Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Page 21
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
Eftir það svaf hann með prjón og
startbyssu við hlið sér. Þjófnaðir eru
mjög algengir á þessum slóðum og
því nauðsynlegt að gæta að öllum
eigum. Tjald einnar vinnukonunnar
var skorið í sundur en þjófamir
fundu enga peninga.
Samverustund
með kónguló
Mikið var af alls kyns kvikindum
á þessum slóðum og rotturnar voru
á stærð við ketti. Ragnhildur kom
að dauðum hundi en tvær slíkar rott-
ur lágu yfir honum og átu. Þá var
Guðrún eitt sinn á leið í kassann í
atriðinu þegar Jörundur sker hana í
sundur en þá var risakónguló í kass-
anum. Tjaldið var troðfullt og Guð-
rúnu leist ekki á að fara inn í kass-
ann og vera þar í félagsskap með
risakóngulónni en um annað var
ekki að ræða. Hún var svo hrædd
þær sjö mínútur, sem sýningin tók,
að svitinn rann af henni í lækjum.
„Moskítóflugurnar ætluðu alveg að
drepa okkur fyrst,“ segir Jörundur.
„Pöddumar voru risastórar og ein
slík heimsótti okkur í hjólhýsið. Guð-
rún úðaði á hana en þá datt þetta
ferlíki á öxhna á henni með viðeig-
andi ópum,“ segir Jörundur og á
auðvelt með að hlæja að þessu nú
þegar hann lýsir viðbrögðum Guð-
rúnar. „Þið ættuð að sjá trúðsskóna
hans Jörundar. Ég var í því að drepa
pöddur með þeim,“ bætir Guðrún
við.
í sirkusbúðunum eldaði hver fyrir
sig og þau Guðrún og Jörundur segj-
ast hafa lært margvíslega matargerð
af samstarfsfólki sínu. Sjálf gátu þau
sýnt hinum íslenska matargerð. „Ég
hef aldrei eldað saltfisk á jafnmargan
hátt og í þessari ferð,“ segir Guðrún.
„Hráefniö var mjög gott en margt af
því jafndýrt og hér heima.“
Misjöfn laun
- Er sirkusstarf vel launað?
„Það er misjafnt eftir því í hvaða
starfi menn eru. Stærstu númerin,
t.d. þeir sem eru með dýr með sér,
geta haft fjörutíu þúsund á dag en
vinnufólkið er kannski með tvö þús-
und. Síðan er aiit þar á milli. Við
komum ekki heim með fulla vasa af
peningum, enda fórum við ekki í
þeim tilgangi,“ segja þau.
„Það voru allmörg dýr í sirkusnum
og við vorum í nábýli við fílana og
önnur dýr, enda voru þau hluti af
þessu lífi,“ segir Jörundur. „Maður
vaknaði kannski á morgnana og fékk
fílsrana inn um gluggann.“
Díana, sú sem var með slöngurnar
og kóngulærnar hér á landi í fyrra,
var ekki með í þessari ferð en þau
■heimsóttu hana á heimleiðinni í
Þýskalandi. „Vegna kuldans geymdi
hún dýrin sín inni í búri hjá sér,“
segir Guðrún sem leist ekki alveg á
blikuna.
Ragnhildur litla hafði mjög gaman
af sirkuslífinu. Hinn liðamótalausi
Sebastian kenndi henni margvísleg-
ar æfingar og hún fer í splitt eins og
ekkert sé. „Ég ætla að fara í fimleika
og halda því við sem ég er búin að
læra,“ segir hún.
Ragnhildur fann líka lítinn hvolp
sem hún tók ástfóstri við en hann
er nú geymdur í sóttkví í París og
vonast sú stutta eftir að fá hann
heim.
Mikill sóöaskapur
Jörundur segir að. það hafi komið
sér mjög á óvart hversu mikill sóða-
skapur er á eyjunum þar sem þau
dvöldu. „íhúar eyjanna fara illa með
dýr. Maður tók sérstaklega eftir því.“
Einnig undrar hann sig á hvernig
þau komust í gegnum þrjár sýningar
á dag í þessum ofboðslega hita sem
þarna var. „Ég haföi kynnst sirkus-
hfi mjög vel hér heima þegar ég hef
flutt sirkusa hingað þannig að þetta
kom mér ekki svo mikið á óvart,“
segir hann.
Guðrún starfaði sem áhugaleikari
hjá Leikfélagi Vestmannaeyja fyrir
nokkrum árum og einnig lék hún í
kvikmyndinni Nýtt líf. Að öðru leyti
er hún byrjandi í skemmtanaheimin-
um. Hún fékk þó þjálfun hjá hinni
þýsku Díönu hér í fyrrasumar. Jör-
undur fékk hins vegar leiðbeiningar
hjá Baldri Brjánssyni sem einnig lán-
aði kassann góða þar sem Guðrún
var bútuð niður.
Jörundur segir að það hafl stund-
um verið skrýtið hversu allt var
svart þegar eintómir svertingjar
voru í salnum og ljósin voru slökkt.
„Maður sá bara skína í hvítar tennur
hér og þar,“ segir hann
„Við getum ekki neitað að þessi
tími hefur verið spennandi en erf-
iður. Það er til dæmis mjög mikið
mál að ferðast með sirkusinn milli
staða, enda margt sem fylgir hon-
um.“
- Hvað hafið þið lært af þessu?
„Æth við séum ekki betri mann-
þekkjarar."
-ELA
Lögmanns- & fasteignastofa
REYKJA VÍKUR
Skipholti 50C, sími 678844
Opið kl. 13-15
í dag - laugardag
Fasteign er
okkar fag
Miðvangur, Hf. Prýðisgott rað-
liús á tveimur hæðum. Fullb. Afh. fljótl.
Miðbær Ágæt 60 fm íb. á 2. hæð á
besta stað í bænum. Áhv. 2 millj. Verð
4,4 millj.
Grafarvogur
]«
m
Vorum að fá í sölu þetta glæsil. tvíb.
Efri hæðin er 154 fm ásamt bílsk. Neðri
hæð er 140 fm ásamt bílsk. Afh. fullb.
að utan, fokh. að innan.
Blikastígur - Álftanes
Ca 200 fm einb. ásamt 40 fm tvöf. bíl-
skúr. Húsið er fullb. utan. Frág. lóð.
Að innan er húsið einangrað. Hitalögn
og rafmagn að hluta. Húsið er á einni
hæð. Ákv. sala.
í Hafnarfírði 100 fm góð eign á
jarðhæð í þríbýli. 2 stór svefnherb.
Þvhús. Góð kjör. Verð 4,8 millj.
Snæland Einstaklíb. á jarðhæð.
Bræðraborgarstígur 3ja herb.
mjög góð kjíb. Laus fljótlega.
Laugarnes 2ja herb. kjíb. í rólegu
og góðu umhverfi.
Krummahólar 3ja herb. íb. með
góðu útsýni, bílskýli. Laus fljótlega.
Álfholt Ca 120 nr íbúð á 1. hæð.
Afh. tilb. u. tréverk, sameign frágengin.
Áhv. nýtt V.D., ca 4,9 m.
Kópavogur Ca 90 m'2 íbúð í sambýl-
ishúsi. Parket, bílskúr.
Grænatún, Kópavogi a-4herb.
risíbúð í tvíbýli. Smekkleg eign. Verð
5,6 m.
Vantar
Álftanes Höfum verið beðin um að
útvega einbýli á Álftanesi fyrir Qár-
sterkan kaupanda.
Vantar eignir -
miðbæ, austurbæ og
vesturbæ
Ólafur örn, Páll Þórðars., Jens Ágúst, Friðgerður Friðriksd. og Sigurberg Guðjónss. hdl.
Mosfellsbær Einbýli, ca 180 fm, á
einni hæð. Afh. tilb. u. tréverk og fullb.
utan. Frábær staðsetn.
ENN ATHYGLISVERÐARI
...ENN BETRA VERÐ
Verð frá 677 þús. st.gr.
Sendibifreið 568 þús. án vsk.