Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Side 13
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ1991.
13
Menning
MR stofnar
kvikmynda-
sjóð
Nemendasamband Mennta-
skólans í Reykjavík hefur stofnað
kvikmyndasjóð, Afmælissjóð
1996, til undírbúnings 150 ára af-
mæli skólans. Er ætlunin að gera
listræna heimildarkvikmynd um
sögu skólans. Þann 17. júní síð-
astliðinn var sýnd í sjónvarpinu
kvikmyndin Aidarafmæli
Menntaskólans í Reykjavík.
Mynd þessi var tekin árið 1946
af funm kvikmyndatökumönnum
og var í mörgum bútum. Að
frumkvæði Nemendasambands
Menntaskólans í Reykjavík var
myndin klippt og hún skeytt sam-
an í eina heild árið 1953. Sú út-
gáfa var þögul en 1990 stóðu
funmtíu ára stúdentar fyrir því
að setja tón og tal á myndina.
Einn þein-a, Jón Múli Árnason,
valdi tónlistina, samdi textann og
talaði inn á myndina. Handhafar
höfundarréttar og flytjendur tón-
listar í myndinni heimiluðu sýn-
ingu myndarinnar án endur-
gjalds svo að hægt yrði að stofha
fyrmefndan kvikmyndasjóð og
er það gert í minningu f'yrstu
kvikmyndatökumanna okkar
sem voru þarna á ferð með
myndavélar sinar fyrir fjörutíu
og flmm árum.
Krampi á versta tíma:
Þjóðsögur úr
nútímanum
Krampi á versta tíma er bók
sem nýkomin er út hjá bóka-
klúbbi Almenna bókafélagsins. í
bókinni er að fmna þjóðsögur úr
nútímanum, sögur sem berast
um allan heim með litlum breyt-
ingum nema hvað þær tengjast
gjarnan mismunandi nafngreind-
um einstaklingum og stöðum eft-
ir löndum. Að byggingu og inni-
haldi svipar þjóðsögum nútímans
oft til gamalla sagna. Þó er einn
umtalsverður munur; þessar
nýju sögur sýna manninn gjarn-
an andspænis veröld tækni, iðn-
aðar og umferðar og afhjúpa
stundum öryggisleysí sem hann
viðurkennir ekki einu sinni fyrir
sjálfum sér. Krampi á versta tíma
er eftir Rolf Wilhelm Brednich
og er þýdd af Jóhönnu S. Sigþórs-
dóttur blaðamanni sem einnig
hefur bætt viö íslenskum sögum
og sagnaafbrigðum.
ísaQörður:
Alþjóðlegt
tónlistar-
námskeið
Inga Dan, DV, feafiröi:
í síðustu vikunni í júní var
haldið á ísafirði alþjóðlegt tónlist-
arnámskeið og voru fengnir til
kennslunnar tveir hollenskir
meistarar, þeir WiIIem Brons
píanóleikari og Joep Terwey fag-
ottleikari, sem báöir eru þekktir
tónlistarmenn og kennarar í
Amsterdam. Hafa margir íslend-
ingar numið hjá þeim. Kennslan
var að mestu í svokölluðu „Mast-
er Class“ formi, nokkurs konar
opnum tímuro þar sem nemendur
koma með æfð verk og njóta til-
sagnar en áheyrnarnemendur
fylgjastmeð. Auk þess sem kennt
var á píanó og fagott var leiðsögn
í kammertónlist á kvöldin. Mikil
stemning var á námskeiðinu og
leggja vai'ð heila helgi undir tón-
leikahald. Auk þess komu fagott-
leikararnir fram við setningu ísa-
íjaröarhátíöarinnar. Þýskum
ljósmyndara þótti mikið til koma
að taka myndir af níu manna fag-
ottsveit i fegurð Skutulsfjarðar-
ins í væntarflega bók sína, enda
er afar fátítt að ná saman svo
stórri sveit fágottleikara.
Listahátíð í Hafnarfirði:
Vel heppnuð hátíð sem
verður endurtekin
- leiðsögn um sýningamar í kvöld
Útilistaverkin eru stór og mikil og setja svip á miðbæ Hafnarfjarðar.
Það hefur ekki farið fram hjá list-
unnendum að undanfarnar vikur
hefur staðiö yfir listahátíö í Hafn-
arfirði mcð myndlistarsýningum,
tónleikum og ýmsum uppákomum.
Langstærsta sýningin er alþjóðleg
skúlptúrsýning með þátttöku
þrettán listamanna og prýða verk
þeirra, sem öll eru stór í sniðum,
miðbæ Hafnarfjarðar um þessar
mundir. Hafa margir lagt leið sína
þangað í blíðviðrinu til að líta þessi
Hjð sérstaka verk, Barnæska mín,
eftir Magnús Kjartansson sem er
einn fjögurra islenskra skúlptúr-
listamanna sem eiga verk á högg-
myndasýningunni.
DV-myndir JAK
sérstöku sköpunarverk og hefur
sitt sýnst hverjum.
Verk þessi, sem sum hver eru
eftir heimsþekkta listamenn, hafa
verið gefin Hafnarfjarðarbæ og
verða nú flutt í nýstofnaðan högg-
myndagarð í Víðstaðatúni. Verður
höggmyndagarðurinn vígður opin-
berlega á laugardaginn en listahá-
tíðinni lýkur þá um helgina.
Það er samdóma áht allra sem
staðið hafa að listahátíðinni að sér-
lega vel hafi tekist til, enda veðrið
verið með eindæmum gott og þvi
hafa öll þessi stóru útiverk notið
sín sérstaklega vel. Skipulögð leið-
sögn hefur verið öll fimmtudags-
kvöld um allar sýningarnar, sem í
gangi hafa verið, og er síðasta leið-
sögnin í kvöld. Það er Þorgeir Ól-
afsson, listfræðingur og einn af
þeim sem hafa staðið að fram-
kvæmd listahátíðarinnar, sem hef-
ur leiðbeint sýningargestum um
sýningarsali Hafnarborgar og í
kring þar sem skúlptúrarnir hafa
verið staðsettir. í kvöld mun hann
hafa síðustu leiðsögnina með hönd-
um. Þorgeir mun segja frá mynd-
höggvurunum og verkum þeirra,
sem sýnd eru utan dyra, og síðan
verður farið í Hafnarborg og greint
frá málurunum sem þar sýna og
verkum þeirra.
Tilgangurinn með skipulögðum
skoðunarferðum í fylgd kunnáttu-
manns er einkum að veita áhorf-
endum greiðari aðgang að lista-
verkunum. Sum þeirra eru þess
eðlis að þau þarfnast skýringa við
og örlítil þekking á bakgrunni lista-
mannsins hjálpar fólki oft til við
að fá innsýn í verkin.
Þótt önnur listastarfsemi hafi
fallið dálítið í skuggann vegna
hinnar viðamiklu skúlptúrsýning-
ar þá hefur verið í gangi vönduð
tónleikaröð í Hafnarborg, auk þess
sem þar hafa sýnt í aðalsalnum
verk sín málararnir Einar Garri-
baldi, Sigurður Örlygsson, Guðrún
Kristjánsdóttir og Sveinn Björns-
son, allt þekktir listamenn. í Sverr-
issal sýna hafnflrskir listamenn
leirlist, höggmyndir, grafík, mál-
verk, teikningar og textílverk.
Listamennirnir eru Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Elín Guö-
mundsdóttir, Gestur Þorgrímsson,
Gunnlaugur Stefán Gíslason, Ján-
os Probstner, Jóna Guðvarðardótt-
ir, Jónína Guðnadóttir, Kristberg-
ur Pétursson, Kristrún Ágústsdótt-
ir, Pétur Bjarnason, Sigríður
Ágústsdóttir, Sigríður Erla Guð-
mundsdóttir og Sigrún Guðjóns-
dóttir.
Listahátíð Hafnarfjarðar er næst
áætluð að tveimur árum liðnum. í
þetta skiptið var lögð áhersla á
höggmyndalist, næst verður annað
listform sett í hásæti.
-HK
Bátsferðir í Viðey: KC 18.00
KL 19.00
KL 19.30
KL 20.00
Borðpantanir og upplýsingar í síma 681045 og 28470.
Bátsferðir í CaruL KL 22.00
KL 23.00
KL 23.30
Opið 1. júní - 30. septemóer.