Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Síða 23
LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991.
123
Bridge
Sveit Landsbréfa skipuðu: Rúnar Magnússon, Sigurður Vilhjálmsson, Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Jón
Þorvarðarson og Magnús Ólafsson.
íslandsbankamótið í bridge:
Sveit Landsbréfa
sigraði örugglega
Eins og kunnugt er af fréttum sigr-
aði sveit Landsbréfa á íslandsmótinu
í bridge nokkuð fyrirhafnarlítið.
Raunar veitti aðeins ein sveit henni
keppni, þ.e. sveit VÍB, eða Verðbréfa-
markaðar íslandsbanka, en svo
skemmtilega vildi til að þær mættust
í síðustu umferð mótsins. Þeim leik
lyktaði með jafntefli, 15-15, en sveit
Landsbréfa dugðu 9 stig til þess að
vinna.
Tveir af íslandsmeisturunum í
fyrra náðu að verja titil sinn, Magnús
Olafsson og Sigurður Vilhjálmsson,
en hinir sveitarmeðlimirnir eru Að-
alsteinn Jörgensen, Jón Baldursson,
Jón Þorvarðarson og Rúnar Magnús-
son.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Þar eð sömu spil voru spiluð í öll-
um leikjum var auðvelt og skemmti-
legt fyrir áhorfendur að fyigjast með
keppninni og einnig gaf það mögu-
leika á svokölluðum íjölsveitaút-
reikningi til þess að mæla getu hinna
einstöku para. Auðvitað er sá saman-
burður ekki einhlítur en gefur þó
vissa vísbendingu um frammistöðu
spilaranna.
Aðalsteinn Jörgensen og Jón Bald-
ursson fengu hæsta skor í fjölsveita-
útreikningnum, eða 18.79 út úr 13
hálfleikjum, í öðru sæti voru Karl
Sigurhjartarson og Sævar Þor-
björnsson með 18.06 úr 11 hálfleikj-
um og þriðju Siglflrðingarnir Ás-
grímur og Jón Sigurbjörnssynir með
17.94 úr 6 hálfleikjum.
Það er auðvelt að fylgjast með leikj-
unum á hinu nýja tölvustýrða sýn-
ingartjaldi sem Bridgesambandið
hefur tekið í notkun en sýnt var frá
flestum umferðum mótsins. Hér er
eitt spil sem var athyglisvert bæði í
sögnum, sókn og vörn.
Spilið er frá fjórðu umferð og kom
fyrir milh sveita Púlsins og Verð-
bréfamarkaðar íslandsbanka.
A/N-S
♦ KD4
¥ A1092
♦ K3
+ AG42
* A5
¥ 865
♦ A10875
+ 1086
♦ 109872
¥ K73
♦ DG6
+ 73
í lokaða salnum sátu n-s Þorlákur
Jónsson og Guðmundur Páll Arnar-
son en a-v Jónas P. Erlingsson og
Júhus Sigurjónsson. Þorlákur opn-
aði í síðustu hendi á einu grandi og
enginn hafði neitt við það að athuga.
Þorlákur fékk síðan 8 slagi og 120.
Þessi árangur lá fyrir þegar spilið
birtist á sýningartjaldinu og raunar
virtist líklegt að lokasamningurinn
yrði sá sami. Menn voru hins vegar
ekki á eitt sáttir hvort norðri tækist
jafnvel að fá einum slag meira í opna
salnum og þá með því að svína spaða-
tíu strax.
En við skulum hlusta á sagnirnar.
í opna salnum sátu n-s Guðmundur
Sveinsson og Valur Sigurðsson en a-v
Sævar Þorbjörnsson og Karl Sigur-
hjartarson:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass pass 1 lauf
pass ,1 tígull pass 1 grand
pass 2 hjörtu pass 2 grönd
pass 3 tíglar pass 4 spaðar
pass pass pass
Guðmundur og Valur spila sterkt
lauf með yfirfærslum upp úr grand-
sögnum. Meira get ég ekki um sagn-
irnar sagt en hins vegar var sphið
skyndilega orðið spennandi.
Við sem sáum öll spilin vorum fljót
að vinna sphið. Við myndum svína
fyrir spaðagosa, gefa einn slag á
tromp, gefa einn slag á tígulás en
hjartatapslagurinn hyrfi ofan í laufa-
gosa. Slétt unnið.
En það er auðveldara að spila þegar
maður sér allar hendur. Við skulum
fylgjast með hvernig norður spilaði
spilið.
Austur valdi að spila út laufasexi,
htið, drottning og norður drap með
ás. Það virðist allt í lagi að spila tígul-
kóngi og það gerði noröur. Austur
drap á ásinn og spilaði meiri tígli.
Blindur átti slaginn, tók tígulgosa,
kastaði hjarta og spilaði síðan spað-
atvisti. Lítið, kóngur, ás, en áreiðan-
lega hefði verið betra að gefa. Austur
hefur hins vegar verið hræddur við
að eiga erfitt útspil ef hann færi síðar
inn á spaðaás, enda spilaði hann
trompi til baka sem var síður en svo
óþægilegt fyrir sagnhafa. Það virðist
nú vera handavinna að vinna spilið:
einungis er eftir að spila laufi á go-
sann þegar búið er að taka trompið
af vestri. Þetta gerði sagnhafi líka en
vestur hafði haft góðan tíma th þess
að átta sig á stöðunni og lét lítið lauf,
enda blasir vinningur viö ef hann
drepur á kónginn. Sagnhafi varð fyr-
ir vonbrigðum þegar vestur lét htið,
en hann gaf líka og austur fékk
óvæntan slag á áttuna. Hann spilaði
nú laufatíu og sagnhafi, sem hafði
tekið sér góðan tíma hingað th, var
nú alveg viss. Hann kastaði hjarta
úr blindum: einn niður.
Ótrúleg mistök því ef laufasexan
var heiðarlegt útspil þá hafði austur
byrjað með þrjú eða fimm lauf. En
það sem verra var: spihð stendur enn
á borðinu með því að trompa laufið,
taka síðasta trompið og austur er í
bullandi kastþröng með laufakóng
og D G X í hjarta. Sveit Verðbréfa-
markaðarins græddi því 6 impa í stað
þess að tapa 11.
■P UtÖÓ
¥ DG4
♦ 942
-I. i/nnc
1 2 3 4 5 6 7 8 Samtals
1. Samvinnuferðir/Landsýn 13 8 25 23 13 18 21 121
2. Landsbréf 17 21 24 19 15 24 20 140
3. Tryggingamiðstöðin hf. 22 9 21 16 1 16 23 108
4. Jakob Kristinsson 4 6 9 I 17 . 14 16 16 82
5. S. Ármann Magnússon 7 11 14 13 12 24 0 81
6. V.Í.B. 17 15 25 16 18 14 22 127
7. Ásgrímur Sigurbjörnsson 12 6 14 14 6 16 | 18 86
8. Púlsinn 9 10 7 14 25 8 12 85
Sjúkrahúsið Húsavík sf.
Hjúkrunarfræðingar óskast til sumar-
afieysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-41333.
Byggðastofnun
Fyrirtæki í rækjuvinnslu
Byggðastofnun hefur verið falið að endurlána fyrir-
tækjum í rækjuvinnslu erlent lán að upphæð 200
millj. kr. til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Umsóknum um lán skal skila til Byggðastofnunar,
fyrirtækjadeild, Rauðarárstíg 25, 105 Reykjavík, fyrir
1. maí 1991. Umsókninni skulu fylgja ársreikningar
fyrir árin 1988-90, uppreiknuð veðbókarvottorð,
brunabótamat fasteigna, tryggingarmat véla og
rekstraráætlun fyrir 1991 og 1992.
40árar?ynsla
25 ár á íslandi
Græna línan (jUJUÍijI
Gæði og góð þjónusta
PFAFF
Borgartúni 20, sími: 626788
Charme
L_____L
\