Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Side 17
FlMMÍUDAGUff 11/ JÚLÍ19EI1.
25
Iþróttir
pMunum taka
hverju sem er“
- sagöi Hörður Hilmarsson eftir sigur Blika á Vikingum
...
„Ég er mjög ánægður með leikinn
og sigurinn. Við lékum án tveggja
sterkra leikmanna en það sýndi sig
að við höfum sterkan og breiðan
hóp. Það var gaman að fá Jón Þóri
Jónsson aftur inn í hðið eftir árs tjar-
veru vegna meiðsla. Mér er alveg
sama hverja við fáum í næstu um-
ferð, við munum taka hverju sem
er,“ sagði Hörður Hilmarsson, þjálf-
ari Breiðabliksmanna, eftir að lið
hans hafði sigrað Víkinga, 2-0, í 16-
hða úrslitum bikarsins í gærkvöldi.
Það var greinilegt að Víkingar áttu
í erfiðleikum á sandgrasvellinum því
Blikar höfðu mikla yfirburði fyrsta
hálftímann og sóttu þá stíft. Grétar
Steindórsson skoraði fyrst á 8. mín-
útu af stuttu færi eftir góða sendingu
frá Arnari Grétarssyni. Varnarmenn
Víkinga voru þar illa á verði og þeir
sofnuðu aftur á 24. mínútu þegar
Rögn’valdur Rögnvaldsson lék upp
að endamörkum og gaf fyrir á Arnar
sem skoraði snyrtilega. Bhkar voru
nálægt því að bæta þriðja markinu
við þegar Rögnvaldur komst í gott
færi en Guðmundur Hreiðarsson í
marki Víkinga varði. Aðeins nokkr-
um sekúndum síðar björguðu Vík-
ingar naumlega í horn eftir að Grétar
hafði komist í gegn.
Víkingar voru mun sprækari í síð-
ari hálfleik en gekk afleitlega að
komast í marktækifæri. Eina umtals-
verða færið fékk Atli Einarsson und-
ir lokin en skaut framhjá úr þröngri
stöðu. Blikar bökkuðu aftar á völlinn
og héldu fengnum hlut.
„Við áttum í vandræðum í fyrri
hálfleik enda ekki vanir að spila hér.
Það er engin afsökun en það er slæmt
að þurfa að spila á sandgrasi og sjá
svo iðgrænan grasvöll við hliðina
sem er ekki notaður," sagði Logi Ól-
afsson, þjálfari Víkings, eftir leikinn.
Breiðabliksmenn léku prýðilega
lengst af og héldu boltanum vel. í lið-
ið vantaði markahrókinn Steindór
Ehson, sem meiddist í baki rétt fyrir
leik, og Guðmund Guðmundsson,
sem var í banni, en það virtist ekki
koma mikið að sök. Arnar Grétars-
son var bestur í annars jöfnu liði.
Víkingar voru mjög slakir í fyrri
hálfleik en léku betur í þeim síðari. í
DV-mynd GS
;ð sér gegn ÍA í gærkvöldi:
[agamenn
a úr leik
úgur KRáÍA, 2-0, eftir framlengdan leik
Þórsarar áfram
norðanmenn unnu Keflvíkinga í vítakeppni
Þórsarar tryggðu sér sigur á Kefl-
víkingum í vítaspyrnukeppni í 16 liða
úrslitum Mjólkurbikarsins á Akur-
eyri í gærkvöldi. Staðan var 1-1 að
loknum venjulegum leiktíma og
framlengingu en í vítakeppninni
skoruðu Þórsarar úr öllum 5 spyrn-
um sínum en Keflvikingar misnot-
uðu eina. Það var Friðrik Friðriks-
son, markvörður Þórs sem var hetja
hðs síns en hann varði vítaspyrnu
Gests Gylfasonar og tryggði Þór þar
með áfram.
Leikurinn var ekta bikaralagur,
hart barist og jafnræði með liðunum.
Þó voru Þórsarar mun hættulegri og
fengu fleiri marktækifæri. Strax á 10.
mínútu fenbgu þeir vítaspyrnu en
sagði Karl Þórðarson, fyrirliði IA, í sam-
tali við DV eftir leikinn.
Besti leikur Péturs
í langan tíma
Eins og oft áður í sumar voru vamar-
mennimir í hði KR og Ólafur Gott-
skálksson markvörður sterkir. Gunnar
Oddsson og Þormóður Egilsson léku
báðir geysilega vel og Ólafur öryggið
uppmálað í markinu. Heimir Guðjóns-
son átti góðar rispur og Pétur Pétursson
átti einn sinn besta leik í langan tíma
en manni fannst hann þó spila fullaftar-
lega á köflum. Þá gerði Ragnar Mar-
geirsson góða hluti en var þó fuheigin-
gjarn.
ÍA myndi sóma sér
velM.deild
Skagamenn gata engum nema sjálfum
sér um kennt hvernig fór. Liðið lék á
köflum stórvel og myndi sóma sér vel í
1. deildinni. Léttleikinn er í fyrirrúmi
og knattmeðferð phtanna frá Skaganum
gerist vart betri hér á landi. Kristján
Finnbogason átti góðan leik í markinu
og þeir Ólafur Adolfsson og Luca Kostic
era sterkir í vörninni. Tvíburamir Arn-
ar og Bjarki Gunnlaugssynir vom mjög
sprækir og þá átti Haraldur Ingólfsson
sinn besta leik í sumar. Elcki má gleyma
hinum síunga Karli Þórðarsyni. Karl,
sem er orðinn 36 ára, var mjög duglegur
í leiknum og mataði félaga sína með
góðum sendingum. -GH
hðið vantaði Guðmund Inga Magnús-
son og Guðmund Steinsson og munar
um minna. Ath Einarsson var spræk-
asturíhðinuíþessumleik. -RR
Júlíus Tryggvason skaut föstu skoti
hátt yfir. Ólafur Pétursson, mark-
vörður Keflvíkinga .varði síðan
stuttu síðar skot Halldórs Áskelsson-
ar í þverslá og Ásmundur Arnarson
skallaði rétt yfir markið í sömu sókn.
Þórsarar náðu að skor á 57. mínútu
þegar Halldór renndi boltanum á
Ásmund sem skoraði með laglegu
skoti í hornið. 20 mínútum fyrir
leikslok fengu Keflvíkingar víta-
spyrnu eftir að brotið hafði verið á
einum leikmanni þeirra inn í vítateig
Þórsara og Marko Tanacic jafnaði
úr vítinu. Þórsarar voru nær sigri
en Ólafur varði enn glæshega úr
dauðafæri frá Ásmundi.
• Heimir Guðjónsson og Karl Þórðarson taka létt dansspor
við öllu búinn lengst til vinstri.
leik KR og IA í gærkvöldi. Haraldur Ingólfsson er
DV-mynd EJ
Mjólkurblkarinn
Stjarnan-KA S-0 (0-0)
1-0 Valdimar (70.), 2-0 Ingólfur
(78.), 3-0 Ingólfur (87.).
Lið Stjörnunnar: Jón Otti, Val-
geir, Þór Ömar (Rúnar 86.), Heim-
ir, Birgir, Bjarni B.,Ragnar, Svein-
björn, Kristinn, Valdimar, Ingólf-
ur.
Lið KA: Haukur, Orn Viðar,
Gauti (Ámi 19.), Halldór H. (Ámi
F. 80.), Erlingur, Vandas, Sverrir,
Einar, Páll, Steingrímur, Ormarr.
Gul spjöld: Engin.
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Kári Gunnlaugsson og
dæmdl ágætlega.
Áhorfendur: Ekki margir.
Skiiyröi: Þokkalegur grasvöllur
og sæmilegasta knattspymuveður.
Þór-iBK 1-1 (0-0)
(6-4 - vítaspyrnukeppni)
1-0 Ásmimdur (57.), 1-1 Tanacic
(70.), 2-1 Júlíus, 2-2 Tanacic, 3-2
Birgir, 3-3 Georg, 4-3 Þórir, 5-3,
Sveinn, 5-4 Kristinn, 6-4 Bjarni.
Lið Þórs: Friðrik, Lárus, Þor-
steinn (Birgir), Nói, Sveinn, Hall-
dór, Júlíus, Ásmundur (Árni Þór),
Þórir, Hlynur.
Lið ÍBK: Ólafur, Jakob, Jóhann
J., Kristinn, Ingvar, Georg, Jóhann
S. (Sveinbjörn), Gestur, Kjartan,
Tanacic, Kristján (Ólí Þór).
Gul spjöld: Nói, (Þór), Birgir
(Þór), Sveinbjöm (ÍBK).
Rauð spjöld: Engin.
Dómarí: Ari Þóröarson og var
þokkalegur.
Áhorfendur: 510.
Skilyrði: Blankalogn og góður
grasvöllur.
UBK-Víkingur 2-0 (2-0)
1-0 Grétar (8.), 2-0 Amar (24.).
Líð UBK: Eiríkur, Ingvaldur,
Kretovic (Willum 56.), Kristófer,
Valur, Sigurjón (Jón Þórir 73.),
Arnar, Grétar, Hilmar, Rögnvald-
ur, Gústaf.
Liö Víkíngs: Guðmundur, Helgi
Bjö., Helgi Bja., Þorsteinn, Helgi
Sig., Bosjnik, Zhnik (Marteinn 79.),
Hörður, Atli H., Atli E., Gunnar
(Hólmsteinn 46.).
Gul spjöld: Þorsteinn (Vík.), Ziln-
ik (Vík.).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Gunnar Ingvason og var
frekar slakur.
Áhorfendur: 450.
Skilyrði: Þokkalegt veður og
sandgrasvöllur.
KR-IA 2-0 (0-0)
Lið KR: Ólafur, Gunnar, Þormóð-
ur, Atli, Sigurður, Þorsteinn (Þor-
steinn G.87.), Gunnar, Heimir, Pét-
ur, Ragnar, Bjöm (Bjarki 45.).
Lið ÍA: Krislján, Luca, Bjandur,
Ólafúr, Alexander, Sigursteinn
(Gísli 72.), Karl, Amar, Bjarki,
Haraldur, Þórður.
Gul spjöld: Engin
Rauð spjöld:,Engin
Dómari: Ólafur Sveinsson,
dæmdi mjög vei.
Áhorfendur: 2427.
Skilyrði: Góðui' grasvöllur og
ágætt knattspyrnuveöur.
Dregið í dag
Dregið verður í dag í 8-liða úrsht
bikarsins og þau liö, sem verða í
hattinum, eru: Valur, Víðir, FH,
Leiftur, KR, Þór, Breiðablik og
Stjaman.