Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1991, Blaðsíða 47
iLAUGARÐAOUR 6. APRÍLJ591.
59
(
Afmæli
l
Jóhann Guðbjartsson
Jóhann Guðbjartsson húsgagna-
smiður, Vesturbraut4, Hafnarfirði,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Hafnarfirði í foreldrahúsum.
Hann lærði húsgagnasmíði við Al-
mennu húsgagnavinnustofuna við
Vatnsstíg. Eftir sveinsprófið stundaði
Jóhann húsgagnasmíði og starfaði
m.a. við iðnina eitt ár í Danmörku.
Þá fór hann til Noregs þar sem hann
var i farmennsku á norskum milli-
landaskipum, auk þess sem hann var
til sjós hér heima, m.a. á strandferða-
skipinu Esju og rannsóknarskipinu
Bjarna Sæmundssyni.
Jóhann kom í land árið 1974 og
sneri sér þá að vinnslu með ryðfrítt
stál. Hann starfaði um skeið hjá
Ofnasmiðjunni og síðan hjá Kletti hf.
en stofnaði ásamt öðrum fyrirtækið
Eðalstál árið 1986 sem hann hefur
starfrækt með öðrum síðan.
Jóhann starfaði mikið með Félagi
óháðra borgara í Hafnarfirði og sat í
stjóm félagsins. Hann átti sæti í um-
ferðarnefnd Hafnarfjarðar, varfor-
maður náttúruverndarnefndar Hafn-
arfjarðar og á nú sæti í stjórn Skóg-
ræktarfélags Hafnarfjarðar. Auk
þess sat hann í stjórn Iðju um skeið.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 8.2.1976 Jó-
hönnu Þorgeirsdóttur, f. 14.6.1945,
húsmóður, en hún er dóttir Þorgeirs
Daníels Lúðvíkssonar og Kristínar
Jóhannsdóttur sem búsett eru í
Hafnarfirði.
Börn þeirra Jóhanns og Jóhönnu
eru: Ragnhildur Jóhannsdóttir, f.
6.3.1977, og Þorgeir Daníel, f. 22.4.
1981. Jóhanna átti fyrir soninn Stef-
án Pétur ísfeld, f. 27.9.1962, kvæntan
Kristínu Sveinsdóttur, f. 17.4.1958,
en sonur þeirra er Bjarki Stefáns-
son, f. 31.8.1988. Faðir Stefáns Pét-
urs er Tómas ísfeld, matsveinn í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Jóhanns eru þau Guð-
bjartur Jóhannsson, f. 26.7.1907,
verkamaður, og Ragnhildur Bjarna-
dóttir, f. 25.9.1906, húsmóðir. Þau
eru búsett í Hafnarfirði.
Jóhann Guðbjartsson.
Jóhann verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Málfríður Stefánsdóttir
Málfríður Stefánsdóttir húsmóð-
ir, Hrafnistu í Hafnarfirði, er 85 ára
ídag.
Starfsferiil
Málfríður fæddist í Æðey í Ísaíjarö-
ardjúpi en ólst upp í Súðavík í Álfta-
firði.
Hún hefur auk húsmóðurstarfa
verið í fiskvinnu, aðallega í Hafnar-
firði, og starfað hjá Félagsmála-
stofnun Hafnarfjarðar. Hún veitti
heimilishjálp Hafnaríjaröarbæjar
forstöðu um nokkurt skeið og var í
tuttugu ár formaður Mæðrastyrks-
nefndarþaríbæ.
Málfríöur hefur alla tíð verið virk
í félagsmálum, m.a. verið félagi í
Slysavarnafélaginu, Verkakvenna-
félaginu Framtíðinni og í Soroptim-
istaklúbbi Hafnaríjaröar og Garða-
bæjar.
Fjölskylda
Málfríður giftist, 4.8.1928 Axel Schi-
öth Gíslasyni, f. 16.10.1896, d. 28.1.
1976. Axel var sonur Gísla Gíslason-
ar sjómanns og Kristínar Þórðar-
dótturhúsmóður.
Málfríður og Axel eignuðust sjö
börn, þau eru: Sigríður Oddný, f.
21.1.1925, d. 14.7.1990, var gift Baldri
Jónssyni, lækni á Akureyri, og átti
með honum sex börn en þau skildu;
Stanley Ágúst, f. 17.1.1927, ógiftur
og barnlau's; Magnús Axel, f. 28.10.
1929, d. 1930; Kristjana Stefanía, f.
22.7.1930, d. 1931; Garðar Þór, f.
23.12.1933, hafnsögumaður í Stokk-
hólmi, kvæntur E vu Mariu og á með
henni fjögur börn; Kristín Björk, f.
11.6.1944, gift Matthíasi Einarssyni
kaupmanni og eiga þau fjögur börn,
og Brynja, f. 3.7.1946, gift Birni
Halldórssyni kaupsýslumanni.
Málfríður á tvö hálfsystkini, þau
eru: Petrína Stefánsdóttir, fluttist til
Ameríku 1907, og Haraldur Stefáns-
son, búsettur í Bolungarvik.
Foreldrar Málfríðar vom þau
Málfríður Stefánsdóttir.
Stefán Pétursson sjómaður og
Kristjana Pálína Kristjánsdóttir,
húsmóðir og verkakona. Þau voru
búsettáísafirði.
Fósturforeldrar Málfríðar voru
Magnús Guðbrandsson sjómaöur og
Sigríður Oddný Hagalínsdóttir hús-
móðir. Þau bjuggu í Súðavík.
Til hamingju með afmælið 7. apríl
90 ára
Ingvar Brynjólfsson,
Lönguhlíð 19, Reykjavík.
Guðfinna Jónsdóttir,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Bjarni Fansson,
Engjavegi 20, ísafirði.
70 ára
Haildóra Sigurjónsson,
Ásvallagötu 1, Reykjavik.
Ebba Bergsveinsdóttir,
Fellsmúla 18, Reykjavik.
60 ára
Elín Tómasdóttir,
Austurvegi 21, Mýrdalshreppi.
Árni Valur Viggósson,
Skarðslilíð 4H, Akureyri.
50 ára
Magnús Jónsson,
Borgarholtshraut 52, Kópavogi.
40 ára
Birgir Kjartansson,
Arnarhrauni 15, Hafharfiröi.
Þórdís Rögnvaldsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 37, Reykjavik.
Pétur Þ. Jóhannesson,
Urriðakvísl 13, Reykjavik.
Rebekka B. Þráinsdóttir,
Fiskakvísl 26, Reykjavik.
Georgia Kristmundsdóttir,
Hringbraut 31, Hafnarfirði.
Valur Ingvarsson,
Faxatröö 2, Egilsstöðum,
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
Efstahrauni 27, Grindavík.
Ólöf Maria Eiríksdóttir,
HáafeUi III, Fellahreppi.
Vilberg Sigtryggsson,
Kambsvegi 28, Reykjavík.
Guöfinna Þorsteinsdóttir,
Miðengi 14, Selfossi.
Edda ösp Jóhannesdóttir,
Álfhólsvegi 63, Kópavogi.
Örn Ingvarsson,
GrenivöUum 28, Akureyri.
C
V O R
HJA TITAN HF 5. - 15, APRIL
Opið: Mánud. - föstud. kl. 9 - 18 og laugard. - sunnud. kl. 10-17
COMBIGAIVIP
TJALDVAGNAR
0
isec.
*"fFEAX„iiv
Nýju COMPI CAMP tjaldvagnarnir eru komnir í sýningarsal okkar,
af því tilefni veitum við 4% afsláttaf staðfestum pöntunum fyrir 15. apríl
TRAUSTUR OG
UktJeanneau
seglskútur
sillinger
gúmmíbátar
GOÐVR FEIAGI
ÍFERÐALAGIÐ
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 84077
%
snekkjur
áttavitar