Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Side 9
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
<9
Utlönd
Bléðsugumunn-
vatnnotaðílyf
Fundist hefur eftii í munnvatni
blóðsuguleðurblakna sem gefur
vonir um aö hægt verði að leysa
ýmis vandamál varðandi storkn-
un blóðs í líkama fólks.
Nýjar rannsóknir sýna að blóð-
suguleðurblökur og önnur dýr
sem lifa og nærast á fersku blóði
framleiöa ákveðin mólekúl í
muxmvatni sinu sem koma í veg
fyrir storknun blóðs. Svo lengi
sem blóðsugan sýgur opið sár
fórnarlambs síns þá kemur þetta
mólekúl í veg fyrir að blóðið
storkni og því getur blóðsugan
verið eins lengi og hún vill að
matast.
Tilraunir beinast nú að því að
nýta þetta efni í lyf sem draga úr
blóðstorknunarvandamálum í
fólki.
BorisJeltsínsver
embættiseið
Boris Jellsin sór eið í embætti
forseta Russiands i gær með
hönd á hjarta.
Simamynd Reuier
Boris Jeltsín, sem er fyrsti lýð-
ræðislega kosni forseti lýðveldis-
ins Rússlands, sór embættiseiö í
formlegri athöfn í Kreml í gær.
Veldi kommúnista í lýðveldinu
er þar með hnekkt á táknrænan
hátt.
Jeltsín hafði hönd á hjarta og
sór embættiseiðinn fyrir framan
Sovétforsetann Mikhail Gorb-
atsjov og hundruð aðra stjórn-
málamenn og trúarleiðtoga.
Gorbatsjov óskaöi honum vel-
farnaðar í starfi og sagöist myndu
styöja hann í forsetaembættinu.
Samband þeirra Gorbatsjov og
Jeltsín hefur einkennst af erjum
en nú virðist allt vera á lygnum
sjó. í ræðu sinni hnýtti Jeltsín
þó örlítið í Sovétforsetann þegar
hann sagði aö hálíkák leiddi
óumflýjanlega til mistaka en
hann hefur gagnrýnt Gorbatsjov
fyrir að ganga ekki ákveðnum
skrefúm í átt til umbóta.
Það vakti athygli að kirkjunnar
menn tóku fullan þátt í athöfn-
inni. Patríarki rússnesku rétt-
rúnaðarkirkjunnar, Alexei II,
fordæmdi í ræðu sinni alræði
kommúnistaflokksins í 73 ár og
sagði að ábyrgö Jeltsíns væri
mikil í alvarlega sjúku landi.
Jeltsín hefur fengið skrifstofu-
húsnæöi í Kreml.
Vestræn salerni
fyrirBush
Tyrkneskir emhættismenn eru
nú i óöaönn að undirbúa heim-
sókn George Bush, forseta
Bandaríkjanna, til Istanhul þann
21. júlí með því koma vestrænum
salernum fyrir í Ottomanhöll-
inni.
„Herra Bush mun dvelja marg-
ar klukkustundir í höllinni og
það getur veriö erfltt fyrir hann
aö nota okkar austrænu salemi.
Við fengum því leyfi hjá yflrvöld-
um og breyttum móttökuher-
bergi haliarinnar í herrasalerni í
vestrænum móö,“ sagöi embætt-
ismaður í viðtali við tyrkneska
dagblaöiö Hurriyet í gær.
Reuter
Bandarlkin láta af refsiaðgerðum gegn Suður-Afríku:
Leiðtogar blökku-
manna mótmæla af-
námi viðskiptabanns
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær að Bandaríkja-
stjórn hygðist aflétta fimm ára við-
skiptabanni sínu á Suður-Afríku og
hvatti aðrar þjóðir til að gera slíkt
hið sama.
Bush tilkynnti um ákvörðun sína
í gær og sagðist vonast til að sem
flestar þjóðir og fyrirtæki fetuðu í
fótspor sín þar sem bæði hvítir og
svartir Suður-Afríkumenn myndu
njóta góðs af. „Undanfarin tvö ár
höfum við orðið vitni að grundvallar-
breytingum í Suður-Afríku. Ég trúi
því statt og stöðugt að ekki verði
snúið af þessari braut umbóta. Breyt-
ingamar hafa verið hægar og oft
sársaukafullar en framfarir hafa
vissulega orðið. Ég mun hringja í
F.W. de Klerk forseta og tjá honum
að við búumst við því að framfarim-
ar haldi áfram," sagði Bush.
Suður-Afríka hefur samkvæmt
mati Bandaríkjastjórnar nú uppfyllt
þau fimm skilyrði sem sett voru og
þurfti að uppfylla áður en viðskipta-
banninu yrði aflétt. Síðasta skilyrðið
var að öllum pólitískum fóngum yrði
sleppt úr haldi. Margir þingmenn
bandaríska þingsins, leiðtogar
blökkumanna, Nelson Mandela og
Feneyjar:
BerthoSdbannad
Skyrtulausir ferðamenn í Fen-
eyjum geta átt það á hættu aö
þurfa að borga allt aö 9 þúsund
króna sekt samkvæmt ströngum
klæðareglum fyrir feröamenn
sem nýlega voru samþykktar.
Nýju reglumar banna ferða-
mönnum líka aö ganga um götur
Feneyja í sundfötum og einnig er
bannað að dýfa svo mikið sem
einni tá ofan í sýki borgarinnar.
Sá sem kom þessum regltuu á er
lögmaður borgarinnar, Salvad-
ori, en hann er einnig höfúndur
laga sem banna gondólaræðurum
að syngja lög eins og „0 Sole
Mio“ á þeirri forsendu að þau séu
ekki frá Feneyjum.
Eeuter
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti á blaðamannafundi i gær að hann hygðist
aflétta viðskiptabanni á Suður-Afríku. Simamynd Reuter
Honda 91
Accord
Sedan
2,0 EX
Afríska þjóðarráðið hafa mótmælt
þessu og telja að enn séu þúsund
pólitískir fangar í haldi í landinu.
Bush og Nelson Mandela áttu síma-
viðræður á þriðjudaginn þar sem
Mandela latti forsetann til að aflétta
viðskiptabanninu. „Ég sagði að þetta
væri alltof snemmt þar sem ennþá
er mörgum haldið til fanga fyrir póli-
tískar skoðanir sínar. í öðru lagi þá
sagði ég honum að aðskilnaðarstefn-
an væri alls ekki að fullu upprætt,"
sagði Mandela í sjónvarpsviðtali í
gær.
Utanríkisráöherra Suður-Afríku,
Pik Botha sagði að ríkisstjórn sín
teldi að öllum pólitískum föngum
heföi nú verið sleppt úr haldi. „Við
eru að breyta og afnema undirstöður
aðskilnaðarstefnunnar af hag-
kvæmnisástæðum," sagði Botha.
Reuter
Afvopnunarviðræður:
Sovéskir þungavigtarmenn til Washington
Alexander Bessmertnykh, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, kom til
Washington í gær til viðræðna við
James Baker, bandaríska starfsbróð-
ur sinn. Vonir standa til að ráðherr-
unum takist að ryðja úr vegi síðustu
hindrununum fyrir leiðtogafund
risaveldanna í Moskvu innan fárra
vikna.
Ef bandarískum og sovéskum
samningamönnum tekst að ná sam-
komulagi um fækkun langdrægra
kjarnavopna, sem kallað er START,
verður hægt að halda fund þeirra
Bush og Gorbatsjovs síðar í þessum
mánuði.
James Baker sagði fyrir komu
Bessmertnykhs til Waslúngton að
það lofaði góðu fyrir viðræðurnar
hversu fljótur Gorbatsjov var að
begðast við beiðni Bush um að æðstu
samningamenn Sovétríkjanna yrðu
sendir til Washington. Fundimir
eiga að standa fram á föstudag.
Baker haföi „áður gert lítið úr
vangaveltum manna um að sam-
komulag um takmörkun vígbúnaðar
gæti bætti andrúmsloftið þegar
Gorbatsjov hittir Bush og aðra leið-
toga sjö helstu iðnríkja heims í Lon-
don þann 17. júlí tii aö fara fram á
efnahagsaðstoð. Baker útilokaði enn
á ný að stjómvöld í Sovétríkjunum
Kaifu, forsætisráðherra Japans,
verður gestur hans.
Við komu sína til Andrews herflug-
vallarins við Washington sagði Bess-
mertnykh við fréttamenn að viðræð-
urnar yrðu umfangsmiklar og hann
væri vongóður um að vel mundi
miða í átt að lokasamkomulagi um
START-samning.
Reuter
Verðfrá 1.432 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA
E)
VATNAGÖRÐUM 24 RVIK., SIMI 689900
Alexander Bessmertnykh, utanríkis-
ráðherra Sovétrikjanna, kom til
Washington í gær til að hraða gerð
samnings um takmörkun lang-
drægra kjarnavopna.
Símamynd Reuter
fengju víðtæka efnahagsaðstoð áður
en þau hrintu í framkvæmd úrbótum
í átt að markaðshagkerfi.
Bush hittir Bessmertnykh að máh
í dag áður en hann heldur í sumar-
hús sitt í Maine þar sem Toshiki
15 farast er lögregla í Perú
Að minnsta kosti 15 manns fórust
er lögreglan í Perú skaut niður far-
þegaflugvél sem var að hefja sig á
loft af flugvelli í Amazon á þriðjudag.
Flugvélin var á áætlunarflugi á leið
til borgarinnar Pucaflpa og var kom-
in um 20 metra í loftið af Bellavista
flugvellinum í San Martin er lögregl-
an hóf fyrirvaralausa skothríð á vél-
ina.
Vitni sagði sjónvarpsfréttamönn-
um aö um 10 lögreglumenn heföu
skotið fyrir framan flugvélina í til-
raun til að fá flugmanninn til að
lenda svo að þeir gætu leitað að eitur-
lyfjum um borð í vélinni. Vitnið sagði
að lögreglumennirnir hefðu setið við
drykkju og heföu verið orðnir fulhr.
Yflrmaður rannsóknarinnar, Barr-
antes, staðfesti í gær að engin eitur-
lyf heföu veriö um borð í vélinni. í
héraðinu þar sem atvikið átti sér staö
er mesta kókaínframleiösla Perú og
vinstri sinnaðir skæruliðar eiga mik-
fl ítök þar. Herlög gilda í héraðinu
og vopnaðar sveitir ríkisstjómarinn-
ar stjóma þar öflum málum.
Reuter
Kaupmannahöfn
6 daga
19.-24. júlí
tívolíferð
kr.28.70ft
Flug - gisting -
morgunverðarhlaðborð
Vegna viðbótarsæta gefst þetta
einstaka tækifæri til þess að
njóta glaðra daga í kóngsins Kaupmannahöfn.
— m1 iriFERÐlR
= SOLRRFLUG
Vesturgötu 12 - Slmi 620066 og 15331