Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Page 31
LMJGARDAGljR APRÍJv jj)91. í3 Sérstæð sakamáJ Fylgdi bölvun Lucan lávarði? Lucan lávarður. Sandra Rivett. Þetta er spurning sem ýmsir á Bretlandseyjum hafa velt fyrir sér og sumir hafa viljað svara spurn- ingunni játandi, bæði vegna örlaga hans sjálfs og tveggja kvenna sem voru bamfóstrur á heimili hans. Morð fyrir mistök? Oft er haft á orði að því að vera af aðalsættum fylgi ákveðnar kvað- ir, skyldur, og því er stundum talað um að aðalsmaður hafi „brugðist“ þegar eitthvað fer úrskeiðis hjá manni með blátt blóð í æðunum. Árið 1974 mun fáa hafa grunað að nokkuð ætti eftir að fara úrskeiðis hjá Lucan lávarði, sem var sá sjö- undi í röðinni sem bar þann titil. Hann var af kunnri aðalsætt og því kom það mjög á óvart að hann skyldi myrða eina af barnfóstrun- um á heimilinu, Söndru Rivett, í kjallaranum á húsi sínu í London. Það kom svo líka á daginn aö það hafði ekki verið ætlun hans að myrða Söndru. Því tóku sér sumir í munn orðin „morð fyrir misskiln- ing“, en þau hafa þótt all sérstæð því heldur er fátítt að fólk sé ráðið af dögum fyrir misskilning. Svo mun þaö þó hafa verið með Söndru Rivett og vakti málið mikla athygli á sínum tíma. Það er þó aðeins til stuttrar umfjöllunar hér. í rauninni var það ætlun Lucans lávarðar að ráða konu sína, lafði Veróníku, af dögum. Hann var ný- skilinn við hana og stóöu þau í deilum um foreldraréttinn yfir börnunum tveimur sem þau áttu. Morðið á Söndru Rivett var í raun tvöfaldur sorgarleikur. Lávarður- inn ruglaðist ekki aðeins á henni og konu sinni í myrkrinu heldur var það tilviljun að Sandra var í húsinu þessa nótt. Ástæðan var sú að ein af stúlkunum sem gættu barna lávarðarins og konu hans fyrrverandi, Christabel Mason, sem var tvítug, hafði fengið Söndru til að vinna fyrir sig þetta kvöld því sjálf átti hún stefnumót úti í bæ. „Enginn fær flúið örlög sín,“ segja sumir og það sýnist hafa kom- ið fram á konunni sem hafði átt að gæta barnanna þetta örlagaríka kvöld en fengið Söndru Rivett til að leysa sig af. Hún hét Christabel Mason, eins og fyrr segir. Þegar lík Söndru fannst var Lucan lávarður horfinn og hefur ekki sést síðan. Hann er sagður hafa flúiö og vera á eilífum flótta síöan. Lafði Verón- íka og Christabel þökkuðu hins vegar sínum sæla fyrir að hafa sloppið lifandi þessa nótt. Þó reyndist það hins vegar svo að Christabel hafði aðeins fengið frest á þvi sem koma skyldi, að týna líf- inu. Tíu árum síðar var hún myrt og þá fóru sumir að velta því fyrir sér hvort Lucan lávarði hefði fylgt einhvers konar bölvun. En um örlög sín vissi Christabel að sjálfsögðu ekki neitt þegar hún sagði lausu starfi sínu hjá lafði Veróníku. Rangur maður Ekki leið langur tími frá því að Christabel fór úr þjónustu lafði Veróníku þar til hún kynntist ung- um manni, Nicholas Boyce, sem var þá tuttugu og fjögurra ára. Þau virtust í fyrstu eiga margt sameig- inlegt en hún var því vön frá heim- ih Lucansfjölskyldunnar að ekkert vantaði til neins. Þaö kom hins vegar fljótt í ljós að Nicholas var heldur fátækur af þessa heims gæðum því hann hafði rétt ráð á að borga húsleigu fyrir heldur lé- lega íbúð í Bethnal Green hverfmu í London. Nicholas lét sig dreyma og megin- viðfangsefni hans á þessum tíma var heimspekinám en því miður var það svo að hann virtist ekki fær um að ljúka náminu. Og tekjur hafði hann af því að gera hreint í nokkrum nærliggjandi herbergjum en það varð hann að gera á nótt- inni. Tekjurnar voru þó litlar og lenti það því á Christabel að sjá fyrir þeim að mestu leyti. Þegar hún hafði alið son árið 1981 kom það í hlut Nicholas að vera heima á daginn og húgsa um barn- ið. Christabel fékk sér fljótlega vinnu og varpaði þetta skugga á hjónabandið. Og ekki batnaði ástandið þegar hún fæddi annað barn aö ári. Má segja að þá hafi öll hjónabandssæla verið á enda. Christabel var stór og sterk kona og það fór yfirleitt ekki á milli mála hver var „húsbóndinn" á heimilinu. „Hvers vegna flyturðu ekki á heimili fyrir atvinnulausa í staðinn fyrir að hanga hér?“ var setning sem hún heyrðist æ oftar segja. Og þar kom að hún fór að hóta því að Nicholas skyldi fá að kenna á reiði hennar svo um mun- aði ef hann tæki sig ekki fljótlega á. Hann reyndi að gera sitt besta en það dugði ekki til. Það var sem vísirinn á hjónabandsloftvoginni vísaði á storm, eins og einhver komst síðar að orði um ástandið á heimilinu á þessum tíma. „Reiðikast" Jólin 1984 voru versti tími sem Nicholas Bouce hafði nokkru sinni upplifað. Hann gaf konu sinni úr ,en í bræði fleygði hún því frá sér og tróð á því á gólfinu. Hanh flúði inn í barnaherbergið til þess að geta verið einn með sorgir sínar en Christabel hratt upp hurðinni, dró hann með sér fram á gang og hellti sér þar yfir hann fyrir að hafa eyði- lagt fyrir henni ánægjuna af kvöld- Lafði Verónika. Christabel Mason. Nicholas Boyce. inu. Nokkrum vikum síðar gerðist þaö að Nicholas fór með son þeirra á safn en kom heim með hann mun seinna en um haföi verið talað. Á því var fullkomlega eðlileg skýring því lestin sem hann fór með haföi bilað. Christabel var hins vegar ekki í skapi til að hlusta á útskýr- ingar hans og réðst á hann með fúkyrðum og lúskraði þar að auki á honum. Eins og ætíð þegar til rifr- ildis eða átaka köm á heimilinu reyndi Nicholas aðkoma sér undan en í þetta sinn tókst það ekki og endaði hann á gólfinu þar sem hann varö að taka við spörkum eiginkonu sinnar. Samt gerði hann ekkert fyrr en hún kom með log- andi vindling og gerði sig líklega til að reka glóðina í hann. Þá var sem sprenging yrði innra með Nic- holas. í því sem hann nefndi síðar reiðikast fór hann að sparka frá sér. Og skyndilega kom yfir hann, að eigin sögn, einhver ótrúlegur kraftur. Hann réðst á konu sína, yfirbugaði hana og áöur en hann vissi af var hann búinn að kyrkja hana. Það var fyrst þegar honum var ljóst að hún var dáin að hann flýtti sér inn til barnanna sem höfðu ekki gert sér ljóst hvað hafði gerst því þau voru nýsofnuð. Er hann sá að þau sváfu varð honum hugsað til lögreglunnar og þá tók hann ákvöröun um að koma líki Christabel undan. Smápökkum dreift Morguninn eftir hafði Nicholas tekist að hluta Christabel í sundur í baðkerinu. Hverjum hluta vafði hann inn í blaðapappír. Börnunum sagði hann að móðir þeirra væri farin í ferðalag og kæmi aldrei heim aftur. Næstu daga fór hann svo vítt og breitt um London með smápakka sem í voru jarðneskar leifar konu hans og þeim kom hann fyrir í ruslatunn- um hér og þar. Einn vandi var þó óleystur. Christabel hefði aldrei yfirgefið börn sín og það vissi vinkona henn- ar sem kom til að spyrja um hana þegar hún hafði hvorki heyrt hana né séð í nokkra daga. Hún hlustaði á sögu Nicholas en neitaði að trúa henni og hótaði að fara til lögregl- unnar. Þá játaði hann á sig morðið og sagði alla söguna. Dómurinn Þegar réttarhöldin yfir Nicholas Boyce hófust hélt saksóknarinn því fram að morðið hefði verið skipu- lagt og vísaði meðal annars til læknisfræðirita sem fundust í íbúðinni. Þar var að finna lýsingar á því hvernig hluta ætti lík í sund- ur og hafði sums staðar verið strik- að undir þær með rauðum blýanti. Verjandinn hélt því aftur á móti fram að skjólstæðingur hans væri blíður maður í eðh sínu en hann hefði orðið fyrir of mikilli hörku af hálfu konu sinnar um langan tíma og'að því hefði komið að hann missti stjórn á sér. Það var því það sem hann nefndi pyntingar og sál- rænar misþyrmingar sem ollu því að hann myrti konu sína. Máliö vakti mikla athygli og héldu sumir því fram að Nicholas hefði sett á svið þá atburðarás sem hann sagði hafa átt sér stað á heimilinu þetta örlagaríka kvöld. Var í því sam- bandi aftur vísaö til læknaritanna og þess að skammur tími virtist hafa liðið frá morðinu og þar til Nicholas byrjaði að hluta sundur líkið. Þá þótti ýmsum sem það stangaðist á við blítt eðli manns að fara þannig með konu sína og veija næstu dögum í að bera hana úr íbúðinni í hlutum vöfðum inn í dagblöð. Dómarinn var hins vegar á sama máh og verjandinn, að Nicholas hefði komist alvarlega úr jafnvægi og misst stjórn á sér vegna langvar- andi líkamlegs og sálræns ofbeldis. Dómurinn hljóðaði upp á sex ára fangelsisvist fyrir manndráp, ekki morð. Til mikilla mótmæla kom vegna dómsins enda voru ekki allir á þeirri skoðun að Nicholas Boyce hefði í einu og öllu sagt sannleik- ann, eins og fyrr segir. Aðrir létu sér nægja að hrista höfuðið og segja að hvort sem Nic- holas Boyce hefði ráðið konu sinni, Christabel, bana eða ekki hefði hún ekki geta umflúið örlög sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.