Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
11
Sviðsljós
,
Undanfarnar helgar hefur verið
haldin rokkhátið á-Hótel íslandi und-
ir nafninu I hjartastað. Fjöldi
skemmtikrafta koma fram á þessari
skemmtun. Anna Vilhjálms, Björgvin
Halldórsson og Ari Jónsson, syngja
öll bestu lögin frá 1955-1965 við
undirleik hljómsveitarinnar Jón Kjell
og Sputniks. Dansflokkurinn Helena
og Stjörnurnar sýna dans á rokkhá-
tíðinni og hér má sjá Helenu svífa
um loftið með aðstoð dansherra
sinna. DV-myndirJAK
Þrír söngvarar: Sverrir Stormsker, Bjarni Arason og Geiri Sæm.
íslenskt tónlistarsumar:
Tónlistarsumri
fylgt úr hlaði
í tilefni íslensks tónlistarsumars
hélt Skífan hóf fyrir tónlistarmenn
og aðra sem koma til með að vera á
plötum sem Skífan mun gefa út í
sameiginlegu tónlistarátaki sem er í
gangi í sumar. Veislan var haldin í
Stúdíó Sýrlandi og var þar margt um
mannin sem þáði öl og snittur í veit-
ingar um leið og leikin var tónlist af
Hilmar örn Hilmarsson er nýbuinn
að gefa út Blue lce sem er fyrsta
platan á vegum Platonic Records
sem er nýtt fyrirtæki í hans eigu.
Hann er hér með Halldóri Bragasyni
sem leiðir hljómsveit sina Vinir Dóra
á Blue lce.
Þessa tvo heiðursmenn, Magnús
Kjartansson og Egil Ólafsson, kann-
ast allir við enda þrautreyndir í tón-
listarbransanum.
DV-myndir Rasi
Tveir þriðju Savannatriósins, Björn Björnsson og Troels Bentsen. Þriðjí
meðlimurinn er Þórir Baldursson.
Sverrir Stormsker og Rúnar Þór ræða hér saman i fullri alvöru ef dæma
má svip þeirra.
nýútkomnum plötum og væntanleg-
um,
Skífan áætlar að gefa út sex titla
og eru þrír þeirra þegar komnir út,
einn þeirra er Blue Ice með Vinum
Dóra þar sem erlendir blúsjöfrar eru
gestir á plötunni. Sú platá er gefin út
í af Platonic Records sem er nýtt fyr-
irtæki í eigu Hilmars Arnar Hilmars-
sonar. Skífan sér um dreifmgu. Úr
ýmsum áttum er safnplata með ýms-
um ólíkum listamönnum. Þriðja plat-
an, sem komin er út, er íslandslög
sem inniheldur útsetningar Gunnars
Þórðarsonar á þekktum islenskum
lögum. Flytjendur eru allt þekktir,
íslenskir söngvarar, auk þess sem
Savannatríóið kemur fram eftir
langa hvúd.
Þær plötur sem væntanlegar eru
seinni hluta júlímánaðar eru Fyrstu
árin sem er tvöfold plata sem inni-
heldur gömul og þekkt dægurlög með
uppnmalegum flytjendum. Ég veit
þú kemur inniheldur tíu þjóðhátíðar-
lög Vestmannaeyinga i nýjum út-
setningum með þekktum listamönn-
um. Sjötta platan er svo Klikkað, ný
plata meö Síöan skein sól. Myndimar
sem hér birtast vom teknar í útgáfu-
veislu Skífunnar.
-HK
Gestir skemmtu sér vel yfir góðum mat og drykk og hér má sjá kunnugleg
andlit lyfta glösum. Frá vintri: Pétur Thorsteinsson, Eiður Guðnason, finnski
sendiherrann, Hakan Branders, Salome Þorkelsdóttir og Bryndís Schram.
Grillveisla á
þjóðhátíðardegi
Undanfarin ár hefur sendiherra
Bandaríkjanna boðið til mikillar
grillveislu að heimili sínu á þjóðhá-
tíðardegi Bandaríkja Norður-Amer-
íku þann 4. júlí. TH þessarar veislu
er meðal annars boðið ráöherrum,
þingmönnum, sendiráðsmönnum úr
öðrum sendiráðum ásamt fólki úr
ráðuneytum og viðskiptalífinu. Að
þessu sinni var mjög fjölmennt, eins
og reyndar ætíð er í slíkum boðum,
og er tahð að hátt í fimm hundruð
manns hafi komið og notið þeirra
veitinga sem í boði voru.
Grillveislan var haldin i garði sendi-
herrabústaðarins og var hann
skreyttur í tilefni dagsins með borð-
um, slaufum og flöggum. Hér má
sjá hluta af gestunum sem komu til
að halda upp á þjóðhátiðardag
Bandaríkjanna í þessum skemmti-
lega garði.
Sendiherra Bandarikjanna, Charles
E. Cobb jr., býður hér Þórð Friðjóns-
son, forstöðumann Þjóðhagsstofn-
unar, velkominn í grillboðið 4. júlí.
DV-myndir JAK
.IAPAN
VIDEOTÖKUVÉLAR
Dagsetning
Klukka - Titiltextun
3 LUX
ÞRÁÐLAUS
FJARSTÝRING
3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM
GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT
VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MÉÐ ALLRA BESTU
MYNDGÆÐUM. — 3 LUX ÞÝÐA ALLRA BESTU
IJÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM Á MARK-
AÐNUM í DAG. tAÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ
TALA UM LINSUOPSTÆRÐ. HELDUR VERÐUR
UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. -
MACRO LINSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR
FOCUS - MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR -
SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING - VINDHUÓÐNEMI
- FADER - RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKl/MILLI-
STYKKI o.n. — VEGUR AÐEINS l.l KG.
kr. 69.950/- stgr.
án titiltexta
kr. 79.950 /- stgr.
með titiltexta
3B AíborgunarskilmáJar (j|]
VÖNDUÐ VERSLUN
HUOMCO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 i