Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 11. JÚLl 1991.
33
pv_________________________________________________LífsstlQ
Verðsamanburður: Perlan - Hótel Holt - Grillið:
Svipað verð á öllum stöðum
- góð aðsókn á veitingastað Perlunnar
Veitingastaðurinn á fjórðu hæð Perlunnar tekur 200-240 manns i sæti.
DV-mynd JAK
Fjörlegar umræður hafa jafnan
verið um Perluna nýju á hitaveitu-
tönkunum í Öskjuhlíðinni og hefur
henni ýmist verið mæld bót eða fund-
ið allt til foráttu. Nú þegar tæpur
mánuður er liðinn frá opnun Perl-
unnar hafa fjölmargir lagt leið sína
á veitingastaðinn sem er á fjórðu
hæð hússins.
Veitingastaðurinn telst til betri
veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu
og áttu margir hálfpartinn von á því
að verðlag yrði óviðráðanlegt fyrir
venjulegt launafólk. En er veitinga-
staðurinn Perlan dýrari en aðrir
sambærilegir veitingastaðir á höfuð-
borgarsvæðinu? Neytendasíðan
gerði könnun á því hvernig verðlagið
er í samanburði við Hótel Holt og
Grillið á Hótel Sögu. Þeir matsölu-
staðir hafa jafnan verið taldir með
því besta - og dýrasta - sem boðið
er upp á í mat og drykk á Reykjavík-
ursvæðinu. Samanburðinn má sjá á
töflunni hér til hliðar.
Sambærilegir í mat og drykk
Þeir liðir sem valdir voru af mat-
seðli og vínlista og settir í töfluna,
eru sambærilegir hvaö gæði varðar.
Matsölustaðimir þrír buðu til dæmis
allir upp á snigla í forrétt, andasteik-
ur í aðalrétt og ostarétti í eftirrétt svo
að eitthvað sé nefnt. Gæta verður
þess að réttimir eru að sjálfsögðu
ekki framreiddir á sama máta á veit-
ingastöðunum. Þaö er samt sem áður
álit blaðamanns að þeir séu sam-
bærilegir í verði.
Hvað vínlistann áhrærir fengust
léttu vínin í töflunni á öllum stöðun-
um. Eina undatekningin er rósavín-
ið, Mateus rósavín fæst ekki í Perl-
unni. Hins vegar er verðið á Trovad-
or-rósavíni tekið í staðinn þar sem
Neytendur
aðeins munar 20 krónum á verði
einnar flösku í ríkinu af Mateus og
Trovador.
Tvenns konar niðurstöður má lesa
út úr töflunni hér á síðunni. í fyrsta
lagi að Perlan er ekki á nokkurn
marktækan hátt með hærra verðlag
en Hótel Holt og Grillið á Hótel Sögu.
Sumar tegundir matar eða drykkjar
eru að vísu dýrastar í Perlunni en
þar munar ekki miklu í verði og auk
þess em hinir samanburðarstaöimir
í jafnmörgum tilfellum með hæsta
verðið.
í annan stað er óhætt að segja að
þetta er allt saman mjög hátt verð.
Það kostar miklar upphæðir fyrir
hjón að setjast niður og fá sér forrétt
með fordrykk, aðalrétt með einni
flösku af léttu víni og síðan eftirrétt.
Gerum ráð fyrir að hjón geri sér
dagamun og fari út að borða á ein-
hverjum þessara þriggja veitinga-
staða. Þau fá sér snigla í forrétt og
portvínsstaup fyrir matinn. Síðan
panta þau sér nautalundir sem aöal-
rétt og drekka með því eina flösku
af Chateauneuf du Pape rauðvíni.
í eftirrétt fá þau sér disk með osta-
vali. Fyrir þessi herlegheit greiða
þau um það bil 12.500 krónur. Það
eru 6.250 krónur á mann sem eru um
tveggja dag laun verkamanns. Mun-
ar þar einna mest um verðið á rauð-
víninu en ein flaska af Chateauneuf
du Pape rauðvíni kostar í ríkinu 1.460
krónur. Verðið á samanburðarstöð-
unum er 3.702, 3.750 og 3.790 krónur.
Það er ansi hressileg álagning að við
bætist um 2.300 Krónur.
Ekki er að efa að leiga er há á veit-
ingastaðnum Perlunni og því þarf
umsetningin að vera mikil. Blaða-
maður leitaði upplýsinga hjá Hall-
dóri Skaftasyni sem er veitingastjóri
Perlunnar. „Veitingastaðurinn Perl-
an rúmar frá 200 til 240 manns eftir
borðaniðurröðun. í sérstökum tilfell-
um er hægt að taka á móti 300 manns
hér. Perlan var opnuð þann 21. júní
síðastliðinn og aðsóknin hefur allt
frá byijun verið framar öllum von-
um. Það hefur verið fullt hér upp á
hvem einasta dag,“ sagði Halldór.
Á neðri hæðum Perlunnar er hægt
að fá sér veitingar af léttari tegund-
inni. Þar er ísbúð og kaffihús og er
ekki að sjá annað en að verðlagið þar
sé á svipuðum nótum og á öðmm
sambærilegum stöðum. Því er óhætt
að mæla með því að fólk leggi leið
sína í Perluna. Það þarf ekki að gera
ráð fyrir að það sé dýrari staður en
aðrir sambærilegir staðir - ef það á
annað borð er vant verðlaginu frá
þeim stöðum. ís
Hótel Holt Hótel Saga Grilliö Perlan
Forréttir Sniglar 837 1.090 820
Graflax 876 890
Aðalréttir
Fiskur Rauðspretta 1.390 1.520 1.590
Humar 3.290 2.970 3.150
Blandaðir sjávarréttir 2.295 1.970 2.150
Aðalréttir
Kjöt Lambalæri/lambahryggur 1.885 1.890 1.890
Andasteik 2.595 2.690 2.700
Nautalundir 2.386 2.670 2.200
Eftirréttir is 450 490
Ostaréttur 790 670 780
Vln Hochheimer Daubhaus 1.997 1.980 2.000
hvítvín
Mateus/Trovador rósavín 1.754 1.670 1.685
Saint Emilion rauðvín 2.982 2.760 2.790
Chateauneuf-du- Pape 3.702 3.750 3.790
rauðvín
Þessi fiskréttur, Cod Royales With Prawns, sem framleiddur er af dótturfyr-
irtæki SH, fékk silfurverðlaun á samkeppni um nýja fiskrétti fyrir veitinga-
hús og mötuneyti í Bretlandi.
Dótturfyrirtæki SH í Bretlandi:
Silfurverðlaun fyrir fiskrétt
Dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Bretlandi, Ice-
land Freezing Plants Limited, hlaut
nú, annað árið í röö, verðlaun British
Frozen Foods Federation fyrir tilbú-
inn sjávarrétt. í ár fékk IFPL silfur-
verðlaun fyrir „Cod Royales With
Prawns" í veitingahúsapakkningu
en í fyrra fengust gullverðlaun fyrir
tilbúinn fiskrétt í neytendapakkn-
ingu.
Rétturinn Cod Royales With
Prawns hlaut verðlaun í ár fyrir aö
vera að mati dómnefndar „besti nýi
aðalrétturinn" fyrir veitingahús og
mötuneyti á breska markaðnum. í
þessari pakkningu eru 12 þorsk-
stykki í brauðmylsnu með rækju-
sósu og vegur hún 170 grömm. Hægt
er að framreiða réttinn annað hvort
ofnbakaðan eða djúpsteiktan.
Á Bretlandseyjum þykir mikil við-
urkenning fyrir framleiöendur
frystra matvæla að hljóta verðlaun
frá BFFF og gerist það ekki oft að
sami aðilinn hljóti verðlaun tvö ár í
röö. Öskjurnar, sem notaöar eru
undir umræddan rétt, eru framleidd-
ar hjá Umbúðamiðstöðinni í Reykja-
vík.
Ferðaþjónusta FÍB
Nú er tími ferðalaga og því vill
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
vekja athygli á aukinni þjónustu.
Félagsmenn, sem hyggjast ferðast í
eigin bíl eða bílaleigubifreið erlendis,
geta fengið ráðgjöf og leiðbeiningar
viö skipulagningu ferðarinnar ásamt
nytsömum ferðagögnum. Má þar
nefna kort og leiðabækur sem erlend
félög bifreiðaeigenda gefa út, tjald-
búðaskírteini og alþjóða ökuskírteini
sem fást á skrifstofu félagsins.
Aðild FÍB að alþjóða ferðasamtök-
um bifreiðaeigenda, AIT, tryggir fé-
lagsmönnum margvíslega þjónustu
og neyðarhjálp erlendis. Aðstoð
ferðaráðgjafa er án endurgjalds fyrir
FÍB-félaga og ferðagögnin fá þeir á
félagsverði.
Verðlag í ferðabæklingum:
Ófullnægjandi
upplýsingar
Að undanfórnu haía aöilar i 27. grein laga nr. 56/1978 um verð- auglýsingum muni ráðið grípa til
ferðaþjónstu birt villandi og ófull- lag, samkeppnishömlur og órétt- viðeigandi aðgeröa í samræmi við
nægjandi upplýsingar um verð í mæta viðskiptahætti er bannað að heimildir í lögunum nr 56/1978.
auglýsingum Uppgefið verð í aug- auglýsa með framangreindum Verðlagsráð telur aö upplýsingar
lýsingunum hefur verið lægra en hætti. Óhjákvæmilegt er að gera um verð í auglýsingum séu mjög
það verð sem viðskíptavinir hafa tilkall til þess að endanlegt verð mikilvægar fyrir neytendur og
verið krafðir um greiðslu á. Er í komiframíauglýsingummiðaðvið þýðingarmikill þáttur í að örva
sumum tilvikum um allverulegar nýlegt gengi. Jafhframt tekur verð- samkeppni á markaðnum. En þá
fjárhæðir að ræða. lagsráðframaöhaldiaðilaríferða- verður jafnframt að vera tryggt að
Af þessu tilefni vill verðlagsráö þjónustu áfram að birta villandi og upplýsingarnar séu réttar og að
vekja athygli á því að samkvæmt ófullnægjandi veröupplýsingar í engum blekkingum sé beitt.