Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Page 5
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
5
Fréttir
Mikil umferö er um gatnamót Nýbýlavegar og Þverbrekku, sérstaklega á milli klukkan 17 og 18 og á morgnana
þegar fólk fer til vinnu. Hraðinn er talsvert mikill. Austan gatnamótanna eru tvær akreinar en vestan þeirra aöeins
ein. Engin beygjuljós eru fyrir ökumenn bila sem ætla að aka frá Nýbýlavegi að vestanverðu og til vinstri niður Ástún.
DV-mynd S
Varhugaverð urnferð á mótum Nýbýlavegar og Þverbrekku:
3 barnaslys á
gatnamótunum á
einum mánuði
aðalatriðið að fólk virði stöðu götuvitanna, segir varðstjóri
03
03
S
§
_ brekku-
° ÁSTÚm TUN '>>'%
mvdv, S—eRÆNÁTÚN KJARRHÓLMl
nybylavegur O * >
LUNDARBR. A, HVANNH. £>l
g HUDBR. V arrh |/ö
fagra-£ brekka Pq
^lfmólsvegur | \
fj * £frSTiHJALN SKEMMUVEGi
*" “ ENGIHJALLI f 11 ?
jJvÍn/1MI>inn A Lf»4inM r, v /Ivnninn Mm Mnlnn M
Hringurinn á kortinu er dreginn um gatnamótin.
Þrjú slys á börnum, sem ýmist voru
á reiðhjólum eða gangandi, hafa orð-
iö á gatnamótum Nýbýlavegar og
Þverbrekku frá 1. júní. Sæmundur
Guðmundssonar, lögregluvarðstjóri
í Kópavogi, segir að gatnamót með
þvergötum á Nýbýlavegi séu öll var-
hugaverð - því sé ekki ástæða til að
ætla að ofangreind gatnamót séu
hættulegri en önnur:
„Hraðinn á Nýbýlavegi er talsvert
mikill og er umferðarþunginn mest-
ur á milli klukkan 17 og 18 og svo á
morgnana þegar fólk er að fara til
vinnu. Hins vegar er á síðasta ári
búið að klára frágang á götunni sem
er mikið til batnaðar. En þess sem
helst ber að gæta við þessi gatnamót
sem önnur er að virða stöðu ljósa á
götuvitum," sagði Sæmundur.
Hann segir að á hinn bóginn sé þó
ljóst að talsverö umferð barna frá
Túna- og Grundahverfum sé að
verslun fyrir ofan Nýbýlaveg - böm-
in þurfi þvi að fara yfir gatnamótin
við Þverbrekku og Nýbýlaveg.
Þrátt fyrir að framangreind gatna-
mót virðist hættulítil í fyrstu er ljóst
að þau eru talsvert óvenjuleg við
nánari skoðun. Við austanverð
gatnamótin eru tvær akreinar á Ný-
býlavegi en aðeins ein akrein vestan
megin viö Þverbrekku. Þetta þýðir
að bifreiðar, sem koma úr austri,
þurfa verulega að hægja á sér þegar
kemur að gatnamótunum - tvöfold
bílaröð verður að skipast í eina þegar
þangað kemur. Engin sérstök
beygjuljós eru heldur þegar ekið er
frá Nýbýlavegi að vestanverðu og
niður að Ástúni. Þegar gengið er yfir
gangbrautina frá Ástúni og í suður
yfir Nýbýlaveginn er erfitt að koma
auga á grænu og rauðu karlana - sá
hluti götuvitans, sem þeir eru á, eru
hálffaldir á bak við nálægan ljósa-
staur.
-ÓTT
Lögreglan handtók rúmlega fertugan mann 1 Mjóddmni:
Hræddi 12 ára stúlku
- og veitti henni eftirför
Lögreglan handtók á þriðjudag
rúmlega fertugan karlmann í Mjódd
sem hafði hrætt stúlku á tólfta ald-
ursári mjög.
Stúlkan var í strætisvagni þegar
hún veitti manninum fyrst athygli.
Hann horfði ákveðið á hana í tals-
verðan tíma og olli þetta stúlkunni
óþægindum. Hélt svo áfram um
stund en stúlkan ákvað að fara úr
strætisvagninum skammt frá stað í
Mjóddinni þar sem hún þekkti fólk.
Er stúlkan fór út úr vagninum tók
hún eftir því að maðurinn veitti
henni eftirfór. Stúlkunni tókst að
forða sér en maðurinn hélt áfram að
leita að henni. Starfsmaður í verslun
stuggaði honum síðan í burt og var
kallað á lögreglu sem handtók mann-
inn skömmu síðar.
Maðurinn gaf ýmsar vafasamar
skýringar á athæfi sínu sem ekki eru
í takt við raunveruleikann. Honum
var komið til viðeigandi aðila á geð-
deild.
-ÓTT
Flug og bíll • Flug og bíll I
BALTIMORE
2 í bil. Ford Escort, i 2 vikur, kr. 55.800 á mann.
AMSTERDAM
2 i bil. VW Golf. 1 vika. kr. 24.600 á mann.
2 vikur. kr. 34.800 á mann.
Brottför á mánudögum og þriöjudögum i júli og ágúst.
Siðasti söludagur 15. júli. __
LÚXEMBORG
2 i bíl. Ford Escort,'-1 vika, kr. 27.300 á mann.
2 vikur, kr. 34.100 á mann.
Brottför á fimmtudögum og föstudögum i júii og ágúst.
Siðasti söludagur 15. júli.
Barnaafsláttur er veittur af öllu ofangreindu verði.
Ef fleiri eru um bílinn LÆKKAR verðið.
Sumarhús og íbúðir
víðs vegar um Evrópu
I tengslum við flug- og biltilboðin getum við bókað sumarhús
og ibúðir viðs vegar um Evrópu í öllum verð- og gæðaflokkum.
Dæmi um vikuverð. hús/ibúð;
Þýskaland: kr. 37.490
Sviss: kr. 34.790
Austurriki: kr. 43.370
Frakkland: kr. 27.690
Ítalia: kr. 30.630
TUIMGUMÁLASKOLAR
við allra hæfi í Englandi. Skotlandi, Frakklandi, Þýska-
landi. á ítaliu, Spáni og í USA. _
Vörusýningar - viðskiptaferðir
Nú er tíminn til að huga að ferðum á vörusýningar vetrarins. Við minnum
á áhugaverðar sýningar á næstunni:
Þýskaland:
International Frankfurt Fair, Frankfurt 24.-28. ágúst.
Alþjóðleg sýning á vörum til heimilisnota og prýði, svo sem borðbúnaði,
postulini, Ijósum, lömpum, gjafavörum, skrifstofu- og pappirsvörum.
Gafa - Spoga, Köln 1 -3. september.
Alþjóðleg sýning á garðhúsgögnum, verkfærum til garðyrkju og sportvör-
um, svo sem búnaði og fatnaði fyrir hestamenn og veiðimenn.
IAA, Frankfurt 12.-22. september.
Alþjóðleg bílasýning. Fólksbílar og varahlutir.
GDS, Diisseldorf 20.-23. september.
Alþjóðleg skósýning.
Bretland:
International Fashion Fair, Harrogate 18.-21. ágúst.
Alþjóðleg tískufatasýning kvenna ásamt sýningu á bað- og undirfötum.
Capital Gift Fair, London 1 -5. september.
Borðbún., postulín, gjafav., pappírsvörur, skartgripir, leður og leikföng.
International Jewelry and Silver Trade Fair, London 1 -5. september.
Alþjóðleg sýning á skartgripum og silfurvörum.
ICF, Harrogate 3.-6: september.
Alþjóðleg gólfefnasýning. Teppi, mottur o.fl.
International Boat Show, Southampton 13.-21. september.
Alþjóðleg bátasýning, vélar og fylgihlutir.
GLEE, Birmingham 22.-24. september.
Alþjóðleg sýning á garðhúsgögnum og verkfærum til garðyrkju.
Environmental Technology Exhibition, Birmingham 8.-10. október.
Sorpeyðing, endurvinnsla, búnaður til varnar umhverfismengun, mæli- og
rannsóknatæki.
Frakkland:
Paas Inteínational, París 6.-11. september.
Alþjóðleg sýning á gjafav., húsþúnaði, húsgögnum, borð- og eldhúsbún-
aði, grafíklist, skartgripum, keramik, leikföngum og baðherbergissmávörum.
Sisel Sport, París 8.-10. september.
Aþjóðleg sýning á sportvörum og fatnaði, útilegu- og fjallgöngubúnaði,
reiðhjólum, golf- og tennisvörum o.fl.
Við höfum þekkingu og reynslu í skipulagningu ferða á vörusýningar.
Hafðu samband!
BENIDORM
Beint flug í sólina
alla fimmtudaga
11. júlí - 7 sæti laus 8. ágúst - uppselt
18. júlí —. 15 sæti laus 15. ágúst-uppselt
25. júlí — 12 sæti laus 22. ágúst-8sæti laus
1. ágúst- 5 sæti laus 29. ágúst - uppselt
Laus sæti ennþá í septemberferðirnar.
Nú seljum við síðustu sætin í júlí,
eina, tvær eða þrjár vikur.
Pantaðu strax.
Kynntu þér verðið hjá okkur
Hafðu samband
Sjáumst!
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16 - sími 621-490