Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
Útlönd
Frelsishreyftng Assamhéraös í Norðaustur-Indlandi tilkynnti íyrir
skömmu að sovéskur verkfræðingur, sem haföur var í haldi, heföi dáið
í átökum er hann var að reyna að sleppa frá mannræningjunum.
Stjóm Assamhéraðs lét í fyrradag sex forystumenn úr Frelsishreyfingu
Assam lausa úr fangelsi en hreyfmgin haföi lofaö aö ef það yrði gert
myndu þeir sleppa sovéska verkfræöingnum og 13 indverskum embættis-
mönnum sem þeir rændu í síðustu viku.
Sovéski verkfræöíngurinn dó á sunnudag en frelsishreyftngin hélt því
leyndu þangaö til stjórnin var búin að láta foringjana lausa. í tilkynningu
hreyfingarinnar var ekkert minnst á þaö hvenær hinum gíslunum 13
yrði sleppt.
Stjórn Assamhéraðs í Norðaustur-Indlandi hefur ákveðiö að láta alls
757 manns, sem haldið er föngum samkvæmt hörðum hryðjuverkalögum,
lausa. Stjórnin tílkynnti í gær að hún ætlaði að halda áfram að sleppa
föngum þrátt fyrir dauða verkfræöingsins.
Kókaínsmygl í Panama margf aldast
Þrátt tyrir að Manuel Noriega hershöfðingi sitji nú á bak við lás og slá
i Bandarikjunum helur fikniefnasmygl siður en svo farið minnkandi i
Panama. Simamynd Reuter
Yfirvöld í Panama lögðu hald á 5,3 tonn af kókaíni fyrstu fimm mánuði
ársins sem er meira en allt síöasta ár.
Þaö er merkilegt aö það magn fíkniefna sem lögreglan hefur lagt hald
á nú er meira en tvöfalt meira en áriö 1989 áður en Manuel Noriega hers-
höfðingja var steypt af valdastóli í innrás Bandaríkjanna í Panama.
Noriega er talinn hafa verið aðalmaðurinn á bak við kókaínsmygl frá
Kólumbíu, í gegnum Panama og til Bandaríkjanna.
Bæði lögreglan í Panama og bandaríska fíkniefnalögreglan telja að
umferð fíkniefha í gegnura Panama hafi stóraukist. Tahð er að um 90%
alls kókaíns, sem smyglað er frá Kólumbíu til Bandaríkjanna, fari í gegn-
um Panama.
írarnir notuðu konubyssu
írsku skæruliðarnir tveir sem skutu sér leið út úr fangelsi í London á
sunnudag notuðu konubyssu við flóttann sem annar þeirra hafði falið í
þykkum sóla á öðrum hlaupaskó sínum.
Flóttinn kom ríkisstjóm landsins í mikil vandræði af því að byssunni
var smyglað inn í fangelsið í Brixton. Kenneth Baker innanríkisráöherra
fyrirskipaði þegar endurskoðun á öryggismálum fangelsisins.
Sérfræðingur í litlum vopnum sagði aö byssan, sem írarnir notuðu,
heföi liklega verið meö innri pinna, svipað og svokölluö „Baby Brown-
ing“. Hún er þekkt sem konubyssa af því að hún er svo litil aö hægt er
að fela hana í veski. Milljónir slikra skotvopna eru í umferð.
íramir skutu á einn vörð og særðu hann á flóttanum. Talið er að þeir
séu i felum hjá stuðningsmönnum írska lýðveldishersins.
Mulroney vill hjálpa Gorbatsjov
Brian Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, segir aö Mikhaíl
Gorbatsjov Sovétforseti eigi skilið
aö fá aðstoö frá ríkustu lýöræðis-
ríkjum heimsins og menn skyldu
ekki búast viö kraftaverkum í sov-
ésku efnahagslífi á einni nóttu.
Mulroney lét þessi orð falla í við
tali við írska dagblaðið Irish Times
í gær. Þar sagöi Mulroney aö ertii t
væri aö stjórna hvaða landi sem
væri. Krfiðleikar Gorbatsjovs væru
hins vegar enn meiri þar sem hann
væri að snúa við 70 ára sögu.
„Við erum ekki þeirrar skoðunar,
eins og sumir, að aðstoð frá okkur
ætti að vera háð þeim sldlyrðum
að Mikhaíl Gorbatsjov verði búinn
Brian Mulroney, forsætisráðherra aö breyta sovéska efnahagskerfinu
Kanada, segir að ekki eigi að bú- í fullkomna eftirlíkingu af því vest-
ast við kraftaverkum i sovésku ur-þýska fyrir næsta sunnudags-
efnahagslífi á einni nóftu. kvöld. Það geríst ekki,“ sagðí Mul-
Teikning Lurie roney.
Danir kanna ásakanir um mannréttindabrot
Danski dómsmálaráðherrann, Hans Engell, sagði að óháð rannsóknar-
nefnd væri að kanna hvað væri hæft í ásökunum Amnesty Intemational
um illa meðferð á pólitískum ílóttamönnum í Danmörku.
„Sú gagnrýni sem kom fram um illa meðferð pólitfskra flóttamanna og
útlendinga í dönskum fangelsum varð til þess að skipuð var óháð rann-
sóknamefhd í september 1990. Sú nefnd mun ákvarða hvort víssir yfir-
menn fangelsismála veröa dregnir til ábyrgðar,“ sagöi dómsmálaráðherr-
ann.
í nýlegri ársskýrslu Amnesty komu fram ásakanir tveggja fangelsis-
hjúkrunarfræöinga um að kynþáttahatur ríkti í garð flóttamanna í aðal-
fangelsi Kaupmannahafnar, þeir fengju illa meöferð og væru jafnvel beitt-
ir ofbeldi af starfsmönnum. Meira en 5000 útlendingar leituðu eftir póli-
tísku hæll í Danmörku á síðasta ári, flestir þeirra voru Palestínumenn,
Iranir eða tamílar frá Sri Lanka. Keuter og Bitzau
Sólmyrkvinn í dag:
Skýjafar hamlar sýn
í Rómönsku Ameríku
Allt útlit er fyrir að skýjafar og leið-
indaveður komi í veg fyrir að íbúar
víða í Rómönsku Ameríku fái barið
augum almyrkvann á sólu sem verð-
ur síðdegis í dag. Tunglið mun fara
fyrir sólina á þremur klukkustund-
um síðdegis og varpa skugga sínum
á vesturhvel jarðar, frá Kyrrahafi
yfir Mexíkó, Mið-Ameríku og allt til
Kólumbíu og Brasilíu.
Mörg hundruð áhugasamir
stjörnuathugunarmenn eru komnir
til Baja Kalifornía skagans í Mexíkó
þar sem þeir munu rannsaka geisla-
baug sólarinnar undir heiðbláum
himni. Annars staðar í Mexíkó og
Mið-Ameríku eru menn ekki eins
heppnir þar sem regntímabilið er
gengið í garð. Þeir hafa væntanlega
bara sex mínútna hálfrökkur upp úr
krafsinu, auk þess sem hitastigið
mun falla um tíu gráður.
José Antonio Moran, formaður sól-
myrkvanefndar Mexíkó, sagði aö
fullbókað væri á alla ferðamanna-
staði og fornleifastaði á 227 kílómetra
breiðu belti þar sem almyrkvinn
mundi sjást í allri sinni dýrð undir
bláum himni.
í Mið-Ameríku hefur flestum opin-
berum starfsmönnum og skólabörn-
um verið gefið frí til að fylgjast með
sólmyrkvanum. Rafael Calderon,
forseti Kostaríka, tilkynnti að hann
Þessi ætlar að horfa á almyrkvann á sólu þegar hann fer yfir vesturhvel
jarðar í dag. Símamynd Reuter
ætlaði að njóta hans í fylgd með opin-
berum gesti sínum, Ion Illiescu, for-
seta Rúmeníu. Þeir forsetamir ætla
að horfa á sólmyrkvann á risastórum
sjónvarpsskjá sem var komið fyrir í
forsetahöllinni af þessu tilefni.
Almyrkvinn í dag verður sá lengsti
yfir Mexíkóborg frá því 1776 og hann
verður ekki sleginn út fyrr en árið
2162, að sögn stjörnufræðinga.
Ekki ætla þó allir að fylgjast með
almyrkvanum. Margir frumbyggja
Mexíkó ætla að fela sig inni í húsum
sínum þar sem þeir líta á sólmyrkva
sem fyrirboða um dómsdag og eyði-
leggingu.
Reuter
Bandaríkj aforseti:
íhugar árásir á kjarnorkubúnað íraka
George Bush Bandaríkjaforseti er
alvarlega að íhuga hernaðaraðgerðir
gegn írak til að eyðileggja alla mögu-
leika stjórnvalda í Bagdad til að
framleiða kjarnavopn en þeir reynd-
ust vera miklu meiri en búist var við.
Það var bandaríska sjónvarpsstöð-
in NBC sem skýrði frá þessu í gær.
Ónafngreindur háttsettur embættis-
maður innan varnarmálaráðurieyt-
isins sagði stöðinni að verið væri að
fara yfir myndir frá njósnahnöttum
af hugsanlegum 100 nýjum skot-
mörkum þar sem talið er að írakar
hafi faliö hluti í kjamavopn á meðan
á Persaflóastríðinu stóð.
Heimildarmenn sögðu jafnframt að
árás á kjarnorkuáætíun íraka væri
þó ekki yfirvofandi. Varnarmála-
ráðuneytiö vildi ekki tjá sig um frétt-
ina.
NBC sagði að í óbirtri skýrslu frá
Sameinuðu þjóðunum kæmi fram að
Saddam Hussein hefði að endingu
ráðið yfir 20-40 kjarnasprengjum.
Embættismaðurinn sagði að í stríð-
inu heföu skotmörk þar sem nú er
tahð að kjarnavopn séu falin ekki
verið talin mikilvæg.
Reuter
Gífurleg flóð í Klna:
Eitt þúsund haf a farist
Gífurleg flóð eftir eins mánaðar
úrhelhsrigningu hafa orðið um eitt
þúsund manns að fjörtjóni í Kína og
neytt fangelsisyfirvöld til að flytja
burt fanga í einum stærstu þrælkun-
arbúðum landsis.
Opinberir fjölmiðlar skýrðu frá því
gær að flóðin hefðu grandað lífi níu-
tíu og sex manns til viðbótar í suður-
hluta landsins. Opinber tala um
fjölda látinna á þriðjudag var komin
í 847 og tjón er metið á tæpa 200 millj-
arða króna. Tölurnar eiga örugglega
eftir að hækka þegar fregnir fara að
berast frá afskekktum héruðum
landsins. Embættismenn hafa sagt
að flóðin í ár stefni í að verða þau
mestu í áratugi.
Japanir buðu fram 20 milljónir
króna í hjálparstarf til viðbótar öðr-
um 20 milljónum sem þeir höföu veitt
Anhuihéraði í Austur-Kína. Þá hafa
Ástralir, Bretar og Bandaríkjamenn
boöið fram hjálpargögn sem yrði
dreift af stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna.
Flóðin eru mest í austurhluta
landsins en ná allt norður til Mansj-
úríu og suður til Búrma.
Um fjögur þúsund fangar í Baihu
fangabúðunum voru fluttir á brott
undir ströngu eftirliti þann 5. júlí
þegar stöðuvatn í grenndinni var að
því komið að flæða yfir bakka sína.
Að sögn dagblaðs í Kína slapp enginn
fanganna á þeirri 40 kílómetra leið
sem farið var með þá.
Um hálf milljón hermanna og tvær
milljónir varaliða hafa verið sendir
til austurhéraðanna til að taka þátt
í hjálparstarfinu frá því flóðin byrj-
uðu snemma í maí. Fréttastofan Nýja
Kína sagði frá „mannastíflu" sem
hermennirnir mynduðu til að bjarga
þorpi sem var ógnað af flóðunum
nærri Wuxi í Jiangsuhéraði.
„Það er enginn skortur á hetjusög-
um,“ sagði fréttastofan. „Hermanna-
sveit myndaði mannastíflu þannig
að hægt var að gera við árbakkann
áður en nokkrar skemmdir urðu.“
Þá hefur herinn einnig gefið tvö
þúsund tonn af korni og hjálpargögn
að andvirði um eitt hundrað milljóna
króna. Og í sjónvarpsfréttum í gær
sáust myndir af Jiang Zemin, aðalrit-
ara kommúnistaflokksins, þar sem
hann var að vaða í stígvélum á flóða-
svæðunum.
Á síðasta ári fórust um fjögur þús-
und manns í flóðum í Kína. En úr-
hellisrigningin byrjaði fyrr en venju-
lega í ár og spáð er meira regni á
næstu mánuðum. Vestrænir sér-
fræðingar spá miklum skemmdum á
uppskeru en eru tregir til að nefna
nokkrar tölur í því sambandi.
Reuter
Vegfarendur í borginni Changzhou í Kína vaða vatnselginn sem er á götum
borgarinnar eftir miklar rigningar að undanförnu. Simamynd Reuter