Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1991, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991.
Mengunarslysið:
Sýnisuðurídag
„Við erum að fá sýni frá mengunar-
svæðinu suður um hádegisbil í dag.
Þegar í ljós kemur hvað þetta er
munu menn taka ákvarðanir í sam-
ræmi við það,“ sagði Páll Halldórs-
son hjá Siglingamálastofnun.
Starfsmenn Siglingamálastofnun-
ar héldu norður á Strandir í morgun
til að skoða mengunarstaöinn á milli
Bolungavíkur og Reykjaneshyrnu.
Umrætt sýni veröur rannsakað á
Hafrannsóknastofnun. Sagði Páll að
vonir stæðu til þess að niðurstöður
lægju fyrir í kvöld. -JSS
Vílluráfandi laxa-
torf a í Reykja-
víkurhöfn
Vart hefur orðið við laxatorfu í
Reykjavíkurhöfn. Stekkur laxinn og
buslar í yfirborðinu þar sem hann
heldur sig, í suðausturhorni hennar.
Að sögn starfsmanna Faxamarkaðar
varð laxagengdar fyrst vart í höfn-
inni fyrir nokkrum árum en hefur
síöan ágerst með hverju árinu. Ekki
er þó vitað til þess að hægt hafi verið
að koma nokkrum þessara villuráf-
andi laxa á land.
Að sögn Árna ísakssonar veiði-
málastjóra er nú mjög mikil laxa-
gengd við suðvesturströnd landsins
og sé það trúleg ástæða þess að lax-
inn er að þvælast inn í höfnina. Hann
segist þó ekki hafa trú á öðru en lax-
inn stoppi þar stutt við - annað væri
mjög óvenjulegt. Aðspurður sagði
hann Reykvíkingum stranglega
bannað að veiða þennan lax enda
laxveiðar í sjó ólöglegar með öllu.
„Þar fyrir utan býst ég ekki við að
hann taki vel þarna í höfninni," sagði
hann. -kaa
Enginn umsækjenda
erfráRaufarhöfn
Á fundi sveitarstjórnar í gærkvöldi
kom fram að 7 umsóknir hafa borist
um stöðu sveitarstjórans á Raufar-
höfn. Engin þeirra er frá innanbæj-
armanni. Allir umsækjenda hafa
óskað nafnleyndar. Ákvaröana í
málinu er að vænta á næstu dögum.
Eins og fram hefur komið í fréttum
var Júlíusi Hjörleifssyni, sem ráðinn
var sveitarstjóri frá og með 1. febrú-
ar, nýlega gert að segja upp. Hann
mun samkvæmt uppsögninni láta af
störfum þann 31. ágúst. -ÓTT
LeyfiSýnarskilyrt
Útvarpsréttarnefnd ræðir nú við
Sýn hf. vegna úthlutunar á rás _6.
Samkvæmt samningsdrögum má ís-
lenska útvarpsfélagið, sem rekur
Stöð 2, ekki eiga meirihluta í Sýn
eins og nú er. Póstur og sími úthlutar
leyfinu. -pj
LOKI
Þeir munu vera grút-
spældirá Ströndum!
Sjómenn segja grútinn
berast með hafísnum
- æöarungar drepast unnvörpum meðfram Homströndum og Ströndum
Ingibjörg Óðinsdóttir, DV, Hólmavík
„Hér áður var óhemjumikiö
fúgialíf en nú sést varla fugl,“ sagði
Guðmundur G. Jónsson, hrepp-
stjóri og bóndi í Munaðamesi, þeg-
ar DV heimsótti hann í gær. í fjöru-
boröínu við bæinn getur að líta
ófagra sjón; dauða æðarunga og
hvíta slikju sem hrannast upp og
myndar þykkar klessur. Inni i
sumum þeirra sést í dauðan æðar-
fugl sem ekki hefur verið nægilega
fljótur að forða sér.
„Það er alveg hörmulegt að horfa
upp á þetta," sagði Guðmundur.
Hann sagði blaðamönnum að grút-
urinn lyktaði eins og lýsi en þegar
kona hans hefði reynt að bræða
hann hefði þetta orðið að eins kon-
ar rjóma. Sævar, sonm Guðmund-
ar, varð fyrstur var við þennan
ófögnuð er hann gekk rekann síð-
astliðinn þriðjudag og sagðist hafa
séð óhemiumagn af dauöum fugli í
Qörunni.
Enginn hefur getað sagt fyrir víst
hvað hér er um að ræða. Rækjusjó-
menn sögðu þetta hins vegar vera
grút eða úrgang úr skipi sem borist
hefði til landsins með hafisnum.
Sjómennimir sögðust hafa séð
hvernig hafísinn ryddi grútnum á
undan sér til lands. Með honum
hefur einnig borist mikill reki.
„Rekinn kemur alla leiðfrá Rúss-
landi, grúturmn gæti þvi verið
kominn langt að,“ sagöi einn sjó-
maðurinn. Björn Árnason á Ás-
björgu ST 9 sagðist hafa séð hvítar
perlur í sjónum í Húnaflóadýpi á
leiðinni í land á þriðjudag. Fannst
honum liklegt að perlurnar heföu
legið i bugtinni á ísnum og safnast
þar saman. Guömundur Órn Ing-
ólfsson, sjómaður sem verið hefur
á handfærum, hélt því fram aö hér
væri um miklu meira magn að
ræða en menn óraði fyrir. Grútsins
hefur orðið vart allt frá Furufiröi
til Kollatjarðar, sem er skammt
norðan mynnis Hrútafjarðar.
Guðmundur í Munaðarnesi sagð-
ist eiga von á mönnum frá Siglinga-
málastofnun í dag til að rannsaka
grútinn. Þó enginn viti í raun hvað
hér er á ferðinni ber öllum saman
um að hér hefur átt sér stað hörmu-
legt mengunarslys.
-ÓTT
Fjárhundar í Hrunamannahreppi limlesta og tæta fé:
Hundarnir drápu 34
lömb og særðu tíu
Hann er glaðbeittur að sjá þessi litli hestamaður sem Ijósmyndari DV rakst
á í Laxnesi í góða veðrinu. Ekki vitum við um nafnið á reiðskjótanum en
knapinn er tveggja ára og heitir Kristófer. DV-mynd S
34 lömb hafa fundist limlest og
tætt á bæjunum Skipholti I og III og
að Kotlaugum í Hrunamannahreppi
í síðustu viku. 10 lömb til viðbótar,
frá bæjunum Skollagróf og Hauk-
holtum, hafa fundist slösuð. Ekki er
þó víst að öll þau lömb lifi.
Ljóst er að hundar í sveitinni eru
sökudólgamir. Tveir hundar hafa
þegar verið drepnir en talið er að
fleiri hundar hafi átt i hlut og er
þeirra leitað. Hér var um að ræða
svokallaða Skotablendinga. Féð var á
sameiginlegu en þó tiltölulega litlu
og afmörkuðu beitarlandi bænda í
hreppnum. Talsvert af fé á landinu
er undanflæmt og einnig vantar lömb
undir margar ær sem enginn veit um.
„Lömbin voru mjög illa bitin. Ég
hef tæplega séð lömb eins illa útleik-
in eftir hunda. Auk þess er þetta
óvenjumikið," sagði Loftur Þor-
steinsson, bóndi og oddviti í Hauk-
holtum, í samtali við DV.
,-,Hundarnir virtust hafa verið
komnir upp á gott lag með að drepa.
Þegar sást til hundanna virtust þeir
vera tveir um hvert lamb. Annar
beit í hálsinn á lambinu en hinn í
lærin. Viö urðum fyrst varir við að
hundar voru að tæta fé á miðviku-
dagskvöldið 3. júlí. Eftir það fannst
mikið af dauöum og særðum lömb-
um. Þetta er orðið tilfinnanlegt tjón.
Það er búið að drepa tvo hunda sem
voru staðnir að verki en þó er greini-
legt að fleiri voru valdir að þessu.
Við höfum verið að lýsa eftir öðrum
hundi," sagði Loftur.
Hann segir að bændur í sveitinni
telji sennilegt að skýringin á þessu
uppátæki hundanna sé að þeir hafi
verið á lóðaríi:
„Það er ekkert óalgengt að hundar,
sem safnast utan um tík, æsi hver
annan upp. Þannig geta meinlausir
hundar heima fyrir orðið valdir að
svona löguöu þegar þeir komast í
hóp,“ sagði Loftur.
Lýsingin á hinum eftirlýsta hundi
er eftirfarandi: Svartur, þó ekki
tinnusvartur, frekar stór og þykkur
með hvítt flangt lauf á nefi, nokkuð
loðinn og örlítið snepplóttur aftan til
á síðum og lærum, það er ekki alveg
genginn úr hárum. -ÓTT
Veðriðámorgun:
Rigningfram
undan
í fyrramálið kemur úrkomu-
svæði inn á austanvert landið úr
suðri með austan- og norðaustan-
átt. Búast má við talsverðri rign-
ingu, fyrst suðaustanlands og síö-
an norðaustanlands og norðan-
lands. Skúrir verða sunnanlands
en líklega verður þurrt á vestan-
verðu landinu og sums staðar
gæti sést til sólar. Hiti 8-15 stig.
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TMHUSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822