Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Page 31
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
39
DV
Veiðivon
Ótrúlegt en satt:
Dró fyrir í sinni
eigin veiðiá
- Flekkudalsá
Misjafnt er veiðimannagaman
þessa dagana við veiðárnar en í þær
flestar vantar nú lax. í sumum þeirra
eru laxamir kannski nokkir tugir og
mættu vera miklu fleiri.
í Flekkudalsá hefur veiðin ekki
verið góð það sem af er veiðitíman-
um, hafa veiðst 30 laxar og 10 punda
sá stærsti.
Fyrir nokkrum dögum var að finna
fimm laxa í einum hylnum en þeir
eru þar ekki lengur, því bóndinn á
Harastöðum, Agnar Guðjónsson,
gerði sér htið fyrir eitt kvöldið fyrir
fáum dögum og dró á hylinn þar sem
þessa fimm laxa var að finna. Agnar
bóndi veiddi í netið fimm sinnum
meira en hollið sem hætti fyrir fáum
dögum í ánni. Það fékk aðeins einn
lax.
„Já, það er rétt að ég dró fyrir og
fékk fimm laxa. Það var ekkert ann-
að að gera en draga bara fyrir, ég
hef ekki fengið peninginn fyrir leig-
una. Veiðifélag Flekkudalsár hefur
ekki greitt mér það sem ég átti að
fá,“ sagði Agnar Guöjónsson bóndi í
gær í miðjum heyskapnum.
„Ég var ekki lengi að ná þessum
fimm löxum, enda er töluvert af laxi
að finna í ánni. Laxana seldi ég suður
og það verður jafnvel meira af slíku
ef ekki koma peningar bráðum.“
- Ætlarðu að bleyta netið aftur, Agn-
ar, næstu daga?
„Já, það verður gert innan fárra
daga ef peningamir koma ekki á
næstunni," sagði Agnar.
„Maðurinn er búinn að fá sitt, hann
fékk það greitt í öðru en peningum
og hann á ekkert inni hjá veiðifélag-
inu. Það er einn veiðistaður sem
hann getur veitt í án þess að nokkur
sjái hann,“ sagði Ólafur Pétursson,
bóndi í Galtartungu, formaður Veiði-
félags Flekkudalsár, í gær.
„Við ræddum við sýslumann um
málið og sjáum hvað setur. Það geng-
ur ekki að menn dragi fyrir í ánni,“
sagði Böðvar S. Björnsson, formaður
Stangaveiðifélags Akraness, í gær.
-G.Bender
Netaþjófnaður algengari
en „veióimenn" halda
Veiðin í mörgum veiðiám þessa dagana er ekki
góð og sumar ár hafa ekki marga laxa að geyma.
Fáir laxar hafa komið í árnar og veiðimenn eru
allt annað en hressir þessa dagana.
Netaveiði með ströndum landsins er meiri en
margan grunar og fyrir fáum dögum fannst net
fyrir utan Reykjanesið. í þessu neti voru tveir
laxar, 25 og 16 punda. Einhver hafði lagt þetta
net en enginn vitjað um það.
Bóndi lagði net í Flekkudalsá fyrir skömmu og
fékk fimm laxa.
Lax með netasár í Laxá á Ásum
í Miðfjarðará sveima tugir laxa um ána með
netasár og eru miklu tregari að taka agn veiði-
manna. Og í Laxá á Ásum hafa sést laxar með
netasár eins og veiðimenn hafa greint frá.
„Þetta er sama og við sáum á laxi í Laxá á
Ásum, svona ljót sár. En þar vorum við við veið-
ar fyrir fáum dögurn," sagði veiðimaður sem
veiddi í ánni fyrir skömmu og sá þar laxa með
netasár. Svo virðist sem þessi sár hafi sést í
nokkrum veiðiám á þessu svæöi, eins og við höf-
um greint frá í vikunni.
„Ekki voru þetta margir laxar, einn sem við
fengum til að taka var særður en það var ekki
eins ljótt og í Miðfjarðaránni," sagði veiðimaður-
innúrLaxááÁsum. -G.Bender
Það er ekki nóg aö vatnsleysi herji á
veiðiárnar þessa dagana heldur hafa
netasár sést á mörgum löxum i Miðfjarð-
ará. Þessi lax veiddist þar fyrir fáum
dögum og er Ijótur ásýndum.
FjöLmiðlar
ísland er landid
Aldrei þessu vant horfði ég á
megnið af kvölddagskrá ríkissjón-
varpsins í gærkvöldi. Ég veit eigin-
lega ekki afhverju. Ég er ekki vanur
að eyða heilu kvöldi í sj ón varpsgláp
og ailra síst yfir hásumarið þegar
dagskráin er með þynnsta móti.
Þáttur Sigrúnar Stefánsdóttur,
Hristu afþér slenið, jók enn á sam-
viskubitíð yfir því að vera ekki
hættur að reykja og farinn að
skokka. En það var þó ekki fyrr en
stjómandi þáttarins tók tali nokkur
fótluð ungmenni sem skipa sund-
landslið fatlaðra að ég fór að
skammast mín í alvöru fyrir hóglífið
og kyrrsetuna. Ég var ugglaust ekki
eini sjónvarpsáhorfandinn sem sá
þá í hendi mér það virðingarleysi
og það vanþakklæti sem maður allt-
of oft sýnir líkama sínum og heilsu
meðan allt leikur í lyndi.
Þýski jarðfræðiþátturinn um ís-
land bar þess augljós merki að þar
voru á ferð þremenningar sem
kunnu til verka. Þeir höfðu m.a. vit
á að koma við í Reykjanesi við Djúp
þar sem hverir í fiæöarmálinu hafa
skapað einstæö skilyröi fyrir sjávar-
lif í fjöruborðinu og þar rétt fyrir
utan. Þá var umfjöllun þeirra um
Mývatn einkar athyghsverð.
Einhver kynni að spyrja hvort ís-
lendingar þurfi þýska fræðsluþætti
um sitt eigiö land. Ég held hins veg-
ar að svo geti vel verið ef um er að
ræða vandaða þætti eins og í þessu
tilfelli. Auk þess kitlar þaö alltaf
óneitanlega íslenska hégómagirnd
að heyra útlendinga viðurkenna það
sem við sjálf höfum alltaf vitað, að
ekkert land er merkilega en ísland.
Þegar hér var komið sögu var dag-
skráin tæmd þfegar frá eru taldar
ellefufréttir og fremur bragðdauf
bandarísk sjónvarpsmynd í léttum
dúr sem ég sé ekki ástæðu til að
getaum nánar.
Kjartan Gunnar Kjartansson
EFST Á BAUGI:
I'SLI-XSIvA
ALFRÆÐI
OKDABOKIX
kreppa: viðsk. stig hagsveiflu sem ein-
kennist af meiri eða minni vannýtingu
framleiðsluþátta samfara samdrætti í
framleiðslu, minnkun fjárfestingar og
ágóða, verðfaili vöru og þjónustu, sam-
drætti í lánastarfsemi og tilfinnanlegu
atvinnuleysi.
kreppan mikla heimskreppan: al-
þjóðleg kreppa í efnahagsmálum; hófst
með verðhruni í kauphöllinni í New
York 23. okt. 1929 og varð alvarlegust
1932-33 en stóð víða út áratuginn. í
Bandar. var reynt að mæta k með New
Deal. í Evr. misstu Bretar forustu í
alþjóðaviðskiptum af völdum k og hún
stuðlaði að uppgangi nasismans í
Þýskal, Á ísl. stóð k til 1940 og kom
fram í sölutregðu á útfiutningsafurð-
um, gjaldeyrisskorti, samdrætti t at-
vinnulifi og miklu atvinnuleysi.
Veður
i dag verður fremur hæg, breytileg eða austlæg átt
á landinu. Viða bjartviðri um vestanvert landið en
skýjað og sums staðar smávæta norðanlands og
austan. Á Suðurlandi verður skýjað í dag en fer síð-
an að rigna i kvöld. Hiti verður á bilinu 9-16 stig. Á
hálendinu verður hæg, breytileg átt, skýjað og víða
lítilsháttar rigning. Hiti verður á bilinu 7-10 stig.
Akureyri súld 11
Egilsstaðir þoka 10
Keflavíkurflugvöllur lágþokubl. 10
Kirkjubæjarklaustur þoka 9
Raufarhöfn þoka 8
Reykjavik rigning 11
Vestmannaeyjar þoka 10
Bergen skýjað 13
Helsinki skýjað 16
Kaupmannahöfn léttskýjað 16
Osló skýjaö 15
Stokkhólmur léttskýjað 16
Þórshöfn rigning 11
Amsterdam léttskýjað 20
Barcelona heiðskírt 21
Berlin léttskýjað 19
Chicago hálfskýjað 21
Frankfurt léttskýjað 21
Glasgow mistur 18
Hamborg léttskýjað 18
London mistur 20
LosAngeles alskýjað 17
Lúxemborg léttskýjað 21
Malaga heiðskírt 19
Mallorca heiðskírt 20
Montreal heiðskírt 13
Nuuk þoka 4
Paris léttskýjað 20
Róm þokumóða 24
Valencia heiðskirt 20
Vin heiðskírt 20
Winnipeg alskýjað 22
Gengið
Gengisskráning nr. 129. -11. júlí 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 63,060 63,220 63,050
Pund 102,312 102,571 102,516
Kan. dollar 54,909 55,048 55,198
Dönsk kr. 8.9861 9,0089 9,0265
Norsk kr. 8,9156 8,9382 8,9388
Sænsk kr. 9,6121 9,6365 9,6517
Fi. mark 14,4683 14,5050 14,7158
Fra. franki 10,2499 10,2759 10,2914
Belg. franki 1,6889 1,6932 1,6936
Sviss. franki 40,0763 40,1779 40,4750
Holl. gyllini 30,8747 30,9530 30,9562
Þýskt mark 34,7620 34,8502 34,8680
Ít. líra 0,04672 0,04683 0,04685
Aust. sch. 4,9410 4,9536 4,9558
Port. escudo 0,4010 0,4020 0,3998
Spá. peseti 0,5540 0,5554 0,5562
Jap. yen 0,45523 0,45638 0,45654
irskt pund 93,067 93,303 93,330
SDR 82,8009 83,0110 82,9353
ECU 71,4627 71,6441 71,6563
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
10. júlí seldust alls 93,018 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0,020 10,00 10,00 10,00
Grálúða 0,650 78,00 78,00 78,00
Karfi 3,742 29,00 29,00 29,00
Lúða 0,440 308,73 245,00 330,00
Lýsa 0,024 20,00 20,00 20,00
Saltfiskflök 0,100 45,00 45,00 45,00
Siginn fiskur 0,012 100,00 100,00 100,00
Skarkoli 0,060 27,00 27,00 27,00
Skötuselur 0,020 385,00 385,00 385,00
Steinbítur 1,114 49,97 47,00 51,00
Tindabikkja 0,025 5,00 5,00 5,00
Þorskur, sl. 76,261 84,01 77,00 91,00
Þorskur, smár 4,816 74,00 74,00 74,00
Ufsi 1,110 53,39 48,00 56,00
Undirmál 1,342 68.00 68,00 68,00
Ýsa.sl. 3,209 84,87 53,00 97,00
Ýsuflök 0,072 280,00 280,00 280,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
10. júlí seldust alls 139,391 tonn.
Þorskur, stór 0,772 96,00 96,00 96,00
Smárþorskur 0,131 60,00 60,00 60,00
Smáufsi 0.491 53,00 53,00 53,00
Þorskur 48,859 83,53 80,00 84,00
Skötuselur 0,131 165,00 165,00 165,00
Ýsa 27,071 114,54 89,00 120,00
Ufsi 28,347 59,22 55,00 61,00
Steinbítur 0.781 47,22 47,00 49,00
Lúða 0,571 252,63 150,00 320,00
Langa 0,246 48,54 47,00 52,00
31,090 28,82 25,00 31,00
Blálanga 0,899 49,00 49,00 49,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
10. iúli seldust alls 93,400 tonn.
0,091 25,86 15,00 34,00
Hlýri/steinb. 0,097 15,00 15,00 15,00
0,020 1195,00 999,00 1195
0,073 73,62 73,00 77,00
Hlýri 0,037 46,00 46,«) 46,00
Sólkoli 0,060 66,00 66,00 66,00
0,248 48,77 48,00 52,00
1,331 70,00 70,00 70,00
Undirmál 0,156 48,31 30,00 54,00
0,506 48,60 45,00 50,00
0,262 295,51 100,00 440,00
0,553 264,83 140,00 400,00
1,181 58,68 55,00 60,00
7,571 32,40 30,00 35,00
Blálanga 1,241 49,71 49,00 50,00
1,044 36,66 33,00 40,00
Ufsi 37,743 58,81 35,00 62,00
4,553 101,88 76,00 117,00
35,440 89,15 30,00 100,00
I Blandað 1,193 41,63 28,00' 43,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900