Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
POMY 520
KR. 4.233
UP1DA 592
KR. 2.980
AnnA 507
KR. 3.984
Opið frá kl. 10-16
laugardaga
VERKSMIÐJUVERSLUN
SKJPHOLTI37 - SÍMAR 31515 OO 31516
SPORTFATNAÐUR
Gott úrval
af frábærum
fatnaði
á verði
sem allir
ráða við.
Ath.
Margar
fleiri
tegundir.
Vatnsholt við
Til sölu sumarbústaðalönd (eignar-
lönd) á skipulögðu svæði í landi jarðar-
innar Vatnsholts, suðaustan við Apavatn í Grímsnesi. i Apa-
vatni er mikið af silungi og er það talið eitt besta veiðivatn
landsins. Veiðiréttur fylgir ekki, en veiðileyfi eru fáanleg.
Verslun, sundlaug, banki og félagsheimili (Aratunga) eru í
Reykholti, Bisk. (8 km); verslun og heilsugæslustöð í Laugar-
ási (8 km) og margskonar þjónusta að Laugarvatni (22 km).
Að Skálholti eru 6 km. Jarðvegur er kjörinn til skógræktar
og liggur Vatnsholtsland að skógræktarsvæði Skógræktar
ríkisins að Mosfelli. Fjallasýn er stórkostleg og sést m.a. til
Kerlingarfjalla. Kjörið göngusvæði.
Upplýsingar: Ingþór Haraldsson, símar 44844 og 40284.
Listskreyting í Ráðhús Reykjavíkur
Verkefnisstjórn Ráðhúss Reykjavíkur auglýsir eftir
listamönnum sem hafa áhuga á að taka þátt í lok-
aðri samkeppni um listskreytingu innanhúss í Ráð-
húsi.
Um er að ræða tvö verk:
A) Myndverk á vegg eða fyrir framan vegg í borgar-
stjórnarsal. Veggurinn er lítið bogmyndaður,
klæddur gifsplötum á trégrind og málaður grá-
hvítur. Veggurinn er 6,2 m á hæð og 10-15 m
að lengd, samtals 83 m2.
B) Klæðistjöld úr verksmiðjuofnum ullardúk til að
setja upp milli Tjarnarsalar og almennra göngu-
leiða við sérstök tækifæri. Breidd teppiseininga
er 4,2 m en hæð frá 4,3 til 5,6 m. Samtals 280 m2.
Þeir sem hafa áhuga sendi umsókn sína ásamt upp-
lýsingum um listferil til Ólafs Jónssonar, trúnaðar-
manns dómnefndar, pósthólf 1115, 121 Reykjavík,
fyrir 23. júlí nk. Heimilt er að láta myndir og skyggn-
ur fylgja umsókn.
Dómnefnd skipuð af Reykjavíkurborg og SÍM mun
velja 3 til 5 listamenn úr hópi umsækjenda til að
gera tillögur að hvoru verkefni í lokaðri samkeppni.
Þátttakendum verða greiddar kr. 300.000 fyrir til-
lögugerðina. Auk þess verða veitt tvenn verðlaun,
kr. 300.000, fyrir bestu tillögu í hvoru verkefni fyrir
sig og fá höfundar þeirra því alls greiddar kr. 600.000
hvor. Samkeppnisreglur SÍM munu gilda um sam-
keppnina.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram tillögur sem
til þess eru fallnar að útfæra í fullri stærð. Ákvörðun
verður tekin að lokinni samkeppni um hvaða verk
verða valin til útfærslu ef um framkvæmd verka
semst.
Gert er ráð fyrir að val á þátttakendum og samkeppn-
islýsing liggi fyrir 1. ágúst nk„ tillögum verði skilað
inn fyrir 30. sept. og dómi Ijúki í byrjun október.
Stefnt er að því að verkin verði tilbúin á sínum stað
í Ráðhúsinu í mars 1992.
Nánari upplýsingar gefur trúnaðarmaður í síma
681770 kl. 16-19.
Utlönd
Yf irgnæfandi meiri-
hluti samþykkti
friðaráætlunina
- flugheriim hótar Slóvenum nýjum loftárásum
Milan Kucan, forseti Slóveniu, ræðir við þingmenn áður en greidd voru
atkvæði um friðaráætlun Evrópubandalagsins. Símamynd Reuter
Þing Slóveníu samþykkti friðará-
ætlun Evrópubandalagsins með yfir-
gnæfandi meirihluta í gær. Atkvæði
féllu þannig að 189 voru fylgjandi
samkomulaginu sem var gert á Bri-
onieyju í Adríahafi á sunnudag og
11 voru á móti.
„Það sem þið ákveðið í dag mun
hafa afgerandi áhrif á framtíðina og
sjálfa tilveru slóvensku þjóðarinn-
ar,“ sagði Milan Kucan, forseti Slóve-
níu, við þingmenn þegar þeir gengu
til atkvæðagreiðslunnar.
Efasemdir voru uppi fram á síðustu
stundu um hvort slóvenska þingið
mundi samþykkja friðaráætlunina.
Forsætisráð Júgóslavíu boðaði
umsvifalaust til tveggja funda á
föstudag með æðstu mönnum ríkis-
stjómarinnar og forsetum lýðveld-
anna sex til að finna leiðir til að halda
friðinn.
Ríkisstjórnin tilkynnti einnig að
hún mundi halda fund með forsetum
og forsætisráðherrum lýðveldanna
en ekki var greint frá neinni dagsetn-
ingu fyrir þann fund.
„Ríkisstjómin biður stjómmála-
menn lýöveldanna um að grafa
stríðsöxina og leyfa íbúum Júgóslav-
íu að lifa af næstu þrjá mánuði þang-
að til komist verði að samkomulagi
um hvemig hcdda eigi áfram,“ sagði
í tilkynningu ríkisstjórnarinnar.
Samkvæmt friðarsamkomulaginu
verða Slóvenar að láta stjóm á landa-
mærum sínumn að Austurríki, Ung-
verjalandi og Ítalíu í hendur sam-
bandsstjómarinnar. Þá verða þeir að
afvopna varnarsveitir sínar á sama
tíma og sambandsherinn er kallaður
til búða sinna. Slóvenía og Króatía
hafa einnig samþykkt að aðhafast
ekkert frekar í sjálfstæðismálum sín-
um næstu þrjá mánuðina.
Lojze Peterle, forsætisráðherra
Slóveníu, sagði að þeir hefðu orðið
að samþykkja friðaráætlunina til að
koma í veg fyrir frekara ofbeldi.
Hann lagði hka áherslu á að þótt
Slóvenía aðhefðist ekkert frekar í
sjálfstæðismálum sínum næstu þrjá
mánuðina mundi lýöveldið samt
verða sjálfstætt ríki.
Yflrmaður sambandsflughersins í
Slóveníu hótaði nýjum loftárásum á
lýðveldið ef ekki yrði farið eftir
ákvæðum friðaráætlunarinnar.
„Deildir flughersins eru reiðubún-
ar að ráðast á ykkur á nóttu sem og
degi ef þið hrindið Brioniáætluninni
ekki strax í framkvæmd," sagði
Ljubomir Bajic ofursti í bréfi til slóv-
enska varnarmálaráðherrans.
Sambandsherinn hefur tekið sér
stöðu í Króatíu til að skilja á milli
Serba og Króata sem hafa barist þar
að undanfömu. Skærar milh þjóðar-
brotanna hafa kostað tugi mannslífa
á þessu ári.
Króatískir embættismenn sögðu að
í síðustu ofbeldishrinunni hefðu
Serbar brennt þorpið CeUje til
grunna á þriðjudagskvöld eftir að
króatískir íbúar þess flúðu. Ekki var
þó hægt að fá staðfestingu á því
hverjir hefðu kveikt bálið.
Hrvoje Hitrec, upplýsingamálaráð-
herra Króatíu, sagði í gær að Króatar
óttuðust nýjar árásir sambandshers-
ins á lýðveldið til að brjóta á bak aft-
ur tilraunir þess til að öðlast sjálf-
stæði. Hann hvatti til þess að eftir-
litsmenn Evrópubandalagsins yrðu
sendir sem fyrst til Króatíu til að
halda aftur af hernum.
Fyrsti hópur eftirhtsmanna Evr-
ópubandalagsins með friðarsamn-
ingum er kominn til Júgóslavíu og í
gær ræddu þeir við Stipe Mesic sam-
bandsforseta og Budimir Loncar ut-
anríkisráðherra. Búist er við að hóp-
urinn fari fljótlega til Ljubljana, höf-
uðborgar Slóveníu.
Reuter
AUKABLAÐ
FERÐALÖQ imWiLATIDS
Miðvikudaginn 24. júli mun innlent ferðablað íylgja DV.
Meðal efnis:
* Ferð á Hornstrandir
* Ferð um Suðurnes
* Hollráð frá Umferðarráði og FÍB
* Gisting á Mývatnsheiði og Þórshöfn
* Hallormsstaðaskógur
* Útihátíðir um verslunarmannahelgina
o.fl. o.fl. o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í
Ferðablaði, vinsamlegast hafi samband við auglýs-
ingadeild DV hið fyrsta í síma 27022.
ATH. Skilafrestur auglýsinga er til fimmtudags 18. júlí
AUGLÝSIMGAR
ÞVERHOLTI 11 - REYRJAVÍK
Sími 27022 - Fax 27079