Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 46
'58
. LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1091.
Afmæli
EinarBragi
Einar Bragi, skáld og rithöfundur,
Suðurgötu 8, Reykjavík, verður sjö-
tugurámorgun.
Starfsferill
Einar Bragi fæddist á Eskifirði og
ólst þar upp. Hann varð stúdent
árið 1944 og nam síðan húmanísk
fræði við háskólana í Lundi og í
Stokkhólmi í fimm vetur.
Einar Bragi hefur sent frá sér sjö
ljóðabækur. Þæreru: Eittkvöldí
júní (1950); Svanurábáru(1951);
Gestaboð um nótt (1953); Regn í maí
(1957); Hreintjarnir (1960,2. útg.
1962); í ljósmálinu (1970); og Ljóð
(1983).
Ljóðaþýðingar hans eru: Hrafnar
í skvjum (1970); Hljómleikar í hvítu
húsi (1973); Létta laufblað og væng-
ur fugls (1975); Kringum húsið
læðast vegprestarnir (1977); Sumar
í fjörðum (1978); og Hvíslað að klett-
inum (1981).
Ljóðabækur hans á öðrum mál-
um: Étangs clairs (þýð: Regis Boyer,
París 1968); Regn í maí (þýð: Knut
0degárd, Osló 1973); Pilar av ljus
(þýð: Inge Knutsson, Lundi 1976);
og Night Eyes and other Poems (þýð:
Patricia Aylett, Louis A. Muinzer
og Sigurður A. Magnússon, Sout-
hampton 1985).
Bækur Einars Braga í lausu máii:
Eskja I.-V. bindi (1971, ’77, ’81, ’83
og ’86); Þá var öldin önnur I-III
(1973-1975); Hrakfallabálkurinn
(1982), og Af mönnum eru kominn
(1985).
Helstu þýðingar Einars Braga í
óbundnu máli: Skáldsögur: eftir
Aksel Sandemose: Hornin prýða
manninn (1946, flutt í útv. ’86, hand-
rit); eftir M.A.Nexa: Ditta manns-
barn (1948-1949,2. útg. ’84); eftir
V.Katajev: Eiginkonan (1948); eftir
P.O. Ekström: Sumardansinn (1953);
eftir K. Markandaya: Á ódáinsakri
(1958); Sara Lidman: Sonur minn og
ég (1962).
Leikrit (í handriti): Elmer Rice;
Lögmaöurinn (1954, útvarpað s.á.);
Gustav Sandgren: Öldurnar (1955,
útvarpað s.á.); B.Shaw: Það er aldrei
að vita (1956, Leikfél. Rvíkur s.á.);
F.Garcia Lorca: Hús Bernörðu Alba
(1958, útvarpaö s.á. og oftar, L.R.
1964, L.A. 1989, ný þýðing); Arqu-
aluk Lynge o.fl.: Kalaallit nunaat
(1978, útvarpað s.á.); August Strind-
berg: Meistari Ólafur, Gústaf Vasa,
Faðirinn, Fröken Júlía, Kröfuhafar,
Hin sterkari, Paría, Reikningsskil,
Leikið að eldi, Bandið, Til Damask-
us I, Glæpur og glæpur, Páskar,
Dauöadansinn I og II, Karl XII.,
Draumleikur, Óveður, Brunarústin,
Draugasónatan, Pelíkaninn.
Barnabækur: Knut Odegárd: Fugl
og draumur (1976); Katarina Taikon:
Katrín (flutt í útvarp 1983), Katrín
og Skvetta (flutt í útvarp 1985). Af
öðru tagi: Artur Lundkvist: Drekinn
skiptir ham (1956), Bókin um Poq
(óþ. grænl. höf. 1978).
Utgáfur: Erlend nútímaljóð(1958,
ásamt Jóni Óskari), Lilja eftir Ey-
stein Ásgrímsson (1961), 100 kvæði
eftir Jón úr Vör (1967), Bókmennta-
greinar eftir Bjarna frá Hofteigi
(1971), Ritsafn Stefáns Jónssonar í
15 binduro (1972-1979), Heyrt og
munað eftir Guðmund Eyjólfsson
frá Þvottá (1978).
Einar Bragi stofnaði tímaritið
Birting (eldri) áriö 1953 og gaf út í
tvö ár. Hann var meðritstjóri aö
Birtingi (yngri) 1955-1968, ritari Rit-
höfundafélags íslands 1955-1956, í
stjórn Rithöfundasambandsins
1959-1960, og formaður þess 1968-
1970. í stjórn Rithöfundasjóðs ís-
lands 1971-1974, og formaður hans
árið 1974.
Einar Bragi var um langa hríð
virkur í baráttu gegn herstöðvum á
íslandi og hefur tekiö þátt í norrænu
menningarsamstarfi.
Fjölskylda
Einár Bragi kvæntist 10.5.1945,
Kristínu Jónsdóttur, f. 19.1.1920,
húsmóður. Hún er dóttir Jóns
Björnssonar og Arnþrúðar Gríms-
dóttur sem bjuggu að Ærlækjarseli
í Öxarfirði.
Börn þeirra Einars Braga og
Kristínar eru: Borghildur, f. 24.2.
Einar Bragi.
1946, geðlæknir í Reykjavík og á
þrjár dætur; og Jón Arnar, f. 12.2.
1949, innanhússarkitekt í Reykjavík
og á hann fjögur börn.
Systkini Einars Braga eru: Alfons,
f. 17.12.1916, verkamaður í Kópa-
vogi; Sigrún, f. 14.3.1919, húsmóðir
á Eskifirði; og Anna, f. 20.2.1927,
læknaritari í Reykjavík.
Foreldrar Einars Braga voru Sig-
urður Jóhannsson, f. 1891 d. 1946,
skipstjóri, og Borghildur Einars-
dóttir, f. 1898 d. 1981, húsmóðir. Þau
bjuggu á Eskifiröi.
Til hamingju með afmælið 6. apríl
85 ára Þorflnnsgötu 12, Reykjavík. Jón Ingi Magnússon, Eyrarvegi 18, Selfossi. Jón Guðmundsson, Ósiandi, Hofshreppi, Skagafirði Guðbjörg Ósk V. Óskarsdóttir, Safamýri 31, Reykjavík.
Sigrún Helgadóttir, Ásvallagötu 35, Reykjavík. Björg Jónsdóttir, Leirubakka 12, Reykjavík.
80 ára 50 ára
Jón Jónsson, Skólastig 14A, Stykkishólmi. Magnús Jóhannsson, Grundargötu 27, Grundarfirði. Tómas Runólfsson, Furugrund 45, Akranesi. Guðrún Lárusdóttir, Hæðargötu 9, Njarðvík.
70 ára 40 ára
Þórður Þórðarson, Pálmholti 12, Þórshöfn. Ásdis Finnbogadóttir, Hörgshlíð I, Reykjarfjaröarhreppi. Jón Jóhannsson, Hnappavöllum I, Hofshreppi, A-Skafta- fellssýslu. Andrea E. Benediktsdóttir, Marargötu 5, Reykjavík. Ólafur Róbert Magnússon, Viðihlíð 31, Reykjavik. Þóra Guðmundsdóttir, Leirutanga 6, Mosfellsbæ. Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6, Gerðahreppi. Jónas Baldursson, Reykási 14, Reykjavík.
60 ára
Sóley Ásta Sæmundsdóttir, Furugrund 75, Kópavogí. Valgerður Sæmundsdóttir, Tumastöðum, Fijótshliðarhreppi. Védís Gunnarsdóttir, Nýjabæjarbraut 5B, Vestmannaeyjum.
Hörður Runólfsson
Höröur Runólfsson verkstjóri,
Grandavegi 47, Reykjavík, verður
áttræður á morgun.
Starfsferill
Hörður fæddist aö Hálsum í
Skorradal og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann stundaði öll almenn
sveitastörf í uppvextinum og lauk
gagnfræðaprófi frá Héraðsskólan-
um á Laugarvatni 1931. Eftir prófið
fór Hörður til sjós og var á togurum
frá Reykjavík í tuttugu ár en hann
sigldi öll stríðsárin.
Hörður kom í land 1951 og stund-
aði þá byggingarvinnu. Hann hefur
síðan verið verktaki við húsbygg-
ingar, flutninga á húsum og við aö
rífa hús.
Fjölskylda
Hörður kvæntist 1941 Stefaníu
Sigrúnu Steinsdóttur, f. 1.5.1916, d.
13.12.1988, húsmóðuren hún var
dóttir Steins Ásmundssonar, b. í
Litla-Hvammi í Miðfirði, og konu
hans, Valgerðar Jónasdóttur hús-
freyju.
Hörður og Sigrún eignuðust fimm
börn. Þau eru Auður, f. 7.12.1943,
sjúkraliði á Skjóli, búsett í Reykja-
vík, gift Eðvald Benediktssyni tré-
smíöameistara og eiga þau tvær
dætur; Bergljót, f. 13.6.1945, sjúkra-
liði á Skjóli, búsett á Seltjarnarnesi,
gift Halldóri Guðmundssyni járn-
smíðameistara og eiga þau þrjú
börn; Úlfar Örn, f. 9.5.1947, vörubíl-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Helgu
Magnúsdóttur, húsmóður og versl-
unarmanni, og eiga þau tvo syni;
Ingibjörg Lára, f. 24.1.1953, sjúkra-
liöi á Húsavik, búsett við Laxár-
virkjun, gift Jóhanni Haukssyni
stöðvarstarfsmanni og eiga þau þrjá
syni; Hörður Þór, f. 10.8.1958, bíla-
smiður, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Guörúnu Smáradóttur,
húsmóður og fóstru, og eiga þau tvö
börn.
Hörður var yngstur tíu systkina
sem öll komust á legg en hann á nú
þrjú systkini á lífi. Systkini hans á
lífi eru Þórður Runólfsson, f. 18.9.
1896, b. á Haga í Skorradal; Engil-
bertRunólfsson.f. 8.11.1899, b.á -
Vatnsenda í Skorradal; Viktoría
Runólfsdóttir, f. 18.12.1908, húsmóð-
Höröur Runólfsson.
ir í Reykjavík.
Foreldrar Harðar voru Runólfur
Arason, b. á Syðstu-Fossum í Anda-
kíl, og Ingibjörg Pétursdóttir frá
Skeljabrekku.
Hörður verður í Frakklandi á af-
mælisdaginn.
Guðrún Guðbjamadóttir
SJCEnnTTJCUOLD
til heiðurs
Cielr dunnarssyní
aCþíngísmanní
laugardaginn 6. apríl kl. 20.30
í Firðinum v/Strandgötu.Haínarfirði
Tjöíbreytt sftemmtiatríði
DansDeife/Ur ad lokínní ctagsk,rá
iAiíír veíkomnír
Húsið opnar kl.20
Miðaverð kr. 500,-
Mætum vel og stundvíslega,
Nefndin.
Guörún Guðbjarnadóttir húsmóðir,
Hlíf II, ísafirði, verður áttræð á
morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist að Jafnaskarði og
ólst upp í Borgarfirðinum. Eftir að
Guðrún gifti sig var hún húsmóðir
á Flateyri og síðan á Djúpuvík til
1950 þar sem maður hennar var
verkstjóri hjá Alliance hf. Frá 1950
bjuggu þau hjónin á Flateyri til 1989
en fluttu þá til ísafjarðar þar sem
þau búa nú á Hlíf, dvalarheimili
aldraðra.
Guörún var árum saman mjög
virk í Kvenfélaginu Brynju á Flat-
eyri, sem og í slysavarnafélaginu
þar.
Fjölskylda
Guðrún giftist 12.2.1938 Johanni
Ingibjarti Guðbjartssyni, f. 20.6.
1907, trésmið, en hann er sonur
Guðbjarts Helgasonar og Önnu Jo-
hannsdóttur sem bjuggu á Flateyri.
Böm Guðrúnar og Johanns eru
Svanur A. Johannsson, f. 15.6.1935,
skipstjóri í Reykjavík; Anna Jo-
hannsdóttir, f. 13.10.1937, húsmóðir
í Mosfellsbæ, gift Emil R. Hjartar-
syni kennara og eiga þau íjögur
börn; Guðbjarni Johannsson, f. 1.12.
1942, smiður, kvæntur Báru Guð-
jónsdóttur og eiga þau tvö börn;
Þorsteinn Johannsson, f. 2.7.1952,
smiöur, kvæntur Gunnhildi Brynj-
ólfsdóttur og eiga þau þrjá syni;
Guðbjartur Johannsson, f. 12.1.1946,
Guðrún Guðbjarnadóttir.
lést af slysfórum 26.10.1949.
Systkini Guðrúnar: Guðmundur
Auðunsson Guðbjarnason, f. 20.5.
1896, d. 31.1.1951, búsettur að Arnar-
holti, átti Önnu Kristjánsdóttur;
Ásta Sigríður Guðbjarnadóttir, f.
9.11.1907, d. 1.7.1984, húsfreyjaað
Beigalda og aö Hreðavatni, átti
Daníel Kristjánsson; Þorsteinn Guð-
bjamason, f. 28.8.1909, d. 1950, bjó
að Jafnaskarði og að Beigalda, átti
Guðnýju Björnsdóttur; Sigurgeir
Guðbjarnason, f. 20.9.1912, d. 1990.
Foreldrar Guðrúnar voru Guð-
bjarni Guðmundsson, f. 11.10.1872,
d. 19.8.1936, b. aö Jafnaskarði, og
Halldóra Þorsteinsdóttir, f. 22.6.
1870, d. 24.11.1959, húsfreyja.
Guðrún tekur á móti gestum að
Hlíf frá klukkan 15-18 á afmælis-
daginn.