i tvo mán- uöi á einum staö. Jörundur segir að í þeim borgum, sem þau komu til, séu íbúarnir flestir svartir og þau fundu oft til þess að hvítir menn voru ekk- ert sérstaklega vel séðir. í sirkusnum var hópnum þó venjulega vel tekið og yfirleitt var tjaldið, sem tekur tvö þúsund manns, fullt. Jörundur og Guðrún voru með sameiginleg töfrabrögð og meöal þess sem Jörundur fékkst við var að skera eiginkonuna í þrennt í sérstök- um töfrakassa en það atriði segir hann alltaf vinsælt. Þá var hún einn- ig bundin og sett í gálga en erfitt er að lýsa slíkum atriðum og því síður er töframaðurinn tilbúinn að upp- lýsa galdurinn, enda ekki ólíklegt að þau hjónin komi fram meö atriði sín hér á landi. Guðrún segir að starflð hafi verið auðvelt þegar þau sýndu fyrir fullu húsi en erfiðara þegar færri voru. Jörundur átti hins vegar auðvelt með að fá áhorfendur með sér í trúðs- hlutverkinu, jafnvel þó að hann tal- aði eingöngu íslensku, en það gerði alveg stormandi lukku. Þau Guörún pg Jörundur voru alltaf kynnt sem íslendingar og vakti það mikla for- Jörundur Guðmundsson er kominn heim eftir fimm mánaða dvöl við Karíbahaf þar sem hann starfaði sem trúður og töframaður í sirkus. Eiginkona hans, Guðrún, og dóttirin, Ragnhildur, voru með í ferðinni og höfðu gaman af. DV-mynd GVA vitni gesta, enda voru þau einu lista- mennirnir með norrænt útlit. Flestir hinna eru frá Spáni, Portúgal og öðr- um suðrænum ríkjum, nema ein hjón sem voru frá Þýskalandi. Þrjár sýningar á dag „Hitinn ætlaði okkur alveg að drepa í fyrstunni og ég léttist um sjö kíló meðan ég var að venjast hon- um,“ segir Jörundur. „Viö byrjuöum stundum klukkan níu á morgnana með barnasýningar og þá þurftum við,að rífa okkur upp fyrir allar ald- ir til að hafa tíma til að undirbúa okkur og farða.“ Fyrsti dvalarstaöur sirkussins var á eyjunni Guadeloupe, í borginni Pointe á Pitre, þar sem þau voru í tvo mánuði. Einnig fóru þau tii annarra borga á sömu eyju, t.d. Basse, þar sem þau voru í tvær vikur, en síöan fluttu þau sig yfir til annarrar eyjar sem nefnist Martinique þar sem þau voru tvo mánuði. - Eruð þið hætt og alkomin heim? „Já. Þau buðu okkur að halda áfram en ferðinni var heitiö til franskra eyja á Indlandshafi. Ég held að við séum búin að fá nóg af þessu lífi. Sirkuslífið er erfitt að vissu leyti. Við bjuggum í pínulitlu hjólhýsi og dagurinn byrjaði á að maöur vaknaöi eldsnemma til aö undirbúa sig. Eftir sýningu var farið í bað en baðið var slanga sem hver hafði fyrir utan sitt hús. í 35 stiga hita var allt í lagi að fara í kalda sturtu utanhúss," segir Jörundur en Guðrún segist varia hafa vanist að setja á sig stríðsmáln- rún og segir sorglegt hversu lítið sé hugsað um aö gefa börnunum kost á námi. Gömlu störfin taka við Þau Guðrún og Jörundur voru þriöja atriöi á dagskrá sirkussins og Jörundur kom síðan aftur sem fimmta atriði og inn á milli út alla sýninguna. Hann var því á þönum milli atriða að skipta um gervi. Það er varla að fjölskyldan sé kom- in niður á jörðina enda nánast nýlent á íslandi aftur. Jörundur hyggst fara á rakarastofuna sína á nýjan leik og Guðrún í Sparisjóö vélstjóra þar sem hún starfaði áður sem gjaldkeri. - Verður ekki erfltt að festa rætur á nýjan leik og takast á við þetta venju- lega líf á íslandi? „Maður hefur varla hugsað út í það nema nú þarf að fara að hugsa um reikningana aftur. Þegar okkur bauöst að fara þessa ferð í haust þótti okkur spennandi að prófa og við geymdum allar áhyggjur og hið dag- lega íslenska þras heima á meðan. Ég er búinn að vera lengi í skemmt- anabransanum og þetta var eiginlega einn angi af því að prófa eitthvað nýtt. Ætli maður fari ekki að hugsa um að flytja inn nýjan sirkus á næsta ári.“ Ýmislegt kom upp á, eins og við má búast, hjá þeim hjónunum. Eina nóttina vaknaði Jörundur við að maður gægðist inn um gluggann rétt ofan við höfuð hans í hjólhýsinu. ingu svo snemma dags. „Ef eitthvert frí gafst lásum við mikið og ég skrif- aði mörg kort. Ætli ég hafi ekki skrif- að yfir hundrað kort heim. Það var bara út af heimþránni," heldur Jör- undur áfram. „Strax í febrúar fór ég að verða órólegur og langaöi heim en þaö var allt í lagi með mæðgurn- ar.“ Ragnhildur litla var dugleg að hjálpa til við undirbúning sýningar- innar en hún missti úr skóla þann tíma sem þau unnu meö sirkusnum. „Hún tók námsefnið með en það er erfitt aö festa hugann við nám í svona framandi umhverfi," segja for- eldrarnir. „Börn sirkusfólksins á svipuðum aldri og Ragnhildur voru hvorki læs né skrifandi," segir Guð- Sirkushjónin komin heim: Eiginkonan skorin í sund- ur þrjú hundruð sinnum CITROÉN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.