Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Side 26
34
FIMMTUQAQURí 11., JÚLÍ; 1991.
Afmæli
Ásgrímur Hartmannsson
Ásgrímur Hartmannsson, fyrrv.
bæjarstjóri á Ólafsfirði, Aðalgötu 24,
Ólafsfirði, verður áttræður á laug-
ardaginn.
Starfsferill
Ásgrímur fæddist í Kolkuósi í Við-
víkurhreppi og ólst upp í Kolkuósi.
Hann stundaði nám við Alþýðuskól-
apn á Eiðum, lauk gagnfræðaprófi
frá MA1933 og stundaði sérnám í
bókfærslu einn vetur. Á uppvaxtar-
árunum vann hann landbúnaðar-
störf, verlunarstörf og við árabá-
taútgerð sem faðir hans rak. Þá var
hann eitt sumar hjá Mjólkurfélagi
Reykjavíkur sem þá rak smásölu og
heildsöluverslun.
Ásgrímur flutti til Ólafsfjarðar
1935. Hann var kaupmaður í Ólafs-
firði 1935-63, bæjarstjóri þar 1946—
1974 og framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar hf. 1975763.
Ásgrímur sat i hreppsnefnd Ólafs-
fjarðar frá 1942 og síðar í bæjar-
stjórn frá því bærinn fékk bæjar-
réttindi 1945-78. Hann sat í stjórn
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. frá
1944 og var formaður stjórnar í
fjölda ára til 1977. Hann var formað-
ur fræðsluráðs Ólafsfjaröar um
tíma, formaður Ungmennafélagsins
Geisla í Óslandshlíð í Skagafirði
1933-34, sat í stjórn íþróttafélagsins
Sameiningar í Ólafsfirði í nokkur
ár, var einn af stofnendum Rótary-
klúbbs Ólafsjarðar, var formaður
stjórnar félagsheimilisins Tjarnar-
borgar í mörg ár, formaður stjórnar
Fjórðungssambands Norðurlands
og í stjórn Samtaka kaupstaða á
Vestur-, Norður- og Austurlandi í
allmörg ár. Hann sat í stjómskip-
aðri nefnd til að gera tillögu um
staðsetningu opinberra stofnana úti
um land, var skipaður í fasteigna-
matsnefnd í Ólafsfirði 1962 og um-
boðsmaður skattstjóra Norður-
landsumdæmis eystra 1962.
Ásgrímur var sæmdur riddara-
krossi Fálkaorðunnar 1972 og er
heiðursborgari Ólafsfjarðar frá
1985.
Fjölskylda
Ásgrímur kvæntist 23.5.1937,
Helgu Jónínu Sigurðardóttur, f. á
Vatnsenda á Ólafsfirði 22.3.1917,
húsmóður, en hún er dóttir Sigurö-
ar Jónssonar, b. og síðar landmanns
við mótorbáta og verslunarmanns,
og Sigríðar Vilhjálmsdóttur frá
Höfn á Ólafsfírði, húsmóður, stofn-
anda og fyrsta formanns kvenfé-
lagsins Æskunnar á Ólafsfirði.
Börn Ásgríms og Helgu eru sex.
Þau era Sigríður, f. 4.2.1938, hús-
freyja, gift Kristjáni Sæmundssyni,
b. og hreppstjóra að Neðri-Brunná
í Dölum og eiga þau sex börn; Krist-
ín Þorbjörg, f. 10.12.1941, húsmóðir,
gift Ólafi Sæmundssyni skipstjóra
og nú hafnarverði í Ólafsfirði og
eiga þau fimm böm; Þórgunnur
Guðrún, f. 30.4.1946, fulltrúi hjá rík-
isútvarpinu, gift Kristjáni Páli Ól-
afssyni rafeindavirkja er starfar hjá
Álverinu í Straumsvík og eiga þau
tvö börn; Ingibjörg Hartmanns, f.
15.11.1949, fóstra í Ólafsfirði, gift
Þorsteinni Ásgeirssyni skrifstofu-
stjóra og eiga þau þrjú börn; Nanna
Hartmanns, f. 10.3.1953, húsmóðir í
Reykjavík, gift Guðmundi V.
Haukssyni bifreiðarstjóra og eiga
þau fimm böm; Hartmann, f. 7.8.
1955, tannlæknir í Vestmannaeyj-
um, kvæntur Eddu Björk Hauks-
dóttur og eiga þau sex böm.
Systkini Ásgríms: Þorkell Björn,
f. 4.4.1904, d. 6.4.1924, nemi; Sigur-
mon, f. 17.11.1905, d. 1.2.1991, b. að
Kolkuósi en ekkja hans er Haflína
Marín Björnsdóttir, f. 24.11.1905 og
era dætur þeirra þrjár. Fóstursystk-
ini Ásgríms: Ingibjörg Jósefsdóttir,
f. 17.5.1889, nú látin, hjúkrunar-
kona, var gift Halldóri Gunnlaugs-
syni, b. í Garðakoti í Hólahreppi, og
áttu þau sex börn; Guðrún Hart-
mannsdóttir Magnússonar, f. 17.12.
1913, d. 11.6.1918; Kristinn Harmann
Antonsson, f. 8.9.1927, kvæntur
Ragnheiði Thorarensen sem er látin
en börn þeirra eru fjögur; Jónína
Antonsdottir, f. 16.5.1920, gift Árna
Rögnvaldssyni, bifreiðarstjóra á
Sauðárkróki, og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Ásgríms voru Hart-
mann Ásgrímsson, f. 8.9.1874, d. 8.8.
1948, b., kaupmaður og oddviti í
Kolkuósi, og kona hans, Kristín
Símonardóttir, f. 16.10.1866, d. 21.4.
1956, húsfreyja.
Ásgrímur Hartmannsson.
Ætt
Hartmann var sonur Ásgríms, b.
í Hvammi Hjaltadal, Gunnlaugsson-
ar, og Guðrúnar Ólafsdóttur, b. á
Reistará ytri, Jónssonar, og konu
hans, Guðlaugar Ólafsdóttur.
Kristín var dóttir Símonar, b. í
Brimnesi í Viðvíkurhreppi, Pálma-
sonar, og Sigurlaugar Þorkelsdóttur
fráSvaðastöðum.
Ásgrímur verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Ómar Þór Helgason
Ómar Þór Helgason vöruafgreiðslu-
maður, Stórholti 19, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Ómar fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann hefur stundað ýmis störf
tengdum vélavinnu ogakstri stórra
bifreiða um áratugaskeið. Hann
vann hjá Vöruleiðum hf. sem lyft-
aramaður í þrj ú ár en árið 1985 hóf
hann störf hjá Landflutningum hf.
og vinnur þar enn.
Fjölskylda
Ómar kvæntist Sigurborgu Marí
Jónsdóttur, f. 4.1.1941, þau skildu
1975. Þau eignuðust eina dóttur,
Guðbjörgu Sóley, f. 13.5.1973. Hún
hefur búið í Hollandi ásamt móöur
sinni frá því hún var þriggja ára.
Systkini Ómars eru Guðbjörg
Jóna Olsen, f. 8.4.1932, búsett í Dan-
mörku, gift Svend A. Ólsen, f. 30.6.
1920; Hafdís Helga, f. 12.11.1933,
búsett í Reykjavík; Kristín, f. 5.8.
1935, gift Einari Torfasyni frá Vest-
mannaeyjum, f. 23.4.1923; Hulda
Elvý, f. 17.2.1940, húsmóðir í
Reykjavík, var gift Ragnari Kristni
Hjaltasyni; Kristján Hafþór, f. 12.1.
1945, fórst með flugvél sinni þann
27.10.1982, kaupfélagsstjóri
Saurbæinga og síðar ísfirðinga, var
kvæntur Guðnýju Kristjánsdóttur,
f. 7.3.1945; Helgi, f. 7.10.1946, b. Og
bílstjóri í Landeyjum, kvæntur Rós
Óskarsdóttur, f. 6.2.1949.
Foreldrar Huldu Elvýjar: Helgi
Jóhannsson Hafliðason, f. 18.8.1908,
d. 30.1.1965, bifvélavirki og kopar-
smiður í Reykjavík, og Sigurbjörg
Jónsdóttir, f. 22.3.1905, húsfreyja í
Reykjavík.
Systur Helga: Mínerva, f. 20.6.
1903, og Karlotta Jónbjörg, f. 1904,
dó ung.
Ætt
Bræður Sigurbjargar: Kristján, f.
1.9.1902, dó um tvítugt, og Guöjón
Benjamín, f. 30.8.1906, nú látinn,
bílstjóri í Reykjavík. Auk þess á Sig-
urbjörg einn hálfbróður, Guðbjörn
Ingvar.f. 15.10.1922.
Helgi var sonur Hafliða Jóhanns,
skipstjóra á Búðum í Eyrarsveit,
Jóhannssonar, b. í Köldukinn í Holt-
um, Þorsteinssonar, hreppstjóra í
Köldukinn, Runólfssonar, prests á
Skúmsstöðum, Jónssonar.
Móðir Hafliða var Guðbjörg
Filippusdóttir, hreppstjóra í Bjólu,
Þorsteinssonar, vefara í Bjólu, Vig-
fússonar. Guðbjörg var dótturdóttir
Ámunda Jónssonar, snikkara í
Syðra-Langholti, og konu hans, Sig-
ríðar Halldórsdóttur, Torfasonar.
Móðir Helga var Helga Jónsdóttir,
b. á Fáskrúðarbakka í Miklaholts-
hreppi, Gíslasonar og Sigurlaugar
Þórarinsdóttur.
'Sigurbjörg, móðir Huldu Levýjar,
er dóttir Jóns, b. í Smádalakoti og
síðast í Framnesi í Holtum, Hall-
dórssonar, b. á Ósabakka á Skeið-
um, Vigfússonar, b. í Lambhúskoti,
Vigfússonar.
Móðir Halldórs á Ósabakka var
Ingibjörg Halldórsdóttir. Móðir
Ómar Þór Helgason.
Jóns var Þorbjörg Jónsdóttir, b. í
Unnarholti, Guðbrandssonar og
Guðfinnu Jónsdóttur.
Móðir Sigurbjargar var Guðbjörg
Jónsdóttir, formanns í Einkofa á
Eyrarbakka, Jónssonar, b. á Vind-
heimum í Ölfusi, Jónssonar.
Móðir Jóns í Einkofa var Guðrún
Jónsdóttir. Móðir Guðbjargar var
Kristín Ólafsdóttir, b. í Eystra-
Geldingaholti og Baugsstöðum í
Flóa, Nikulássonar og Sólveigar
Gottsveinsdóttur frá Steinsholti í
Eystrihreppi.
Ómar tekur á móti gestum að
Fannarfelli 4 eftir klukkan 19.00 á
afmæhsdaginn.
Ásta Jónsdóttir
Ásta Jónsdóttir húsmóðir, Afla-
granda 40, Reykjavík, er sjötíu og
flmmáraídag.
Starfsferill
Ásta fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í vesturbænum. Hún hefur
starfað nokkuð að félagsmálum, var
m.a. stofnfélagi Kvenfélags Laugar-
nessóknar og einnig stofnfélagi
kvennadeildar Flugbjörgunarsveit-
arinnar og var fyrsti formaður
hennar en Ásta gegndi þar for-
mennsku í tíu ár. Þá sat hún í Or-
lofsnefnd húsmæðra og var formað-
ur Landspítalasöfnunarinnar 1969.
Fjölskylda
Ásta giftist 6.10.1936 Sigurði V.
Þorsteinssyni, f. 25.2.1913, fyrrv.
aðstoðarlögreglumanni, en hann er
sonur Þorsteins Sæmundssonar og
Bjömínu Kristjánsdóttur.
Börn Ástu og Sigurðar eru Óskar
Sigurðsson, f. 11.10.1935, flugsfjóri,
kvæntur Bryndísi Kristjánsdóttur
og eiga þau þrjú börn; Hörður Sig-
urðsson, f. 22.3.1937, vélstjóri,
kvæntur Sif Ingólfsdóttur og eiga
þau tvö börn; Gunnar Sigurðsson,
f. 3.5.1946, deildarstjóri, kvæntur
Ellen M. Tryggvadóttur og eiga þau
fimm börn; Marta G. Sigurðardóttir,
f. 18.4.1948, húsmóðir, gift Magnúsi
Sigsteinssyni deildarstjóra og eiga
þau fjögur böm; Jón Sigurðsson, f.
18.2.1952, héraðsráðunautur í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, kvæntur
Margréti Einarsdóttur og eiga þau
þrjú börn. Stjúpsonur Ástu er Sig-
urður R. Sigurðsson, f. 6.6.1929,
starfsmaður Landsbanka íslands,
kvæntur Guðbjörgu Óskarsdóttur
og eiga þau fjögur böm.
Ásta Jónsdóttir.
Foreldrar Ástu: Jón Meyvantsson
matsveinn og Guðrún Stefánsdóttir
húsmóðir.
Ásta tekur á móti gestum í þjón-
ustumiðstöðinni á Aflagranda 40
mihi klukkan 17.00 og 19.00 á afmæl-
isdaginn.
75 ára
Anna Halidórscíóttir,
Sóihiið 7, Vestmannaeyjum.
70 ára
Aðalheiður Guðnadóttir,
FossvöUum 4, Húsavík.
Þórunn Bergsteinsdóttir,
Skúlagötu 66, Reykjavlk.
Þórann verður að heiman á afmælis-
daginn.
60 ára
Erla Sigurjónsdóttir,
Hæðarbyggð 7, Garðabæ.
Karl Sigurðsson,
Hvammstangabraut 7, Hvammstanga.
_______,_,______s_______________
50 ára
Hallgrimur Svavar Gunnþórsson,
Ægissíöu 16, Grenivík. ■;
Sigrún Valgeírsdóttir,
Bleiksárhlið 63, Eskifirðí.
Kristín Guðiaugsdóttir,
Skólavegi 78, Fáskrúðsflrði.
Bryndís Óskarsdóttir,
Gunnarsbraut 28, Reykjavik.
40 ára________________________
Ásta Karisdóttir,
Borgarholtsbraut Í3a, KópavogL
Ólafur Eggert Júlíusson,
Skólavegi 36, Keilavik.
Ingibjörg Jónasdóttir,
Seiöakvisl 25, Reykjavík. ;
Samúel Ingvason,
Hávegi 1, Kópavogi-
Sigriður Ólafsdóttir,
Birkigrund 16, Kópavogi,
Jón Ingvar Pálsson,
Grundarvegi 17, Njarðvík.
Indriði fvarsson,
Sveighúsum 1, Reykjavík.
Snorri Páll Snorrason,
Víghólastíg 16, Kópavogí.
Hjördis Óskarsdóttir,
Staðarhrauní 18, Grindavík.
Jón Ægir Jónsson,
Víöiteíg 6e, Mosfellsbæ.
Valdis Gunnlaugsdóttir,
Skólavörðustig 44, Reykjavík.
Guðbergur Rúnarsson,
Grænuldíð 22, Reykjavik.
Eriingur Bjartur Oddsson,
Hvammi, Fáskrúðsflarðarhr,
Lmeik Soley Loftsdottir
Líneik Sóley Loftsdóttir, Bæ III,
Drangsnesi, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Sóley fæddist í Hólmavík og ólst
upp í Vík í Kaldrananeshreppi í
Strandasýslu. Hún flutti að Bæ 1964
og hefur búið þar síðan. Sóley rek-
ur nú ferðaþjónustu við heimili
sitt.
Fjölskylda
Sóley giftist 18.8.1965 Bjarna
Guðmundssyni, f. 13.1.1927, b. að
Bæ III en hann er sonur Guðmund-
ar Ragnars Guömundssonar, b. að
Bæ II, og Margrétar Ólafar Guð-
brandsdóttur húsfreyju.
Böm Sóleyjar frá því fyrir hjóna-
band era Heimir Berg, f. 12.7.1960,
sjómaður, en sambýhskona hans
er Sólrún Hansdótiir og eiga þau
fjögur börn; Friðsteinn Helgi, f. 5.6.
Sigurður H.
Oddsson
Sigurður H. Oddsson tæknifræð-
ingur, Smyrlahrauni 54, Hafnarfirði
er fimmtugur í dag. Kona hans er
Hrafnhildur Lúthersdóttir. Þau
taka á móti gestum í Haukasalnum
við Flatahraun milh klukkan 18 og
21.
1962, sjómaður, en sambýliskona
hans er Sigrún Jónsdóttir og eiga
þaufiögurbörn.
Börn Sóleyjar og Bjarna eru Loft-
ur Vignir, f. 16.6.1965, kvæntur
Signýju Friðjónsdóttur og eiga þau
einn son; Margrét Ólöf, f. 3.3.1969,
húsmóöir, en sambýlismaður
hennar er Guðmundur Guðmunds-
son; Guðmundur Ragnar, f. 22.8.
1973, nemi.
Sóley átti tólf systkini og eru fiög-
ur þeirra á lífi. Þau eru Guðbrand-
ur, b. í Hveravík í Strandasýslu;
Sigvaldi, sjómaður á Akranesi;
Þorvaldur er stundar sjálfstæðan
atvinnurekstur á Akranesi; Loftur,
bifvélavirki í Garðabæ.
Foreldrar Sóleyjar voru Loftur
Torfason, f. 19.12.1892, d. 26.7.1965,
b. í Vík, og Hildur Gestsdóttir, f.
20.9.1896, d. 30.6.1984, húsfreyja.