Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
A&næli
Harald Unnar Haraldsson
Harald Unnar Haraldsson, aðstoö-
arvarðstjóri Lögreglu Kópavogs,
Unufelli.27, Reykjavík, er fertugur
ídag.
Starfsferill
Harald er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann útskrifaðist sem
búfræðingur úr Bændaskólanum á
Hvanneyri og síðar úr Lögreglu-
skólanum.
Hann vann hjá lögreglunni í Vest-
mannaeyjum 1971-1973, í Keflavík
1973-1976 og á Raufarhöfn 1977-1978.
Hann gerðist bóndi að Vesturkoti á
Skeiöum árin 1978-1983. Harald fór
aftur að vinna hjá lögreglunni árið
1983 er hann varð lögregluvarðstjóri
á Grundarflrði. Vann hann þar til
1988 er hann fór að vinna hjá lög-
reglunni í Kópavogi þar sem hann
starfar enn.
Fjölskylda
Harald kvæntist, 9.2.1971, Krist-
ínu Grétu G. Adolfsdóttur, f. 14.6.
1952, húsmóður. Foreldrar hennar
eru Adolf Theodórsson málara-
meistar, hann lést 23.4.1991, og
Margrét Ólafsdóttir húsmóðir. Þau
bjuggu lengst af í Reykjavík þar sem
Margrét býr enn.
Börn Haralds og Kristínar eru:
Unnur Gréta Haraldsdóttir, f. 3.3.
1972; Grettir Adolf Haraldsson, f.
29.10.1975; Kristinn Óskar Haralds-
son.f. 16.3.1980.
Harald átti einn son fyrir hjóna-
band, Harald Óskar Haraldsson, f.
17.3.1970.
Systkini Haralds eru: Sveinn
Trausti Harldsson, f. 27.1.1946,
gröfumaður, kona hans er Kristjana
Helgadóttir. Þau eiga tvær dætur
og eru búsett að Hraungerði í Aðal-
dal; Jóhannes M. Haraldsson, f. 17.2.
1944, bóndi, kona hans er Kolbrún
Úlfsdóttir, þau eiga saman einn son
og Jóhannes átti eina dóttur fyrir
hjónaband. Þau eru búsett að
Rauðuskriðu í Aðaldal; Halldóra
Guðrún Haraldsdóttir, f. 13.12.1948,
ræstitæknir, maður hennar er Ein-
ar Björgvinsson, þau eiga saman tvo
Harald Unnar Haraldsson.
syni og Halldóra á einn son frá því
fyrir hjónaband, þau eru búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Haralds eru Harald
Ragnar Jóhannesson, f. 4.8.1919, d.
23.3.1968, og Sveindís Sveinsdóttir,
f. 11.11.1922, d. 6.1.1989, húsmóðir.
Hún var ráðskona á Brjánsstööum
á Skeiðum í mörg ár. Þau bjuggu
lengst af í Reykjavík.
Harald verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Menning
Tvíræður dúett
í listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga
voru haldnir söngtónleikar þriðjudagskvöldið 9. þ.m.,
þar sem Signý Sæmundsdóttir sópran, Björk Jónsdótt-
ir messosópran og David Tutt píanóleikari tóku fyrir
einsöngs- og tvísöngslög eftir Berg, Brahms, Mend-
elssohn og íleiri klassísk-rómantíska meistara fyrir
troðfullu húsi og viö mikinn fögnuð tónleikagesta. Það
sakar ekki að geta þess hér strax, að tónleikarnir verða
endurteknir í kvöld, fimmtud. 11. júlí, og að betra er
að vera snemma á ferð en seint, ef menn vilja tryggja
sér sæti.
Signý hóf atlöguna með Sieben Fruhe Lieder Albans
Bergs í espressífum síðrómantískum stíl frá æskuár-
um þessa efnilega nemanda Schönbergs fyrir fyrri
heimsstyrjöld, áður en Alban gaf sig örtæninu („atóna-
lítetinu") á vald.
Mér er ekki kunnugt um, að þessi sjö lög, þótt frem-
ur stutt séu, hafi veriö í sérstöku uppáhaldi hjá íslensk-
um einsöngvurum, enda auðheyranlega allkrefjandi í
túlkun, aö ekki sé minnst á intónasjón. Og hvort sem
mönnum líkar raddgerð Signýjar eður ei, þá er a.m.k.
lítið út á hreinleikann að setja. Undirstöðuatriði - samt
furðu fágætt - sem bendir til mikilla möguleika Signýj-
ar á sviði nútímatónverka, þar sem meðalkalda-
lónsknapinn mundi heltast úr lest við fyrsta niundar-
stökkið. Auk þessa hefur Signý skýran framburð og
glæsilega hæð, en mætti á hinn bóginn e.t.v. leggja ögn
meiri rækt við lágu riðin og mörgu pé-in ásamt meiri
stuðningi þarna á djúpmiðunum.
Björk Jónsdóttir bættist við að loknum Berg í pólý-
fónísku’m en ferskum dúett eftir Heinrich Schuts, Wie
ein Rubin in feinem Golde (virðist einni kynslóð á
undan samtímanum í allt að því Buxtehude-anda sín-
um), og sungu þau Signý síðan annan tvísöng, Dite
almeno eftir uppáhaldstónskáld Beethovens, Cherub-
ini, með samstilltum glæsibrag, áður en Björk tókst á
við þrjú lög eftir Brahms, Die Mainacht, Von ewiger
Liebe og Stándchen (við ljóð Kuglers) með ágætum
þokka og hvað varðar Eilífðarástina - með töluverðu
drama. Þó að Björk virðist að öðru leyti nokkru óskól-
aðri, þá hefur hún jafnari raddbeitingu á neðra sviði
en Signý.
Hvorug söngkonan virtist hins vegar leggja mikla
áherslu á galdur hins „fölva“ hvíslsöngs, er toppnöfn-
in í ljóðasöng beita með sláandi árangri, þegar textinn
býður upp á eftirvæntingu og mystík. En kannski var
einmitt lítið um það í textum prógrammsins. Sem aft-
ur leiðir hugann að því, hvort ekki sé hægt að fara
einhvern „ágrips“-meðalveg við gerð tónleikaskrár,
þó að augljóslega sé varla hægt að prenta alla söng-
texta í heild. Að ekkert skuli koma fram um innihald
þeirra, verandi nær allir á þýsku og 30% auk þess
alltaf óskiljanleg í söng, jafnvel á móðurmáli, er hins
Signý Sæmundsdóttir, Björg Jónsdóttir og David Tutt.
Tónlist
Ríkarður Ö. Pálsson
vegar viss lítilsvirðing við áheyrendur og jafnvel flytj-
endur, þegar slíkar aðstæður valda því, að ýmsir til-
burðir söngvarans við textatúlkun fara fyrir lítið.
í sambandi við styrkleikabreytingarleg („dýna-
mísk“) tilþrif, eða skort þess arna, þá er kannski vert
að skrá hjá sér, að þrátt fyrir ágætan hljómburð í Sig-
urjónssafni virðist heyrðin í þéttsetnum sal í heldur
þurrari lagi fyrir söng. Slíkt býður þeirri hættu heim,
að söngvarinn treysti sér ekki niður fyir messopíanó
af ótta við að týnast.
David Tutt er að mörgu leyti ákjósanlegur meðleik-
ari. Þó sakna ég tvenns: Meiri rytmískrar snerpu (N.B.
ekki hraða) og skýrari kaílamóta, þegar tónskáldið
breytir um áferð, s.s. sterkari tilfmningar fyrir formi
og framvindu. Þó fylgdi hann söngkonunum oftast nær
vel í allviðamiklu prógrammi.
Þær stöllur enduðu söng sinn á þremur fallegum
dúettum eftir Mendelssohn og tvísöngslagi Brahms
við Die Schwestem eftir Mörike, sem eftir öllum sólar-
merkjum að dæma hefur verið texti gamansamur, þó
að ekki einusinni nærstaddur menntaskólakennari í
þýsku í 30 ár treysti sér til að heyra allt sem átti að
koma fram. Því þetta um nauðsyn textaágrips í tón-
leikaskrá.
En klappið varð samt mikið - og verðskuldað.
Þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á einn eða
annan hátt á 85 ára afmælinu þann 14.6. ’91.
Guð blessi ykkur öll.
Emíl Helgason
Hrafnístu, Reykjavík.
Myndgáta
-wv-
-vv
7*
' ' ^ANUAR. jq 8q
T*l Xt
7**^ —>.
ÞRÍf)3UDA&0R J
V'Ulíí M f Q V l 'K U DAú- U R
Huu
'0*5
JV>-
Andlát
Tapað fundið
Fress týndist í Hafnarfirði
Svartur og hvítur, smágerður högni tap-
aðist frá Hjallabraut 43 í Hafnarfirði á
mánudagskvöldið sl. Hann heitir Jan Si-
belius og svarar nafni. Ef einhver hefur
orðið var við hann eða veit hvar hann
er niðurkominn vinsamlegast látið vita í
síma 53277 eða 620388.
Elínborg Dagmar Sigurðardóttir lést
þriðjudaginn 9. júlí.
Jón Jónsson, Skagaströnd, lést í
Landakotsspítala 9. júlí.
Gróa Þorleifsdóttir, Skjólbraut la,
(áður Óðinsgötu 16b), lést á hjúkrun-
arheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
10. júlí.
Guðný Jónsdóttir, Hverfisgötu 39,
Hafnarfirði, lést á heimili sínu 9. júlí.
Ásta Gestsdóttir, Skólastíg 14a,
Stykkishólmi, lést í Borgarspítalan-
um 9. júli.____________________
Jarðarfarir
Kristín Sigurðardóttir frá Drápuhlíð,
verður jarðsungin frá Stykkishólms-
kirkju laugardaginn 13. júlí kl. 14.
Útfór Helgu Gúðrúnar Sigurðardótt-
ur, Sólgötu 5, ísafirði, sem lést í
Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði,
aðfaranótt 5. júlí sl., fer fram frá ísa-
fjaröarkapellu laugardaginn 13. júlí
kl. 14.
Útfór Þórarnar Jóhannssonar loft-
skeytamanns, Hlíðartúni 37, Höfn,
er lést 5. júlí, verður gerð frá Hafnar-
kirkju laugardaginn 13. júlí.
Útför Ólafs Þosteinssonar, Daltúni
29, Kópavogi, fer fram frá Bústaða-
kirkju fóstudaginn 12. júli kl. 13.30.
Guðrún Sveinsdóttir, sem lést í
Landspítalanum laugardaginn 6. júlí,
verður jarðsungin frá Lágafells-
kirkju, Mosfellsbæ, föstudaginn 12.
júlí kl. 14.
Soffia Alfreðsdóttir, Vallarbraut 15,
Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju föstudaginn 12. júlí
kl. 14.
Jón Hafliði Magnússon bóndi, Fornu-
ströndum, Vestur-Eyjafjallahreppi,
sem lést í Sjúkrahúsi Selfoss 7. júlí,
verður jarðsunginn frá Stóradals-
kirkju laugardaginn 13. júlí kl. 14.
Karl Friðrik Davíðsson, Látraseli 7,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 12. júlí
kl. 15.________________________
Tilkynningar
Hjólreiðakeppni
Hafnarfjarðar
í dag, 11. júlí, verður haldin hjólreiöa-
keppni í Hafnarfirði á vegum Æskulýðs-
■EVÞOR—
Myndgátan hér að ofan
lýsir nafnorði í ft.
Lausn gátu nr. 74:
Kvenskörungur
og tómstimdaráðs. Keppt verður í þrem-
ur flokkum: 8 og 9 ára, 10 og 11 ára og
12 ára og eldri. Skráning fer fram við
kirkjugaröinn í dag frá kl. 13 og keppnin
hefst strax að skráningu lokinni. Hjólaö
veröur sem leið liggur frá kirkjugarðin-
um, fram hjá Hvaleyrarvatni og inn í
Seldal. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu
þrjú sætin í hverjum aldursflokki en þaö
eru Olís og hjólreiðaverslunin Hvellur
sem styrkja keppnina. Skipuleggjendur
mótsins búast við um 150 þátttakendum
og jafnri og spennandi keppni í öllum
flokkum.
Opið hús í Norræna
húsinu
í kvöld, 11. júh, kl. 19.30 verður sögustund
í opnu húsi Norræna hússins. Eyvindur
Eiríksson, sem er þekktur fyrir frásagna-
hst sína, talar um og segir íslenskar þjóð-
sögur. Hann talar á sænsku. Eftir kaffi-
hlé veröur Sveitin milli sanda sýnd, kvik-
mynd Ósvaldar Knudsens. Myndin er
með norsku tali. Bókasafniö veröur opið
til kl. 22.
Fjöruhreinsun í Engey
Náttúruverndarfélag Suðvesturiands
stendur fyrir ferð út í Engey í kvöld, 11.
júlí, til að tína upp rusl á strönd eyjarinn-
ar. Sjálfboðaliðar óskast. Boðið verður
upp á fríar ferðir fram og til baka og
hressingu í lokin úti í eyju. Farið verður
frá Miðbakka við Grófarbryggju kl. 20
og kl. 21. Komið verður í land um mið-
nætti.
Tónleikar
Endurteknir Ijóðatónleikar
í Listasafni Sigurjóns
Mjög mikil aðsókn var að ljóðatónleikum
Signýjar Sæmundsdóttur og Bjarkar
Jónsdóttur við undirleik David Tutt í
fyrrakvöld í Listasafni Sigurjóns á Laug-
arnesi og varð fjöldi manns frá að hverfa.
Ákveðið hefur verið að endurtaka tón-
leikana í kvöld, 11. júlí, í Siguijónssafni
og hefiast þeir kl. 20.30. Miðapantanir
milh kl. 15-17 í síma 32906.
Rokkabillyband Reykja-
víkur á Púlsinum
í kvöld, 11. júh, leikur hin eldhressa
hfiómsveit, Rokkabillyband Reykjavík-
ur, í fyrsta sinn á Púlsinum. Tónleikarn-
ir verða hljóðritaðir með útgáfu í huga.
í tilefni þess fá fyrstu 30 gestir kvöldsins
frítt inn en miðaverði er stiht í hóf, að-
eins kr. 300. Jafnframt verður „happy
hour“ frá kl. 21-23. Eitt laganna, sem
verður tekið upp um kvöldið, verður
væntanlega gefið út fyrir verslunar-
mannahelgina. Hfiómsveitina skipa:
Tómas Tómasson, söngur, Sigfús Óttars-
son, trommur, Hafsteinn Valgarðsson,
kontrabassi, og Kristinn Svavarsson,
saxófónn.