Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
3
Fréttir
Útflutningur kannaöur á lifandi fé til íslama:
Yrðu skornar á háls með
höfuðið í átt til Mekka
- 55 þúsund kindur Urðaðar í haust ef ekki tekst að koma þeim 1 verð
„Það hefur verið illmögulegt fyrir
okkur að selja þessum þjóðum sem
aðhyllast íslamstrú kjöt vegna þeirra
siðareglna sem þar ríkja. Dýrunum
verður að slátra með því að skera
þau á háls þannig að þeim blæði út.
Viðstaddur verður að vera lærður
eða leikinn trúmaður sem fer með
bænir yfir skepnunum og tryggir að
höfuð þeirra snúi í átt að Mekka. Að
öðrum kosti vilja þeir fá dýrin lifandi
til sín. Samkvæmt íslenskum lögum
verður hins vegar að deyða dýrin
með skoti þannig að það hafa ekki
verið nema frjálslynd lönd á borð við
Túnis og Egyptaland sem hafa viljað
kaupa frosnu dilkana okkar,“ segir
Jóhann Steinsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Goða.
Landbúnaðarráðuneytið og Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins hafa farið
þess á leit við forsvarsmenn Goða
hf. að þeir kanni í gegnum viðskipta-
sambönd sín hvort mögulegt sé að
koma þeim 55 þúsund rollum, sem
fyrirhugað er að skera niður í haust,
í verð. Kjötið má þó ekki fara til
manneldis á innanlandsmarkaöi.
Verði ekki hægt að koma því í verð
erlendis eða til framleiðslu á kjöt-
mjöli er ljóst að urða verður kjötið.
Að sögn Jóhannesar er það ekki
síst vegna umhverfissjónarmiða sem
verið er að leita að mörkuðum fyrir
þetta kjöt. Verði það urðað muni
hljótast af því mikil umhverfisspjöll
og óþrifnaður. Hann segir að víða
erlendis, til dæmis í Svíþjóð, sé slík
Landbúnaðarráðuneytið og Framleiðsluráð landbúnaðarins hafa farið þess
á leit við forsvarsmenn Goða hf. að þeir kanni i gegnum viðskiptasambönd
sín hvort mögulegt sé að koma þeim 55 þúsund roilum, sem fyrirhugað er
að skera niður i haust, í verð.
meðferð á dýrum bönnuð. Hins vegar
sé ekki hægt að búast við háu verði
takist að selja kjötið. í besta falli
muni það rétt duga fyrir slátur- eða
flutningskostnaði.
„Viö höfum kannaö það lítils háttar
hvort mögulegt sé að selja þessar
kindur lifandi til Norður-Afríku en
enn höfum við þó ekki fengið full-
nægjandi viðbrögð. Við vitum heldur
ekki hversu mikil afföll yrðu á leið-
inni en það er gefið að einhver hluti
þessara kinda dræpist á leiðinni
vegna þess hita sem er við Miðjarðar-
hafiö. Við vitum heldur ekki hversu
mikill áhuginn á kjöti af gömlum
rollum er í raun. Það er alveg ljóst
að þetta er ekki besti matur í heimi.“
-kaa
...fegurð, kraftur,
fipurð, snerpa og.
j“ áir bílar hafa verið jafn oft verðlaunaðir
og þessi knái bíll og hann stendur fyllilega
undir öllu því lofi sem á hann hefur verið boriö.
Það eru kostir eins og sérlega góðir aksturs-
eiginleikar, kraftmikil en eyöslugrönn vél, mikið
innanrými og almenn tæknileg gæði, ásamt
aðlaðandi útliti sem byggt hafa upp vinsældir
og vegsemd Peugeot 205.
. „Ekki sakar þaö heldur, að eyöslan
er í kringum 5-7 Iftrar á hundraöi og vel
undir 5 í þjóðvegaakstri. “
framúrskarandi lipur í innanbæjarakstri.“
„Hann er miklu meiri sportbíll, en sumir
sem seldir eru undir slíku merki og eru tvöfalt
eöa þrefalt dýrari."
-úr Mbl. 2. marz 1991. Gísli S.
Geriö verösamanburð á
Peugeot 205 og öörum bílum
juruit hh
NÝBÝLAVEGI 2 SÍMI 42600